DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1980.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 180-35
DROPS Design: Mynstur z-807
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Í allt settið þarf ca 150 g í báðar stærðir DROPS Alpaca.

HÚFA:
Stærð: S/M - L/XL
Höfuðmál: ca 54/56 - 58/60 cm

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100-100 g litur 7323, vatnsgrár

HANDSTÚKUR:
Stærð: S/M - L/XL

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir Garngrupp A)
50-50 g litur 7323, vatnsgrár

DROPS PRJÓNAR og SOKKAPRJÓNAR NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 lykkjur og 48 umferðir með garðaprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS PRJÓNAR og SOKKAPRJÓNAR NR 2,5 fyrir stroff – eða þá stærð sem þarf til að 26 lykkjur og 34 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1980.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka – á við um húfu):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum.

ÚTAUKNING (á við um handstúkur og húfu):
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA (á við um húfu):
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið um 1 lykkju á eftir prjónamerki þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka og saumað saman við miðju að aftan í lokin.

HÚFA:
Fitjið laust upp 122-142 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjón 2,5 með Alpaca. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) með 1 kantlykkju GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan í hvorri hlið.
Þegar stykkið mælist 6 cm, skiptið yfir á prjón 3 og setjið 5 prjónamerki í stykkið frá réttu þannig: Setjið 1 prjónamerki eftir 1 lykkju, næstu 4 eru sett með 24-28 lykkja millibili, á eftir síðasta prjónamerki eru 25-29 lykkjur. Stykkið er nú prjónað áfram í garðaprjóni. Í næstu umferð frá réttu er aukið út um 1 lykkju á eftir öllum prjónamerkjum (= 5 lykkjur fleiri) – lesið ÚTAUKNING! ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Aukið svona út í annarri hverri umferð 3 sinnum til viðbótar og síðan í 4. hverri umferð alls 7 sinnum = 177-197 lykkjur. Þegar stykkið mælist 11-12 cm frá stroffi er fækkað um 1 lykkju á eftir hverju prjónamerki í næstu umferð frá réttu (= 5 lykkjur færri) – lesið ÚRTAKA! Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 17-19 sinnum = 92-102 lykkjur.
Prjónið allar lykkjur 2 og 2 saman í hverri umferð frá réttu alls 3 sinnum = 12-13 lykkjur. Húfan mælist ca 25-26 cm.
Þræðið þráð í gegnum þær lykkjur sem eftir eru og herðið að. Saumið húfuna saman við miðju að aftan innan við 1 kantlykkju.

-------------------------------------------------------

HANDSTÚKUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.

HÆGRI HANDSTÚKA:
Fitjið upp 65-70 lykkjur á sokkaprjón 2,5 með Alpaca. Prjónið 1 umferð slétt.
Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið). Eftir 4 umferðir með stroffi eru allar 3 lykkjur brugðið fækkað til 2 lykkjur brugðið með því að prjóna 2 fyrstu lykkjur í hverri brugðinni einingu brugðið saman = 52-56 lykkjur. Haldið síðan áfram með stroff með 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið þar til stykkið mælist 5-6 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 7-11 lykkjur jafnt yfir = 45 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3 og prjónið sléttprjón.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 14 cm byrjar útaukning fyrir op fyrir þumal. Aukið er út um 1 lykkju hvoru megin við næst síðustu lykkju í umferð (þ.e.a.s. að innanverðu á hönd) – LESIÐ ÚTAUKNING! Aukið svona út hvoru megin við útauknar lykkjur í 3. hverri umferð alls 6-7 sinnum = 13-15 þumallykkjur og 57-59 lykkjur alls.
Þegar stykkið mælist 19-20 cm eru þumallykkjurnar + 1 lykkja hvoru megin við þær settar á þráð (= 15-17 lykkjur á þræði). Fitjið upp 3 nýjar lykkjur aftan við þumal í næstu umferð = 45 lykkjur í umferð. Þegar stykkið mælist 23-24 cm, aukið út um 11-15 lykkjur jafnt yfir í næstu umferð = 56-60 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 2,5. Prjónið 8 umferðir stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Handstúkan mælist ca 25-26 cm.

ÞUMALL:
Stykkið er prjónað í hring.
Setjið til baka lykkjur af þræði á sokkaprjón 3 og prjónið að auki upp 5-7 lykkjur í kant á bakhlið á þumallykkjum = 20-24 lykkjur í umferð.
Prjónið 3 umferðir sléttprjón. Skiptið yfir á sokkaprjón 2,5 og prjónið 6 umferðir stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

VINSTRI HANDSTÚKA:
Prjónið eins og hægri, en aukið út fyrir þumal hvoru megin við aðra lykkju í umferð (í stað hvoru megin við næst síðustu lykkju í umferð).

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Winter Serenity

Sasa, Germany

Winter Serenity

Lauranne, France

Winter Serenity

Raisa, Finland

Skrifaðu athugasemd um DROPS 180-35

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (18)

country flag Kirsten Boer wrote:

Bij het breien van de duim staat in het Nederlandse patroon "brei aan beide kanten van de volgende tot de laatste steek". Ik denk dat het een slechte vertaling is uit het Engels (next to last) oftewel eennalaatste. Op die manier klopt het patroon weer. Eerder werd er door Drops op een vraag hierover (gesteld door Sandra op 22 januari 2023) een fout antwoord gegeven. Het is goed om een en ander te herstellen in het patroon en in het antwoord aan Sandra

26.01.2024 - 22:06

country flag Marie-Claire wrote:

Bonjour, j’ai commencé ces mitaines et finalement j’aimerais aussi faire des moitiés de doigts, est-ce que je peux continuer un m’inspirant du modèle drops 86-4. Merci encore et bonne journée.

22.11.2023 - 14:54

DROPS Design answered:

Bonjour Marie-Claire, le nombre de mailles de chacune de ces mitaines est différent, il vous sera donc difficile de suivre les explications du 86-4, il vaudrait mieux vous baser sur un modèle de mitaines ou même de gants jersey (de même tension qu'ici) avec le même nombre de mailles pour la main. Bon tricot!

22.11.2023 - 16:18

country flag Marie-Claire wrote:

Bonjour, je suis à faire les mitaines et on dit monter 3 mailles au dessus du pouce. J’ai mis 15 mailles en attentes pour le pouce, tricoté les 42 m restantes et c’est là que je monte 3m ? …et comment je les monte? Merci beaucoup de m’éclairer.

06.11.2023 - 00:59

DROPS Design answered:

Bonjour Marie-Claire, tout à fait, dans cette vidéo, on montre (time code 3:10 environ) comment monter les mailles au-dessus des mailles en attente (montez bien le nombre indiqué dans les explications ici, même s'il est différent de celui de la vidéo). Bon tricot!

06.11.2023 - 09:15

country flag Sandra wrote:

"Als het werk 14 cm meet, begin dan voor het meerderen van de duimspie. Meerder 1 steek op elke kant van de volgende tot de laatste steek op de naald (dus aan de binnenkant van de hand)" Het is mij niet duidelijk waar die steek juist gemeerderd moet worden. Graag wat meer uitleg.

22.01.2023 - 15:00

DROPS Design answered:

Dag Sandra,

Je meerdert 1 steek na de eerste steek en 1 steek voor de laatste steek.

22.01.2023 - 17:21

country flag Benedetta wrote:

Buongiorno, è possibile lavorare il berretto in tondo su ferri circolari per evitare la cucitura?

04.08.2022 - 07:33

DROPS Design answered:

Buongiorno Benedetta, se preferisce può lavorare il modello in tondo. Buon lavoro!

04.08.2022 - 12:21

country flag Bianka wrote:

Könnte ich bei der Mütze ein doppeltes Bündchen stricken oder würde sich der Fall dann zu sehr ändern? Danke Bianka

17.01.2021 - 11:02

DROPS Design answered:

Liebe Bianka, wahrscheinlich können Sie ein doppeltes Bündchen hier stricken. Viel Spaß beim stricken!

18.01.2021 - 09:46

country flag Lori Hintzsche wrote:

I'm trying to determine which size of the WRIST WARMERS to make. Is the measurement provided (9 3/4" -- 10 1/4") the finished length or the width? If it is the length, could you provide the hand width? Thank you!!!

07.10.2020 - 02:32

DROPS Design answered:

Dear Mrs Hintzsche, this is the total length - if your tension is matching the 24 sts = 10 cm/4", the 45 stitches for the hand will measure 18.75 cm /7.38 inches around (before/after thumb). Happy knitting!

07.10.2020 - 08:50

country flag Frisotti wrote:

Bonjour. Lorsque vous dites pour le bonnet  « Quand l'ouvrage mesure 11-12 cm depuis les côtes » est-ce depuis le bord inférieur de l’ouvrage, c’est-à-dire depuis le début ou bien à partir du 1er rang point mousse ( dernier rang de côtes)? Merci 😊

07.03.2019 - 22:56

DROPS Design answered:

Bonjour Frisotti, on mesure ces 11-12 cm à partir du début point mousse (= après les côtes), pas à partir du rang de montage. Bon tricot!

08.03.2019 - 08:07

country flag Sylvie Allard wrote:

Bonjour ! Pouvez-vous m’expliquer cette partie de la mitaine ? Tricoter 1 tour endroit en diminuant 7-11 mailles à intervalles réguliers = 45 mailles. Je ne comprends pas comment je dois l’exécuter. Merci !

02.02.2019 - 15:55

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Allard, vous tricotez un tour sur les 52-56 mailles et en même temps, tricotez 2 m ens à l'end à intervalles réguliers un total de 7-11 fois - cette leçon explique comment placer les diminutions. Bon tricot!

04.02.2019 - 11:20

Maryanne wrote:

What is the best bind off method for the gloves?I've started a normal bind off but I'm worried it will be too tight.

23.07.2018 - 07:20

DROPS Design answered:

Hi Maryanne, If your binding off is too tight, you can use a size larger needle to bind off or make 1 yarn over regularly while binding off. The yarn overs are bound off as normal stitches. Happy knitting!

23.07.2018 - 08:10