Corinne Guardiola skrifaði:
Bonjour, Ce modèle peut-il être réalisé avec des aiguilles droites? Je ne sais pas tricoter avec des aiguilles circulaires et je ne trouve aucun modèle. Merci
26.10.2018 - 18:03DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Guardiola, vous devez voir la lecon ICI. Bon tricot!
28.10.2018 - 10:46
Wenche skrifaði:
Hei Jeg er ferdig med økning i ragland og det står at jeg skal fortsette til arbeidet måler 29 cm. Skal jeg da fortsette med mønster A1 til jeg deler av til ermer eller skal jeg bare strikke perlestrikk
17.10.2018 - 13:23DROPS Design svaraði:
Hej Wenche, du fortsætter mønsteret til arbejdet måler 29 cm. God fornøjelse!
08.11.2018 - 10:13
Grasset Edith skrifaði:
A la fin de l’empiècement, lorsqu'on monte les mailles de dessous de manche, les 6 mailles de A1 qui encadrent les manches sont elles comptabilisées avec les manches ou avec le dos et le devant. Continue t on de les faire A1 ou au point de ble. Merci
29.09.2018 - 20:49DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Grasset, le dos et le devant se tricotent ensuite en rond, entièrement au point de blé, c'est-à-dire sans A.1. Bon tricot!
01.10.2018 - 08:32
Valérie P. skrifaði:
Bonjour, J'en suis au dos/devant et vous dites de faire 36 cm et de rabattre les mailles en faisant un jeté toutes les 4 mailles. 1/ Expliquez moi ce que veut dire faire des jetés toutes les 4 mailles en rabattant? 2/ Si on rabat à 36cm, avec les 29cm de l'empiècement, le pull ne fait que 65cm et non 70cm? Merci pour les réponses cordialement
18.09.2018 - 09:30DROPS Design svaraði:
Bonjour Valérie P., cette vidéo montre comment rabattre avec des jetés, soit ici: (rabattez 4 m, faites 1 jeté, rabattez le jeté comme une maille), répétez de (à) tout du long. La hauteur est indiquée depuis le rang de montage, posé à plat, le pull fera 5 cm de plus (épaules/encolure/raglan) cf schéma. Bon tricot!
18.09.2018 - 11:17
Astrid skrifaði:
Jeg ønsker at strikke denne model som lang cardigan. Kan jeg strikke den frem og tilbage i stedet for rundt? mvh Astrid
05.09.2018 - 16:03DROPS Design svaraði:
Hei Astrid. Denne modellen finnes som en cardigan her. Om du ønsker den lenger er det ikke noe i veien for at du strikker til ønsket lengde. Vær da obs på at garnmengden vil avvike fra oppskriften. God fornøyelse.
06.09.2018 - 08:23Radwa skrifaði:
Soft and comfy ❤
23.06.2018 - 14:33
Simple Mind#simplemindsweater |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa með laskalínu úr 3 þráðum DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í perluprjóni. Stærð S - XXXL.
DROPS 197-33 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. TVÖFALT PERLUPRJÓN (tvöfalt á hæðina): UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-*. UMFERÐ 2: sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. UMFERÐ 3: brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur og sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. UMFERÐ 4: Eins og umferð 2. Endurtakið umferð 1 til 4. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvert A.1 (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Aukið svona út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo að ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur inn í perluprjón (tvöfalt á hæðina). ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 74 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 5) = 14,8. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 15. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með prjónamerki þannig: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 4 lykkjur perluprjón (prjónamerki situr á mitt á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjónar. Allt stykkið er prjónað úr 3 þráðum Kid-Silk. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 68-72-76-76-80-88 lykkjur á stuttan hringprjón 5 með 1 þræði Kid-Silk í hverjum lit (= 3 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið nú stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 6 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING (jafnt yfir) = 74-78-82-82-86-94 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið. Skiptið yfir á hringprjón 6. BERUSTYKKI: Prjónið nú mynstur þannig: 8-9-10-10-11-13 lykkjur PERLUPRJÓN (tvöfalt á hæðina) – sjá útskýring að ofan, (= hálft bakstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.1 (= 6 lykkjur), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 8 lykkjur perluprjón (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.1, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 17-19-21-21-23-27 lykkjur perluprjón (= framstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.1, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 8 lykkjur perluprjón (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.1, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 9-10-11-11-12-14 lykkjur perluprjón (= hálft bakstykki). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Fyrsta útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, er nú lokið = 82-86-90-90-94-102 lykkjur. Haldið svona áfram og aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 22-23-25-27-29-31 sinnum = 250-262-282-298-318-342 lykkjur. Haldið síðan áfram þar til stykkið mælist 27-29-31-33-34-36 cm frá uppfitjunarkanti og niður við miðju að aftan. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið eins og áður yfir fyrstu 33-35-38-40-43-47 lykkjur (= hálft bakstykki), fitjið upp 5-5-7-7-9-9 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), setjið næstu 58-60-64-68-72-76 lykkjur á þráð (= ermi), prjónið næstu 67-71-77-81-87-95 lykkjur (= framstykki), fitjið upp 5-5-7-7-9-9 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), setjið næstu 58-60-64-68-72-76 lykkjur á þráð (= ermi), prjónið þær 34-36-39-41-44-48 lykkjur sem eftir eru (= hálft bakstykki). HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 144-152-168-176-192-208 lykkjur. Haldið áfram hringinn í perluprjóni (tvöfalt á hæðina) eins og áður þar til stykkið mælist 36-36-36-36-37-37cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju (uppslátturinn er felldur af eins og eigin lykkja). Stykkið mælist ca 68-70-72-74-76-78 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 58-60-64-68-72-76 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón/sokkaprjón 6 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 5-5-7-7-9-9 nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 63-65-71-75-81-85 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í miðju af 5-5-7-7-9-9 nýju lykkjum í hlið undir ermi. Haldið áfram í perluprjóni hringinn. Þegar stykkið mælist 2 cm er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 3.-3.-annarri hverri, annarri hverri, annarri hverri, hverri umferð 4-9-4-11-24-1 sinnum og í 4.-4.-3.-3.-3.- annarri hverri umferð 14-9-17-11-1-25 sinnum sinnum = 27-29-29-31-31-33 lykkjur. Haldið áfram með perluprjón þar til stykkið mælist 35-33-32-30-29-28 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari hálsmáls og lengra berustykkis). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 5-7-7-9-9-11 lykkjur jafnt yfir = 32-36-36-40-40-44 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 5 og prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Passið að affellingarkanturinn verði ekki stífur! Ermin mælist ca 39-37-36-34-33-32 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #simplemindsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 197-33
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.