Lillian Tang-Petersen skrifaði:
Kan ikke få opskriften til at passe. Når jeg har hæklet 10 rækker = ca de første 3 diagrammer, har jeg 21 buer, der står at når alle 4 diagrammer, er hæklet, skal der være 17 buer, hvad gør jeg forkert? Hilsen Lillian Tang-Petersen
06.01.2020 - 20:43DROPS Design svaraði:
Hei Lillian. Usikker på hva du gjør galt, men på dette sjalet har vi en step-by-step beskrivelse som du kan finne under Gratis oppskrifter / DROPS -Along - scroll ned til Magic Summer og klikk på hintene. Du kan også ta en titt på alle hjelpevideoene til dette sjalet. De finner du nederst på oppskriften. God Fornøyelse!
03.02.2020 - 14:32
Kasia skrifaði:
Czy w schemacie A4a w rzędzie 2,3,4 nie dodaje się oczek? Bo gdy dodaje dopiero w rzędzie 5 ze strzałką to zawija się i rogi lecą w dół.
09.11.2019 - 00:02DROPS Design svaraði:
Witaj Kasiu! Być może przerabiasz zbyt ścisło. Pamiętaj też, że schemat A.4a pokazuje jak zaczynać każdy rząd i jest wykonywany dodatkowo poza oczkami schematu A.4b. Koniecznie zobacz szczegółową wskazówkę jak wykonać tą część szala TUTAJ. Znajdziesz tam nie tylko opis i zdjęcia poszczególnych etapów (rzędów), ale również instrukcje video. Miłej pracy!
09.11.2019 - 08:22
Jessika Anderberg skrifaði:
Hej Har fastnat på varv 24 av ränderna. Jag har 88 st bågar att virka i. Hur jag än räknar så får jag inte rätt antal fm (det ska ju bli 288) Vad var jag gjort för del?
09.04.2019 - 15:09DROPS Design svaraði:
Hei Jessika. Du har 88 luftmaskebuer. På rad 24 i diagram A.5b skal du hekle 3 fastmasker i hver luftmaskebue. 88 x 3 = 264 fastmasker. I tillegg skal du øke 24 fastmasker på raden (ved å hekle 4 fastmasker, isteden for 3, på hver side av merkene). 264 + 24 = 288. God fornøyelse
10.04.2019 - 14:51
Mari Cruz skrifaði:
Hola,muchas gracias por dar la oportunidad de hacer vuestras maravillas en crochet,me gustaría si puede ser que me mandarais el patrón del chal Drop 190 todo junto,me es muy difícil sacarlo todo por separado,os agradecería enormemente si me pudierais poner el patrón entero del chal o bien me lo enviarais yo lo pagaría,el porte,muchas gracias y un abrazo,espero vuestra contestación.
22.03.2019 - 02:43DROPS Design svaraði:
Hola Mari Cruz. No hacemos envíos personalizados. Puedes acudir a una tienda especializada de la marca Drops para que te ayuden con los diagramas.
13.04.2019 - 21:00
Tina skrifaði:
Ik wil deze omslagdoek maken in 1 kleur. Kun je mij zeggen hoeveel garen ik dan nodig heb. Alvast bedankt
16.02.2019 - 20:48DROPS Design svaraði:
Dag Tina,
Dat is niet precies bekend, maar op basis van andere omslagdoeken van vergelijkbaar garen schat ik in dat je ongeveer 500 gram nodig hebt als je hem in één kleur maakt.
17.02.2019 - 19:24
Yolande skrifaði:
Dank u voor het patroon, ik wil het graag maken in wol, voor de winter met dezelfde haaknaald dikte moet ik dan ergens rekening mee houden tijdens het maken? Vriendelijke groet yolande
02.11.2018 - 20:46DROPS Design svaraði:
Dag Yolande,
Deze omslagdoek kan ook prima met wol gemaakt worden. DROPS Karisma of DROPS Lima is hier bijvoorbeeld wel geschikt voor want dit heeft ongeveer dezelfde garendikte.
04.11.2018 - 20:18
Hengie Hengelmann skrifaði:
Bonjour tout au début des explis il est indiqué de commencer le rang par une étoile je ne comprends pas ce que ça veut dire merci pour votre aide
04.10.2018 - 12:53DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Hengelmann, vous commencez les diagrammes par le rang avec une étoile = en bas à droite des diagrammes, et vous lisez le diagramme de droite à gauche sur l'endroit (de gauche à droite sur l'envers). Retrouvez ici en images et en vidéos comment crocheter ce châle. Bon crochet!
04.10.2018 - 13:13
🇪🇸 Eva skrifaði:
Estoy de acuerdo con el primer comentario. El diseño es precioso pero muy complicado para seguir. Pasa lo mismo con cualquiera de vuestros diseños, por favor, cambiar el sistema. Gracias
01.09.2018 - 18:11Noa skrifaði:
Hi, although this is a lovely shawl and I am an experienced crochetier, all your patterns are so difficult to follow. Dividing the pattern diagram vertically instead of horizontally just makes it hard for no reason!
17.08.2018 - 09:05Silvia skrifaði:
Preciosismo!!!!
28.07.2018 - 21:36
Magic Summer#magicsummershawl |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Heklað sjal með áferð og röndum, heklað ofan frá og niður. Stykkið er heklað úr DROPS Cotton Merino.
DROPS 190-1 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.7. A.4a, A.5a, A.6a og A.7a sýnir hvernig umferðin byrjar. ATH: Byrjun á umferð er teiknuð yfir hverja aðra í sömu mynsturteikningu þó að það sé heklað til skiptis í hægri og vinstri hlið á sjali og ekki fyrir ofan hverja aðra. LITASKIPTI: Þegar skipt er um lit er heklað þannig: Heklið síðustu lykkjuna í umferð með fyrsta lit, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, skiptið yfir í næsta lit og dragið þráðinn í gegnum síðustu lykkju með nýja litnum, eftir þetta er næsta umferð hekluð. RENDUR: Klippt er frá eftir hverja umferð, ef næsta umferð er ekki hekluð í sama lit. Endar eru festið í hlið í lokin. UMFERÐ 1-3: púður UMFERÐ 4: sinnepsgulur UMFERÐ 5-7: beige UMFERÐ 8-9: púður UMFERÐ 10-12: beige UMFERÐ 13: sinnep UMFERÐ 14-15: púður UMFERÐ 16-18: beige UMFERÐ 19: sinnep UMFERÐ 20: púður UMFERÐ 21: kórall UMFERÐ 22: kirsuber UMFERÐ 23: kórall UMFERÐ 24: púður UMFERÐ 25-27: sægrænn UMFERÐ 28: púður UMFERÐ 29: sinnep UMFERÐ 30: rauður UMFERÐ 31: púður UMFERÐ 32: gallabuxnablár UMFERÐ 33: vínrauður UMFERÐ 34: ísblár UMFERÐ 35: kórall UMFERÐ 36: ísblár UMFERÐ 37-39: púður UMFERÐ 40: sinnep UMFERÐ 41: beige UMFERÐ 42: ísblár UMFERÐ 43: kirsuber UMFERÐ 44: púður UMFERÐ 45: rauður UMFERÐ 46: kórall UMFERÐ 47: rauður UMFERÐ 48: gallabuxnablár UMFERÐ 49: vínrauður UMFERÐ 50: gallabuxnablár UMFERÐ 51-54: púður Umferð 55-56: sinnep ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað fram og til baka ofan frá og niður. SJAL: Heklið 5 loftlykkjur með heklunál 4 með litnum púður og tengið þær saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju sem var hekluð. Byrjið í umferð með stjörnu og heklið MYNSTUR – sjá útskýringu að ofan, eftir mynsturteikningu A.1. Þegar mynsturteikning hefur verið hekluð til loka, heklið áfram þannig: A.2a, A.2b og A.2c. Þegar mynsturteikning hefur verið hekluð til loka á hæðina eru 17 loftlykkjubogar í umferð. Stykkið mælist ca 10 cm frá fyrsta loftlykkjuhring, mælt mitt í sjali. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Heklið nú mynstur þannig: Heklið A.3a um fyrsta loftlykkjuboga, A.3b um hvern af næstu 7 loftlykkjubogum, A.3c um næsta loftlykkjuboga (= miðju loftlykkjurbogi á sjali), A.3b um hvern og einn af næstu 7 loftlykkjubogum, A.3d um síðasta loftlykkjuboga. Þegar mynsturteikning hefur verið hekluð til loka á hæðina eru 48 loftlykkjubogar í umferð. Stykkið mælist ca 19 cm frá fyrsta loftlykkjuhring, mælt mitt í sjali. Heklið nú áfram RENDUR – sjá útskýringu að ofan, og mynstur A.4b (A.4a sýnir nú hvernig hver umferð byrjar og heklað er sem viðbót við lykkjurnar í A.4b. Lesið LITASKIPTI! ATH: Til að það verði auðveldara að sjá yfir hvaða umferð er hekluð í mynstri og rendur, setjið eitt prjónamerki í þessa umferð og næsta umferð er talin sem 1. umferð. Þ.e.a.s. fyrsta umferð í A.4b = 1. umferð í röndum. UMFERÐ 1 (= rétta): Heklið * 2 stuðla um fyrsta/næsta loftlykkjuboga, 3 stuðlar um næsta loftlykkjuboga *, heklið frá *-* út umferðina = 120 stuðlar. Setjið 12 prjónamerki í stykkið án þess að hekla þannig: Setjið eitt prjónamerki eftir fyrstu 5 stuðla, síðan er hvert af næstu 11 prjónamerkjum sett með 10 lykkju millibili, það eru nú 5 stuðlar eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki. Prjónamerkin fylgja með í stykkinu! Haldið síðan áfram frá 2. umferð í röndum og 2. umferð í A.4a/A.4b, JAFNFRAMT er aukið út hvoru megin við prjónamerkin, í umferð með ör þannig: ÖR-1 (5. umferð): Aukið út um 1 stuðul hvoru megin við prjónamerkin með því að hekla 1 auka stuðul um loftlykkjuboga (= 24 lykkjur fleiri) = 144 stuðlar. ÖR-2 (7. umferð): Aukið út um 1 fastalykkju hvoru megin við prjónamerkin með því að hekla 2 fastalykkjur í sömu lykkju (= 24 lykkjur fleiri) = 168 fastalykkjur. ÖR-3 (10. umferð): Aukið út um 1 stuðul hvoru megin við prjónamerkin með því að hekla 2 stuðla í eina lykkju (= 24 lykkjur fleiri) = 192 stuðlar. ÖR-4 (12. umferð): Aukið út um 1 fastalykkju hvoru megin við prjónamerkin með því að hekla 2 fastalykkjur í eina lykkju (= 24 lykkjur fleiri) = 216 fastalykkjur. ÖR-5 (16. umferð): Aukið út um 1 stuðul hvoru megin við prjónamerkin með því að hekla 2 stuðla í eina lykkju (= 24 lykkjur fleiri) = 240 stuðlar. ÖR-6 (18. umferð): Aukið út um 1 fastalykkju hvoru megin við prjónamerkin með því að hekla 2 fastalykkjur í eina lykkju (= 24 lykkjur fleiri) = 264 fastalykkjur. Heklið síðan afgang af umferð í mynsturteikningu A.4a/A.4b. Þegar 20.umferðin hefur verið hekluð til loka mælist stykkið ca 39 cm frá fyrsta loftlykkjuhring, mælt mitt í sjali. Heklið síðan áfram í röndum og mynstri A.5b (A.5a sýnir hvernig hver umferð byrjar og er hekluð sem viðbót við lykkjur í A.5b). ÖR-7 (= 24. umferð): Aukið út um 1 fastalykkju hvoru megin við prjónamerkin með því að hekla 1 auka fastalykkju um loftlykkjuboga (= 24 lykkjur fleiri) = 288 fastalykkjur. ÖR-8 (= 26. umferð): Aukið út um 1 fastalykkju hvoru megin við prjónamerkin með því að hekla 2 fastalykkjur í eina lykkju (= 24 lykkjur fleiri) = 312 fastalykkjur. ÖR-9 (= 28. umferð): Aukið út um 1 stuðul hvoru megin við prjónamerkin með því að hekla 2 stuðla í eina lykkju (= 24 lykkjur fleiri) = 336 stuðlar. ÖR-10 (= 30. umferð): Aukið út um 1 stuðul hvoru megin við prjónamerkin með því að hekla 1 auka stuðul um loftlykkjuboga (= 24 lykkjur fleiri) = 360 stuðlar. Heklið afgang af umferð í mynsturteikningu. Þegar öll 35. umferð hefur verið hekluð til loka á hæðina mælist stykkið ca 55 cm frá fyrsta loftlykkjuhring, mælt mitt í sjali. Nú eru 60 sólfjaðrir (= 30 mynstureiningar A.5b) í umferð. Heklið nú A.6b (A.6a sýnir hvernig umferð byrjar og er hekluð sem viðbót við A.6b): Umferð 36 er hekluð frá röngu þannig: Leggið 35. umferð (umferð með kórall, sólfjöðrum) niður þannig að rétta liggi að réttu og heklið um 34. umferð (umferð með ísblár) frá bakhlið á sjali þannig: 4 loftlykkjur, 1 fastalykkja um fyrsta hálfa stuðul, (4 loftlykkjur, 1 fastalykkja um næsta hálfa stuðul) heklið svona meðfram öllu sjalinu og endið með 1 fastalykkju um síðasta hálfa stuðul í umferð = 120 loftlykkjubogar. Heklið umferð 37, setjið síðan prjónamerkin inn að nýju í stykkið, án þess að hekla þannig: Setjið fyrsta prjónamerki eftir 15 lykkjur, setjið næstu 11 prjónamerki með 30 lykkju millibili, það eru þá 15 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki. Haldið síðan áfram með umferð 38 og 39. Klippið frá og heklið umferð 40 frá réttu, þannig að báðar umferðir 39 og 40 eru heklaðar frá réttu. Byrjið á umferð 40 með 1 keðjulykkju í 4. loftlykkju frá fyrri umferð. Haldið síðan áfram eins og áður og aukið út í umferð með ör þannig: ÖR 11 (= 41.umferð): Aukið út um 1 stuðul hvoru megin við prjónamerki með því að hekla 1 auka stuðul um loftlykkjuboga (= 24 lykkjur fleiri) = 384 lykkjur. ÖR 12 (= 44.umferð): Aukið út um 1 stuðul hvoru megin við prjónamerki með því að hekla 1 auka stuðul um loftlykkjuboga (= 24 lykkjur fleiri) = 408 lykkjur. Haldið áfram þar til umferð 48 hefur verið hekluð til loka. Klippið frá eftir umferð 48 og heklið umferð 49 frá réttu, þannig að báðar umferðir 48 og 49 eru heklaðar frá réttu. Byrjið umferð 49 með 1 keðjulykkju í 2. loftlykkju frá fyrri umferð. Þegar umferð 49 hefur verið hekluð til loka eru 68 sólfjaðrir (= 34 mynstureiningar A.6b) í umferð. Stykkið mælist ca 69 cm frá fyrsta loftlykkjuhring, mælt mitt í sjali. Heklið nú A.7b (A.7a sýnir hvernig umferð byrjar og er hekluð sem viðbót við A.7b). Umferð 50 er hekluð frá röngu þannig: Leggið 49. umferð (umferð með vínrauðum sólfjöðrum) niður þannig að rétta liggi að réttu og heklið um 48. umferð (gallabuxnablár) frá bakhlið á sjali þannig: (4 loftlykkjur, 1 fastalykkja um fyrsta/næsta hálfa stuðul) heklið svona meðfram öllu sjalinu og endið með 1 fastalykkju um síðasta hálfa stuðulinn í umferð = 136 loftlykkjubogar. Ör 13 (51.umferð): Aukið út um 3 lykkjur (= 1 loftlykkja + 1 stuðull) um 2 loftlykkjuboga á undan hverju prjónamerki og aukið út um 2 lykkjur (= 1 loftlykkja + 1 stuðull) um hvern og einn af 2 loftlykkjubogum á eftir hverju prjónamerki (= 48 loftlykkjubogar fleiri) = 252 loftlykkjur + 252 stuðlar í umferð. Þegar 52. og 53. umferð hefur verið hekluð til loka, klippið frá og 54. umferð er hekluð frá réttu, þannig að 53. umferð og 54. umferð verði báðar heklaðar frá réttu. Byrjið 54. umferð með 1 keðjulykkju í 4. loftlykkju frá fyrri umferð. Þegar A.7a og A.7b hefur verið heklað til loka á hæðina er stykkið tilbúið. Klippið frá og festið enda. Sjalið mælist ca 76 cm frá byrjun. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #magicsummershawl eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 30 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 190-1
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.