Esther Lessard skrifaði:
Bonjour, J'aimerais faire les mitaines feutrées à un homme très grands et costaud. Est-ce possible d'avoir un patron plus grand ?
12.11.2019 - 18:43DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Lessard, vous trouverez ici tous nos modèles de moufles feutrées, parmi lesquelles vous trouverez peut-être la bonne taille ou dont vous pourrez vous inspirer si besoin. Bon tricot!
13.11.2019 - 08:43
Poppy skrifaði:
Hi, I love this pattern! I’m a bit confused, though. I’ve done “When piece measures 11 cm in all sizes, decrease 4 stitches evenly = 44 stitches.” But then it says to start the star at 10 cm and increase for the thumb at 11cm. Should I start the star first and then do the decrease and increase on the same line or is there a typo? Thanks, Poppy
18.03.2019 - 19:23DROPS Design svaraði:
Dear Poppy, thank you for writing to us. The decrease of 4 stitches is for the overall shaping of the mittens so you do it evenly distributed on the round, while increasing for the thumb happens only at one place. As the patterns says "at the same time", so you are doing the two things at the same time. I hope this helps. Happy Knitting, thi is such a lovely project!
20.03.2019 - 11:26
Anneli skrifaði:
Underbara vantar, jag älskar dom! Jag har stickat dom och tovat två gånger (först i 40 C och en gång till i 30 C) för att nå rätt storlek och är jättenöjd! Ett stort tack för fint garn och ett bra mönster! ❤️
29.01.2019 - 13:07
Rachel Dyas skrifaði:
Thank you for your reply regarding the thumb length - I can see what I have done - misread when to start the decreases so the main bit pdf the mitten is too short - have unbound and ripped back to where I made the mistake. Thank you very much for getting back to me and in future I will knit with more haste and less speed :D
22.01.2019 - 14:13
Rachel Dyas skrifaði:
Hi there I think I have followed the measurements for the largest size, it looks strange though, before felting is the thumb supposed to be longer than the main mitten? have I made a mistake:/
22.01.2019 - 12:48DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Dyas, the thumb is not supposed to be longer than the mitten, it should measure approx. 9 cm from where you picked up the stitches and 12 cm from beg of gusset. You start to decrease for top of hand on mitten when piece measures 12 cm from the new sts cast on over thumb gusset, make sure you get the correct measurements. Happy knitting!
22.01.2019 - 12:57
Ilona skrifaði:
För att sticka A1 och mönster undrar jag om jag måste klippa trådarna efter varje varv?
17.01.2019 - 10:03DROPS Design svaraði:
Hei Ilona. Denne votten strikker du frem og tilbake til A.1 er strikket ferdig, du trenger derfor ikke klippe tråden mellom hver omgang. Strikk med perlegrå frem til A.1, strikk med 2 farger over disse 21 masker, og fortsett med perlegrå ut omganggen. Snu, strikk med perlegrå til du kommer til A.1, strikk med 2 farger over perlegrå. Den blå tråden vil hele tiden være i den siden av A.1 du strikker fra, så du trenger ikke klippe tråden her. God fornøyelse
17.01.2019 - 15:04
Catharina Österberg skrifaði:
Hej, varför finns aldrig garnet att köpas i samma färg som mönstret?? Klickar på en bild på ett mönster man vill ha, men sedan finns inte garnet?
27.11.2018 - 08:28
Icy Paws#icypawsmittens |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónaðir og þæfðir vettlingar með stjörnu. Stykkið er prjónað úr DROPS Lima. Þema: Jól
DROPS Extra 0-1413 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚRTAKA-1: Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 52 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 4) = 14. Í þessu dæmi þá eru prjónaðar ca 13. og 14. hver lykkja slétt saman. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 lykkju með því að prjóna 2 lykkjur í sömu lykkju. ÚRTAKA-2: Byrjið 2 lykkjum á undan lykkju með prjónamerki í, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið lykkju með prjónamerki í slétt, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VETTLINGAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna þar til A.1 hefur verið prjónað til loka, prjónið síðan vettlinginn í hring í sléttprjóni á sokkaprjóna. HÆGRI VETTLINGUR: Fitjið upp 56-56-62 lykkjur á hringprjón 4,5 með litnum dökk blár. Prjónið 4 umferðir sléttprjón fram og til baka. Skiptið yfir í litinn perlugrár og prjónið 2 umferðir sléttprjón þar sem fækkað er um 4 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð – lesið ÚRTAKA-1 = 52-52-58 lykkjur. Skiptið til baka yfir í litinn dökk blár og prjónið 2 umferðir sléttprjón. Prjónið síðan áfram í sléttprjóni og í litnum perlugrár – í fyrstu umferð er fækkað um 4 lykkjur jafnt yfir = 48-48-54 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 10-11-12 cm er fækkað um 4-0-2 lykkjur jafnt yfir = 44-48-52 lykkjur. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Setjið 1 prjónamerki í 25.-27.-29. lykkju í umferð (= merkir útaukningu fyrir þumalfingur). Prjónið áfram með stjörnu mitt ofan á hönd þannig: Prjónið 0-1-2 lykkjur með litnum perlugrár, prjónið A.1 (= 21 lykkjur), og prjónið með litnum perlugrár út umferðina. Haldið svona áfram með A.1. JAFNFRAMT er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með prjónamerki í – sjá ÚTAUKNING (= 2 lykkjur fleiri). Aukið svona út á ytri hlið við útauknar lykkjur í 4. hverri umferð (þ.e.a.s. í annarri hverri umferð frá réttu) alls 6-7-8 sinnum = 56-62-68 lykkjur. Eftir síðustu útaukningu eru útauknar lykkjur + lykkja með prjónamerki + 1 lykkja hvoru megin við þessar lykkjur settar á þráð fyrir þumalfingur (A.1 á nú að vera lokið) = 15-17-19 þumallykkjur á þræði. Stykkið mælist ca 20-22-23 cm. Skiptið yfir á sokkaprjón 4,5. Prjónið síðan vettlinginn í hring á sokkaprjóna í sléttprjóni og með litnum perlugrár til loka. JAFNFRAMT í fyrstu umferð þegar prjónað er í hring eru fitjaðar upp 3 nýjar lykkjur á prjóninn yfir lykkjur á þræði (= aftan við þumal) = 44-48-52 lykkjur. Þegar stykkið mælist 13-13-12 cm frá lykkjum sem fitjaðar voru upp aftan við þumalfingur eru sett 2 prjónamerki í stykkið þannig: Setjið 1 prjónamerki í fyrstu lykkju í umferð og 1 prjónamerki í 23.-25.- 27. lykkju í umferð. Í næstu umferð er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – lesið ÚRTAKA-2 (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 4-5-6 sinnum og síðan í hverri umferð alls 4 sinnum í öllum stærðum = 12 lykkjur eftir í öllum stærðum. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. ÞUMALFINGUR: Þumalfingurinn er prjónaður með litnum perlugrár. Setjið 15-17-19 þumallykkjur á sokkaprjón 4,5, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 3 lykkjum sem fitjaðar voru upp aftan við þumalfingur = 18-20-22 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar þumalfingurinn mælist ca 6-6½-7 cm fækkið um 2 lykkjur jafnt yfir = 16-18-20 lykkjur. Prjónið 3 umferðir slétt. Í næstu umferð er fækkað um 6-8-8 lykkjur jafnt yfir = 10-10-12 lykkjur. Þegar þumalfingurinn mælist 7½-8-8½ cm prjónið allar lykkjur slétt saman tvær og tvær = 5-5-6 lykkjur eftir. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. VINSTRI VETTLINGUR: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og hægri vettlingur, nema gagnstætt. Þ.e.a.s. aukið út fyrir þumalfingur hvoru megin við 20.-22.-24. lykkju í umferð og þegar prjóna á stjörnu mitt ofan á hönd þá er prjónað þannig: Prjónið 22-24-26 lykkjur með litnum perlugrár, prjónið A.1 (= 21 lykkjur) og prjónið 0-1-2 lykkjur með litnum perlugrár. ÞUMALFINGUR: Prjónið þumalfingur á sama hátt og á hægri vettlingi. FRÁGANGUR: Saumið saman op meðfram ytri hlið á vettlingi – saumið kant í kant í ystu lykkjubogana þannig að saumurinn verði flatur (saumið með litnum perlugrár). ÞÆFING: Til þess að koma í veg fyrir að þumalfingurinn þæfist saman, snúið vettlingnum við og setjið lítinn plastpoka í þumalfingurinn. Festið hann með nælu – ATH: Festið næluna lóðrétt niður að topp á þumalfingri þannig að auðvelt sé að taka hana úr eftir þæfingu. Snúið vettlingnum til baka þannig að vettlingurinn þæfist með réttuna út. Setjið stykkið í þvottavél með þvottaefni án enzyma og bleikiefna saman með litlu frotte handklæði ca 50 x 70 cm. Þvoið við 40 gráður með venjulegri vindingu án forþvottar ATH: Ekki nota stutt þvottakerfi. Eftir þvott er stykkið formað til á meðan það er enn vott. EFTIR ÞÆFINGU: Ef stykkið hefur þæfst of lítið og er of stórt: Þvoðu stykkið einu sinni enn í þvottavél á meðan það er enn vott. Ef stykkið hefur þæfst of mikið og er of lítið: Togið stykkið út í rétta stærð á meðan það er enn vott, ef stykkið er of þurrt, bleytið það fyrst. Munið: Síðar er stykkið þvegið eins og venjuleg ullarflík. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #icypawsmittens eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1413
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.