Anne Blundell skrifaði:
Thanks so much for taking the time to answer my quaestion, much appreciated.
28.08.2018 - 15:18
Anne Blundell skrifaði:
Can the hat pattern be adapted to knit straight on two needles? Since I find this much easier than a cisrcular needle
25.08.2018 - 14:07DROPS Design svaraði:
Hello Anne. Yes, you can work with straight needles. Just cast on 2 sts more, one each side for the edges. You then follow the instructions as given. The diagram is worked in stocking st. Happy knitting!
27.08.2018 - 18:52
Rebecka skrifaði:
Jag har precis som Malin stickat en halv vante med fabel på angivna stickor. När jag skickat de första fem raderna med hjärtan så är vanten bara 10 cm istället för 12 och alldeles för smal för en vuxen. Något måste vara fel i mönstret. Har stickat flera olika vantar och sockar efter era mönster men aldrig med det här resultatet.
28.01.2018 - 19:34
Malin Bolmhagen skrifaði:
Jag har köpt samma garn och samma storlek på stickorna som i beskrivningen. Jag följde mönster för mössa S/M som passade till ett barn 4/5 år och vanten blev oxå i barnstorlek!
07.01.2018 - 09:04
Queen of Hearts#queenofheartsset |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Settið samanstendur af: Húfu og vettlingum með hjörtum úr DROPS Fabel.
DROPS 183-23 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GALDRAHRINGUR: Til þess að koma í veg fyrir göt í miðju er byrjað á þessari aðferð: Haldið í endann með vinstri hendi og gerið lykkju utan um vinstri vísifingur (frá vinstri að hægri). Haldið í lykkjuna með vinstri þumli og vísifingri. Stingið prjóninum í gegnum lykkjuna, sækið þráðinn frá dokkunni (þ.e.a.s. leggið þráðinn 1 sinni yfir prjóninn frá þér) og dragið þráðinn til baka í gegnum lykkjuna, sláið 1 sinni uppá prjóninn (þráðurinn er nú lagður aftan við og að þér) og dragið uppsláttinn í gegnum lykkju á prjóni, * stingið prjóninum inn í gegnum lykkjuna, sláið 1 sinni uppá prjóninn (þráðurinn er lagður aftan frá og að þér), dragið uppsláttinn í gegnum lykkjuna, sláið 1 sinni uppá prjóninn (aftan frá og að þér) og dragið uppsláttinn í gegnum síðustu lykkju á hægri prjóni (þ.e.a.s. síðustu l sem var gerð) *, endurtakið frá *-* þar til 8 lykkjur eru á prjóni. Deilið lykkjunum á 4 sokkaprjóna nr 3,5 og prjónið eins og útskýrt er í uppskrift – JAFNFRAMT er dregið í garnendann þannig að lykkjan dragist saman og gatið hverfi. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Í mynsturteikningu A.1 og A.2, veljið mynsturteikningu fyrir óskaða stærð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, skiptið yfir á sokkaprjóna þegar lykkjum er fækkað á toppi húfunnar. Vegna mynstur þá er húfan gefin upp í stærð XS/S og M/L. Ef óskað er eftir stærð S/M (höfuðmál 54/56) er hægt að prjóna stærð XS/S með 1/2 númeri grófari prjónum. HÚFA: Fitjið upp 128-152 lykkjur á hringprjón 2 með litnum svartur Fabel. Prjónið 1 umferð slétt. Í næstu umferð er prjónað stroff með 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur brugðið þar til stykkið mælist ca 4 cm. Skiptið yfir á hringprjón 2,5 og prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 8 lykkjur jafnt yfir í umferð = 120-144 lykkjur. Prjónið mynsturteikningu A.1 (mynstur í mynsturteikningu er deilanlegt með 8, en þar sem mynsturteikning á að passa yfir hverja aðra verður að byrja mismunandi með mismunandi hluta mynsturs eftir stærð. A.1 er prjónað 3-6 sinnum á breidd. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Endurtakið mynsturteikningu 3 sinnum á hæðina, stykkið mælist ca 17 cm. Prjónið síðan mynsturteikningu A.2 yfir A.1. Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka á hæðina eru 12 lykkjur eftir í umferð. Prjónið 2 og 2 lykkjur slétt saman = 6 lykkjur. Klippið frá. Þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru nokkrum sinnum, herðið að og festið vel. ------------------------------------------------------- VETTLINGAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Höndin er prjónuð frá fingrum og upp að opi fyrir þumal. Þumallinn er prjónaður í hring frá toppi áður en lykkjum er fækkað fyrir opi á þumli og tengt saman við afgang af vettling. Síðan er stykkið prjónað áfram í hring. VETTLINGUR HLUTI 1: Byrjið með litnum svartur og GALDRAHRINGUR – sjá útskýringu að ofan = 8 lykkjur deilt á 4 sokkaprjóna 2,5 – ATH: Ef maður vill ekki byrja með galdrahring eru fitjaðar upp 8 lykkjur með litnum svartur (þegar vettlingurinn hefur verið prjónaður til loka er þráður þræddur upp og niður í gegnum lykkjurnar í kringum opið á toppnum og lykkjurnar dregnar saman). Prjónið síðan mynstur í hring á eftir mynsturteikningu A.3 fyrir vinstri vettling og A.4 fyrir hægri vettling. Þegar útaukninu í mynsturteikninu er lokið eru 56 lykkjur í umferð. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið síðan að umferð merktri með ör í mynsturteikningu (stykkið mælist ca 12 frá toppi), í þessari umferð eru felldar af 3 lykkjur fyrir op á þumli (svörtu rúðurnar í mynsturteikningu sýnir hvar fellt er af). Geymið vettlinginn og prjónið þumal. ÞUMALL: Byrjið með litnum svartur og GALDRAHRINGUR = 8 lykkjur skipt yfir á sokkaprjón 2,5. Prjónið í hring eftir mynsturteikningu A.5. Þegar útaukningu í mynsturteikningu er lokið eru 20 lykkjur í umferð. Í síðustu umferð í mynsturteikningu eru felldar af 3 lykkjur fyrir op á þumli í umferð (svörtu rúðurnar í mynsturteikningu sýna hvar fellt er af). Nú eru 17 lykkjur eftir á þumli. Þumallinn er nú tilbúinn. VETTLINGUR HLUTI 2: Nú á að prjóna þumalinn saman við vettling, staðsetjið þumalinn á prjóninn þar sem lykkjur voru felldar af fyrir op á þumli á vettlingi. Prjónið síðan hringinn eftir mynsturteikningu A.3/A.4 yfir lykkjur á vettling eins og áður, hoppið yfir svörtu rúðurnar, hér er prjónuð mynsturteikning A.6 (= op á þumli). Stjarna í A.6 á að passa við stjörnu í A.5 þannig að mynstrið haldi áfram. Þegar mynsturteikning A.6 er lokið eru 56 lykkjur í umferð. Haldið áfram að prjóna eftir A.3/A.4. Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka er skipt yfir á sokkaprjón 2 og prjónuð 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff með 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur brugðið í 5 umferðir. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Saumið saman op á milli þumals og vettlings. Klippið frá og festið enda. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #queenofheartsset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 22 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 183-23
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.