Toni skrifaði:
Hi, this is a first time attempting a drops design pattern. I've inserted my marker threads but am now stuck at readingredients what to do next. Could someone explain it me please?
15.10.2018 - 14:25DROPS Design svaraði:
Dear Toni, when the marker are inserted, work next round as follows: K1, A.1 (= 2 stitches), A.2 over the next 24-36 sts (see size = 4-6 repetitions of 6 sts), A.3 (= 3 sts), K2 (marker thread is in the middle of these 2 sts), A.1 (= 2 sts), A.2 (= 6 sts), A.3 (= 3 sts), K2 (marker thread is in the middle of these 2 sts), 1 YO, K 29-41 sts, 1 YO, K2 (marker thread is in the middle of these 2 sts), A.1 (= 2 sts), A.2 (= 6 sts), A.3 (= 3 sts), K11 (marker thread at beginning of round is here) = you have increased for the raglan for the first time, continue increasing as under RAGLAN every other round. Happy knitting!
15.10.2018 - 15:59
Summer Romance#summerromancetop |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónaður toppur með gatamynstri, laskalínu, prjónaður ofan frá og niður. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr DROPS Paris.
DROPS 188-22 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. LASKALÍNA: Aukið út um 8 lykkjur í umferð. Á bakhlið og ermum er útaukning teiknuð inn í mynsturteikningu A.1 og A.3. Á framstykki er aukið út þannig: Á eftir prjónamerki: Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Á undan prjónamerki: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, prjónamerki er staðsett hér. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo ekki myndist gat! ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 82 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 6) = 13,7. Í þessu dæmi þá er aukið út eftir ca 14. hverja lykkju. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Endurtakið í hinni hliðinni (= 4 lykkjur fleiri í umferð). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. Gatamynstur er prjónað á ermum og bakstykki. Framstykki er prjónað í sléttprjóni. BERUSTYKKI: Fitjið upp 82-85-88-92-95-99 lykkjur á stuttan hringprjón 4,5 með Paris. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 6-3-0-8-17-13 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir) = 88-88-88-100-112-112 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5. Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið án þess að prjóna þannig: Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð (= í skiptingu á milli bakstykkis og vinstri ermi), setjið eitt prjónamerki á eftir nýjar 31-31-31-37-43-43 lykkjur (= bakstykki), setjið eitt prjónamerki á eftir 13 nýjar lykkjur (= hægri ermi), setjið eitt prjónamerki á eftir nýjar 31-31-31-37-43-43 lykkjur (= framstykki), nú eru 13 lykkjur eftir á vinstri ermi. Prjónið mynstur þannig: 1 lykkja slétt, A.1 (= 2 lykkjur), A.2 yfir næstu 24-24-24-30-36-36 lykkjur (= 4-4-4-5-6-6 mynstureiningar með 6 lykkjum), A.3 (= 3 lykkjur), 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), A.1 (= 2 lykkjur), A.2 (= 6 lykkjur), A.3 (= 3 lykkjur), 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 29-29-29-35-41-41 lykkjur, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), A.1 (= 2 lykkjur), A.2 (= 6 lykkjur), A.3 (= 3 lykkjur), 1 lykkja slétt (prjónamerki í byrjun á umferð er hér). Fyrsta útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, er nú lokið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram með mynstrið hringinn og aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 17-20-22-24-26-28 sinnum (meðtalin fyrsta útaukning sem útskýrð var að ofan = 224-248-264-292-320-336 lykkjur. Þegar allar útaukningar hafa verið gerðar fyrir laskalínu og umferð með ör í þinni stærð í A.1-A.1 er lokið mælist stykkið ca 16-19-21-23-25-26 cm frá uppfitjunarkanti og niður mitt framan á topp. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið næstu umferð í mynsturteikningu (= umferð með sléttum lykkjum) yfir fyrstu 65-71-75-85-95-99 lykkjur, setjið næstu 47-53-57-61-65-69 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur í hlið undir ermi, prjónið sléttprjón eins og áður yfir næstu 65-71-75-85-95-99 lykkjur, setjið næstu 47-53-57-61-65-69 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur í hlið undir ermum. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 146-158-170-190-214-226 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermum í hvorri hlið (= 4-4-5-5-6-7 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerkin). Byrjið umferð í vinstri hlið og haldið áfram með mynstur hringinn þannig: 6-3-6-2-5-2 lykkjur slétt, haldið áfram með A.2 yfir næstu 60-72-72-90-96-108 lykkjur (= 10-12-12-15-16-18 mynstureiningar með 6 lykkjum), 7-4-7-3-6-3 lykkjur slétt (prjónamerki í hlið er hér), prjónið sléttar lykkjur yfir 73-79-85-95-107-113 lykkjur á framstykki. Haldið svona áfram með mynstur hringinn. Þegar stykkið mælist 4 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið – lesið ÚTAUKNING-2. Aukið svona út í 4. hverri umferð alls 17 sinnum = 214-226-238-258-282-294 lykkjur. JAFNFRAMT í hvert skipti sem aukið hefur verið um 6 nýjar lykkjur í hvorri hlið eru prjónaðar 2 mynstureiningar fleiri á breiddina á bakstykki. Á framstykki eru nýjar lykkjur prjónaðar slétt. Þegar stykkið mælist 36-35-35-35-35-36 cm skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið 4 umferðir garðaprjón. Fellið af, en passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Ef affellingarkanturinn verður stífur er hægt að fella af með ½ númeri grófari prjónum. Stykkið mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. ERMI: = 47-53-57-61-65-69 lykkjur. Setjið lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjón 5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-14 nýju lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermum = 55-61-67-71-77-83 lykkjur. Byrjið umferð mitt undir ermum og prjónið mynstur í hring þannig: 0-3-0-2-5-2 lykkjur slétt, A.2 alls 9-9-11-11-11-13 sinnum (ATH: Passið uppá að mynstrið á ermi haldið áfram eins og áður og að byrjað sé í sléttri umferð í mynstri), 1-4-1-3-6-3 lykkjur slétt. Haldið svona áfram hringinn í 2 cm. Skiptið yfir á sokkaprjón 4,5. Prjónið 4 umferðir garðaprjón. Fellið af, en passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Ef affellingarkanturinn verður stífur er hægt að fella af með ½ númeri grófari prjónum. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #summerromancetop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 188-22
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.