DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5632.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Magic Mountain

Prjónuð peysa með hringlaga berustykki og marglitu norrænu mynstri, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr DROPS Paris.

DROPS 187-8
DROPS Design: Mynstur w-695
Garnflokkur C eða A + A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS PARIS frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
250-250-300-350-350-400 g litur 26, dökk beige
150-150-150-200-200-200 g litur 38, kórall
100-100-100-100-100-150 g litur 48, bensínblár
50-100-100-100-100-100 g litur 25, mosagrænn
50-100-100-100-100-100 g litur 17, natur
50-100-100-100-100-100 g litur 37, rústrauður
50-50-50-50-50-50 g litur 01, apríkósa
50-50-50-50-50-50 g litur 07, bleikvínrauður
50-50-50-50-50-50 g litur 41, sinnep

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 + 80 cm) NR 5,5 – eða þá stærð sem þarf til að 16 lykkjur og 20 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 4,5 fyrir stroff – eða þá stærð sem þarf til að 18 lykkjur og 23 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5632.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 90 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 6) = 15.
Í þessu dæmi er fækkað með því að prjóna 14. og 15. hverja lykkju slétt saman. Ef auka á út þá er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 15. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veljið mynstur fyrir rétta stærð. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

LEIÐBEININGAR:
Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykkinu. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi):
Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Berustykki og fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður að handveg, síðan er fram- og bakstykki prjónað fram og til baka hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 90-96-96-102-102-108 lykkjur á stuttan hringprjón 4,5 með litnum kórall.
Prjónið 1 umferð slétt. Skiptið yfir í litinn dökk beige og prjónið næstu umferð þannig: 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. Haldið svona áfram með stroff þar til kantur í hálsmáli mælist 4 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 6-10-6-8-4-6 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 84-86-90-94-98-102 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 31-29-30-31-32-33 lykkjur jafnt yfir = 115-115-120-125-130-135 lykkjur. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan.

BERUSTYKKI:
Prjónið A.1 hringinn (= 23-23-24-25-26-27 mynstureiningar með 5 lykkjum). Haldið áfram með mynstur eins og útskýrt er í mynsturteikningu. Lesið LEIÐBEININGAR og ATHUGIÐ PRJÓNFESTU!
JAFNFRAMT í hverri umferð merktri með ör í mynsturteikningu er aukið út eins og útskýrt er að neðan:
Ör-1: Aukið út um 15-19-20-22-23-25 lykkjur jafnt yfir = 130-134-140-147-153-160 lykkjur.
Ör-2: Aukið út um 14-18-20-21-23-24 lykkjur jafnt yfir = 144-152-160-168-176-184 lykkjur (myndar pláss fyrir 18-19-20-21-22-23 mynstureiningar með 8 lykkjum).
Ör-3: Aukið út um 30-34-38-42-40-44 lykkjur jafnt yfir = 174-186-198-210-216-228 lykkjur.
Ör-4: Aukið út um 26-29-32-35-34-32 lykkjur jafnt yfir = 200-215-230-245-250-260 lykkjur (myndar pláss fyrir 40-43-46-49-50-52 mynstureiningar með 5 lykkjum).
Ör-5: Aukið út um 24-25-26-27-30-28 lykkjur jafnt yfir = 224-240-256-272-280-288 lykkjur (myndar pláss fyrir 28-30-32-34-35-36 mynstureiningar með 8 lykkjum).
Ör-6: Aukið út um 18-20-12-20-24-24 lykkjur jafnt yfir = 242-260-268-292-304-312 lykkjur. Útaukning er nú lokið í S og M.
L + XL + XXL + XXXL:
Ör-7: Aukið út um 12-18-21-18 lykkjur jafnt yfir = 280-310-325-330 lykkjur. Útaukning er nú lokið í L og XL.
XXL + XXXL:
Ör-8: Aukið út um 19-18 lykkjur jafnt yfir = 344-348 lykkjur. Útaukning er nú lokið í XXL och XXXL.

ALLAR STÆRÐIR:
= 242-260-280-310-344-348 lykkjur.
Prjónið A.1 til loka. Stykkið mælist nú ca 24-24-28-28-32-32 cm frá uppfitjunarkanti. Næsta umferð er prjónuð þannig (með litnum mosagrænn í S og M, litnum apríkósa í L og XL og með litnum natur í XXL og XXXL): Setjið fyrstu 42-46-52-55-60-60 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-8-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 79-84-88-100-112-114 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 42-46-52-55-60-60 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-8-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 79-84-88-100-112-114 lykkjur sem eftir eru slétt (= bakstykki). Klippið frá. Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 170-180-192-216-240-252 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í þessa hlið á stykki, mitt í 6-6-8-8-8-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Byrjið umferð hér og prjónið A.2 hringinn (= 17-18-16-18-20-21 mynstureiningar með 10-10-12-12-12-12 lykkjur). Í umferð merktri með ör-7 í A.2 er fækkað um 2 lykkjur jafnt yfir (á einungis við stærð S) = 168-180-192-216-240-252 lykkjur.
Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka mælist stykkið ca 33-33-29-29-25-25 cm frá skiptingu.
Prjónið síðan sléttprjón með litnum dökk beige. Þegar stykkið mælist 34-36-34-36-34-36 cm frá skiptingu (eða að óskaðri lengd, nú eru eftir 4 cm til loka) skiptist stykkið við klauf í hvorri hlið. Haldið eftir fyrstu 84-90-96-108-120-126 lykkjur á prjóni og setjið þær 84-90-96-108-120-126 lykkjur sem eftir eru á þráð eða á hjálparprjón.
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu – JAFNFRAMT er aukið út um 15-21-21-21-21-27 lykkjur jafnt yfir í þessari umferð (ekki er aukið út yfir ystu 3 lykkjur í hvorri hlið) = 99-111-117-129-141-153 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið stroff frá röngu þannig: 3 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 3 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 3 lykkjur brugðið og endið með 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Fellið af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttprjóni yfir sléttprjón og brugðnum lykkju yfir brugðnar lykkjur, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Prjónið alveg eins yfir lykkjur af þræði/hjálparprjóni. Peysan mælist ca 64-66-68-70-72-74 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 42-46-52-55-60-60 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki yfir á stuttan hringprjón 5,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-8-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 48-52-60-63-68-72 lykkjur.
Prjónið fyrstu umferð í A.2 og fækkið jafnframt um 1-1-1-0-1-1 lykkjur í þessari umferð = 47-51-59-63-67-71 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt undir ermi) og 1 prjónamerki í miðju lykkju í umferð (= mitt ofan á ermi). Prjónið A.2 hringinn, en byrjið umferð eins og útskýrt er að neðan:
Í stærð M, L og XXXL prjónið A.2 frá og með 2. lykkju í mynsturteikningu.
Í stærð S er A.2 prjónað frá og með 3. lykkju í mynsturteikningu.
Í stærð XXL er A.2 prjónað frá og með 4. lykkju í mynsturteikningu.
Í stærð XL er A.2 prjónað frá og með 6. lykkju í mynsturteikningu.
Þegar byrjað er þá kemur lykkjan með prjónamerki mitt ofan á ermi að passa við lykkju merkta með svartri stjörnu, en vegna mismunandi lykkjufjölda í A.2 í S og M verður að telja út byrjun á umferð uppá nýtt þegar lykkjufjöldi í mynstureiningu breytist í 12 lykkjur í þessum stærðum.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 3-3-3-2-2-2 cm frá skiptingu er fækkað um2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum svona með 5½-5-3-3-2½-2 cm millibili alls 7-8-11-12-13-15 sinnum = 33-35-37-39-41-41 lykkjur.
Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka er prjónað með litnum dökk beige til loka. Þegar stykkið mælist 39-39-36-36-33-33 cm frá skiptingu er prjónuð 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 9-7-5-9-7-7 lykkjur jafnt yfir = 42-42-42-48-48-48 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4,5 og prjónið stroff hringinn (= 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið). Þegar stroffið mælist 4 cm er fellt af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).
Ermin mælist ca 43-43-40-40-37-37 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

symbols = litur natur
symbols = litur dökk beige
symbols = litur bleikvínrauður
symbols = litur kórall
symbols = litur rústrauður
symbols = litur mosagrænn
symbols = litur sinnepsgulur
symbols = litur apríkósa
symbols = litur bensínblár
symbols = útaukningsumferð
symbols = stjarna merkir miðjulykkju á ermi
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 187-8

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (71)

country flag Helen wrote:

I made the small size and the body was too big but the sleeves were really, really tight from the armpit down with a baggy cuff. I had to rework the sleeves using another pattern and undoing all the Nordic pattern.

28.03.2024 - 14:32

country flag Jean Homer wrote:

I found this pattern easy to follow but the tension 16 stitches to 10cm on 5.5 mm needles doesnt tally with the ball band which is 17 sts to 10 cms on 5 mm needles. That 1 stitch difference makes a huge difference to the final garment if not addressed but using larger needles just makes the knitting loose and sloppy .

30.01.2024 - 17:37

country flag Diana wrote:

Beste mensen, Is het de bedoeling om het proeflapje voor de naalden 5,5 te breien met een meerkleurig inbreipatroon of gewoon unikleur tricotsteek? Vriendelijke groet, Diana

16.02.2023 - 15:33

DROPS Design answered:

Dag Diana,

Je kunt het proeflapje gewoon in tricotsteek breien, tenzij je van jezelf wet dat je altijd strakker of juist losser breit wanner er zo'n patroon in zit. In dat geval is het beter om ook het proeflapje in tricotsteek te breien.

18.02.2023 - 10:24

country flag Monika Siebe wrote:

Hallo, laut Beschreibung habe ich 325 Maschen (für größe L)auf der Nadel, wenn ich mit den Zunahmen der Passe in A1 fertig bin. danach kommt in der Beschreibung: "alle Größen: = 280 Maschen für Größe L. wann oder wo wurden denn die 45 Maschen abgenommen????

02.01.2023 - 16:06

DROPS Design answered:

Liebe Frau Siebe, nach dem 6. Pfeil haben Sie 268 Maschen in L, dann nehmen Sie 12 Maschen zu = 268+12=280 Maschen (in diesem Teil ist L die 1. Größe). Viel Spaß beim stricken!

02.01.2023 - 16:34

country flag Kathy wrote:

Hi Guys. Love the jumper chosen for neckline. The first pattern I’ve tried of yours. I’m trying to knit the large just a fraction too big really but … Casting 96 sts to knit in the round. Knitted down past the petrol colour. Neck looks too tight. Tried it on and it’s a polar neck. Not at all like the neckline in the photo. I must be doing something wrong as can’t see anyone with this problem. Can you help me please? Thank you. 🧶

04.12.2021 - 16:09

DROPS Design answered:

Dear Kathy, you need to check your gauge; if it is too tight you can use a larger needle to cast on and work at the beginning. Happy knitting!

05.12.2021 - 17:09

country flag GRASSET Edith wrote:

Je souhaiterai faire ce modèle en ALPAGA brushed alpaca silk de même groupe. Cette qualité est en pelote de 25 g. Il me semble que cela fait beaucoup de pelotes et donc très cher. N'y a t'il pas une erreur? Merci

15.09.2021 - 10:40

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Grasset, utilisez notre convertisseur pour calculer la quantité exacte requise en DROPS Brushed Alpaca Silk pour chaque couleur (ex pour 250 g Paris, il vous faut 75 g Brushed Alpaca Silk, soit 3 pelotes). Rappelez-vous juste bien que le résultat sera différent de celui de la photo si vous utilisez cette alternative. Votre magasin saura vous conseiller si besoin. Bon tricot!

15.09.2021 - 15:47

country flag Jolanda Bles wrote:

Hoi ik wil graag deze trui breien maar wil graag geen roze kleuren maar wil die blauwe kleuren zou dat ook kunnen. Groetjes Jolanda

26.04.2021 - 22:02

DROPS Design answered:

Dag Jolanda,

Jazeker kan dat. Je bent natuurlijk vrij om te kiezen welke kleuren je gebruikt.

29.04.2021 - 14:54

country flag Jolanda Bles wrote:

Hoi ik wil graag deze trui breien maar wil graag geen roze kleuren maar die blauwe kleuren kan dat ook. Stuur maar door naar

26.04.2021 - 21:55

country flag Hannelore wrote:

Ich hatte mich auf einen hellen Norweger Pullover gefreut, gerade Recht fürs Frühjahr. Es wurden die originalen Farben bestellt lt ihrerseits Anleitung. Es wird ein dunkler Pullover und hat nichts mit ihrer Abbildung zu tun. Bei der Anleitung wäre die Reihe 9 apricot. Im Originalbild ist ihr Pullover hier grün rot. Die Grundfarbe ist ein dunkelbeige statt der schönen hellen Farbe auf dem Foto. Furchtbar. Umsonst Geld ausgeben.

11.04.2021 - 15:39

country flag Rosemarie wrote:

Ich komme mit dem Muster der Ärmel nicht klar. Bei Größe M habe ich zu Beginn 51 Maschen auf der Nadel. Wenn ich ab der 2. Masche mit dem Muster beginne bin ich am Ende der Reihe nicht mehr im Muster. Die letzte Musterfolge bleibt unvollständig

11.04.2021 - 12:38

DROPS Design answered:

Liebe Rosemarie, beginnen Sie mit der leztzen 9 Maschen in A.1, dann wiederholen Sie A.1 4 Mal, dann strickens Sie die 2 ersten M in A.1 = 9+40+2=51Maschen. Viel Spaß beim stricken!

12.04.2021 - 09:43