Anne Kathrine Vestergaard Lauridsen skrifaði:
Er det rigtigt at BÅDE blank rude og rude med streg (-) i mønstret betyder ret fra retsiden vrang fra vrangsiden? - Tak :)
22.12.2017 - 07:10DROPS Design svaraði:
Hei Anne Kathrine. Her har det blitt en feil i den danske oppskriften. Samme linje har blitt kopiert 2 ganger. Ruten med strek skal ha denne forklaringen: = vrang fra retsiden, ret fra vrangen. Takk for at du gjorde oss oppmerksom på dette. Det er nå ordnet. mvh Drops design
22.12.2017 - 08:32
Marianne skrifaði:
Hallo, Warum kann man die Mütze nicht rund stricken? Danke, Marianne
24.09.2017 - 20:08DROPS Design svaraði:
Liebe Marianne, es wird hier einfacher Krausrechts hin- und zurück stricken als in der Runde (= alle Maschen rechts stricken) Viel Spaß beim stricken!
25.09.2017 - 10:52
Farmor skrifaði:
Färgen på modellens mössa o halsvärmare är ju inte grå som i mönstret. Vilken av färgerna är det?
14.09.2017 - 14:31DROPS Design svaraði:
Hei Farmor. Fargene kan unnvike fra PC skjerm fra PC skjerm, men denne fargen ser mer ut som farge nr. 11 lilla enn farge 10 grå. God Fornøyelse med å strikke dette settet.
20.09.2017 - 10:36
Kiki Svee skrifaði:
Fint mönster på mössan och en tänkbar kandidat att stickas och användas under senhösten. Kanske en mössa i sprakande höstfärger, t ex honungsgul för att pigga upp det annalkande mörkret.
19.06.2017 - 18:42
Lavender Sky#lavenderskyset |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Settið samanstendur af: Prjónaðri húfu með gatamynstri og garðaprjóni og hálsskjóli prjónað í garðaprjóni úr DROPS Kid-Silk.
DROPS 181-36 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum. ÚRTAKA (á við um húfu): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 124 lykkjur), mínus kantlykkjur (t.d. 2 lykkjur) og deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 17) = 17,1. Í þessu dæmi þá eru prjónaðar ca 6. og 7. hver lykkja slétt saman. Ekki er úrtaka yfir kantlykkjum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, neðan frá og upp. HÚFA: Fitjið upp 124-132 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 2,5 með 2 þráðum Kid-Silk. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 4-5 cm. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Takið frá annan þráðinn, prjónið síðan með 1 þræði Kid-Silk þannig: Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 17 lykkjur jafnt yfir í báðum stærðum – lesið ÚRTAKA = 107-115 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.1 (= 8 lykkjur), prjónið A.2 þar til 10 lykkjur eru eftir í umferð (= 11-12 mynstureiningar 8 lykkjur), prjónið A.3 (= 9 lykkjur) og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist ca 18-19 cm – endið eftir eina heila eða hálfa mynstureiningu í mynstri, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 17-15 lykkjur jafnt yfir = 90-100 lykkjur. Setjið 10 prjónamerki í stykkið með 9-10 lykkjur á milli hverra prjónamerkja. Prjónið nú garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur. JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju á eftir hverju prjónamerki með því að prjóna 2 lykkjur snúnar slétt saman (= 10 lykkjur færri). Fækkið svona í 4. hverri umferð (þ.e.a.s. í annarri hverri umferð frá réttu) alls 8-9 sinnum = 10 lykkjur eftir í báðum stærðum. Í næstu umferð frá réttu eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 5 lykkjur. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Húfan mælist ca 25-27 cm ofan frá og niður. FRÁGANGUR: Saumið húfuna saman við miðju að aftan – saumið í ystu lykkjubogana þannig að saumurinn verði flatur. ------------------------------------------------------- HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka og saumað saman í lokin. HÁLSSKJÓL: Fitjið upp 148-168 lykkjur á hringprjón 4 með 2 þráðum Kid-Silk. Takið frá annan þráðinn og prjónið GARÐAPRJÓN fram og til baka – sjá útskýringu að ofan, með 1 þræði Kid-Silk. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 35-40 cm fellið LAUST af með 2 þráðum Kid-Silk. FRÁGANGUR: Saumið skammhlið við skammhlið – saumið í ystu lykkjubogana þannig að saumurinn verði flatur. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #lavenderskyset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 17 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 181-36
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.