Nathou skrifaði:
Bonjour, je ne trouve pas le détail de A.3 pourriez-vous m’aider merci d’avance.
08.03.2018 - 21:49DROPS Design svaraði:
Bonjour Nathou, merci pour votre retour, la légende des diagrammes va être complétée très bientôt. Bon tricot!
09.03.2018 - 08:59
Anita Jørgensen skrifaði:
Det mangler beskrivelse på mønster A3. Hva betyr skråstrekene?
02.02.2018 - 21:58DROPS Design svaraði:
Hei Anita. Her mangler det forklaringen til diagramikonene til diagram A.3 (kast og 2 masker sammen). Det skal vi få ordnet opp i, takk for at du gjorde oss oppmerksom på dette. mvh Drops design
13.02.2018 - 14:01
Debbie-Ann skrifaði:
Ein sehr schöner Pullover, ideal für kühle Sommertage. Mir gefällt die Passe sehr gut. Den werde ich nacharbeiten.
21.01.2018 - 07:48
Daniela Massari skrifaði:
Delizioso lo vedo bene in alpaca
20.12.2017 - 22:26
Dea skrifaði:
Mi piace davvero tanto.
13.12.2017 - 20:27Dianne skrifaði:
Have never done fair Isle, this could be the one to start with.
12.12.2017 - 23:28
Mieke skrifaði:
I love this one! Can't wait for the pattern to be released and the yarn is fine to work with
12.12.2017 - 12:46
Golden Heart#goldenheartsweater |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með hringlaga berustykki, norrænu mynstri og ¾ ermum, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr DROPS Merino Extra Fine.
DROPS 187-12 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. ÚTAUKNING (á við um berustykki): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 100 lykkjur) og deilið þeim 100 lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 12) = 8,3. í þessu dæmi þá er aukið út eftir ca 8. hverja lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð (á við um A.1 og A.2). Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 4 prjónamerkin í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma þannig: Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt og steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Berustykki og fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón ofan frá og niður, skiptið yfir á sokkaprjón eftir þörf. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 100-104-110-116-120-126 lykkjur á stuttan hringprjón 3 með litnum sinnep. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN hringinn – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 12-22-16-24-20-28 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING = 112-126-126-140-140-154 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! BERUSTYKKI: Prjónið A.1 hringinn (= 8-9-9-10-10-11 mynstureiningar með 14 lykkjum). Haldið svona áfram með mynstur eins og útskýrt er í mynsturteikningu. JAFNFRAMT í síðustu umferð í A.1 er aukið út um 8-9-9-10-10-11 lykkjur jafnt yfir. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka eru 152-171-171-190-190-209 lykkjur í umferð. Prjónið síðan A.2 hringinn (= 8-9-9-10-10-11 mynstureiningar með 19 lykkjum). Haldið svona áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka eru 208-234-234-260-260-286 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 12-12-12-14-14-14 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan. Prjónið síðan með litnum sinnep til loka. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 8-6-2-4-4-6 lykkjur jafnt yfir = 216-240-236-264-264-292 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt. Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar: Fyrsta prjónamerkið er sett í eftir fyrstu 34-37-37-42-44-50 lykkjur (= ½ bakstykki), 2. prjónamerki er sett í eftir næstu 40-46-44-48-44-46 lykkjur (= ermi), 3. prjónamerki er sett í eftir næstu 68-74-74-84-88-100 lykkjur (= framstykki) og 4. prjónamerki er sett í eftir næstu 40-46-44-48-44-46 lykkjur (= ermi). Nú eru 34-37-37-42-44-50 lykkjur á eftir síðasta prjónamerki á hálfu bakstykki. Prjónið sléttprjón hringinn. JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan (= 8 lykkjur fleiri). Haldið áfram með útaukningu fyrir laskalínu í annarri hverri umferð þar til aukið hefur verið út alls 11-12-16-16-19-19 sinnum hvoru megin við 4 prjónamerkin = 304-336-364-392-416-444 lykkjur í umferð. Prjónið síðan eins og áður án útaukninga fyrir laskalínu, en til að koma í veg fyrir að brjóta upp gataumferðina meðfram hverri laskalínu er prjónað A.3 í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (prjónamerki er staðsett mitt í A.3). Þegar stykkið mælist 23-25-27-29-31-33 cm prjónið næstu umferð þannig: Prjónið eins og áður yfir fyrstu 45-49-53-58-63-69 lykkjur (= ½ bakstykki), setjið næstu 62-70-76-80-82-84 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 90-98-106-116-126-138 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 62-70-76-80-82-84 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið eins og áður yfir þær 45-49-53-58-63-69 lykkjur sem eftir eru (= hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 192-208-228-248-272-300 lykkjur. Haldið áfram hringinn í sléttprjón. Þegar stykkið mælist 32-32-32-32-32-32 cm frá skiptingu er skipt yfir á hringprjón 3. Prjónið 4 umferðir garðaprjón hringinn. Skiptið til baka yfir á hringprjón 4 og fellið af með sléttum lykkjum. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 68-76-84-88-92-96 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-8-8-10-12 lykkjur. Prjónið sléttprjón í hring með litnum sinnep. Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið svona alls 9-12-15-15-16-17 sinnum í S: Í 8. hverri umferð, í M: Í 5. hverri umferð, í L: Í 4. hverri umferð, í XL: Til skiptis í 3. og 4. hverri umferð, í XXL: Í 3. hverri umferð og í XXXL: Til skiptis í annarri og 3. hverri umferð = 50-52-54-58-60-62 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til ermin mælist 26-24-23-21-19-18 cm frá skiptingu. Skiptið yfir á sokkaprjón 3 og prjónið 4 umferðir garðaprjón í hring. Skiptið til baka yfir á sokkaprjón 4 og fellið af með sléttum lykkjum. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #goldenheartsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 187-12
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.