Hegedűs Jánosné skrifaði:
Az A5 nem szimetrikus az A7-el. Az A 5 sorokban egymás fölött a 8 soros diagramban 2 sor fordított szem, még az A 7. 8 soros diagramban 3 sor fordított van. Így a két oldal nem egyezik!
26.08.2024 - 18:22
Annalisa skrifaði:
Buongiorno, sto eseguendo il modello indicato, ma dalle foto sembra che le spalle siano rifinite con un motivo a zig zag che non è indicato negli schemi illustrati. È possibile avere le istruzioni? Grazie mille
22.11.2023 - 23:05DROPS Design svaraði:
Buonasera Annalisa, tutte le istruzioni per lavorare il modello sono riportate, non ci sono spiegazioni aggiuntive necessarie. Buon lavoro!
26.11.2023 - 23:22
VALERIE COTE skrifaði:
Bonjour, question concernant les diminutions #2 Dos & Devant si je comprend bien, nous devons diminué à chaque 4 cm 3mailles on répète ceci 7 fois. Ce qui devrait être une diminution de 21 mailles et non pas 24 (166m - 4m= 162m - dim#2 = 141 et non pas 138 tel qu'indiqué. Devons-nous putôt diminué 8 fois 3 mailles? de plus, est-ce qu'on diminue seulement le 1er fil marqueur ou au 2, car si c'est au 2, là non plus ça ne fonctionne pas. merci
27.05.2023 - 20:18DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Cote, on doit diminuer 4 mailles à chaque fois (1 maille de chaque côté de chaque fil marqueur comme indiqué sous DIMINUTIONS-2 (dos & devant): ); et ce 7 fois au total, vous aviez (en taille L) 194 mailles - 28 mailles (7 fois 4 mailles) = il reste 166 mailles. bon tricot!
30.05.2023 - 10:33
Dawn Banner skrifaði:
I’m still confused! So on A5 I work row 3 but on A7 I work row 2? Is this right?
02.07.2022 - 10:02DROPS Design svaraði:
Dear Dawn, sorry, it was typo, you work the 3rd row in both charts. Happy knitting!
02.07.2022 - 16:27
Dawn Banner skrifaði:
I am totally baffled by this pattern! So, the first row on the back piece is on the wrong side and is row 2 on the chart reading left to right is A7, Purl, then A5. Next row , right side reading right to left is A7 (work 2 stitches in one stitch (twice) Yarn over, Knit 2 together) A6, B6, A5 (K4) Next row, Wrong side, reading left to right A5 (yarn over K2 tog, work 2 stitches in one stitch twice, A6B, A6A, A7 (Cast off 1 stitch, twice, K 4). Is this right? I’m totally confused!
27.06.2022 - 10:05DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Banner, First row is worked from WS as you wrote, but next row from RS will be worked as follows: A.5 (work now row 3), decrease 1 (armhole - see decrease tip-3), knit 0 to 12 sts (see size) , then work A.6A over 48-60 sts, A.6B (3 sts), 0 to 12 sts in stocking stitch, decrease 1 stitch (armhole), and finish with A.7 (2nd row). From WS: A.7, purl, A.6B, repeat A.6A, purl, A.5. Can this help?
27.06.2022 - 15:11
Hanne skrifaði:
Mangler mønster til ærmegabet, kan se på billedet at der er strikket et mønster, men har ikke kunnet finde vejledningen
21.03.2021 - 20:40
Pauline Semb skrifaði:
Hei! Holder på med bakstykket og jeg blir så forvirret av A.5 og A.7. Skal jeg alltid starte fra venstre når A.7 strikkes fra vrangen? Og er det vare første gang fra retten man strikker 3 masker etter felling? Jeg er på 2.pinne fra retten ( mener det er linje nr. 5 i A.5 og A.7 og linje nr. 3 i A.6. Har nå strikket A.5 linje nr.5, fellt en maske, men nå får jeg ikke A.6 til å stemme??
21.05.2020 - 22:05DROPS Design svaraði:
Hej Pauline, sæt et mærke på hver side af A.6, det maskeantal forandres ikke, det er kun de yderste masker i hver side som går over 4-6 masker ifølge diagrammerne. Sørg for at du altid lukker de 2 yderste masker af ifølge diagrammet, i starten af pinden. God fornøjelse!
29.05.2020 - 09:57
Jessicah skrifaði:
What are the finished measurements? I just want to make sure I'm picking the right size and I didnt see them. Thank you :)
04.05.2020 - 01:36DROPS Design svaraði:
Hi Jessicah, There is a diagram at the bottom of the page with all the measurements for each size. Happy knitting!
04.05.2020 - 08:01
Lieve Samyn skrifaði:
Zou je hier ook mouwtjes kunnen inzetten ? leuk patroontje ! bedankt
31.03.2020 - 10:34DROPS Design svaraði:
Dag Lieve Samyn,
Je zou mouwtjes uit een ander patroon kunnen nemen met ongeveer dezelfde afmetingen van het armsgat. En dan zou je het telpatroon ietsje aan moeten passen, bij voorbeeld in plaats van A.5 en A.7 een ribbelsteek breien oid.
05.05.2020 - 14:53
Anika skrifaði:
Liebes Drops team, ich bin gerade dabei das Rückenteil in Größe L zu stricken. Hier schreibt ihr, dass ich bei einer Länge von 62 cm die mittleren 29 Maschen (Halsausschnitt) abketten soll. Dann wird jede Schulter einzeln weitergeschrickt. Weiter schreibt ihr, dass ich wiederum bei einer Gesamtlänge von ebenfalls 62 cm abketten soll. Da das Vorderteil auch eine Gesamtlänge von 62 cm hat, gehe ich davon aus, dass der Halsausschnitt beim Rückenteil bei ca. 60 cm gearbeitet werden muss?
29.03.2020 - 13:17DROPS Design svaraði:
Liebe Anika, die mittleren 29 Maschen für den Halsausschnitt würde ich dann 2 cm früher (nach 60 cm) abketten, so stimmt die gesamte Länge. Unser designteam wird das mal schauen. Viel Spaß beim stricken!
03.04.2020 - 14:17
Rocky Bay#rockybaytop |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||
Prjónaður toppur með gatamynstri úr DROPS Paris. Stærð S – XXXL.
DROPS 190-16 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.7. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 204 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 38) = 5,3. Í þessu dæmi þá eru prjónaðar ca 4 og 5. hver lykkja saman. ÚRTAKA-2 (á við um fram- og bakstykki): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), prjónið 2 lykkjur slétt saman. ÚRTAKA-3 (á við um handveg): Fækkið lykkjum innan við A.5/A.7 í hvorri hlið. Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum á eftir A.5 þannig: Takið næstu lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. Fækkið lykkjum á undan A.7 þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan A.7: Prjónið 2 lykkjur slétt saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna upp að handveg, síðan er framstykkið og bakstykkið prjónað fram og til baka hvort fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 204-221-238-255-272-289 lykkjur á hringprjón 5 með Paris. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan eftir A.1 (= 12-13-14-15-16-17 mynstureiningar á breidd). Prjónið A.1 3 sinnum á hæðina. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 38-43-44-45-42-39 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚRTAKA-1 = 166-178-194-210-230-250 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, 1 í byrjun á umferð og 1 eftir 83-89-97-105-115-125 lykkjur (= hliðar). Þegar stykkið mælist 8 cm er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í hliðum (= 4 lykkjur færri) – LESIÐ ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum með 4-4-4-4-4½-4½ cm millibili alls 7 sinnum = 138-150-166-182-202-222 lykkjur. Þegar stykkið mælist 33-34-35-36-37-38 cm prjónið A.2 yfir allar lykkjur, í síðustu umferð í A.2 er fækkað um 0-0-4-2-4-0 lykkjur jafnt yfir = 138-150-162-180-198-222 lykkjur. Prjónið A.3, í síðustu umferð í A.3 er aukið út um 0-0-4-2-4-0 lykkjur jafnt yfir = 138-150-166-182-202-222 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið garðaprjón yfir fyrstu 7-7-8-8-9-10 lykkjur, A.4 yfir næstu 55-61-67-75-83-91 lykkjur (endið með 1 lykkju slétt), garðaprjón yfir næstu 14-14-16-16-18-20 lykkjur, A.4 yfir næstu 55-61-67-75-83-91 lykkjur og endið með 7-7-8-8-9-10 lykkjur garðaprjón. Prjónið A.4 1 sinni á hæðina (haldið áfram með garðaprjón í hvorri hlið). Síðan er næsta umferð prjónuð þannig: Fellið af fyrstu 3-3-4-4-5-6 lykkjur, prjónið 63-69-75-83-91-99 lykkjur, fellið af næstu 6-6-8-8-10-12 lykkjur, prjónið 63-69-75-83-91-99 lykkjur slétt og fellið af síðustu 3-3-4-4-5-6 lykkjur. Prjónið fram- og bakstykki til loka fram og til baka hvort fyrir sig. BAKSTYKKI: = 63-69-75-83-91-99 lykkjur. Prjónið síðan þannig, fyrsta umferð er prjónuð frá röngu: A.7, byrjið á 2. umferð í mynstri (frá vinstri hlið í mynsturteikningu) (= 4 lykkjur), 55-61-67-75-83-91 lykkjur brugðið, A.5 (byrjið á 2. umferð í mynstri). Næsta umferð er prjónuð þannig – frá réttu: A.5, fækkið um 1 lykkju – lesið ÚRTAKA-3, prjónið 0-3-3-7-8-12 lykkjur sléttprjón, A.6 A yfir næstu 48-48-54-54-60-60 lykkjur, A.6 B (= 3 lykkjur), 0-3-3-7-8-12 lykkjur sléttprjón, fækkið um 1 lykkju, A.7. Haldið áfram með þetta mynstur og fækkið lykkjum í hverri umferð frá réttu 0-3-3-7-8-12 sinnum til viðbótar = 61-61-67-67-73-73 lykkjur. Haldið áfram með þetta mynstur þar til stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm, fellið af miðju 25-25-29-29-33-33 lykkjur. Hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umferð er felld af 1 lykkja frá hálsmáli = 17-17-18-18-19-19 lykkjur eftir á hvorri öxl. ATH: Þær lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstri við háls þegar lykkjum er fækkað, prjónið þær í sléttprjóni. Fellið af þegar stykkið mælist 58-60-62-64-66-68 cm. FRAMSTYKKI: = 63-69-75-83-91-99 lykkjur. Prjónið eins og bakstykki þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm = 61-61-67-67-73-73 lykkjur. Setjið nú miðju 19-19-23-23-27-27 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsi þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 2 sinnum = 17-17-18-18-19-19 lykkjur eftir á öxl – ATH: Þær lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstri við hálsmál þegar lykkjum er fækkað, prjónið þær í sléttprjóni. Haldið áfram með mynstur eins og áður. Fellið af þegar stykkið mælist 58-60-62-64-66-68 cm. Endurtakið á hinni öxlinni. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma, saumið kant í kant í ystu lykkjuna til að koma í veg fyrir að saumurinn verði of þykkur. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp 65 til 80 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur á þræði) á stuttan hringprjón 5. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, fellið síðan af með sléttum lykkjum. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #rockybaytop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 190-16
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.