DROPS Alpaca Bouclé
DROPS Alpaca Bouclé
80% Alpakka, 15% Ull, 5% Polyamide
frá 1034.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8272.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Harvest Moon

Peysa prjónuð frá hlið með gatamynstri meðfram kraga. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr DROPS Alpaca Bouclé.

DROPS 184-3
DROPS Design: Mynstur ab-080
Garnflokkur C eða A + A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS ALPACA BOUCLÉ frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
400-450-500-550-600-650 g litur 0517, grár

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 6 – eða þá stærð sem þarf til að 15 lykkjur og 19 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 5 fyrir kant með garðaprjóni - eða þá stærð sem þarf til að 17 lykkjur og 22 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca Bouclé
DROPS Alpaca Bouclé
80% Alpakka, 15% Ull, 5% Polyamide
frá 1034.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8272.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING (á við um ermar):
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fram-/bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón í 2 stykkjum sem saumuð eru saman við miðju að aftan. Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjón og saumaðar við fram- og bakstykki í lokin.

VINSTRA FRAMSTYKKI/BAKSTYKKI:
Fitjið upp 132-135-138-141-144-147 lykkjur á hringprjón 6 með Alpaca Bouclé. Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið til baka yfir á hringprjón 6 og prjónið mynstur þannig: (1. umferð = rétta): 3 kantlykkjur í garðaprjóni, 86-89-92-95-98-101 lykkjur sléttprjón, prjónið MYNSTUR A.1 (= 43 lykkjur) – sjá útskýringu að ofan.
Haldið svona áfram fram og til baka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 37-38-39-40-41-42 cm frá uppfitjunarkanti er næsta umferð frá réttu prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 57-59-60-60-63-65 lykkjur, fellið af næstu 26-27-29-32-32-33 lykkjur (= handvegur) prjónið þær lykkjur sem eftir eru á prjóni. Í næstu umferð er prjónað eins og áður, en yfir lykkjur sem felldar voru af fyrir handveg er fitjaðar upp 26-27-29-32-32-33 nýjar lykkjur = 132-135-138-141-144-147 lykkjur. Haldið síðan áfram eins og áður þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu!
Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið klauf/op í hnakka þannig:
Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið smá klauf/op í hnakka þannig:
UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið sléttar lykkjur yfir allar lykkjur, snúið.
UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 43 lykkjur, snúið.
UMFERÐ 3: Prjónið sléttar lykkjur út umferðina, snúið.
UMFERÐ 4: Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 22 lykkjur, snúið.
UMFERÐ 5: Prjónið sléttar lykkjur út umferðina, snúið.
UMFERÐ 6: Prjónið sléttar lykkjur yfir allar 132-135-138-141-144-147 lykkjurnar í umferð. Skiptið yfir á hringprjón 6. Fellið af, en eftir ca 5. hverja lykkju er slegið einu sinni uppá prjóninn og uppslátturinn er síðan felldur af eins og venjuleg lykkja. Þetta er gert til að affellingarkanturinn verði ekki stífur.

HÆGRA FRAMSTYKKI/BAKSTYKKI:
Fitjið upp 132-135-138-141-144-147 lykkjur á hringprjón 6 með Alpaca Bouclé. Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið 2 umferðir garðaprjón. Skiptið til baka yfir á hringprjón 6 og prjónið mynstur þannig (1. umferð = rétta): A.2 (= 43 lykkjur), 86-89-92-95-98-101 lykkjur sléttprjón, 3 kantlykkjur í garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar stykkið mælist 37-38-39-40-41-42 cm frá uppfitjunarkanti er næsta umferð prjónuð frá réttu þannig: Prjónið fyrstu 49 lykkjur (= A.2 og 6 lykkjur sléttprjón), fellið af næstu 26-27-29-32-32-33 lykkjur (= handvegur) prjónið þær lykkjur sem eftir eru á prjóni. Í næstu umferð er prjónað eins og áður en fitjaðar eru upp 26-27-29-32-32-33 nýjar lykkjur fyrir handveg sem felldar voru af í fyrri umferð = 132-135-138-141-144-147 lykkjur. Haldið síðan áfram eins og áður þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá röngu!
Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið klauf/op í hnakka þannig:
UMFERÐ 1 (ranga): Prjónið sléttar lykkjur yfir allar lykkjur, snúið.
UMFERÐ 2 (rétta): Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 43 lykkjur, snúið.
UMFERÐ 3: Prjónið sléttar lykkjur út umferðina, snúið.
UMFERÐ 4: Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 22 lykkjur, snúið.
UMFERÐ 5: Prjónið sléttar lykkjur út umferðina, snúið.
UMFERÐ 6: Prjónið sléttar lykkjur yfir allar 132-135-138-141-144-147 lykkjur í umferð. Skiptið yfir á hringprjón 6. Fellið af, en eftir ca 5. hverja lykkju er slegið einu sinni uppá prjóninn og uppslátturinn er síðan felldur af eins og venjuleg lykkja.

ERMI:
Fitjið upp 31-32-34-35-37-38 lykkjur á hringprjón 6 með Alpaca Bouclé. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið 2 umferðir garðaprjón. Skiptið til baka yfir á hringprjón 6. Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 12-11-6-5-9-8 cm er aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið – lesið ÚTAUKNING. Aukið svona út með 5-5-5-4-4-4 cm millibili alls 8-8-9-11-10-10 sinnum = 47-48-52-57-57-58 lykkjur. Þegar stykkið mælist 51-50-50-49-49-48 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla) prjónið litla ermakúpu þannig: Prjónið sléttprjón og fellið af í byrjun hverrar umferðar í hvorri hlið þannig: 4-3-3-3-3-3 lykkjur 8-10-10-12-12-14 sinnum (= 4-5-5-6-6-7 sinnum í hvorri hlið) = 15-18-22-21-21-16 lykkjur eftir. Ermin mælist ca 55 cm í öllum stærðum. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru, en eftir ca 5. hverja lykkju er slegið einu sinni uppá prjóninn og uppslátturinn er síðan felldur af eins og venjuleg lykkja.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið saman bæði fram/bakstykki við miðju að aftan, saumið innan við affellingarkantinn og passið uppá að saumurinn verði ekki stífur! Saumið ermar í við fram- og bakstykki innan við affellingarkantinn / uppfitjunarkant og saumið síðan saum undir ermum innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Klippið frá og festið enda.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 2 sinnum uppá prjóninn, í næstu umferð er annar uppslátturinn prjónaður brugðinn, hinn er látinn falla niður af prjóni
symbols = takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 184-3

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (8)

country flag Els Bomhof wrote:

Ik begreep dat je eerst tricotsteek moet breien en dan als laatste het patroongedeelte A1 van 43 steken. Maar op de foto zie ik het gaatjespatroon meerdere keren.

09.09.2020 - 08:39

DROPS Design answered:

Dag Els,

Klopt, het patroon herhaalt zich in de hoogte langs de voorpanden. Na het opzetten van het rechter voorpand/acherpand loopt het patroon dus door aan de rechterkant van je werk tot de spie. In de tekening onderaan is dit de bovenste rand tot de stippellijn.

13.09.2020 - 11:07

country flag Simone Hertog wrote:

Ik heb 132 steken opgezet met alpaca boucle en kreeg een gigantisch boord. Met naald 6. Veel meer dan de tekening aangeeft. Ik snap t niet. Klopt het wel?

08.09.2020 - 15:35

DROPS Design answered:

Dag Simone,

Bij een stekenverhouding van 15 steken = 10 cm kom je met 132 steken op ongeveer 88 cm. Als de afmeting anders is, klopt je stekenverhouding denk ik niet en moet je de naalddikte aanpassen naar een kleinere naalddikte. Maak altijd eerst even een proeflapje en pas evt. de naalddikte aan totdat je de juiste stekenverhouding hebt.

18.11.2020 - 22:55

country flag Els Bomhof wrote:

Moet ik A1 en A2 1 keer breien of steeds opnieuw dit patroon beginnen?

08.09.2020 - 09:32

DROPS Design answered:

Dag Els,

Ja, je herhaalt patroon A.1 en A.2 steeds in de hoogte.

12.09.2020 - 20:27

country flag Yvon wrote:

Der er fejl i diagrammet!!! Hvor er forklaringen på trekanten!!! Den mangler!!” Øv

26.02.2020 - 10:04

country flag Kate wrote:

Bonjour ,j'ai un problème au niveau du gousset de l'encolure dos ... est-il bien tricoté en point mousse et rangs racourcis alrs que le dos est en jersey ?.. Merci pour votre aide

22.11.2018 - 13:24

DROPS Design answered:

Bonjour Kate, tout à fait les rangs raccourcis se tricotent au point mousse. Bon tricot!

23.11.2018 - 09:33

Kirsty wrote:

Hi there. I'm trying to knit this for my daughter, but I'm having some trouble, and I'm very confused. When it comes to working the chart A1, I knit the first row of it as this: K3 garter edge stitches, 86 in stockinette, and then 43 stitches of the chart. When I come to the second row, do I then start with the chart stitches, or begin again with the garter and stockinette? The instructions just say to continue, but doesn't make it clear whether to start with the chart. Thank you.

23.09.2018 - 23:10

DROPS Design answered:

Hi Kirsty, Yes, you begin row 2 with the pattern and end with stockinette and garter stitch. Happy knitting!

24.09.2018 - 07:50

country flag NATHALIE wrote:

Bonjour, Quand on fait le diagramme du devant gauche/dos ou devant droit/dos, en rang envers, on doit commencer par les mailles du diagramme et ensuite on tricote les mailles à l'envers ou bien doit on commencer par les mailles à l'envers et ensuite le diagramme ? Je vous remercie pour votre réponse. Cordialement

10.07.2018 - 17:16

DROPS Design answered:

Bonjour Nathalie, sur l'endroit vous tricotez A.1 en fin de rang, sur l'envers vous tricotez A.1 en fin de rang (devant/dos gauche). Pour le devant/dos droit vous commencez par A.2 sur l'endroit et finissez par A.2 sur l'envers. Sur l'envers, lisez les diagrammes de gauche à droite (et sur l'endroit, de droite à gauche), toujours en commençant en bas. Bon tricot!

11.07.2018 - 07:38

country flag Jenny wrote:

Ich bekomme die Maschenprobe nicht hin. Selbst mit Nadel 5 habe ich bei 15 M noch 11,5 cm Breite. Noch strammer kann man durch die Schlaufen in der Wolle nicht stricken. Ist hier ein Fehler in der Anleitung oder stelle ich mich doof an?

22.01.2018 - 20:10

DROPS Design answered:

Liebe Jenny, versuchen Sie die Maschen etwas weniger in der Höhe zu ziehen. Gleichzeitig wird die Reihenanzahl in solchen Modellen nicht zu wichtig, dh weniger als die Breite, so können Sie auch die Höhe in cm folgen. Viel Spaß beim stricken!

23.01.2018 - 08:21