DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2552.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Winter Wolf

Prjónaðar buxur fyrir börn með teygju. Stærð 2-12 ára. Stykkið er prjónað með 2 þráðum DROPS Fabel.

DROPS Children 30-22
DROPS Design: Mynstur fa-019-bn
Garnflokkur A + A eða C
-----------------------------------------------------------
Stærð: 2 - 3/4 - 5/6 - 7/8 - 9/10 - 11/12 ára
Stærð í cm: 92 - 98/104 - 110/116 - 122/128 - 134/140 - 146/152
Efni:
DROPS FABEL frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
200-250-300-300-300-400 g litur 604, yfir hafið

Einnig er hægt að prjóna stykkið með garni frá: "Garnmöguleiki (Garnflokkur A)" – sjá tengil að neðan.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 cm) NR 4,5 – eða þá stærð sem þarf til að 18 lykkjur og 23 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

FYLGIHLUTIR: Teygja (ca 6-10 mm breidd) – ca 60-80 cm.
----------------------------------------------------------

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2552.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

ÚTAUKNING:
Aukið er út hvoru megin við 2 lykkjur slétt með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo að ekki myndist gat. Útauknu lykkjurnar eru prjónaðar jafnóðum inn í stroff, þ.e.a.s. 2 fyrstu lykkjurnar sem auknar eru út eru prjónaðar slétt, næstu 2 lykkjur eru prjónaðar brugðið o.s.frv.

ÚRTAKA:
Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: Prjónið 2 lykkjur snúnar slétt saman/2 lykkjur snúnar brugðið saman.
Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman/2 lykkjur brugðið saman.

LEIÐBEININGAR:
Lengdin á skálminni er hægt að gera að óskuðu máli, með því að prjóna skálmina lengri þá er hægt að gera uppábrot og þá geta buxurnar vaxið með barninu.
----------------------------------------------------------


BUXUR:
Stykkið er prjónað í hring, ofan frá og niður. Umferðin byrjar við miðju að aftan.
Fitjið upp 104-112-120-120-128-136 lykkjur á hringprjón 4,5 með 2 þráðum Fabel. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar (= miðja að aftan) og 1 prjónamerki eftir 52-56-60-60-64-68 lykkjur (= miðja að framan). Prjónið stroffprjón frá miðju að aftan þannig: * 3 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt *, endurtakið út umferðina. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist ca 2 cm er prjónuð ein gataumferð þannig: 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur brugðið saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* umferðina hringinn = 26-28-30-30-32-34 göt í umferð. Eftir gataumferð er haldið áfram í stroffprjóni eins og áður með 3 lykkjum brugðið, 1 lykkja slétt í 2 umferðir til viðbótar.
Næsta umferð er prjónuð þannig: 1 lykkja slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, endið með 2 lykkjur brugðið og 1 lykkju slétt. Haldið áfram svona í stroffprjóni.

Þegar stykkið mælist 5 cm er prjónuð upphækkun að aftan þannig: Prjónið 7 lykkjur stroffprjón, snúið, herðið á þræði og prjónið 14 lykkjur stroffprjón til baka. Snúið, herðið á þræði og prjónið 24 lykkjur stroffprjón. Snúið, herðið á þræði og prjónið 34 lykkjur stroffprjón til baka. Haldið svona áfram fram og til baka með því að prjóna 10 lykkjur fleiri í hvert skipti sem snúið er við og þar til prjónaðar hafa verið alls 74-74-94-94-114-114 lykkjur, snúið stykkinu. Prjónið síðan stroffprjón hringinn aftur yfir allar lykkjur með 2 lykkjum slétt, 2 lykkjum brugðið þar til stykkið mælist 15-16-17-18-19-20 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan. Í næstu umferð er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 2 miðju lykkjur að framan og að aftan – lesið ÚTAUKNING! Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 8 sinnum = 136-144-152-152-160-168 lykkjur. Þegar stykkið mælist 22-23-24-25-26-27 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan, fellið af 12 lykkjur við miðju að framan og við miðju að aftan (fellið af 6 lykkjur hvoru megin við bæði prjónamerkin). Hvor skálm er prjónuð til loka fyrir sig. Setjið lykkjurnar af annarri skálminni á þráð.

SKÁLM:
= 56-60-64-64-68-72 lykkjur. Skiptið lykkjunum á sokkaprjón 4,5. Setjið 1 prjónamerki á innanverða skálmina – umferðin byrjar hér. Haldið áfram í stroffprjóni með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Þegar skálmin mælist 2 cm, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – lesið LEIÐBEININGAR, fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Setjið til baka lykkjur af hinni skálminni yfir á sokkaprjóna og prjónið alveg eins og fyrri skálm.

FRÁGANGUR:
Saumið 12 lykkjurnar sem felldar voru af á milli skálma að hverri annarri. Þræðið teygju í gegnum gataumferð.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 30-22

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (8)

country flag Maja wrote:

Når jeg skal felle av 6 masker på hver side av merkene til bein, hvordan bør jeg felle?

07.10.2023 - 14:25

DROPS Design answered:

Hei Maja. Fell av som vanlig, se evnt videoen: Hvordan felle av fra rettsiden eller Hvordan felle av i vrangbord. Når du har 6 masker igjen av omgangen før arbeidet måler 22-23-24-25-26-27 cm fra oppleggskanten midt foran, kan du felle av de første 12 maskene, strikk deretter x-antall masker til 6 masker før neste merke, fell deretter av de neste 12 masken og så strikk til der du felte av første gang Nå strikkes hvert ben ferdig for seg selv. mvh DROPS Design

16.10.2023 - 13:36

country flag Elena Mina wrote:

Buongiorno, vorrei capire come aumentare le maglie ai lati delle 2 maglie centrali mantenendo le coste (2/2) corrette. A me si sfalsano, non mantengono 2 diritti e 2 rovesci corretti. Grazie

18.07.2022 - 14:20

DROPS Design answered:

Buonasera Elena, deve incorporare le maglie nella lavorazione delle coste: all'inizio avrà una maglia sola per lato, al secondo aumento ne avrà 2, e così via. Buon lavoro!

10.08.2022 - 22:45

country flag Elvira wrote:

I do not completely understand the increasing I think. Because is says you increase on each side of 2 knitted stitches and than work them in to rib, but at first you only have one stitch extra so how do you continue them in your rib? Does that question make sense? I’m not sure how else to put it, :). Am I doing it correct by first increase by yo then knit 2 stitches and make a yo again? Thanks for your help!

24.11.2021 - 09:59

DROPS Design answered:

Dear Elvira, yes correct, you should inc with yarn over/K2/yarn over; and then you should incorporate them into the rib as you work them, ie first 2 increases will be knitted, next 2 will be purled= after 1st inc: rib K2,P2, K1 (inc), K2 (middle sts), K1 (inc), P2, K2; after 2nd inc: rib K2, P2, K2 (inc), K2 (middle sts), K2 (inc), P2, K2; after 3rd inc: K2,P2,K2,P1(inc), K2 (mid sts), P1 (inc), K2, P2, K2; after 4th inc: K2,P2,K2, P2 (inc), K2 (mid sts), P2 (inc), K2,P2,K2 and so on. Happy knitting!

24.11.2021 - 15:41

country flag Hannah wrote:

Hallo! Sollte die Maschenprobe in Reihen oder in Ruden oder in beidem gestrickt werden? Danke vorab! Hannah

06.02.2021 - 03:18

DROPS Design answered:

Liebe Hannah, die Hose wird ganz in Runden gestrickt, am besten stricken Sie Ihre Maschenprobe auch in Runden (manchmal strickt man unterschiedlich in Runden / in Reihen). Viel Spaß beim stricken!

08.02.2021 - 08:02

country flag Elisabeth wrote:

På øketips står det: De økte maskene strikkes fortløpende inn i vrangborden, dvs at de 2 første maskene som økes strikkes rett, de 2 neste strikkes vrang osv... Er det da de 2 første økte maskene på omgangen, eller de 2 første omgangene som er økt?

02.07.2020 - 23:54

DROPS Design answered:

Hei Elisabeth. Det er de 2 første (økte) maskene på omgangen som strikkes rett, neste gang det økes, strikkes de økte maskene vrang osv. God Fornøyelse!

06.07.2020 - 11:38

country flag Milada Kacapor wrote:

Hei! Når jeg legger opp 104 masker og senere øker med 2 masker (8 ganger) får jeg 120 m totalt. I oppskriften står det 136 m. Kan dere hjelpe meg til å se hvor jeg feiler? På forhånd takk.

10.11.2019 - 23:44

DROPS Design answered:

Hei Milada. Du øker med 1 maske på hver side av de 2 midterst maskene bak og 1 maske på hver side av de midterste maskene foran (= 4 økte masker pr omgang). Det skal økes 8 ganger, 4 x 8 = 32 økte masker + 104 masker = 136 masker. God Fornøyelse!

11.11.2019 - 12:44

country flag Evelina Gustafsson wrote:

Hej! I monteringen står inget om att sy ner en kant över resåren som dras genom hållbarhet. Ska den vara synlig? Med vänliga hälsningar Evelina

15.09.2019 - 20:12

DROPS Design answered:

Hei Evelina. Ja, på denne modellen blir strikken synlig. Strikken trekkes gjennom hullraden som ble strikket øverst vrangborden. God Fornøyelse!

16.09.2019 - 09:58

country flag Evelina Gustafsson wrote:

Hej! I monteringen står inget om att sy ner en kant över resåren som dras genom hållbarhet. Ska den vara synlig? Med vänliga hälsningar Evelina

15.09.2019 - 20:10