Natacha skrifaði:
Cool,mais je vote pour la version tee shirt .
13.12.2017 - 18:57
Jessica Baughman skrifaði:
Bright Stripes T-shirt Dress
12.12.2017 - 19:54
Nadine skrifaði:
Fraîche et moderne, un modèle superbe
12.12.2017 - 11:31
Nathalie skrifaði:
Je seconde Claudia, une alternative en jupe serait vraiment géniale!
11.12.2017 - 19:50
Claudia skrifaði:
Please give us an alternative pattern as shirt!!!!!
11.12.2017 - 14:15
Verona#veronadress |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónaður kjóll með röndum úr DROPS Paris með laskalínu og klauf í hliðum, prjónaður ofan frá og niður . Stærð S - XXXL.
DROPS 187-1 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 (á við um berustykki): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 88 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 12) = 7,3. Í þessu dæmi þá er aukið út eftir ca 7. hverja lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. MYNSTUR (á við um laskalínu): Sjá mynsturteikningu A.1. RENDUR Á BERUSTYKKI: Rendur eru prjónaðar í sléttprjóni þannig: 2-2-2-2-2-2 umferðir með litnum sinnep, 5-6-6-8-8-9 umferðir með litnum ljós ísblár, 2-4-4-4-6-6 umferðir með litnum dökk bleikfjólublár, 5-6-6-8-8-9 umferðir með litnum bleikvínrauður, 2-2-2-2-2-2 umferðir með litnum sinnep, 10-12-14-14-14-16 umferðir með litnum kórall, 2-2-2-2-2-2 umferðir með litnum púðurbleikur, ca 4-4-6-6-8-8 umferðir með litnum dökk bleikfjólublár, þ.e.a.s. prjónið sléttprjón með litnum dökk bleikfjólublár þar til berustykkið hefur verið prjónað til loka, prjónið síðan A.2 og A.3 eins og útskýrt er í uppskrift. RENDUR FRAM- OG BAKSTYKKI: Sjá mynsturteikningu A.2 og A.3. Veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð. Rendur eru prjónaðar í sléttprjóni. LASKALÍNA: Aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 4 merkin þannig: Byrjið 1 lykkju á undan merki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (merkið er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um hliðar á kjól): Byrjið 5 lykkjum á undan merki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 6 lykkjur slétt (merkið er staðsett mitt í þessum 6 lykkjum), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna (= 2 lykkjur færri). LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á kjól): Byrjið 3 lykkjum á undan merki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 6 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón ofan frá og niður að byrjun á klauf. Síðan er fram- og bakstykki prjónað fram og til baka hvort fyrir sig til loka. Kantar á ermum eru prjónaðir í hring á sokkaprjóna. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 88-88-96-96-102-102 lykkjur á stuttan hringprjón 4 með litnum dökk þveginn DROPS Paris. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN í hring – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 12-12-12-12-14-14 lykkjur jafnt yfir – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 = 100-100-108-108-116-116 lykkjur. Setjið 4 merki fyrir laskalínu í stykkið þannig: Fyrsta merkið er sett á eftir fyrstu 15-15-17-17-19-19 lykkjur (= ½ bakstykki), annað merkið er sett á eftir næstu 20 lykkjur (= ermi), þriðja merkið er sett á eftir næstu 30-30-34-34-38-38 lykkjur (= framstykki) og fjórða merkið er sett á eftir næstu 20 lykkjur (= ermi), nú eru 15-15-17-17-19-19 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta merki. Prjónið nú berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Prjónið RENDUR Á BERUSTYKKI – sjá útskýringu að ofan, JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, hvoru megin við 4 merkin (= 8 lykkjur fleiri). Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 14-17-18-22-23-26 sinnum. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Á eftir síðustu útaukningu eru 212-236-252-284-300-324 lykkjur í umferð. Haldið áfram með rendur á berustykki án þess að auka út fyrir laskalínu, en til að gataumferðin meðfram hverri laskalínu rofni ekki þegar ekki er lengur aukið út, prjónið A.1 í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og kant á ermum (ör í A.1 merkir merki í laskalínu). Þegar stykkið mælist 16-18-20-22-24-26 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan skiptist stykkið í fram- og bakstykki og ermar. Prjónið með litnum dökk bleikfjólublár þannig: Prjónið fyrstu 31-34-37-41-45-49 lykkjur eins og áður (= ½ bakstykki), setjið næstu 44-50-52-60-60-64 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 62-68-74-82-90-98 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 44-50-52-60-60-64 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 31-34-37-41-45-49 lykkjur sem eftir eru eins og áður (= ½ bakstykki). Klippið frá. Fram- og bakstykki og kantar í handvegi er nú prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 136-148-164-180-200-220 lykkjur. Setjið 1 merki fyrir miðju í 6-6-8-8-10-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp í hvorri hlið = 68-74-82-90-100-110 lykkjur á milli merkja. Byrjið umferð við merkin í hægri hlið á stykki (þegar flíkin er mátuð). Prjónið A.2 hringinn. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka er A.3 prjónað, síðan er prjónað í sléttprjóni með litnum dökk bleikfjólublár til loka. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur í hvorri hlið – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Fækkið svona með 2 cm millibili alls 3 sinnum í hvorri hlið = 124-136-152-168-188-208 lykkjur. Þegar stykkið mælist 16 cm frá skiptingu er aukið út um 2 lykkjur í hvorri hlið – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 1½ cm millibili alls 28 sinnum í hvorri hlið. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 43-44-43-44-43-43 cm skiptist stykkið við klauf við bæði merkin og fram- og bakstykki er nú prjónað hvort fyrir sig. Látið lykkjur á bakstykki bíða á prjóninum eða setjið þær á þráð. Haldið áfram í sléttprjóni og röndum eins og áður á framstykki, en 3 ystu lykkjur í hvorri hlið eru prjónaðar í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. ATH: Þegar skiptingin verður fyrir klauf í hvorri hlið þá mun samt verða eftir útaukning í hvorri hlið, en nú er aukið út innan við 3 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið. Á eftir síðustu útaukningu eru 118-124-132-140-150-160 lykkjur í umferð. Prjónið síðan með litnum dökk bleikfjólublár þar til stykkið mælist ca 81-84-87-90-93-95 cm frá öxl. Prjónið 6 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur og fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið bakstykki á sama hátt. KANTUR Í HANDVEGI: Setjið 44-50-52-60-60-64 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjón 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 50-56-60-68-70-76 lykkjur. Prjónið 4 umferðir garðaprjón í hring með litnum dökk þveginn og fellið af með sléttum lykkjum. Prjónið hinn kantinn í handvegi á sama hátt. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #veronadress eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 187-1
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.