Margaret Tigchelaar skrifaði:
Is it normal that I have a lot of trouble getting the sleeves back on the needle to finishe the yoke? I find it so hrd that I wonder if I am doing something wromg, although I finally got the first sleeve on, but dread having to do second sleeve. Other than that I have thoroughly enjoyed using this pattern. Please send me an answer?
31.12.2024 - 01:35DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Tigchelaar, the first round might be a bit tricky but then it will be easier after some rounds; you can use the technique of magic loop for these first rounds, or another circular needle. Happy knitting!
02.01.2025 - 15:12
Sylvie Bérard skrifaði:
J’ai commencé ce chandail grandeur 5/6 et je me suis rendue compte après 7 cm de haut que c’était beaucoup trop grand malgré que mon échantillon était bon. J’ai ensuite réalisé en regardant le dessin que la largeur est 40cm pour le bas comparativement à 36 cm pour le modèle 40-3. Veuillez corriger ce modèle svp car j’ai tout défait
25.11.2024 - 15:01DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Bérard, en taille 5/6 ans, la largeur est bien de 40 cm, conformément aux dimensions indiquées dans le schéma, mais si vous le voulez moins large, vous pouvez volontiers faire les ajustements nécessaires. Bon tricot!
26.11.2024 - 10:06
Michela skrifaði:
Mi piacerebbe farlo per mio nipote. Ma vorrei usare la tecnica di lavorazione classica, cioè il davanti, il dietro e le maniche separatamente e poi unire le varie parti. Come fare? Aiutoooo
09.10.2024 - 17:11DROPS Design svaraði:
Buongiorno Michela, purtroppo non possiamo fornire un'assistenza così personalizzata, ma sul nostro sito può trovare altri modelli con costruzioni diverse. Buon lavoro!
10.10.2024 - 15:58
Linda skrifaði:
Hei igjen. Jeg står fast etter oppskriftens 13 av 15 fellerunder oppover mot halsen. Istedet for å felle 5 av 10 masker over fletta, og deretter sette flere masker på hjelpepinne, strikke frem og tilbake, felle, hente opp masker osv.. Kan jeg bare strikke rundt og raglanfelle to runder til, så strikke vrangbord? Uten å felle av endel masker eller? Prøvde å se video og gjøre som det står i oppskrifta, men det ble ikke riktig.
10.09.2024 - 12:37DROPS Design svaraði:
Hej Linda, da vil du få for mange masker over fletterne... men stemmer antal masker, så går det sikkert fint :)
13.09.2024 - 13:33
Linda skrifaði:
Hei! Finnes det en enklere måte å strikke halsen på? Jeg forstår ikke helt hvordan det skal gjøres ifølge oppskriften og synes det virker avansert. Har strikket noen få gensre før, og mener å huske at det har vært veldig enkelt ved halsen.
05.09.2024 - 10:06DROPS Design svaraði:
Hej Linda, hvis det er fellingen du ikke synes om, så kan du strikke det antal masker op ifølge din størrelse og strikke dem i vrangbord 1r 1vr :)
06.09.2024 - 13:55
Hanna skrifaði:
Hi i am confused on the yoke part. I am doing the smallest size and i am on the part about putting the 21 stitches on scrap yarn for the neck. But which 21 stiches is it? Im having a difficult time figuring out where and which stitches i am supposed to put on the thread.
29.05.2024 - 05:04DROPS Design svaraði:
Hi Hanna, The stitches on the thread/stitch holder are evenly distributed above the cable mid-front (after knitting together 10 stitches above this same cable 2 and 2 ). So with 5 stitches left after knitting together, you place these 5 stitches and 8 stitches on each side on the thread or stitch holder. Happy knitting!
29.05.2024 - 06:40
Judy Jarrett skrifaði:
Everyone seems to be having a problem with the yoke section. I'm afraid to try it. I don't want to have to take the whole thing out.
19.05.2024 - 18:31
Mieke skrifaði:
Ik kom er nog steeds niet uit mbt de kabel en het patroon nl op de foto heeft de trui twee kabels die elkaar kruisen en dat zie ik niet terug in het patroon. Kunt u mij aub het juiste patroon vertellen zodat ik de voorkant krijg conform de foto? Bij voorbaat heel hartelijk dank! Ik brei de kleine maat.....
01.11.2022 - 15:39DROPS Design svaraði:
Dag Mieke,
Als je het patroon volgt dan ontstaat er vanzelf een kabel zoals op de foto. Dit is in het telpatroon aangegeven met 1 schuine streep die over een aantal steken loopt. Daarbij plaats je een aantal steken op een kabelnaald (afhankelijk van de maat die je aan het breien bent 5 of 6 steken)en houd deze achter het werk. Vervolgens brei je een aantal steken (afhankelijk van de maat die je aan het breien bent 5 of 6 steken) en daarna brei je weer de steken van de kabelnaald.
02.11.2022 - 14:48
Mieke skrifaði:
Je bedoeld misschien grote maten 6 steken op de kabelnaald en kleine 3 maten 5? En klopt het dat de kabelnaald met de steken steeds ACHTER het werk moeten?
30.10.2022 - 21:34DROPS Design svaraði:
Dag Mieke,
Bij de grote maten 6 steken op een kabelnaald zetten, 6 steken breien en dan de 6 steken van de kabelnaald breien. Je houd de steken van de kabelnaald inderdaad steeds achter het werk.
02.11.2022 - 14:49
Mieke skrifaði:
Ik snap het kabelpatroon niet nl wanneer moet ik 5 steken op de kabelnaald zetten en wanneer 6 steken. Ik zien telpatroon nl geen verschil
28.10.2022 - 18:36DROPS Design svaraði:
Dag Mieke,
Alleen voor de grootste 3 maten zet je 5 steken op een kabelnaald en alleen voor de kleinste 3 maten zet je steeds 5 steken op een kabelnaald.
30.10.2022 - 17:09
Winter Nap#winternapsweater |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Prjónuð peysa fyrir börn með köðlum og laskalínu. Stærð 2-12 ára. Stykkið er prjónað úr DROPS Air.
DROPS Children 30-7 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 25 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 5) = 5. Í þessu dæmi þá eru prjónaðar ca 4. og 5. hver lykkja slétt saman. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð. LASKALÍNA: Fækkið lykkjum fyrir laskalínu í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma. Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki og prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri). Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (á við um miðju undir ermi): Byrjið 1 lykkju á eftir prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið þar til 1 lykkja er eftir í umferð, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið 1 lykkju slétt (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón neðan frá og upp að handveg. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjón, síðan er fram- og bakstykki og ermar sett saman og prjónað er til loka. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 136-144-152-160-168-176 lykkjur á hringprjón 4,5. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= í hlið). Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 25-27-29-29-31-33 lykkjur og fækkið jafnframt um 5 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA, prjónið A.1 (veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð = 19-19-19-23-23-23 lykkjur sem auknar eru til 20-20-20-24-24-24 lykkjur í fyrstu umferð), prjónið 25-27-29-29-31-33 lykkjur slétt og fækkið jafnframt um 5 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, setjið 1 prjónamerki (= í hlið), prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 67-71-75-79-83-87 lykkjur og fækkið jafnframt um 11-11-11-13-13-13 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur. Nú eru 60-64-68-72-76-80 lykkjur á milli prjónamerkja á framstykki og 56-60-64-66-70-74 lykkjur á bakstykki = alls 116-124-132-138-146-154 lykkjur í umferð. Næsta umferð er prjónuð þannig: 20-22-24-24-26-28 lykkjur í sléttprjóni, haldið áfram með A.1 (= 20-20-20-24-24-24 lykkjur) og prjónið sléttprjón út umferðina. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka eru prjónað A.2 yfir þessar 20-20-20-24-24-24 lykkjur. A.2 er síðan endurtekið áfram. Þegar stykkið mælist 20-23-26-29-32-35 cm fellið af 4-4-4-6-6-6 lykkjur í hvorri hlið fyrir handveg (fellið af 2-2-2-3-3-3 lykkjur hvoru megin við bæði prjónamerkin). Nú eru 56-60-64-66-70-74 lykkjur á framstykki og 52-56-60-60-64-68 lykkjur á bakstykki. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Fitjið upp 30-32-32-34-34-36 lykkjur á sokkaprjón 4,5. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Skiptið yfir á sokkaprjón 5,5. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar (= mitt undir ermi). Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 4 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA = 26-28-28-30-30-32 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 6 cm er aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING. Aukið svona út með 2½-3½-3½-4-5-5½ cm millibili alls 6-6-7-7-7-7 sinnum = 38-40-42-44-44-46 lykkjur. Þegar stykkið mælist 22-26-30-34-38-42 cm fellið af 4-4-4-6-6-6 lykkjur mitt undir ermi (fellið af 2-2-2-3-3-3 lykkjur hvoru megin við prjónamerki) = 34-36-38-38-38-40 lykkjur. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 176-188-200-202-210-222 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hverja skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 4 prjónamerki). Haldið áfram eins og áður með sléttprjón og A.2 við miðju að framan. JAFNFRAMT í fyrstu umferð er lykkjum fækkað fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Fækkið lykkjum fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 13-14-15-16-17-18 sinnum. JAFNFRAMT þegar 2 úrtökur eru eftir í laskalínu (ef prjónfestan passar á hæðina mælist stykkið ca 31-35-39-43-47-51 cm við miðju að framan), prjónið 10-10-10-12-12-12 lykkjur yfir kaðal við miðju að framan slétt saman 2 og 2 (= 5-5-5-6-6-6 lykkjur færri). Í næstu umferð eru 21-23-25-24-26-28 miðju lykkjur settar á þráð fyrir hálsmáli. Prjónið síðan stykkið fram og til baka frá hálsmáli og fellið af 1 lykkju í byrjun á 2 næstu umferðum fyrir hálsmáli. Eftir alla úrtöku/affellingu fyrir laskalínu og hálsmáli eru 44-46-48-42-40-42 lykkjur eftir á prjóni. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp frá réttu ca 67-71-75-68-68-72 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur á bandi að framan) á stuttan hringprjón 4,5. Prjónið 1 umferð slétt þar sem lykkjum er fækkað jafnt yfir til 58-60-62-64-66-68 lykkjur. Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 36-40-44-48-52-56 cm frá öxl og niður. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. ---------------------------------------------------------- Buxur: Sjá DROPS Children 30-22 eða "Tengd mynstur" í uppskrift á netinu. ---------------------------------------------------------- |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #winternapsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 30-7
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.