SWer skrifaði:
Hallo, Ich stricke gerade diesen Pullover in Größe L und bin beim Muster A2 und frage mich ob das Muster nicht wie folgt lauten müsste: g,f,c,f,d,e,d,e,d,b,c,b,a und nicht wie folgt in der Anleitung geschrieben: a,b,c,b,d,e,d,e,d,f,c,f,g ?! Freue mich auf eine schnelle Antwort. Viele Grüße!
05.12.2017 - 21:32DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Swer, die Diagramme sind so richtig, Sie stricken von oben nach unten und von der Mitte am Rückenteil, so beginnt man mit a (Mitte am Ruckenteil) bis g (Mitte am Vorderteil) und noch einmal wiederholen von a bis g wie geschrieben. Viel Spaß beim stricken!
06.12.2017 - 09:30
Season Greetings#seasongreetingssweater |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa / jólapeysa með hringalaga berustykki og norrænu mynstri, prjónuð ofan frá og niður úr DROPS Karisma. Stærð S - XXXL.
DROPS 183-5 |
||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 148 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 16) = 9,3. Í þessu dæmi er aukið út á eftir ca 9. hverja lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum er prjónuð ca 8. og 9. hver lykkja slétt saman. LEIÐBEININGAR PRJÓN: Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðum aftan á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það strekkist á því. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi): Byrjið 3 lykkjum á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn er staðsettur fyrir miðju á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Það er hægt er að prjóna upphækkun aftan í hnakka til að flíkin passi betur og þá verður berustykkið hærra að aftan. Hægt er að sleppa við þessa upphækkun, þá verður hálsmál alveg eins að framan og að aftan – sjá útskýringu á upphækkun neðar í uppskrift. Eftir berustykki er fram- og bakstykki prjónað í hring á hringprjón. Fram- og bakstykki skiptis við klauf og prjónað er síðan fram og til baka. Ermar eru prjónaðar í hring á hringprjón/sokkaprjóna ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 148-148-152-156-160-164 lykkjur á stuttan hringprjón 3,5 með litnum rauður. Setjið 1 merki í byrjun umferðar (= miðja að aftan). Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 6 cm. Skiptið yfir á stuttan hringprjón 4,5 og prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 16-20-20-22-24-26 lykkjur jafnt yfir – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 164-168-172-178-184-190 lykkjur. Prjónið nú upphækkun aftan í hnakka eða farið áfram í að prjóna berustykki ef ekki er óskað eftir upphækkun. UPPHÆKKUN Í HNAKKA: Hoppið yfir þennan kafla ef ekki er óskað eftir upphækkun. Prjónið 13-13-14-14-15-15 lykkjur slétt fram hjá merki. Snúið, herðið á þræði og prjónið 26-26-28-28-30-30 lykkjur brugðið til baka. Snúið, herðið á þræði og prjónið 39-39-42-42-45-45 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 52-52-56-56-60-60 lykkjur brugðið til baka. Haldið áfram með að prjóna yfir 13-13-14-14-15-15 lykkjur fleiri í hvert skipti sem snúið er við þar til prjónað hefur verið yfir alls 104-104-112-112-120-120 lykkjur, snúið og prjónið sléttar lykkjur aftur fram að miðju að aftan. BERUSTYKKI: = 164-168-172-178-184-190 lykkjur. Prjónið síðan mynstur í hring eftir mynsturteikningu A.1 og aukið út jafnt yfir í hverri umferð merktri með ör í mynsturteikningu eins og útskýrt er að neðan – lesið MYNSTUR, LEIÐBEININGAR PRJÓN og ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Ör-1: Aukið um 28-28-32-34-40-44 lykkjur = 192-196-204-212-224-234 lykkjur. Ör-2: Aukið um 24-28-32-32-40-42 lykkjur = 216-224-236-244-264-276 lykkjur. Ör-3: Aukið um 20-24-28-34-36-40 lykkjur = 236-248-264-278-300-316 lykkjur. Ör-4: Aukið um 20-24-24-26-36-36 lykkjur = 256-272-288-304-336-352 lykkjur. Ör-5: Aukið um 28-28-24-20-24-20 lykkjur = 284-300-312-324-360-372 lykkjur. Ör-6: Aukið um 22-24-18-24-18-18 lykkjur = 306-324-330-348-378-390 lykkjur. STÆRÐ S - M: Lesið áfram frá ALLAR STÆRÐIR. STÆRÐ L - XL: ÖR-7: Aukið um 12-18 lykkjur = 342-366 lykkjur. STÆRÐ XXL: ÖR-7: Aukið um 18 lykkjur = 396 lykkjur. ÖR-8: Aukið um 12 lykkjur = 408 lykkjur. STÆRÐ XXXL: ÖR-7: Aukið um 18 lykkjur = 408 lykkjur. ÖR-8: Aukið um 18 lykkjur = 426 lykkjur. ÖR-9: Aukið um 14 lykkjur = 440 lykkjur. ALLAR STÆRÐIR: Prjónið til og með síðustu umferð í þinni stærð. Stykkið mælist ca 24-25-26-28-30-32 cm frá uppfitjunarkanti (ef þessu máli hefur ekki verið náð er haldið áfram án útaukninga að réttu máli – en ekki lengra en að næst síðustu umferð í A.1 – stillið af að næsta umferð sem á að prjóna eftir að réttu máli hefur verið náð sé prjónuð einungis með einum lit). Prjónið næstu umferð í A.1 þannig: Prjónið 47-48-50-56-63-68 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 60-66-72-72-78-84 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 6-6-6-12-12-12 nýjar lykkjur (= hlið), prjónið 93-96-99-111-126-136 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 60-66-72-72-78-84 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 6-6-6-12-12-12 nýjar lykkjur (= hlið) og prjónið síðustu 46-48-49-55-63-68 lykkjur (= hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 198-204-210-246-276-296 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 6-6-6-12-12-12 nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp í hvorri hlið (= 99-102-105-123-138-147 lykkjur á fram- og bakstykki) – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið síðan áfram til og með síðustu umferð í A.1 í öllum stærðum. Þegar A.1 er lokið á hæðina er prjónuð 1 umferð með litnum rauður þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður til 196-206-216-246-272-292 lykkjur. Prjónið síðan mynstur í hring eftir mynsturteikningu A.2 þannig: ** Prjónið A.2a (= 5 lykkjur), * A.2b (= 18 lykkjur), A.2c (= 1 lykkja) *, prjónið frá *-* alls 1-1-1-1-2-2 sinnum, prjónið A.2b (= 18 lykkjur), prjónið * A.2d (= 5 lykkjur), A.2e (= 5 lykkjur) *, prjónið frá *-* alls 1-2-2-4-1-2 sinnum, prjónið A.2d (= 5 lykkjur) alls 1-0-1-0-1-1 sinni, prjónið A.2f (= 18 lykkjur), prjónið * A.2c (= 1 lykkja), A.2f (= 18 lykkjur) * prjónið frá *-* alls 1-1-1-1-2-2 sinnum og prjónið A.2g (= 4 lykkjur) **, endurtakið frá **-** 1 sinni til viðbótar. Haldið áfram þar til A.2 er lokið á hæðina. Prjónið 1 umferð með litnum rauður og jafnið lykkjufjöldann til 198-204-210-246-276-294 lykkjur með því að auka/fækka lykkjum jafnt yfir. Prjónið síðan mynstur í hring eftir mynsturteikningu A.3 (= 33-34-35-41-46-49 mynstureiningar með 6 lykkjum). Í umferð merktri með ör er lykkjufjöldinn jafnaður til 196-204-212-248-276-296. Haldið áfram þar til A.3 er lokið á hæðina (= 49-51-53-62-69-74 mynstureiningar með 4 lykkjum). Héðan er prjónað sléttprjón með litnum rauður. Þegar stykkið mælist 30-31-32-33-33-33 cm frá merkiþræði er stykkinu skipt upp í hlið fyrir klauf og fram- og bakstykki er prjónað til loka fram og til baka á hringprjón hvort fyrir sig. BAKSTYKKI: = 99-102-105-123-138-147 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón með 4 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 40-41-42-43-43-43 cm, skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið 1 umferð þar sem aukið er út um 23-24-25-31-32-35 lykkjur jafnt yfir = 122-126-130-154-170-182 lykkjur. Prjónið síðan frá réttu þannig: Prjónið 4 lykkjur í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt og 4 lykkjur í garðaprjóni. Prjónið svona í 2 cm. Skiptið til baka yfir á hringprjón 4,5 og fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Stykkið mælist ca 42-43-44-45-45-45 cm. FRAMSTYKKI: = 99-102-105-123-138-147 lykkjur. Prjónið á sama hátt og bakstykki. ERMI: Ermin er prjónuð í hring. Setjið til baka lykkjur af þræði á stuttan hringprjón/sokkaprjón 4,5, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-12-12-12 nýjum lykkjum undir ermi (haldið áfram með mynstureiningu A.1 eins og áður) = 66-72-78-84-90-96 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju undir ermi (= fyrir miðju í 6-6-6-12-12-12 lykkjurm sem prjónaðar voru upp mitt undir ermi) – hér byrjar næsta umferð. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Þegar stykkið mælist 2 cm er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum með 3-2½-2-2-1½-1½ cm millibili alls 12-14-16-18-20-22 sinnum = 42-44-46-48-50-52 lykkjur. Haldið áfram hringinn eftir A.1 yfir allar lykkju þar til mynstureiningin er lokið á hæðina. Setjið 1 merki fyrir miðju ofan á ermi = miðjulykkja. ATH: Prjónið nú mynstureiningu A.4, en vegna fækkun lykkja fyriri miðju undir ermi verður að stilla mynstrið af, það er gert þannig: Teljið út lykkjur hvoru megin við miðjulykkju ofan á ermi og stillið af hversu margar lykkjur eru í fyrstu mynstureiningu af A.4a í umferð og hversu margar lykkjur eru í síðustu mynstureiningu í umferð af A.4c. Þ.e.a.s. prjónið mynstur þannig: Prjónið þann fjölda lykkja sem er pláss fyrir í A.4a, prjónið A.4a (= 19 lykkjur), A.4b (= 9 lykkjur, sjá stjörnu í mynsturteikningu = miðjulykkja), A.4c (= 19 lykkjur) og prjónið þann fjölda lykkja sem er pláss fyrir í A.4c. Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka er prjónað mynstur í hring eftir mynsturteikningu A.3 – stillið af að fyrsta lykkja í mynsturteikningu verði fyriri miðju ofan á ermi. Þegar A.3 er lokið á hæðina er haldið áfram í sléttprjón og með litnum rauður. Þegar stykkið mælist 38-38-38-37-35-34 cm frá merkiþræði fyrir miðju undir ermi er skipt yfir á sokkaprjón 3,5 og prjónuð er 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 6-4-6-4-6-4 lykkjur jafnt yfir = 48-48-52-52-56-56 lykkjur. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Skiptið yfir á sokkaprjón 4,5 og fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 42-42-42-41-39-38 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #seasongreetingssweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 32 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 183-5
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.