Dorthe Panum. skrifaði:
Jeg vil så gerne strikke denne fine bluse. Men jeg forstår ikke hvordan knuden skal strikkes. Jeg kan se den er blevet beskrevet på tysk i disse spørgsmål. Men er ikke god til at læse tysk. Kan i beskrive den på dansk, hvordan jeg skal Gøre? På forhånd tak. Venligst fra Dorthe.
04.01.2019 - 20:25DROPS Design svaraði:
hei Dorthe. Jeg kan forklare det til deg på norsk: knuten strikkes over 4 masker. Først strikker du de 4 maskene vrang sammen, men du slipper dem IKKE av venstre pinne. Så strikker du de samme 4 maskene rett sammen, igjen uten å slippe dem av venstre pinne. Så strikker du de samme 4 maskene en gang til vrang sammen, og en gang til rett sammen. Du har nå strikket de 4 maskene på venstre pinne sammen totalt 4 ganger (2 ganger vrang og 2 ganger rett), og du har nå 4 nye masker på høyre pinne. Slipp så de 4 maskene på venstre pinne av pinnen. Knuten er ferdig. God fornøyelse
08.01.2019 - 13:15
Gunilla Fransson skrifaði:
Hej! Jag stickar modellen i strl small. Har kommit till avmaskning för hals. Hur kan det vara ca92 m kvar? Jag har 44m. När är raglanminskningarna klara?Med vänlig hälsning, Gunilla
03.12.2018 - 21:17DROPS Design svaraði:
Hei Gunnilla. Før du begynner å felle har du 330 m på pinnen. Du feller 8 m for hver raglanfelling på hver 4 pinne 6 ganger (=48 m felt) og hver 2 pinne 17 ganger (= 136 m felt). Dvs du feller totalt 184 m til raglan. Samtidig skal du sette av 21 m (42 m totalt) i hver side til hals, når arbeidet måler 48 cm. Videre feller du først 3 m og så 2 m i hver side (10 m totalt). 330 -184-42-10 = 94. Avhengig av målenøyaktighet og strikkefasthet kan det hende du har et par fellinger igjen av raglan når halsfellingen er ferdig, hvis så felles det videre 1 m i hver side mot hals til raglanen er ferdig. Du har derfor ca 92 m på pinnen når alle fellinger er ferdige. God fornøyelse
05.12.2018 - 11:57
Trui skrifaði:
Hoe brei ik best de eerste steek van de voorbies, zodat ik een mooie afwerking heb van de zijkant?
03.09.2018 - 17:00DROPS Design svaraði:
Dag Trui, Deze kun je het beste in ribbelsteek breien.
06.09.2018 - 11:08
Christine skrifaði:
Bonjour, à quoi correspond le schéma A4 ? Il est mentionné dans la marche à suivre pour les manches mais ne figure pas dans les explications. merci
30.08.2018 - 08:51DROPS Design svaraði:
Bonjour Christine. Vous trouvez le diagramme A.4 à gauche du diagramme A.1 (tailles L + XXXL). Bon tricot !
30.08.2018 - 11:27
Danielle Gosselin skrifaði:
Bonjour. Est-ce que les motifs du bas avant se poursuivent au bas arrière ? Y a-t-il un motif dans le milieu du dos ? Merci de me dire.
27.08.2018 - 12:50DROPS Design svaraði:
Bonjour Danielle. Oui le motif du bas devant pursuit même sur le dos. Au milieu du dos, vous travaillez le diagramme A.2. Si vous ne désirez pas le motif sur le dos, vous pouvez travailler toutes les mailles du dos en jersey. Bon tricot!
27.08.2018 - 18:39
Anna Karin Jern skrifaði:
Diagram A2-A4 sns inte längre.
26.07.2018 - 18:23DROPS Design svaraði:
Hei Anna. Vi har nå sjekket dette, og det er ikke noe feil med visningen av diagrammene, hverken på PC eller mobil. Gjelder dette uansett hvaslags enhet du bruker?
08.08.2018 - 14:48
Anna Karin Jern skrifaði:
Diagram A2 - A4 syns inte längre.
22.07.2018 - 12:54
Benedetta skrifaði:
Grazie!
04.05.2018 - 09:34
Benedetta skrifaði:
Buonasera,non ho capito come lavorare il "nodo".non mi sembra molto chiara la spiegazione.Potete aiutarmi? Grazie x l'aiuto!
03.05.2018 - 21:49DROPS Design svaraði:
Buongiorno Benedetta. E' come se lavorasse una maglia sia nel filo davanti che quello dietro, senza farla cadere dal ferro. Deve però prendere 4 maglie e lavorarle (lasciandole sul ferro sinistro) nel filo davanti, in quello dietro, di nuovo nel filo davanti e in quello dietro e solo adesso farle cadere dal ferro. Buon lavoro!
04.05.2018 - 08:32
Gerda Leber skrifaði:
Bedankt voor de snelle reactie. Ik ga het proberen ! Overigens: complimenten voor de website, ik heb al diverse patronen gebruikt. 💐
30.04.2018 - 15:37
Miss Flora Cardigan#missfloracardigan |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með gatamynstri, laskalínu og ¾ ermum úr DROPS Flora. Stærð S - XXXL.
DROPS 186-23 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. KANTUR AÐ FRAMAN: Hægri kantur að framan er prjónaður þannig (þ.e.a.s. fyrstu 8 lykkjur í umferð þegar prjónað er frá réttu): 2 lykkjur garðaprjón, 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið. Vinstri kantur að framan er prjónaður þannig (þ.e.a.s. síðustu 8 lykkjur í umferð þegar prjónað er frá réttu): 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt, 2 lykkjur í garðaprjóni við miðju að framan. Haldið áfram með kant að framan með garðaprjón yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Veldu mynstur fyrir þína stærð (á við um A.1, A.2 og A.3). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LEIÐBEININGAR: Ef ekki er óskað eftir að hafa gatamynstur uppi meðfram miðju að aftan er prjónað sléttprjón yfir 32-34-38-32-34-38 lykkjur í A.2 við miðju að aftan. LEIÐBEININGAR-1 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Byrjið 4 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ÚRTAKA-2 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 146 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 136) = 10. Síðan eru taldar fjölda lykkja í umferð (t.d. 146 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 16 lykkjur) og deilið þessum lykkjum sem eftir eru með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 10) = 13. Í þessu dæmi eru prjónaðar 12. og 13. hver lykkja slétt saman þegar fækkað er um 10 lykkjur. ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki og mitt undir ermum): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 6 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum 6 lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir brugðið svo ekki myndist gat. LASKALÍNA: Fækkið lykkjum fyrir laskalínu hvoru megin við 4 prjónamerkin í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 8 lykkjur færri í hverri úrtökuumferð). Öll úrtaka er gerð frá réttu! Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum frá réttu í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). 1 hnappagat = prjónið fjórðu og fimmtu lykkju frá kanti brugðið saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: S: 2, 9, 16, 22, 29, 36, 42 og 48 cm. M: 2, 9, 16, 23, 30, 37, 44 og 50 cm. L: 2, 9, 16, 23, 30, 37, 44 og 52 cm. XL: 2, 9, 16, 24, 31, 38, 46 og 54 cm. XXL: 2, 10, 18, 25, 33, 41, 48 og 56 cm. XXXL: 2, 10, 18, 26, 34, 42, 50 og 58 cm. ATH: Fellt er af fyrir síðasta af þessum 8 hnappagötum í fyrstu umferð frá réttu eftir að prjónaðar hafa verið upp lykkjur fyrir kant í hálsmáli eins og útskýrt er í uppskrift. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, neðan frá og upp. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, neðan frá og upp. Síðan eru fram- og bakstykki og ermar sett saman og berustykkið er prjónað til loka fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið aðeins laust upp 292-292-292-384-384-384 lykkjur (meðtaldar 8 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 3 með Flora. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð brugðið frá röngu með 2 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 8 lykkjur KANTUR AÐ FRAMAN – sjá útskýringu að ofan, prjónið A.1 þar til 8 lykkjur eru eftir á prjóni (= 12-12-12-16-16-16 mynstureiningar með 23 lykkjum) og endið með 8 lykkjur KANTUR AÐ FRAMAN. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA og munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka eru 208-220-244-272-288-320 lykkjur í umferð. Setjið 1 prjónamerki 56-59-65-72-76-84 lykkjur inn frá hvorri hlið (= 96-102-114-128-136-152 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 8 lykkjur í kanti að framan eins og áður, A.2 (= 32-34-38-32-34-38 lykkjur), 48-51-57-80-85-95 lykkjur sléttprjón, A.2 (= 32-34-38-32-34-38 lykkjur við miðju að aftan – lesið LEIÐBEININGAR), 48-51-57-80-85-95 lykkjur sléttprjón, A.2 (= 32-34-38-32-34-38 lykkjur) og endið með 8 lykkjur í kanti að framan eins og áður. Haldið svona áfram með mynstur. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 12 cm þar sem stykkið er styst, fellið af 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – lesið ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona með 2-2-4-4-4-4 cm millibili alls 3-3-2-2-2-2 sinnum í hvorri hlið = 196-208-236-264-280-312 lykkjur. Þegar stykkið mælist 22-20-20-22-20-20 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – lesið ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 2 cm millibili alls 5-6-6-5-6-6 sinnum í hvorri hlið = 216-232-260-284-304-336 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 32 cm þar sem stykkið er styst í öllum stærðum. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 53-57-63-69-73-80 lykkjur eins og áður (= framstykki), fellið af 10-10-12-12-14-16 lykkjur eins og áður, prjónið 90-98-110-122-130-144 lykkjur eins og áður (= bakstykki), fellið af 10-10-12-12-14-16 lykkjur fyrir handveg og prjónið þær 53-57-63-69-73-80 lykkjur sem eftir eru eins og áður (= framstykki). Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Fitjið upp 87-87-87-95-95-95 lykkjur á sokkaprjón eða stuttan hringprjón 3 með Flora. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN hringinn – sjá útskýringu að ofan. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt undir ermi). Næsta umferð er prjónuð þannig: * 1 lykkja slétt, 3 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* alls 8-8-8-9-9-9 sinnum, prjónið A.3 (= 23 lykkjur), * 3 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* alls 8-8-8-9-9-9 sinnum. Haldið svona áfram með stroff og mynstur. Þegar stykkið mælist 2 cm þar sem það er styst er fækkað um allar 3 lykkjur brugðið í stroffi til 2 lykkjur brugðið með því að prjóna 2 lykkjur brugðið saman í hverri brugðinni einingu = 71-71-71-77-77-77 lykkjur. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka eru 65-65-65-73-73-73 lykkjur í umferð. Prjónið síðan sléttprjón hringinn, en handlið áfram með A.4 mitt yfir A.3 til loka. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 8 cm þar sem það er styst er aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚTAUKNING. Aukið svona út alls 6-10-14-13-15-18 sinnum í S: Í 18. hverri umferð, í M: Í 9. hverri umferð, í L og XL: Í 6. hverri umferð, í XXL: Í 5. hverri umferð og í XXXL: Til skiptis í 3. og 4. hverri umferð = 77-85-93-99-103-109 lykkjur. Þegar ermin mælist 38-37-35-33-32-30 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis) fellið af 10-10-12-12-14-16 lykkjur mitt undir ermi (fellið af 5-5-6-6-7-8 lykkjur hvoru megin við prjónamerkin) = 67-75-81-87-89-93 lykkjur eftir á prjóni. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið ermar á sama prjón og fram- og bakstykki þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar) = 330-362-398-434-454-490 lykkjur í umferð. Takið öll fyrri prjónamerki úr stykkinu. Setjið 1 prjónamerki í hverja skiptingu á milli fram- og bakstykkis og kanta á ermum (= 4 ný prjónamerki). Byrjið frá réttu, haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og A.2 eins og áður og með 8 lykkjur í kanti að framan í hvorri hlið eins og áður. Að auki er haldið áfram með A.4 yfir 3 miðjulykkjur í hvorri ermi. Þegar prjónaðar hafa verið 2 umferðir fram og til baka yfir allar lykkjur byrjar úrtaka fyrir LASKALÍNA í næstu umferð frá réttu – sjá útskýringu að ofan. Fækkið lykkjum fyrir laskalínu í 4. hverri umferð (þ.e.a.s. í annarri hverri umferð frá réttu) alls 6-5-4-4-6-7 sinnum og síðan í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 17-22-27-30-30-31 sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm setjið ystu 21-21-23-26-28-33 lykkjur í hvorri hlið við miðju að framan á þráð fyrir hálsmáli, þ.e.a.s. þetta er gert í byrjun á 2 næstu umferðum, en til að sleppa við að klippa frá eru lykkjurnar prjónaðar áður en þær eru settar á þráðinn. Haldið áfram fram og til baka eins og áður og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni og 2 lykkjur 1 sinni. Síðan er felld af 1 lykkja í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þar til úrtaka fyrir laskalínu er lokið. Eftir alla úrtöku/affellingu fyrir laskalínu og hálsmáls eru ca 92-92-92-98-98-108 lykkjur eftir í umferð. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp frá réttu ca 146-146-150-162-166-186 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur á þræði að framan) á hringprjón 2,5. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Prjónið síðan 1 umferð slétt frá réttu þar sem lykkjum er fækkað jafnt yfir til 136-136-140-150-154-160 lykkjur, þ.e.a.s. fækkað er um ca 10-10-10-12-12-26 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚRTAKA/ÚTAUKNING og munið eftir að fella af fyrir síðasta hnappagatinu í þessari umferð. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu, 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #missfloracardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 36 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 186-23
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.