Johanna skrifaði:
In welcher Farbe wird die Erhöhung gestrickt? In der deutschen Anleitung steht dunkelrosa. In der Englischen nur rosa. Was ist mit "Faden anziehen" gemeint? Sollen verkürzte Reihen gestrickt werden? Danke!
30.05.2019 - 22:59DROPS Design svaraði:
Liebe Johanna, die Erhöhung wird mit rosa gestrickt - deutsche Anleitung wird angepasst - dieses Video zeigt wie man eine Erhöhung strickt, und wie man den Faden etwas anziehen wird. Viel Spaß beim stricken!
31.05.2019 - 09:50
RICHARD Hélène skrifaði:
Je ne suis pas sure d'arriver à faire ce modèle, si j'ai des difficultés, pourrais-je vous appeler ?
07.09.2018 - 13:02DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Richard, vous trouverez 30 vidéos pour vous aider à la réalisation de ce modèle, si besoin, vous pouvez poser votre question ici, ou bien sûr appeler votre magasin DROPS pour toute assistance personnalisée. Bon tricot!
07.09.2018 - 13:54
Alexandra Gallo skrifaði:
Die Zunahme für das rumpfteil muss ich dann bei der Zweiten Zunahme muss ich dann ein Umschlag 22maschen rechts und wieder einen Umschlag stricken
14.04.2018 - 22:44DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Gallo, die Zunahmen für das Rumpfteil werden immer auf beiden Seiten der 20 Maschen gestrickt, dh bei der 2. Zunahmen stricken Sie Bis 10 M vor der Markierer, dann 1 Umschlag, 20 M re, 1 Umschlag. Viel Spaß beim stricken!
16.04.2018 - 09:16
Ayne skrifaði:
Hei. Jeg strikker tunika i str 3 år. Kom på A2 og pilen 3 står i rad med mønster. Hvordan skal jeg øke uten å ødelegge mønsteret?
21.03.2018 - 16:16DROPS Design svaraði:
Hej Ayne, ja det stemmer, sådan her beskriver vi hvordan du gør: Strikk omgangen slik diagrammet viser og øk SAMTIDIG 10 masker jevnt fordelt på denne omgangen (øk med bunnfargen i mønsterstripen) = 206-218-230-234-246-258 masker.
26.04.2018 - 11:54Jinky skrifaði:
Thanks so much for the help, I've already cast on, and just to point out on the instruction when increase, it says I should do a yarn over, which would create a hole, I think you the pattern means to do M1 right? it's rather confusing when saying do a yarn over when increasing...
15.12.2017 - 09:47DROPS Design svaraði:
Dear Jinky, the video below shows how to increase with a yarn over. A small hole can appear but should be fixed when blocking/washing; feel free to use any other increase technique if you prefer. Happy knitting!
15.12.2017 - 10:15Jinky skrifaði:
Thanks, now I understand, another question since this is my first time to follow your pattern in knitting I'm a bit confuse on the Elevation instruction. Is this suppose to be a Wrap and Turn? if not I don't think I know what you meant when you say "Begin from right side with rose and knit as before until 6-6-7-7-8-8 stitches have been worked past marker, turn, tighten yarn" Hope you can explain this a bit a further? Thanks so much for the help.
14.12.2017 - 04:39DROPS Design svaraði:
Dear Jinky, the video below shows how we work the elevation on back piece (ie short rows without wrap & turn, but feel free to work them if you rather). Happy knitting!
14.12.2017 - 08:53Jinky skrifaði:
I did, and didn't find the chest size on the schematics, hence my question which I think is pretty direct, also the link that you direct me to is for the adult size, do you have the size conversion like age and chest size according to Drops standard which btw I have read prior to sending my queries I did measure the tunic that I think best fit my daughter and that's what I came up with the size, I would hate to find out that I knitted the wrong size. Thanks so much for your help.
12.12.2017 - 13:23DROPS Design svaraði:
Dear Jinky, you can check from number of sts in pattern and gauge, ie with 23 sts = 4 inch, in the first size you should get 128 sts for body = approx. 22 inch, and in 2nd size with 136 sts you should get approx. 23.6 inch. Compare other measurements and ajdust if necessary. Remember to check and keep the gauge. Happy knitting!
12.12.2017 - 15:22Jinky skrifaði:
Just wanted to know which size I can knit for my daughter that has a chest size of 21" but would love to have at least 2" positive ease? I've already bought the yarn and just wanted to be sure before the start knitting. Thank you so much for the help.
12.12.2017 - 10:39DROPS Design svaraði:
Dear Jinky, look at the measurement chart, you will find all measurements for each size taken flat (in cm) from side to side. Compare these to a similar garment she has to find out the matching size. Read more about sizing and convert into inches here. Happy knitting!
12.12.2017 - 13:14
Liv Endahl skrifaði:
Strikker denne i størrelse 7/8, er kommet til tredje økningen på diagram A2. Som jeg forstår skal det økes hver 15de maske i denne omgangen. Forstår ikke at det er mulig å øke midt i mønstret, eller har jeg misforstått ?
17.11.2017 - 16:51DROPS Design svaraði:
Hei Liv, Du skal bare øke på omgangene markert med pil, som er 2 omganger med bare en farge hvor økningene ikke synes, God fornøyelse!
18.11.2017 - 07:20
Veronica skrifaði:
Hei... plutselig var mønster a.3 og a.6 borte fra siden....
27.10.2017 - 09:31
Visby Tunic#visbytunic |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð tunika fyrir börn með hringlaga berustykki, marglitu norrænu mynstri og A-formi, prjónuð ofan frá og niður og eyrnaband með marlitu norrænu mynstri úr DROPS Merino Extra Fine. Stærð 2-12 ára.
DROPS Children 30-11 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Tunika: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð. Eyrnaband: Sjá mynsturteikningu A.6. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING/ÚRTAKA: Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 76 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukningu sem á að gera (t.d. 8) = 9,5. Í þessu dæmi er aukið út til skiptis á eftir ca 9. og 10. hverri lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum er prjónuð til skiptis ca 8. og 9. hver lykkja og 9. og 10. hver lykkja slétt saman. UPPHÆKKUN: Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar = miðja að aftan. Byrjið frá réttu með litnum bleikur og prjónið sléttar lykkjur þar til prjónaðar hafa verið 6-6-7-7-8-8 lykkjur fram hjá prjónamerki, snúið, herðið á þræði og prjónið 12-12-14-14-16-16 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 18-18-21-21-24-24 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 24-24-28-28-32-32 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 30-30-35-35-40-40 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 36-36-42-42-48-48 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur að miðju að aftan. LEIÐBEININGAR-1: Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðum aftan á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það strekkist á því. LEIÐBEININGAR -2 (á við um berustykki á tuniku): Ef prjónfestan passar ekki á hæðina og það verða fleiri umferðir á hæðina en 10 cm eins og gefið er upp í uppskrift, þá verður berustykkið allt of stutt og handvegur of lítill. Þetta er hægt að jafna til með því að prjóna 1 auka umferð í sléttprjóni með jöfnu millibili í einingu með einum lit á berustykki. LEIÐBEININGAR-3: Hægt er að prjóna tunikuna að óskaðri sídd. Ef hún á að vera síðari þá er haldið áfram með útaukningu í hvorri hlið alveg eins og áður að óskuðu máli. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerkin í hvorri hlið þannig: Byrjið 10 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 20 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 20 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi): Byrjið 2 lykkjur á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónamerki, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TUNIKA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. Byrjun umferðar = miðja að aftan. HÁLSMÁL: Fitjið upp 76-78-80-82-84-86 lykkjur á stuttan hringprjón 4 með litnum bleikur. Skiptið yfir á stuttan hringprjón 3 og prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan 2 umferðir slétt JAFNFRAMT er aukið út um 8-6-10-8-12-10 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 84-84-90-90-96-96 lykkjur. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Skiptið til baka yfir á hringprjón 4 og prjónið UPPHÆKKUN aftan í hnakka – sjá útskýringu að ofan. Þegar upphækkun hefur verið prjónuð til loka eru prjónaðar 0-2-0-2-0-2 sléttar umferðir með litnum bleikur. Lesið LEIÐBEININGAR-1 og LEIÐBEININGAR-2! Prjónið síðan A.1 hringinn (= 14-14-15-15-16-16 mynstureiningar með 6 lykkjum). Haldið áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Í umferð merktri með ör-1 í A.1 eru 126-126-135-135-144-144 lykkjur í umferð. Prjónið umferð eins og mynsturteikning sýnir og aukið JAFNFRAMT út 10-16-18-18-20-26 lykkjur jafnt yfir í þessari umferð = 136-142-153-153-164-170 lykkjur. Haldið áfram með A.1 og aukið JAFNFRAMT út 8-14-15-15-16-22 lykkjur í umferð merktri með ör-2 í A.1= 144-156-168-168-180-192 lykkjur. Eftir að A.1 hefur verið prjónað er A.2 prjónað hringinn (= 12-13-14-14-15-16 mynstureiningar með 12 lykkjum). Haldið áfram með mynstur og aukið út eins og mynsturteikning sýnir. Í umferð merktri með ör-3 (síðasta umferð í A.2) eru 192-208-224-224-240-256 lykkjur í umferð. Prjónið umferð eins og mynsturteikning sýnir og aukið JAFNFRAMT út 14-10-6-10-6-2 lykkjur jafnt yfir þessa umferð (aukið út með grunnlit í mynsturbekk) = 206-218-230-234-246-258 lykkjur. Stykkið mælist nú ca 16-17-18-19-20-21 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan. Næsta umferð er prjónuð eins og útskýrt er að neðan: STÆRÐ 2 og 3/4 ÁRA: Prjónið með litnum natur þannig: 29-31 lykkjur sléttprjón (= ½ bakstykki), setjið næstu 45-47 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 58-62 lykkjur í sléttprjóni (= framstykki), setjið næstu 45-47 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 29-31 lykkjur sem eftir eru í sléttprjóni (= ½ bakstykki). STÆRÐ 5/6, 7/8, 9/10 og 11/12 ÁRA: Prjónið með litnum dökk bleikur þannig: 33-34-36-38 lykkjur í sléttprjóni (= ½ bakstykki), setjið næstu 49-49-51-53 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 66-68-72-76 lykkjur í sléttprjóni (= framstykki), setjið næstu 49-49-51-53 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 33-34-36-38 lykkjur sem eftir eru í sléttprjóni (= ½ bakstykki). ALLAR STÆRÐIR: Klippið frá þráðinn sem prjónað er með. Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 128-136-144-152-160-168 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 6-6-6-8-8-8 lykkja sem fitjaðar voru upp undir ermi í hvorri hlið. Byrjið umferð við annað prjónamerkið. Lesið allan kaflann um fram- og bakstykki áður en prjónað er áfram! STÆRÐ 2, 3/4, 5/6 og 7/8 ára: Prjónið A.3 hringinn (= 16-17-18-19 mynstureiningar með 8 lykkjum). Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka er A.4 prjónað hringinn. Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka er prjónað sléttprjón með litnum dökk bleikur til loka. STÆRÐ 9/10 og 11/12 ára: Prjónið A.4 hringinn (= 20-21 mynstureiningar með 8 lykkjum). Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka er prjónað sléttprjón með litnum dökk bleikur til loka. ALLAR STÆRÐIR: JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 4-4-4-4-3-3 cm er aukið út um 2 lykkjur í hvorri hlið – lesið ÚTAUKNING (= 4 lykkjur færri). Aukið út í 8.-9.-8.-9.-8.-9. umferðir (ca 3. hvern cm) alls 8-8-10-10-12-12 sinnum í hvorri hlið = 160-168-184-192-208-216 lykkjur. ATH: Útauknar lykkjur eru prjónaðar með litnum dökk bleikur, þ.e.a.s. þegar aukið er út þá verða fleiri lykkjur með litnum dökk bleikur á milli "doppa" í A.4. Þegar stykkið mælist ca 25-28-31-34-37-40 cm frá skiptingu – lesið LEIÐBEININGAR-3, prjónið 4 umferðir garðaprjón. Fellið síðan laust af. Tunikan mælist ca 42-46-50-54-58-62 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 45-47-49-49-51-53 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki yfir á sokkaprjón 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-8-8-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 51-53-55-57-59-61 lykkjur í umferð. Setjið eitt prjónamerki mitt í 6-6-6-8-8-8 lykkjur undir ermi og 1 prjónamerki í miðju lykkju í umferð (= mitt ofan á ermi). Lesið allan kaflann áður en prjónað er áfram! STÆRÐ 2, 3/4, 5/6 og 7/8 ára: Byrjið við prjónamerki mitt undir ermi og prjónið A.3 hringinn, en athugið að mynstrið kemur ekki til með að ganga jafnt upp í einni heilli mynstureiningu mitt undir ermi. Byrjið með 3.-2.-1.-8. hverja lykkju í A.3 og endurtakið A.3 hringinn eins langt og það gengur. Mynstrið verður samhverft mitt undir ermi og lykkja með prjónamerki mitt ofan á ermi á nú að passa við 4. lykkju í A.3. Eftir A.3 er prjónað sléttprjón með litnum dökk bleikur. STÆRÐ 9/10 og 11/12 ára: Byrjið við prjónamerki mitt undir ermi og prjónið sléttprjón með litnum dökk bleikur. ALLAR STÆRÐIR: JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 3-3-2-2-2-2 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2-2-2½-3½-3½-3½ cm millibili alls 7-8-9-8-9-10 sinnum = 37-37-37-41-41-41 lykkjur. Þegar stykkið mælist 16-19-23-27-31-34 cm frá skiptingu (úrtöku á nú að vera lokið), prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 1 lykkju í öllum stærðum = 36-36-36-40-40-40 lykkjur. Prjónið A.5 hringinn (= 9-9-9-10-10-10 mynstureiningar með 4 lykkjum). Á eftir A.5 er skipt yfir á sokkaprjón 3. Prjónið 4 umferðir garðaprjón hringinn með litnum dökk bleikum, skiptið til baka yfir á sokkaprjón 4 og fellið af. Ermin mælist ca 21-24-28-32-36-39 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. ------------------------------------------------------- EYRNABAND - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón. EYRNABAND: Fitjið upp 108-124 lykkjur á hringprjón 2,5 með litnum dökk bleikur. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan í hring (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 2 cm. Skiptið yfir á hringprjón 3 og litinn natur. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 10-12 lykkjur jafnt yfir – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 98-112 lykkjur. Prjónið A.6 hringinn (= 7-8 mynstureiningar með 14 lykkjum). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.6 hefur verið prjónað til loka er prjónað með litnum dökk bleikur. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út með 10-12 lykkjur jafnt yfir = 108-124 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 2,5 og prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 2 cm. Skiptið til baka yfir á hringprjón 3 og fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #visbytunic eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 30 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 30-11
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.