Inge skrifaði:
Hier wurde nicht alles auf deutsch übersetzt: Pullover … weitergestrickt und es werden Maschen für die Ärmel angeschlagen. ***Genseren in Runde mit start fra siden, opp til ermet, derfra strikkes hver del ferdig for seg, und det legges opp nye Maschen til ***Ärmel.
08.08.2022 - 23:54DROPS Design svaraði:
Liebe Inge, der deutsche Text wurde vollständig übersetzt, allerdings hatte sich noch der Originaltext eingeschlichen. Das wurde nun korrigiert. Viel Spaß beim Stricken!
09.08.2022 - 09:45
Jenny Crawley skrifaði:
How can I print the chart for this pattern? When I used the Print pattern option only the instructions were shown, not the chart.
04.03.2020 - 14:32DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Crawley, make sure to check your printers settings, all pages should be selected to get the diagrams be printed too. Happy knitting!
04.03.2020 - 14:49Ekaterina skrifaði:
Im Deutschen steht es fuer Perlmuster: "2. RUNDE/PINNE: Rechte Maschen rechts und linke Maschen links stricken." Es sollte wie folgt sein: "2. RUNDE/PINNE: Rechte Maschen links und linke Maschen rechts stricken".
29.01.2018 - 15:38DROPS Design svaraði:
Liebe Ekaterina, Danke für den Hinweis,Anleitung wurde korrigiert. Viel Spaß beim stricken!
30.01.2018 - 09:55
Rita skrifaði:
Molto bello! chissà se perde la forma nella seduta.
18.11.2017 - 11:40
Sylvie skrifaði:
Bonjour. Peut on tricoter ce joli modèle en aller retour ? Merci d'avance
12.10.2017 - 17:33DROPS Design svaraði:
Bonjour Sylvie, vous trouverez ici toutes les informations nécessaires pour ajuster en allers et retours si vous le souhaitez - il est parfois plus simple de tricoter un modèle en rond, n'hésitez pas à consulter nos vidéos (onglet du même nom ou à la fin des explications), beaucoup ont osé l'expérience et en sont ravies. Bon tricot!
13.10.2017 - 09:18
Elegant Comfort#elegantcomforttunic |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð ermalaus peysa í perluprjóni, köðlum, gatamynstri og vösum úr DROPS Air. Stærð S - XXXL.
DROPS 184-2 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum. PERLUPRJÓN: UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-*. UMFERÐ 2: sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur. Endurtakið umferð 2. ÚRTAKA (á við um fram- og bakstykki): Lykkjum er fækkað til skiptis á undan og á eftir prjónamerki, þ.e.a.s. það fækkar einungis um 2 lykkjur í hvorri hlið á stykki (= 4 lykkjur alls), 1. úrtakan er á undan prjónamerki, 2. úrtaka er á eftir prjónamerki o.s.frv. FÆKKIÐ LYKKJUM Á EFTIR PRJÓNAMERKI ÞANNIG: Þegar fyrsta lykkjan á að vera slétt: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 2 lykkjur slétt saman, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir (= 2 lykkjur færri). Þegar fyrsta lykkjan á að vera brugðin: Prjónið 3 lykkjur brugðið saman (= 2 lykkjur færri). FÆKKIÐ LYKKJUM Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Þegar síðasta lykkjan á að vera slétt: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 3 lykkjur slétt saman (= 2 lykkjur færri). Þegar síðasta lykkjan á að vera brugðin: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 3 lykkjur brugðið saman (= 2 lykkjur færri). MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring með byrjun frá hlið, upp að ermi, eftir það er hvor hluti prjónaður til loka fyrir sig og fitjaðar eru upp nýjar lykkjur fyrir ermi. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 204-216-232-248-264-284 lykkjur á hringprjón 5,5 með Air. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í næstu umferð í garðaprjóni er aukið út um 8 lykkjur jafnt yfir = 212-224-240-256-272-292 lykkjur. Prjónið síðan þannig: Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar, prjónið 19-19-23-24-25-30 lykkjur PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, A.1 (= 14 lykkjur), 6-8-8-10-12-12 lykkjur perluprjón, A.2 (= 13 lykkjur), 6-8-8-10-12-12 lykkjur perluprjón, A.2 yfir næstu 13 lykkjur, 6-8-8-10-12-12 lykkjur perluprjón, A.3 yfir næstu 14 lykkjur, 19-19-23-24-25-30 lykkjur perluprjón, setjið 1 prjónamerki (= framstykki), prjónið 102-108-116-124-132-142 lykkjur perluprjón (= bakstykki). Haldið áfram með þetta mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 10 cm er fækkað um 2 lykkjur við hvort prjónamerki (= 4 lykkjur færri) – LESIÐ ÚRTAKA! Fækkið lykkjum svona með 3½-3½-3½-3½-4-4 cm millibili alls 14-14-15-15-14-14 sinnum = 156-168-180-196-216-236 lykkjur. Þegar stykkið mælist 61-62-63-64-65-66 cm, stillið af að næsta umferð sé 1 umferð með gati í A.1/A.3. Prjónið yfir fyrstu 82-88-94-102-112-122 lykkjur, setjið þær síðan á þráð (= framstykki), prjónið yfir þær 74-80-86-94-104-114 lykkjur sem eftir eru (= bakstykki). Hvort stykkið er nú prjónað til loka fyrir sig. BAKSTYKKI: = 74-80-86-94-104-114 lykkjur. Prjónið nú stykkið fram og til baka (1. umferð = ranga). Haldið áfram með mynstur eins og áður, nú eru fitjaðar upp nýjar lykkjur í lok hverrar umferðar í hvorri hlið fyrir ermum þannig: Fitjið upp 8 lykkjur 4-4-4-3-3-3 sinnum og 18-16-14-20-18-14 lykkjur 1 sinni, útauknar lykkjur eru prjónaðar í perluprjóni = 174-176-178-182-188-190 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður, nema ystu 5 lykkjur í hvorri hlið eru prjónaðar með GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 17-18-19-20-21-22 cm frá þar sem fyrstu lykkjur voru fitjaðar upp fyrir ermi (stykkið mælist alls 78-80-82-84-86-88 cm), setjið miðju 24-24-26-26-28-28 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor ermi/öxl er prjónuð til loka fyrir sig = 75-76-76-78-80-81 lykkjur eftir á öxl/ermi. Í næstu umferð frá hálsi er fækkað um 1 lykkju = 74-75-75-77-79-80 lykkjur. Fellið af þegar stykkið mælist 19-20-21-22-23-24 cm frá þar sem fyrstu lykkjur voru fitjaðar upp fyrir ermi (stykkið mælist alls 80-82-84-86-88-90 cm). Prjónið hina öxlina/ermina alveg eins. FRAMSTYKKI: = 82-88-94-102-112-122 lykkjur. Haldið áfram með mynstur og prjónið eins og bakstykki. Þegar fitjaðar hafa verið upp lykkjur fyrir ermi í hvorri hlið á stykki eru 182-184-186-190-196-198 lykkjur í umferð. Prjónið þar til stykkið mælist 11-12-11-12-11-12 cm frá þar sem fyrstu lykkjur voru fitjaðar upp fyrir ermi (stykkið mælist alls 72-74-74-76-76-78 cm). Í næstu umferð frá réttu er fækkað um 2 lykkjur yfir hvern kaðal í A.2 (= alls 8 lykkjur færri) = 174-176-178-182-188-190 lykkjur. Í næstu umferð eru miðju 18-18-20-20-22-22 lykkjur settar á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl/ermi er prjónuð til loka fyrir sig = 78-79-79-81-83-84 lykkjur. Aðrar lykkjur í A.2 eru prjónaðar til loka með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður. Fellið síðan af í hverri umverð frá hálsi þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 2 sinnum = 74-75-75-77-79-80 lykkjur. Fellið af þegar stykkið mælist 19-20-21-22-23-24 cm frá þar sem fyrstu lykkjur voru fitjaðar upp fyrir ermi (stykkið mælist alls 80-82-84-86-88-90 cm). Prjónið hina öxlina/ermina alveg eins. FRÁGANGUR: Saumið axla/ermasauma. VASAR: Fitjið upp 32-32-32-36-36-36 lykkjur á prjón 5,5 með Air. Prjónið perluprjón þar til stykkið mælist 20 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir brugðnar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir sléttar lykkjur. Prjónið 1 vasa til viðbótar alveg eins. Saumið vasana niður á framstykki, ca 16-18 cm frá neðsta kanti og 6 cm frá A.1/A.3 út að hlið. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Stykkið er prjónað í hring. Prjónið upp frá réttu ca 64 til 84 lykkjur (meðtaldar lykkjur af þræði) í kringum hálsmál á stuttan hringprjón 5,5 með Air. Prjónið 6 umferðir garðaprjón. Fellið af. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #elegantcomforttunic eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 37 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 184-2
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.