DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 17160.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Simple Mind Jacket

Prjónuð peysa með laskalínu úr 3 þráðum DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í perluprjóni. Stærð S - XXXL.

DROPS 197-34
DROPS Design: Mynstur ks-136
Garnflokkur A + A + A eða D
-------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100-125-125-125-150-150 g litur 05, bleikfjólublár
100-125-125-125-150-150 g litur 12, beige
100-125-125-125-150-150 g litur 15, dökk brúnn

PRJÓNFESTA:
14 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með 3 perluprjóni og 3 þráðum Kid-Silk = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 6: fyrir perluprjón.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 6: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stykkið með perluprjóni.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5: fyrir stroff.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 5: lengd 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptið yfir á fínni prjóna.

DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 522: 5-5-5-5-6-6 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 17160.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu.
Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

TVÖFALT PERLUPRJÓN (tvöfalt á hæðina):
UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-*.
UMFERÐ 2: sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur.
UMFERÐ 3: brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur og sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur.
UMFERÐ 4: Eins og umferð 2.
Endurtakið umferð 1 til 4.

LASKALÍNA:
Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvert A.1 (= 8 lykkjur fleiri í umferð).
Aukið svona út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur inn í perluprjón (tvöfalt á hæðina).

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 74 lykkjur), mínus kanta að framan og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 7) = 9,4.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 9. og 10. hverja lykkju og ekki er aukið út yfir kanta að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA (á við um ermi):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með prjónamerki þannig: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 4 lykkjur perluprjón (prjónamerki situr á mitt á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

HNAPPAGAT (ofan frá og niður):
Fellið af fyrir hnappagati í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni (frá réttu) þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið næstu 2 lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkjuna slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroffið í kraga mælist ca 3 cm. Fellið síðan af fyrir 4-4-4-4-5-5 næstu með ca 10 cm millibili.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjónar. Allt stykkið er prjónað úr 3 þráðum Kid-Silk.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 74-78-82-82-86-94 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði Kid-Silk af hverjum lit (= 3 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið nú stroff frá réttu þannig: 4 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni, 2 lykkjur slétt, 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff þar til stykkið mælist 4 cm – Munið eftir HNAPPAGAT! Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 7 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING (jafnt yfir) = 81-85-89-89-93-101 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt til baka frá röngu. Skiptið yfir á hringprjón 6.

BERUSTYKKI:
Prjónið nú mynstur frá réttu þannig: 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 8-9-10-10-11-13 lykkjur PERLUPRJÓN (tvöfalt á hæðina) – sjá útskýringu að ofan, (= vinstra framstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.1 (= 6 lykkjur), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 8 lykkjur perluprjón (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.1, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 17-19-21-21-23-27 lykkjur perluprjón (= bakstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.1, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 8 lykkjur perluprjón (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.1, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 8-9-10-10-11-13 lykkjur perluprjón (= hægra framstykki), 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Fyrsta útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, er nú lokið = 89-93-97-97-101-109 lykkjur. Haldið svona áfram og aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 22-23-25-27-29-31 sinnum = 257-269-289-305-325-349 lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist 27-29-31-33-34-36 cm frá uppfitjunarkanti og niður meðfram kanti við miðju að framan.
Næsta umferð frá réttu er prjónuð þannig: Prjónið eins og áður yfir fyrstu 37-39-42-44-47-51 lykkjur (= vinstra framstykki), fitjið upp 5-5-7-7-9-9 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), setjið næstu 58-60-64-68-72-76 lykkjur á þráð (= ermi), prjónið næstu 67-71-77-81-87-95 lykkjur (= bakstykki), fitjið upp 5-5-7-7-9-9 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), setjið næstu 58-60-64-68-72-76 lykkjur á þráð (= ermi), prjónið næstu 37-39-42-44-47-51 lykkjur (= hægra framstykki). HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 151-159-175-183-199-215 lykkjur. Haldið áfram með 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni og perluprjóni (tvöfalt á hæðina) eins og áður þar til stykkið mælist 36-36-36-36-37-37cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að slá einu sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju (uppslátturinn er felldur af eins og eigin lykkja). Stykkið mælist ca 68-70-72-74-76-78 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 58-60-64-68-72-76 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón/sokkaprjón 6 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 5-5-7-7-9-9 nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 63-65-71-75-81-85 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í miðju af 5-5-7-7-9-9 nýjum lykkjum í hlið undir ermi. Haldið áfram í perluprjóni hringinn. Þegar stykkið mælist 2 cm er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum svona í 3.-3.-2.-2.-2. hverri umferð 4-9-4-11-24-1 sinnum og í 4.-4.-3.-3.-3.-2. hverri umferð 14-9-17-11-1-25 sinnum = 27-29-29-31-31-33 lykkjur. Haldið áfram í perluprjóni þar til stykkið mælist 35-33-32-30-29-28 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari hálsmáls og lengra berustykkis). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 5-7-7-9-9-11 lykkjur jafnt yfir = 32-36-36-40-40-44 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 5 og prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm.
Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Passið að affellingarkanturinn verði ekki stífur! Ermin mælist ca 39-37-36-34-33-32 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 197-34

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (14)

country flag Simone wrote:

Hej :) Den ser så flot ud den jakke, og jeg vil strikke den til min mormor i fødselsdags gave :D MEN.. nu har jeg lavet to strikke prøver både på pind 6 og pind 7, men jeg får alt for mange masker på 10 cm, selv når jeg prøver at strikke løst.. er det virkelig kun 14 masker man skal have i bredden? Kan jeg gå en eller et par størrelser op, og hold mig til pind str. 6, så jakken bliver mindre? :)

29.06.2023 - 17:04

country flag Simone wrote:

Hej :) Den ser så flot ud den jakke, og jeg vil strikke den til min mormor i fødselsdags gave :D MEN.. nu har jeg lavet to strikke prøver både på pind 6 og pind 7, men jeg får alt for mange masker på 10 cm, selv når jeg prøver at strikke løst.. er det virkelig kun 14 masker man skal have i bredden? Kan jeg gå en eller et par størrelser op, og hold mig til pind str. 6, så jakken bliver mindre? :)

29.06.2023 - 17:03

country flag Marie Serero wrote:

J'ai relevé les mailles des manches = 65, comment tricoter en rond le pont de blé avec un nombre impair de m? pour les diminutions, est ce 4 m avant le marqueur du debut du tour ? merci pour votre aide

25.06.2023 - 12:10

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Serero, le point de blé se tricote en rond comme en rangs: vous tricotez 2 rangs à suivre les mailles comme elles se présentent (ex 1 m end, 1 m env) puis 2 rangs en inversant (1 m env, 1 m end), en commençant au milieu sous la manche - le motif ne va pas tomber juste car on a un nombre de mailles impair, n'hésitez pas à relever 1 m en plus si vous voulez que votre nombre de mailles tombe juste, il vous faudra peut être ajuster le nombre de diminutions pour que le point de blé tombe juste jusqu'à la fin. Bon tricot!

26.06.2023 - 08:52

country flag Marie wrote:

J'ai repris les mailles de la manche +les 5m taille m comment tricoter en rond sur les 65 m au point de blé? Pour les dim c'est 4m avant le marqueur du debut du rg? Merci pour votre aide

25.06.2023 - 12:07

country flag Connie Bedard wrote:

The yoke instructions are confusing me. Is there a simple break down of raglan ie, 4 band 8-13 right front , increase 15 right sleeve, increase 30 back increase, 15 left sleeve increase, 8-13 left front 4 band all the A.1 (= I don’t know what it means. Thank you

07.02.2023 - 06:13

DROPS Design answered:

Dear Mrs Bedard, A.1 is the diagram for the 6 raglan stitches worked (P2, K2, P2, seen from RS / K2, P2, K2, from WS), you will increase for raglan on every row from RS (= on every other row) on each side of these 6 stitches as explained under RAGLAN - repeat these increases the number of times required for your size. Happy knitting

07.02.2023 - 10:32

country flag Rita Van Den Doel wrote:

Heel vaak zie ik mooie truien om te breien op pinterest,met ook de daarvoor bedoelde wol. Ik vind het jammer dat de truien meestal van boven naar beneden worden gebruikt en dan ook nog eens op een rondbreinaald.

31.01.2021 - 19:07

country flag Marion wrote:

Hallo, auf dem Bild mit der jüngeren Frau wirkt der Halsausschnitt größer als bei der älteren Frau. Ich möchte ihne gerne so stricken wie bei der älteren Frau. Für welchen Ausschnitt ist die Anleitung geschrieben?

25.02.2019 - 11:43

DROPS Design answered:

Liebe Marion, beide Frauen tragen hier dieselbe Jacke. Viel Spaß beim stricken!

25.02.2019 - 12:44

country flag Rolijn wrote:

Hallo! Mir ist nicht ganz deutlich wie viel Wolle ich für Größe S benötige. 900 gramm? Vielen Dank für eine kurze Info! :-)

29.01.2019 - 12:45

DROPS Design answered:

Liebe Frau Rolijn, Für Grösse S brauchen Sie 100 g in jede Farbe 05, 12 und 15, ie 4 Knäuel Farbe 05 + 4 Knäuel Farbe 12 + 4 Knäuel Farbe 15 in DROPS Kid-Silk. Viel Spaß beim stricken!

29.01.2019 - 12:54

country flag Pascale wrote:

Bonjour, Je m'étonne de la petite quantité de laine demandée pour ce modèle. Sachant que le fils est tricoté triple, cela fait un gilet avec uniquement 3 grosses pelotes (triple fils) soit environ 167 m X 3 = 501 m. N'y-a-t-il pas une erreur? Belle journée

16.11.2018 - 08:23

DROPS Design answered:

Bonjour Pascale, DROPS Kid-Silk se présente sous forme de pelotes de 25 g/200 m. Ainsi, en taille S, il vous faudra un total de 300 g soit 300/25 g la pelote = 12 pelotes (4 de chaque couleur) de 200 m chacune. Bon tricot!

16.11.2018 - 09:57

country flag Karin wrote:

Har följt instruktionerna för ok och börjat på raglan. Efter första ökningen står det ”Fortsätt så och öka till raglan på vartannat varv totalt 22-23-25-27-29-31 ggr”. Fortsätt hur då? Med samma instruktioner för ok och raglan? Nästa omgång har jag ju 8 nya maskor, så den initiala instruktionen för ok och raglan funkar ju inte.

31.10.2018 - 19:48

DROPS Design answered:

Hej Karin, jo du ökar alltid på samma ställe (på varje sida av A.1) de nya maskorna stickas in i moss-stickningen. Lycka till!

01.11.2018 - 15:37