Lizeth skrifaði:
Goedendag, De vraag gaat over het mutsje. Ik zou graag een boord van 1 recht 1 averecht breien (i.p.v. 2r 2 av). Heeft dat effect op hoe strak de boord is, wordt de boord dan losser of strakker? Alvast bedankt voor uw antwoord. Vriendelijke groet, Lizeth
20.11.2018 - 14:43DROPS Design svaraði:
Dag Lizeth,
Deze aanpassing kan je zonder problemen doen. Waarschijnlijk wordt de boord dan ietsje rekbaarder, maar blijft ongeveer dezelfde pasvorm houden.
22.11.2018 - 11:17
Elin Backstrand skrifaði:
Öronen jag gjort får en mycket längre del utan ökning, ska inte örat vara totalt ca 9 cm? Gör isf att ökningar är lite mer än 3 cm, mellandelen bör göra det hela 7 cm för sista biten blir ca 2 cm. Gör man dem totalt 11 cm blir de jättelånga.
24.10.2018 - 19:08DROPS Design svaraði:
Hej Elin, jo du skall fortsätta ökningen på var annat varv till du har 38 maskor, när du har det fortsätter du med örat till du har 9 cm. Sedan minskar du enligt mönstret. Lycka till :)
30.10.2018 - 10:18
Vivi skrifaði:
Jeg lurer på pinne 1. Det står at det skal legges opp 6 masker, men at pinne 1 skal man starte med 1rett, 1 kast, 1 vrang. «1 kast, 1 vrang» skal gjentas 3 ganger. Betyr dette at det skal være 6 masker til dette og 2 masker til kantene? I tillegg står det på øketips at kastene skal strikkes på vrang på neste pinne. Men på pinne 2 står det rett strikk, skal det være rett og vrang her? Eller bare rett?
28.05.2018 - 11:55DROPS Design svaraði:
Hei Vivi Det er 1 kantmaske i hver side, og disse strikkes rett. Det står at du skal gjenta *1 kast, 1 vrang* 3 ganger til = totalt 4 ganger. Av de 6 maskene du la opp strikkes derfor 1 rett, 4 vrang, 1 rett, med kast mellom = 5 masker økt og 11 masker på pinnen. På øketips står det du skal strikke kastene vridd (ikke vrang) – dette for ikke å få hull. Da strikker du i bakerste maskebue. Vedlagt ligger en video av hvordan å strikke kast vridd. God fornøyelse.
06.06.2018 - 13:09
Anne skrifaði:
Volgens mij zit e een fout in het patroon van het varken. Bij het lijf moet je minderen van 38 naar 20 steken, maar als je de beschrijving zoals in het patroon volgt kom je uit op 21 steken (38-4=32, 34/2=17, 17+4=21). Hetzelfde geldt voor het minderen van 20 naar 11 steken.
07.02.2018 - 10:13
Sweet Betty#dropssweetbetty |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð húfa fyrir börn í garðaprjóni og prjónaður grís / leikfang með röndum úr DROPS BabyMerino. Stærð fyrirburar – 4 ára.
DROPS Baby 29-10 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (á við um grís): Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn til að koma í veg fyrir göt. RENDUR (á við um grís): * 4 umferðir sléttprjón með litnum hvítur, 4 umferðir sléttprjón með litnum ljós bleikur *, endurtakið frá *-*. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1 (á við um grís): Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki og prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri). LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2 (á við um grís): Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir. Fækkið lykkjum á undna prjónamerki þannig: 2 lykkjur slétt saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. HÚFA: Fitjið laust upp (68) 80-92-96-104 (112-116) lykkjur á sokkaprjón 2,5 með Baby Merino. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið í (2) 3-3-4-4 (5-5) cm. Skiptið yfir á sokkaprjón 3 og prjónið 1 umferð slétt og fækkið um 8 lykkjur jafnt yfir = (60) 72-84-88-96 (104-108) lykkjur. Prjónið síðan GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist (11) 11-12-13-14 (14-15) cm – passið uppá að næsta umferð sé 1 umferð slétt, fækkið um (6) 8-7-8-8 (8-9) lykkjur jafnt yfir. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð (5) 5-5-5-5 (6-6) sinnum til viðbótar = (24) 24-42-40-48 (48-45) lykkjur. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2. Prjónið 1 umferð brugðið og endurtakið úrtöku í næstu umferð slétt í stærð 6/9, 12/18 mán og (2 - 3/4) ára (lykkjum er ekki fækkað í hinum stærðunum) = (12) 12-11-10-12 (12-12) lykkjur. Dragið tvöfaldan þráð í gegnum þær lykkjur sem eftir eru og festið vel. ------------------------------------------------------- GRÍS - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka frá trýni og aftur. Fætur, eyru og skott eru prjónuð hvert fyrir sig og saumað á búkinn í lokin. TRÝNI OG HÖFUÐ: Fitjið upp 6 lykkjur á prjón 2,5 með litnum ljós bleikur. ATH: Ysta lykkjan í hvorri hlið er prjónuð slétt í hverri umferð til loka (= kantlykkja). UMFERÐ 1 (= ranga): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING! Prjónið 1 lykkju slétt ,* sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-* 3 sinnum til viðbótar, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt = 11 lykkjur. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið slétt. UMFERÐ 3: 1 lykkja slétt, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-* 8 sinnum til viðbótar, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt = 21 lykkja. UMFERÐ 4: Prjónið slétt. UMFERÐ 5: 1 lykkja slétt, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-* 18 sinnum til viðbótar, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt = 41 lykkja. UMFERÐ 6: Prjónið slétt. UMFERÐ 7: Prjónið slétt. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! UMFERÐ 8-9: Prjónið sléttprjón. UMFERÐ 10: 1 lykkja slétt, * 3 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman *, endurtakið frá *-* 6 sinnum til viðbótar, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt = 33 lykkjur. UMFERÐ 11-13: Prjónið sléttprjón. UMFEÐR 14: 1 lykkja slétt, * 4 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman *, endurtakið frá *-* 4 sinnum til viðbótar, 2 lykkjur slétt = 28 lykkjur. UMFERÐ 15-20: Prjónið sléttprjón. UMFERÐ 21: 1 lykkja slétt, 10 lykkjur brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 6 lykkjur brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 10 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt = 30 lykkjur. UMFERÐ 22: Prjónið slétt. UMFERÐ 23: 1 lykkja slétt, 11 lykkjur brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 6 lykkjur brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 11 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt = 32 lykkjur. UMFERÐ 24: Prjónið slétt. UMFERÐ 25: 1 lykkja slétt, 12 lykkjur brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 6 lykkjur brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 12 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt = 34 lykkjur. UMFERÐ 26: Prjónið slétt. Haldið svona áfram með útaukningu þar til 40 lykkjur eru í umferð. Prjónið síðan þannig: UMFERÐ 32: Prjónið slétt. UMFERÐ 33: 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 16 lykkjur brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 6 lykkjur brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 16 lykkjur brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt = 44 lykkjur. UMFERÐ 34: Prjónið slétt. UMFERÐ 35: 1 lykkja slétt, 18 lykkjur brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 6 lykkjur brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 18 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt = 46 lykkjur. UMFERÐ 36: Prjónið slétt. Haldið svona áfram með útaukningu, þ.e.a.s. aukið er út um 2 lykkjur mitt í stykki í annarri hverri umferð og 1 lykkja í hvorri hlið innan við 1 kantlykkju í 4. hverri umferð þar til 92 lykkjur eru í umferð. Setjið 1 prjónamerki. BÚKUR: Haldið áfram fram og til baka á prjóni. Prjónið 2 cm sléttprjón með litnum ljós bleikur (frá prjónamerki). Prjónið síðan RENDUR – sjá útskýringu að ofan, þar til stykkið mælist ca 21 cm frá prjónamerki (endið á 1 rönd með litnum ljós bleikur). Setjið 6 prjónamerki í stykkið frá réttu þannig (án þess að prjóna lykkjurnar): 1. prjónamerki er sett á eftir fyrstu 16 lykkjur í umferð, síðan eru 5 næstu prjónamerki sett með 15 lykkjur á milli hverra (á eftir síðasta prjónamerki er 1 lykkja eftir á prjóni). Stykkið er nú prjónað til loka í sléttprjóni með litnum ljós bleikur þannig: Í 1. umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju á undan öllum prjónamerkjum – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1 (= 6 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð 8 sinnum til viðbótar = 38 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 lykkju slétt, prjónið 2 og 2 lykkjur slétt saman þar til 1 lykkja er eftir á prjóni, endið með 1 lykkju slétt = 20 lykkjur. Prjónið 3 umferðir sléttprjón og endurtakið úrtöku 1 sinni til viðbótar = 11 lykkjur. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið. FRÁGANGUR: Saumið út augu á grísinn – sjá mynd. Saumið grísinn saman alla leið frá trýni og aftur – saumið í ystu lykkjubogana, en skiljið eftir smá op til að setja fyllingu inn. Fyllið grísinn með vatti og saumið saman opið. FÓTUR: Stykkið er prjónað fram og til baka. Fitjið upp 6 lykkjur á prjón 2,5 með litnum ljós bleikur. UMFERÐ 1 (= ranga): 1 lykkja slétt, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-* 3 sinnum til viðbótar, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt = 11 lykkjur. UMFERÐ 2 (og í hverri umferð frá réttu): Prjónið slétt. UMFERÐ 3: 1 lykkja slétt, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja brugðin *, endurtakið frá *-* 8 sinnum til viðbótar, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt = 21 lykkja. UMFERÐ 4-6: Prjónið sléttprjón. UMFERÐ 7: 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið brugðnar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir á prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 8. Prjónið slétt. Endurtakið umferð 7 og 8 þar til 27 lykkjur eru eftir á prjóni. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu með litnum hvítur. Skiptið yfir í 2 þræði í litnum hvítur og prjónið 4 umferðir stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) með 1 kantlykkju slétt í hvorri hlið, áður en fellt er af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Prjónið alls 4 fætur. Saumið sauma á fótum í ystu lykkjubogana. Fyllið hvern fót með vatti og saumið fæturna neðan á grísinn. Framfæturnir eru staðsettir ca þar sem rendurnar byrja uppi við háls með ca 3-4 cm millibili. Afturfætur eru staðsettir ca 3-4 cm framan við úrtöku að aftan. EYRA: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna neðan frá og upp. Fitjið upp 6 lykkjur á sokkaprjón 2,5 með litnum ljós bleikur (skiptið lykkjunum á 2 st sokkaprjóna 2,5 þannig að það verða 3 lykkjur á hvorum prjóni, prjónið með þriðja prjóninum. UMFERÐ 1. * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar = 10 lykkjur. UMFERÐ 2: Prjónið slétt. UMFERÐ 3: * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar = 14 lykkjur. UMFERÐ 4: Prjónið slétt. UMFERÐ 5: * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 5 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar = 18 lykkjur. UMFERÐ 6: Prjónið slétt. Haldið svona áfram með útaukningu í annarri hverri umferð þar til 38 lykkjur eru eftir í umferð. Prjónið sléttprjón hringinn þar til eyrað mælist 9 cm. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið (þ.e.a.s. á milli 2 lykkja slétt í hvorri hlið). Fækkið síðan um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2 (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð 3 sinnum til viðbótar = 22 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð þannig: * Prjónið 10 næstu lykkjur slétt saman 2 og 2, prjónið 1 lykkju slétt *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar = 12 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt og fellið síðan af allar lykkjur. Notið nál og herðið uppfitjunarkantinn saman neðst niðri á eyra. Prjónið annað eyra á sama hátt og saumið eyrun niður á bleiku eininguna ofan á höfði (það eiga að vera ca 7 cm á milli eyrna ofan á höfði) – sjá ljósmynd. SKOTT: Fitjið upp 20 lykkjur á prjón 2,5 með 2 þráðum í litnum ljós bleikur. Prjónið 2 lykkjur í hverja lykkju = 40 lykkjur. Fellið laust af, klippið frá og saumið skottið niður fyrir miðju aftan á grísnum. BAND Í HÁLSI: Fitjið upp 65 lykkjur á prjón 2,5 með 2 þráðum í litnum hvítur. Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja slétt, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni og endið með 1 lykkju slétt og 1 kantlykkju slétt. Haldið svona áfram með stroff þar til bandið mælist 2 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Leggið bandið utan um hálsinn á grísnum aftan við eyrun, leggið endana yfir hvorn annan að ofan og saumið saman með nokkrum sporum. Saumið e.t.v. tölu til skrauts ofan á bandið. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #dropssweetbetty eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 29-10
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.