DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6468.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Silver Leaf

Settið samanstendur af: Prjónaðri húfu, hálsskjóli og handstúkum með blaðamynstri og garðaprjóni. Settið er prjónað úr DROPS Merino Extra Fine.

DROPS 181-35
DROPS Design: Mynstur me-114
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Í allt settið þarf ca 350-400 g DROPS Merino Extra Fine.

HÚFA:
Stærð: S/M – M/L
Höfuðmál: 54/56 - 56/58 cm.

Efni:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
100-150 g litur 08, ljós beige

HÁLSSKJÓL:
Stærð: S/M – M/L
Mál:
Ummál að ofan: ca 38-42 cm.
Ummál að neðan: ca 114-129 cm.
Hæð: 28 cm.

Efni:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
200-200 g litur 08, ljós beige

HANDSTÚKUR:
Stærð: S/M – M/L
Mál:
Ummál: 16-18 cm.
Lengd: ca 20 cm.

Efni:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
100-100 g litur 08, ljós beige

DROPS PRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 lykkjur og 28 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS PRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 CM) NR 3,5 fyrir stroff – eða þá stærð sem þarf til að 22 lykkjur og 30 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6468.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka – á við um húfu og handstúkur):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum.

ÚRTAKA:
Öll úrtaka er gerð frá réttu.
Fækkið um 1 lykkju á eftir prjónamerki þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman.

MYNSTUR:
Húfa: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2 – veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð.
Hálsskjól: Sjá mynsturteikningu A.3.
Handstúkur: Sjá mynsturteikningu A.1.
Mynsturteikning sýnir allar umferðir séð frá réttu.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka og saumað saman í lokin.

HÚFA:
Fitjið upp 99-105 lykkjur á prjón 3,5 með Merino Extra Fine. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið A.2 (= 9-7 mynstureiningar 11-15 lykkjur) þar til stykkið mælist 4 cm. Skiptið yfir á prjón 4. Prjónið þannig: Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – yfir fyrstu 44-45 lykkjur, prjónið A.1 (= 11-15 lykkjur), prjónið garðaprjón yfir síðustu 44-45 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Haldið síðan áfram fram og til baka þar til prjónaðar hafa verið 3 mynstureiningar af A.1 á hæðina. Stykkið mælist ca 20-23 cm. Prjónið nú stykkið áfram í garðaprjóni yfir allar lykkjur. Prjónið 2 umferðir garðaprjón og fækkið um 0-6 lykkjur jafnt yfir fyrstu umferð = 99 lykkjur. Setjið nú 11 prjónamerki frá réttu þannig: Prjónið 1 lykkju garðaprjón, setjið 1 prjónamerki, * prjónið 9 lykkjur garðaprjón, setjið 1 prjónamerki *, prjónið frá *-* þar til 8 lykkjur eru eftir (= alls 10 sinnum), endið með 8 lykkjur garðaprjón. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu.
Í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju á eftir hverju prjónamerki (= 11 lykkjur færri) – lesið ÚRTAKA! Fækkið lykkjum svona í 6. hverri umferð 2 sinnum til viðbótar, síðan í 4. hverri umferð 4 sinnum = 22 lykkjur. Í næstu umferð frá réttu eru 2 og 2 lykkjur prjónaðar slétt saman = 11 lykkjur. Húfan mælist ca 28-31 cm.

FRÁGANGUR:
Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. Saumið húfuna saman við miðju að aftan innan við 1 kantlykkju.

-------------------------------------------------------

HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón.

HÁLSSKJÓL:
Fitjiið upp 128-144 lykkjur á hringprjón 3,5 með Merino Extra Fine. Prjónið stroff (= 1 lykkju slétt, 1 lykkja brugðið) þar til stykkið mælist 12 cm. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið síðan eftir A.3 (= 8-9 mynstureiningar 16 lykkjur). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram með mynstur þar til A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina = 240-270 lykkjur. Fellið síðan af með sléttum lykkjum.

-------------------------------------------------------

HANDSTÚKUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka og saumað saman í lokin.

HANDSTÚKA:
Fitjið upp 34-37 lykkjur á prjón 4 með Merino Extra Fine. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið síðan þannig – frá réttu: 12-13 lykkjur garðaprjón, A.1 (= 11 lykkjur), 11-13 lykkjur garðaprjón. Haldið áfram með þetta mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist ca 20 cm (stillið af eftir heila mynstureiningu af A.1 á hæðina), prjónið 4 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur. Fellið síðan af með sléttum lykkjum frá réttu.
Prjónið aðra handstúku á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið saman handstúkuna í ystu lykkjubogana.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 31.07.2019
Leiðrétting - Mynsturteikning A.3: Bætt hefur verið við brugðinni lykkju eftir 2. uppslátt í umferð 28

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja
symbols = prjónið 2 lykkjur slétt saman
symbols = Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
symbols = engin lykkja, hoppið yfir þessa rúðu
symbols = 2 lykkjur brugðnar saman
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 181-35

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (23)

country flag Lena wrote:

Hallo! Ich habe folgendes Problem: bei dem Halskragen in der ersten Reihe (A3.1) gibt es nur 14 Maschen insgesamt, obwohl beim Rapport 16 Maschen sein sollen. Wie ist es zu verstehen? Bin durcheinander.... Ich habe 144 Maschen insgesamt, ist nicht durch 14 teilbar.

22.01.2024 - 20:00

DROPS Design answered:

Liebe Lena, A.3 wird über 16 Maschen gestrickt, so mit 144 Maschen wird A.3 9 Mal wiederholt. Schauen Sie bei der 1. Reihe wird man 2 Maschen abnehmen (siehe letztes Symbol), dann sind es nur noch 14 Maschen in jedem A.3. Viel Spaß beim stricken!

23.01.2024 - 07:27

country flag Heidi Skarsem wrote:

Hei. Ser at det er flere sim ikke får mønsteret til å stemme på omgang 15 og det siste jeg ser er for over ett år siden. Rart at dere ikkje har ordnet opp i dette, for det stemmer ikke. Tar vi alle feil?

04.09.2023 - 11:32

country flag Tatiana wrote:

Jeg får ikke rad 15 til å stemme, for det er ikke nok til å strikke 11 rette masker etterhverandre, bare 9. altså først to vrang tre rette, to vrang, så en vrang, men bare plass til 9 rette ikke 11 Har rukket opp og begynt på nytt, men blir samme feil på rad 15 Ser at andre også har opplevd det samme, men dere svarer at det ikke blir feil.

03.02.2022 - 12:45

DROPS Design answered:

Hej, vi hjælper dig gerne men hvad strikker du? Hvilken størrelse? Hvilket diagram er det du ikke får til at stemme? hvor mange masker har du og hvor mange masker skal du have?

04.02.2022 - 14:38

country flag Lucile Lefloch wrote:

Bonjour, Il semblerait que l'explication soit fausse. Après les côtes mousses, il faut repartir le schéma comme suit : 11 mailles mousses, 15 maille A1, 11 mailles mousses. Ceci étant le modèle est très beau et facile à faire, même avec des aiguilles double pointes. Merci Cordialement.

17.12.2021 - 17:17

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Lefloch, merci pour votre retour, effectivement, en taille M/L le diagramme A.1 a 15 mailles et non 11, nos stylistes vont vérifier cela le plus rapidement possible. Bon tricot!

20.12.2021 - 08:43

country flag Anabella wrote:

Puedo hacer el cuello en agujas rectas? Como sigo el diagrama? Ya que solo me muestra las vueltas del derecho

01.07.2021 - 21:55

DROPS Design answered:

Hola Anabella. Puedes sustituir en este modelo las agujas circulares por agujas de doble punta (para calcetines), para trabajar en redondo. El diagrama se lee igual. Pero en este caso puedes tener problemas por tener demasiados puntos para cada aguja. Si trabajas de ida y vuelta los puntos en la filas par se trabajan al contrario que como los ves en el diagrama (por ejemplo, si en el diagrama hay 1 derecho, tienes que trabajar 1 revés).

04.07.2021 - 16:19

country flag Paule HOURDEBAIGT wrote:

Bonjour. Le modèle de tour de cou est magnifique. Pensez vous qu'en prolongeant le modèle je peux faire un pull? Merci

10.02.2021 - 07:49

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Hourdebaight, fort probablement, vous trouverez ici différents pulls au point de feuilles qui pourront peut être vous inspirer. Bon tricot!

10.02.2021 - 08:37

country flag Laura Meraviglia wrote:

Scusate, oggi è riapparso! Grazie

05.07.2020 - 09:10

country flag Laura Maeraviglia wrote:

Buongiorno, come mai lo schema A3 relativo allo scaldacollo è sparito? Ero quasi alla fine del lavoro... Help please!

04.07.2020 - 16:17

country flag Claudia wrote:

Hej kan man som alternativ bruge Eskimo til halsedisen? Er ikke særlig god til dem med antal masker. Mvh. C.

01.04.2020 - 17:37

country flag MONA FONNES wrote:

Hei. Jeg har strikket halsen, og den ble veldig fin. Nå strikker jeg på lua, men får ikke bladmønsteret frem som på halsen. Jeg lurer på om det skulle vært en - i ruten før 2 m rett sammen og i ruten etter løs over 1 rett? Sånn som det er i A3

14.02.2020 - 21:58

DROPS Design answered:

Hej Mona, Det skal der ikke være ifølge opskriften, men det gør du bare hvis du synes det er pænest :)

18.02.2020 - 09:26