DROPS Belle
DROPS Belle
53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör
frá 638.00 kr /50g
DROPS SS24

Strawberry Delight

Heklað poncho / peysa með gatamynstri úr DROPS Belle. Stykkið er heklað ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.

DROPS 190-9
DROPS Design: Mynstur vs-043
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: S/M – L/XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS BELLE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
400-400-450-500-550-600 g litur 11, bleikfjólublár
350-400-400-450-450-500 g litur 03, ljós beige

DROPS HEKLUNÁL NR 4,5 – eða þá stærð sem þarf til að 16 stuðlar og 9 umferðir verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Belle
DROPS Belle
53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör
frá 638.00 kr /50g

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun á hverri umferð með stuðlum, skiptið út fyrsta stuðli með 3 loftlykkjum.
Umferðin endar með 1 keðjulykkju í loftlykkju í byrjun á umferð. Mynsturteikning A.1 sýnir hvernig hver umferð byrjar og mynsturteikning A.4 sýnir hvernig hver umferð endar, keðjulykkjan er hekluð í 3. loftlykkju í byrjun á umferð, 3 loftlykkjurnar koma til skiptis í stað fyrsta og síðasta stuðul í umferð.

RENDUR:
UMFERÐ 1: Heklið með bleikfjólublár – lesið LITASKIPTI!
UMFERÐ 2: Heklið með ljós beige.
Endurtakið umferð 1 og 2 þrisvar sinnum.
UMFEÐR 7 og 8: Heklið með bleikfjólublár.
UMFERÐ 9 og 10: Heklið með ljós beige.
Heklið síðan þannig:
Heklið 3 umferðir með bleikfjólublár, heklið 3 umferðir með ljós beige.
Heklið 4 umferðir með bleikfjólublár, heklið 4 umferðir með ljós beige. Haldið svona áfram, þ.e.a.s. heklið 1 umferð fleiri með hvorum lit til loka.
Þegar það verða of löng hopp á milli randa verður að klippa þráðinn frá og festa.

LITASKIPTI:
Til að fá fallega litaskiptingu þegar skipt er um lit er síðasta keðjulykkjan í umferð hekluð með nýja litnum þannig: Stingið heklunálinni í síðustu loftlykkju frá byrjun á umferð, sækið nýja þráðinn, bregðið þræðinum um heklunálina með nýja litum og dragið í gegnum lykkjuna á heklunálinni.

ÚRTAKA (á við um ermi):
Stillið af þannig að lykkjum er fækkað í umferð 1 eða 3 í A.2a. Fækkið um 1 stuðlahóp með því að hoppa yfir fyrstu loftlykkju í fyrstu endurtekningu af A.2a. Næsta umferð er hekluð eins og áður, en nú er aftur heklaður stuðlahópur á milli 2 stuðlahópa þar sem hoppað var yfir loftlykkju (= 1 stuðlahópur færri). Í næsta skipti sem lykkjum er fækkað, hoppar síðasta loftlykkjan í síðustu endurtekningunni af A.2a yfir. Næsta umferð er hekluð eins og áður, en nú er ekki heklaður stuðlahópur á milli 2 stuðlahópa þar sem hoppað var yfir loftlykkju (= 1 stuðlahópur færri).
Fækkið lykkjum svona, þ.e.a.s. fækkið lykkjum til skiptist í byrjun og í lok á umferð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PONCHO / PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring, ofan frá og niður. Aukið er út við miðju að framan, við miðju að aftan og mitt á hvorri ermi. Stykkið skiptist upp fyrir ermar og fram- og bakstykki, fram- og bakstykki er síðan heklað í hring með útaukningum við miðju að framan/miðju að aftan eins og áður. Ermar eru heklaðar í hring í lokin.

BERUSTYKKI:
Heklið 107-107-125-125 loftlykkjur með heklunál 4,5 með litnum bleikfjólublár og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju.
UMFERÐ 1 (heklið með litnum bleikfjólublár): Heklið 3 loftlykkjur (= 1 stuðull) í fyrstu loftlykkju – lesið HEKLLEIÐBEININGAR, heklið 1 stuðul í hverja af næstu 1-1-5-5 loftlykkjur, * hoppið yfir 1 loftlykkju, 1 stuðull í hverja af næstu 6 loftlykkjur *, endurtakið frá *-* og endið með keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð = 92-92-108-108 stuðlar.

UMFERÐ 2 (heklið með litnum bleikfjólublár – jafngildir fyrstu umferð í A.1 til A.5 merkt með stjörnu): (umferð byrjar í skiptingunni á milli erma og bakstykkis).
Heklið * 1 stuðul í hvern af næstu 38-38-46-46 stuðlum (= bakstykki/framstykki), heklið 2 stuðla í hvern af næstu 8 stuðlum (= 8 stuðlar fleiri) *, heklið frá *-* 1 sinni til viðbótar = 108-108-124-124 stuðlar.

Stykkið er síðan heklað í RENDUR – sjá útskýringu að ofan, þannig:
UMFERÐ 3 (jafngildir 1. umferð í röndum og 2. umferð í A.1 til A.5): Heklið A.1 yfir fyrstu 4 stuðla, A.2 yfir næstu 12 stuðla (= 3 sinnum á breidd), heklið A.3 yfir næstu 3 stuðla (= horn við miðju að aftan), * A.2 yfir næstu 24-24-28-28 stuðla (= 6-6-7-7 sinnum á breidd), A.5 yfir næstu 3 stuðla (= mitt á öxl) *, A.2 yfir næstu 24-24-28-28 stuðla (= 6-6-7-7 sinnum á breidd), A.3 yfir næstu 3 stuðla (= horn við miðju að framan), heklið frá *-* 1 sinni til viðbótar, heklið A.2 yfir næstu 4-4-8-8 stuðla og endið með A.4 yfir síðustu 4 stuðla = 32-32-36-36 loftlykkjubogar með 1 fastalykkju á milli hverra.

Haldið svona áfram með mynstur, þegar A.1 til A.5 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina (þ.e.a.s. þegar heklaðar hafa verið alls 5 umferðir með stuðlahópum) eru 44-44-48-48 stuðlahópar í síðustu umferð. Endurtakið A.1a til A.5a.
ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Aukið út um 1 stuðlahóp í hverri einingu A.3a í hverri umferð. Aukið út um 1 stuðlahóp í 3. hverri umferð í hverri einingu A.5a. Í 3. hverri umferð sem er hekluð hefur verið aukið út um alls 8 stuðlahópa í stykkinu, útauknar lykkjur eru heklaðar jafnóðum í A.2a. Haldið áfram þar til heklaðar hafa verið 20-23-26-29 umferðir með stuðlahópum í A.1a til A.5a á hæðina. Nú eru 84-92-104-112 stuðlahópar/loftlykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 24-28-31-34 cm. Stykkið skiptist nú í fram- og bakstykki/ermar.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Klippið þráðinn frá. Teljið 14-16-18-20 loftlykkjur frá miðju, séð frá réttu frá miðju að aftan og út að hlið/öxl (án loftlykkja við miðju að aftan), heklið 1 keðjulykkju um 14.-16.-18.-20. loftlykkju, heklið 2. umferð af A.1a (= 3 loftlykkjur, heklið 2 stuðla um sömu loftlykkju), heklið 6 loftlykkjur (= undir ermi), hoppið yfir 13-13-15-15 loftlykkjur og 14-14-16-16 stuðlahópar (= ermi), um næstu loftlykkju er heklað A.2a áfram eins og áður, heklið A.2a og A.3a eins og áður þar til heklað hefur verið um 14-16-18-20 loftlykkjur fram hjá miðju loftlykkju að framan, heklið 6 loftlykkjur (= undir ermi), hoppið yfir 13-13-15-15 loftlykkjur og 14-14-16-16 stuðlahópar (= ermi), heklið A.2a og A.3a eins og áður þar til 1 loftlykkja er eftir, endið með 2. umferð af A.4a um sama boga og keðjulykkja í byrjun á umferð = alls 60-68-76-84 stuðlahópar (meðtaldir stuðlahópar við miðju að framan og miðju að aftan) og 6 loftlykkjur undir hvorri ermi. Næsta umferð er hekluð þannig: Heklið A.1a um 6 loftlykkjur undir ermi, haldið áfram með A.2a og A.3a eins og áður að 6 loftlykkjum undir annarri ermi, heklið A.2a um 6 loftlykkjur undir ermi 1 sinni, síða er mynstur heklað eins og áður út umferðina. Þ.e.a.s. haldið áfram að auka út við miðju að framan og að aftan með A.3a, umferðin byrjar með A.1a og endar með A.4a og aðrar lykkjur eru heklaðar eins og A.2a. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist ca 89-91-93-95 cm, mælt frá öxl og niður að horni við miðju að framan. Klippið frá og festið enda.

ERMI:
Ermar eru heklaðar í hring með litnum ljós beige.
Byrjið í fyrstu loftlykkju sem hoppað var yfir þar sem stykkið skiptist við ermar og fram- og bakstykki, heklið 1 keðjulykkju um þessa loftlykkju, heklið 2. umferð af A.1a (= 3 loftlykkjur, heklið 2 stuðla um sömu loftlykkju), heklið A.2a í hverja og eina af 12-12-14-14 loftlykkjum/13-13-15-15 stuðlahópar sem hoppað var yfir, heklið 6 loftlykkjur mitt undir ermi og endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð. Haldið áfram með A.1a og A.2a í næstu umferð, nú er endað með einni mynstureiningu af A.4a um 6 loftlykkjur sem heklaðar voru undir ermi = 14-14-16-16 mynstureiningar af A.1a/A.2a/A.4a. Haldið áfram með þetta mynstur. Þegar stykkið mælist 3 cm er fækkað um 1 stuðlahóp undir ermi eftir A.1/ á undan A.4 – lesið ÚRTAKA! Fækkið lykkjum svona með 3-3-2-2 cm millibili alls 3 sinnum = 11-11-13-13 stuðlahópar. Klippið frá og festið þegar ermin mælist 20-18-14-11 cm frá skiptingu fyrir fram- og bakstykki/ermar. Heklið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR.
Saumið saman op undir ermum.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 07.03.2022
3. UMFERÐ:... heklið A.2 yfir næstu 4-4-8-8 stuðla og endið með A.4 yfir síðustu 4 stuðla = 32-32-36-36 loftlykkjubogar með 1 fastalykkju á milli hverra.

Mynstur

symbols = fastalykkja
symbols = stuðull í lykkju
symbols = stuðull í loftlykkju/loftlykkjuboga
symbols = keðjulykkja
symbols = loftlykkja
symbols = fysta umferð er útskýrð í uppskrift
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 190-9

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (47)

country flag Salma wrote:

Wie soll ich A1.a bis A5.a wiederholen, wenn A1.a bis A4.a jeweils aus 4 Runden (in der Höhe) bestehen, A5.a aber aus 6 Runden besteht?

24.03.2024 - 08:34

DROPS Design answered:

Liebe Salma, A.1 bis A.5 sind jeweils 6 Runden für alle Diagramme, dann wiederholen Sie die 4 Reihen A.1a bis A.4a und wiederholen Sie einfach A.5a in der Höhe, dh wenn die 4 Reihen A.1a-A.4a Fertig sind, häkeln Sie ab 1. Reihe wieder und gleichzeitig häkeln Sie A.5a weiter. Viel Spaß beim Häkeln!

02.04.2024 - 09:09

country flag Sharon wrote:

Please could you clarify for me. The round 2 increases, should they be at the front and back of the piece, or on the shoulders? Many thanks.

30.12.2023 - 20:56

DROPS Design answered:

Dear Sharon, these increases are made on the shoulders. Happy crocheting!

31.12.2023 - 10:46

country flag Emily Scott wrote:

What is the point of the spacing of the increases in Round 2 of the yoke? Why are they bunched up in an awkward spot on the opposite side of the front and back of the garment? It doesn't seem to make any difference in the shaping of the garment later on in the pattern, and the increases being all together means that the yoke on mine won't lay flat.

01.11.2023 - 21:28

DROPS Design answered:

Dear Mrs Scott, on this round you will just work with dc increasing on mid front and on mid back with 2 dc in each of the 8 dc on mid back/mid front. this row is the one with a star in A.1/A.5, that's just a dc row with increases. Happy crocheting!

02.11.2023 - 17:36

country flag Maria wrote:

Nel giro 2, dove si indica di eseguire 2 maglie alte in ognuna delle 8 maglie alte successive (= 8 maglie alte aumentate) si ottengono 16 maglie. Sono le 16 maglie delle maniche? Se si nel centro deve di queste deve essere eseguito il motivo A5 giusto. Grazie

22.07.2023 - 09:55

country flag Lilian wrote:

Am embarking on this beautiful Tunic but the pattern looks challenging all the same ,lets do this!

16.11.2022 - 14:28

country flag Maren wrote:

3. RUNDE: 1x A.1 + 3x A.2 + 1x A.3 + 6x A.2 + 1x A.5 + 6x A.2 + 1x A.3 + 6x A.2 + 1x A.5 + 1x A.2 + 1x A.4 => rechnerisch: 28 Bögen + feste Masche (nicht 32). Wo liegt mein Fehler? Sollen schon Stäbchengruppen statt Luftmaschen gehäkelt werden?

27.10.2022 - 17:25

DROPS Design answered:

Liebe Maren, am Ende dieser Runde sind es 2 Lufmaschenbogen in jedem A.2 und in jedem A.5, so haben Sie: A.1x1, A.2x3, A.3x2, A.2x6, A.5x2, A.2x6, A.3x2, A.2x6, A.5x2,A.2x1, A.4x1=1+3+2+6+2+6+2+6+2+1+1=32 Luftmaschenbogen. Viel Spaß beim häkeln!

28.10.2022 - 14:48

country flag Eileen Niclasen wrote:

Jeg ville også gerne vide om man kan få opskriften med ord istedent for diagram?

25.04.2022 - 23:31

DROPS Design answered:

Hej Eileen, det har vi desværre ikke, men længere nede i spørgsmål og svar har vi beskrevet de først 3 rækker, har du først hæklet dem, så er jeg sikker på at du kan fortsætte :)

26.04.2022 - 13:21

country flag Vivi Kaae wrote:

Findes opskriften med ord i stedet for diagram, jeg er desværre en af dem der ikke forstår diagram og har brug for en ordforklaring? Mvh Vivi

25.04.2022 - 21:33

DROPS Design answered:

Hej Vivi, det har vi desværre ikke, men længere nede i spørgsmål og svar har vi beskrevet de først 3 rækker, har du først hæklet dem, så er jeg sikker på at du kan fortsætte :)

26.04.2022 - 13:21

country flag Claudia Gualandi wrote:

Anch'io sono bloccata al giro 3 come molte altre hanno già scritto. È inutile che ripetiate quanto già è scritto nelle spiegazioni: non si capisce!!! Per cortesia spiegate in modo chiaro che cosa di deve fare. Non si capisce proprio!!!

10.04.2022 - 10:47

DROPS Design answered:

Buonasera Claudia, per il giro 3 deve ripetere la sequenza dei diagrammi come indicato nelle spiegazioni. Se dovesse aver bisogno di un'assistenza più personalizzata può rivolgersi al suo rivenditore DROPS di fiducia. Buon lavoro!

11.04.2022 - 21:38

country flag Eva wrote:

Jeg kan på ingen måde få det til at give mening at jeg skal have 32 luftmaskebuer når jeg er færdig med omg 3. Jeg ender med 28 buer - Hvor går den galt, for syntes jeg har talt efter i den skrevne opskrift og lander på samme antal?

04.04.2022 - 00:28

DROPS Design answered:

Hei Eva. Har du telt at det i diagram A.3 og A.5 er 2 luftmasker (3 staver+1 luftmaske + 3 staver + 1 luftmaske)? Lett å overse (jeg gjorde det først). Da får du 32 luftmaskebuer :) mvh DROPS Design

04.04.2022 - 13:18