Denisa Martišková skrifaði:
Prečo treba robiť sveter na kruhových ihliciach? pletieme ho v riadkoch s okrajovými očkami, alebo v kruhových riadkoch? ďakujem
06.08.2018 - 18:41DROPS Design svaraði:
Dobrý den, Deniso, svetr pleteme v řadách. Kruhová jehlice je praktičtější ve chvíli, kdy nahodíme oka pro rukávy a máme tím pádem delší řadu. Pokud ale chcete, můžete plést i na klasických rovných jehlicích - jelikož jde o dětský svetřík, měla by se vám tam oka vejít. Příjemné chvíle s jehlicemi! Hana
07.08.2018 - 15:16
Lynne Cole skrifaði:
Is this pattern available in English?
29.07.2018 - 08:50DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Cole, yes this pattern is available in English, just click on the drop menu under the picture to change language. Happy knitting!
31.07.2018 - 10:24
Margit skrifaði:
Tere! Alustasin jaki parema hõlmaga, kudusin parempidi esimese mustrirea A2. Kuidas tuleb kududa pahempidine rida? Kas muster käib ka pahempidiste ridade kohta?
09.07.2018 - 21:43DROPS Design svaraði:
Tere Margit! Skeemil on näidatud kõik read. Head kudumist!
13.08.2018 - 22:10
Birgit Lund skrifaði:
Hej Jeg har lidt problemer med at strikke de bukser, for at strikke retstrik når man strikker rundt - så strikker man da ikke ret på alle pindende? så bliver det glat? eller er det sådan at når man har strikket buksen, så vender man vrangen ud inden man syr dem sammen i skridtet? jeg kan ikke lige tolke det :-) hjælp :-) Hilsen Birgit
30.05.2018 - 11:35DROPS Design svaraði:
Hej Birgit, Når du strikker retstrik rundt, så strikker du hver 2.omgang vrang, så får du rillerne :)
30.05.2018 - 13:39
Denise Eichstädt skrifaði:
Ich bin bei der Jacke am rechten Vorderteil. Nach den 16cm beginnen die 18x abnahmen k 36 Reihen) & 2x in der 4. Reihe ( 8 Reihen). So komme ich auf 44 Reihen. Am Ende ( vor den Zunahmen für die Ärmel) soll ich nur 19cm insgesamt haben, d.h. 44 Reihen in 3cm, das passt definitiv nicht. Maschenprobe und Garn sind identisch, bin nun bei der 8. Reihe und hab schon 4cm. Die Maße scheinen nicht zu stimmen. ( Größe 1/3 Mon)
07.05.2018 - 21:51DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Eichstädt, die Abnahmen für Halsausschnitt sollen nicht bei 19 cm fertig sein, dh nach 19 cm schlagen Sie die neuen Maschen für den Ärmel an und gleichzeitig stricken Sie die Abnahmen für den Hals weiter. Wenn alle Zu- und Abnhamen fertig sind, weiter stricken bis die Arbeit 28 cm misst (= Schulter). Viel Spaß beim stricken!
08.05.2018 - 09:06
Inés skrifaði:
No me queda claro cómo dar la forma de las orejitas al coser el gorro.
26.03.2018 - 17:23DROPS Design svaraði:
Hola Inés. No hay que hacer ninguna costura adicional para dar la forma al gorro. Si se ha trabajado correctamente, al montarlo, la parte de orejas se forman espontáneamente.
29.03.2018 - 19:07Mónica skrifaði:
Simplemente hermoso,gracias
08.03.2018 - 17:02Maria skrifaði:
Hello! For the pants: when starting the rows with garter stitch (just after switching to 3mm needles) - should these rows be worked in circle or back and forth? i.e. 17, A.3, 34, A.3, 17 and TURN or just continue 17, A.3, 34, A.3., 17 in round without turning? Thanks!
23.02.2018 - 18:35DROPS Design svaraði:
Dear Maria, you should only turn the piece while you are doung the elevation on the back, otherwise it should be knitted on the round, without turning the piece. I hope this helps. Happy Knitting!
24.02.2018 - 23:49
Neva skrifaði:
Ich habe die Mütze jetzt fertig gestrickt, aber ich habe noch nicht verstanden welche Kante ich woran nähen muss. Kann das Fertigstellen der Mütze noch etwas detaillierter erklärt werden?
08.01.2018 - 10:16DROPS Design svaraði:
Liebe Neva, die Seiten nähen Sie zusammen, dann diese Naht muß an der hinterne Mitte liegen, und die Anschlagskante wird dann doppelt und zusammengenäht. Viel Spaß beim fertigstellen!
08.01.2018 - 14:07
Eila Sillman skrifaði:
Ber om ursäkt, tyvärr så är det jag som tolkat mönstret felaktigt.
21.12.2017 - 15:46
Hello Kitten#hellokittenset |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Prjónuð húfa fyrir börn í garðaprjóni, öldumynstri og eyrnaleppum og prjónuð vafningspeysa og buxur í garðaprjóni og gatamynstri úr DROPS BabyMerino. Stærð fyrirburar – 4 ára.
DROPS Baby 29-9 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Húfa: Sjá mynsturteikningu A.1. Peysa: Sjá mynsturteikningu A.2. Buxur: Sjá mynsturteikningu A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Veljið rétt mynstur fyrir stærð. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1 (á við um húfu): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum þannig: Prjónið 1 kantlykkju með garðaprjóni, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri), prjónið sléttprjón þar til 3 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), 1 kantlykkja með garðaprjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2 (á við um peysu): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum á eftir 1 kantlykkju og A.2 þannig (á við um hægra framstykki): Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri). Fækkið lykkjum á undan 1 kantlykkju og A.2 þannig (vinstra framstykki): Prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri). LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-3 (á við um buxur): Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið síðan 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið 2 lykkjur (prjónamerki situr mitt á milli þessa 2 lykkja) og prjónið síðan 2 lykkjur snúnar slétt saman (= 1 lykkja færri). LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (á við um buxur): Aukið út um 2 lykkjur með því að slá 1 sinni uppá prjóninn hvoru megin við 2 lykkjur, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn til að koma í veg fyrir göt. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka, ofan frá og niður. HÚFA: Fitjið upp (79) 89-99-103-107 (115-121) lykkjur á hringprjón 3 með Baby Merino. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, þar til stykkið mælist 3 cm. Prjónið nú þannig: (25) 28-32-34-35 (39-42) lykkjur í garðaprjóni, A.1 yfir (29) 33-35-35-37 (37-37) lykkjur og prjónið (25) 28-32-34-35(39-42) lykkjur í garðaprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið svona þar til stykkið mælist (14) 14-15-16-16 (18-19) cm. Prjónið 4 umferðir garðaprjón. Í næstu umferð frá réttu er fellt af fyrir eyrnaleppum þannig: Fellið af fyrstu (5) 8-10-10-9(11-12) lykkjur, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu (20) 20-22-24-26 (28-30) lykkjur (= 1. eyrnaleppur) og setjið þessar lykkjur á þráð, fellið af næstu (29) 33-35-35-37 (37-37) lykkjur, prjónið garðaprjón yfir næstu (20) 20-22-24-26 (28-30) lykkjur (= 2. eyrnaleppur) og setjið þessar lykkjur á þráð, fellið af síðustu (5) 8-10-10-9 (11-12) lykkjur. Klippið frá. EYRNALEPPUR: = (20) 20-22-24-26 (28-30) lykkjur. Setjið til baka lykkjur af öðrum þræðinum á prjóninn, prjónið garðaprjón og fækkið um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið á stykki – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1, þannig: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin á stykki í 4. hverri umferð alls (6) 6-5-5-6 (6-7) sinnum og 1 lykkja hvoru megin á stykki í annarri hverri umferð alls (2) 2-4-5-5 (6-6) sinnum = 4 lykkjur. Eyrnaleppurinn mælist ca (6) 6-6-6-7 (8-8) cm. Fellið af og festið enda. Prjónið hinn eyrnaleppinn á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið saman hliðarna, saumið þær kant í kant í ystu lykkju. Brjótið síðan húfuna þannig að saumurinn liggi við miðju að aftan, saumið síðan uppfitjunarkantinn alveg eins. BAND: Klippið 6 þræði ca 60 cm og þræðið þá hálfa leið í gegnum toppinn á eyrnaleppnum, þ.e.a.s. að það verða alls 12 þræðir til að flétta með. Fléttið eina fléttu. Hnýtið hnút neðst niðri. Gerið alveg eins á hinum eyrnaleppnum. ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón. Byrjað er á öðru framstykkinu, lykkjur eru fitjaðar upp fyrir ermi og prjónið upp að öxl. Síðan er hitt framstykkið prjónað, bæði framstykkin eru sett saman og prjónað er niður yfir bakstykki. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið LAUST upp (34) 37-44-48-52 (55-62) lykkjur á hringprjón 3 með Baby Merino og prjónið 6 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan (1. umferð = rétta). Prjónið frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, A.2 yfir 6 lykkjur og prjónið garðaprjón út umferðina. Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist (9) 12-16-16-17 (20-23) cm – passið uppá að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Prjónið 1 stutta umferð (með byrjun frá réttu) þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, A.2, snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið til baka frá röngu eins og áður. Snúið stykkinu. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! LYKKJUM ER FÆKKAÐ Í HÁLSMÁLI JAFNFRAMT ÞVÍ SEM LYKKJUM ER FJÖLGAÐ FYRIR ÖXL/ERMI. ÚRTAKA FYRIR HÁLSMÁLI: Fækkið um 1 lykkju fyrir hálsmáli innan við 1 kantlykkju og A.2 í byrjun umferðar – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls (18) 18-22-24-26 (28-32) sinnum, síðan er lykkjum fækkað í 4. hverri umferð alls 2 sinnum. ÖXL/ERMI: Þegar stykkið mælist (12) 15-19-20-21 (24-27) cm eru fitjaðar upp nýjar lykkjur í lok hverrar umferðar frá réttu (= að hlið) fyrir ermi þannig: Fitjið upp (3) 4-6-6-6 (6-6) lykkjur alls (4) 4-4-5-6 (7-8) sinnum og (16) 19-19-18-19 (23-26) lykkjur alls 1 sinni. Eftir allar útaukningu og úrtöku eru (42) 52-63-70-79 (90-102) lykkjur á prjóni fyrir öxl/ermi. Haldið áfram í garðaprjóni og A.2 þar til stykkið mælist 20) 24-28-30-32 (36-40) cm – stillið af þannig að endað sé með 4. umferð í A.2, prjónið nú áfram í garðaprjóni yfir allar lykkjur. Setjið 1 prjónamerki = mitt ofan á öxl. Fitjið upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar við hálsmál (= frá röngu) alls 2 sinnum = (46) 56-67-74-83 (94-106) lykkjur (síðasta umferð = ranga). Setjið allar lykkjur á þráð. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið LAUST upp (34) 37-44-48-52 (55-62) lykkjur á hringprjón 3 með Baby Merino og prjónið 6 umferðir garðaprjón (1. umferð = rétta). Prjónið frá réttu þannig: Prjónið garðaprjón þar til 7 lykkjur eru á prjóni, A.2 yfir 6 lykkjur og 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist (9) 12-16-16-17 (20-23) cm – stillið af að næsta umferð sé frá röngu. Prjónið 1 stutta umferð (með byrjun frá röngu) þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, A.2, snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið til baka frá réttu. Snúið stykkinu og prjónið til baka frá röngu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! LYKKJUM ER FÆKKAÐ Í HÁLSMÁLI JAFNFRAMT ÞVÍ SEM LYKKJUM ER FJÖLGAÐ FYRIR ÖXL/ERMI. ÚRTAKA FYRIR HÁLSMÁLI: Fækkið um 1 lykkju fyrir hálsmáli á undan A.2 og 1 kantlykkju í lok umferðar. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls (18) 18-22-24-26 (28-32) sinnum, síðan er lykkjum fækkað í 4. hverri umferð alls 2 sinnum. ÖXL/ERMI: Þegar stykkið mælist (12) 15-19-20-21 (24-27) cm eru fitjaðar upp nýjar lykkjur í lok hverrar umferðar frá röngu (= að hlið) fyrir ermi þannig: Fitjið upp (3) 4-6-6-6 (6-6) lykkjur alls (4) 4-4-5-6 (7-8) sinnum og (16) 19-19-18-19 (23-26) lykkjur alls 1 sinni. Eftir alla útaukningu og úrtöku eru (42) 52-63-70-79 (90-102) lykkjur á prjóni fyrir öxl/ermi. Haldið áfram í garðaprjóni og A.2 þar til stykkið mælist 20) 24-28-30-32 (36-40) cm – stillið af þannig að endað sé með 4. umferð í A.2, prjónið nú áfram í garðaprjóni yfir allar lykkjur. Setjið 1 prjónamerki = mitt ofan á öxl. Fitjið upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar við hálsmál (= frá réttu) alls 2 sinnum = (46) 56-67-74-83 (94-106) lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. BAKSTYKKI: Prjónið sléttar lykkjur yfir vinstra framstykki frá réttu (= (46) 56-67-74-83 (94-106) lykkjur), fitjið upp (8) 8-10-10-12 (14-16) nýjar lykkjur (= aftan við hnakka) og prjónið inn hægra framstykki á hringprjóninn (= sléttar lykkjur frá réttu) = (100) 120-144-158-178 (202-228) lykkjur. NÚ ER STYKKIÐ MÆLT FRÁ PRJÓNAMERKI Á ÖXLUM. Haldið áfram í garðaprjóni fram og til baka. Þegar stykkið mælist (6) 7-7-7½-8 (9-9) cm fækkið lykkjum fyrir ermalykkjur þannig: Fækkið lykkjum í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið á stykki þannig: (16) 19-19-18-19 (23-26) lykkjur 1 sinni og (3) 4-6-6-6 (6-6) lykkjur alls (4) 4-4-5-6 (7-8) sinnum = (44) 50-58-62-68 (72-80) lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist ca (20) 24-28-30-32 (36-40) cm – brjótið stykkið saman tvöfalt við prjónamerki á öxlum og passið uppá að framstykki og bakstykki séu jafn löng – fellið síðan laust af. FRÁGANGUR: Saumið hliðar- og ermasauma kant í kant í ystu lykkjubogana. HEKLAÐUR KANTUR: Heklið með heklunál 2,5 í kringum allt opið á peysunni þannig (frá réttu): Heklið 1 fastalykkju í fyrstu lykkjuna, * 1 loftlykkja, hoppið yfir ca 2 lykkjur/umferðir, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* hringinn alla peysuna, en í hvert horn (þar sem úrtaka fyrir hálsmáli byrjar á framstykkjum) er heklað band þannig: 1 fastalykkja í hornið, heklið loftlykkur í ca 20-25 cm, snúið við og heklið 1 keðjulykkju í hverja loftlykkju til baka, heklið 1 fastalykkju aftur í hornið á framstykki. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju. Heklið 2 laus bönd: Heklið loftlykkjur í ca 20-25 cm, snúið við og heklið 1 keðjulykkju til baka í hverja loftlykkju. Klippið frá og heklið 1 band til viðbótar alveg eins. Saumið niður 1 band innan við í hægri hlið og 1 band utan við í vinstri hlið. Passið uppá að böndin verði í sömu hæð og hin böndin. ------------------------------------------------------- BUXUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring, ofan frá og niður. Umferðin byrjar við miðju að aftan. BUXUR: Fitjið upp (88) 96-104-120-128 (136-144) lykkjur á hringprjón 2,5 með Baby Merino. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar (= miðja að aftan) og 1 prjónamerki eftir (44) 48-52-60-64 (68-72) lykkjur (= miðja að framan). Prjónið stroff frá miðju að aftan þannig: 1 lykkja slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, endurtakið frá *-* og endið með 2 lykkjur brugðið og 1 lykkju slétt. Þegar stroffið mælist 4 cm er prjónaður gatakantur fyrir band þannig: * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur brugðið saman, 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur brugðið saman, 1 lykkja slétt *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn. Prjónið 1 umferð stroff með 2 lykkjum slétt, 2 lykkjur brugðið. Prjónið upphækkun að aftan með stroffi þannig: Prjónið (7) 7-9-9-9 (9-9) lykkjur, snúið við, herðið á þræði, prjónið (14) 14-18-18-18 (18-18) lykkjur til baka, snúið við, herðið á þræði, prjónið (20) 20-26-26-26 (26-26) lykkjur, snúið við, herðið á þræði, prjónið (26) 26-34-34-34 (34-34) lykkjur til baka. Haldið svona áfram með því að prjóna (6) 6-8-8-8 (8-8) lykkjur fleiri í hvert skipti sem snúið er við þar til prjónað hefur verið yfir alls (50) 50-66-66-82 (82-82) lykkjur. Snúið við. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið frá miðju að aftan þannig: Prjónið (17) 19-21-25-27 (29-31) lykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, A.3 (= 10 lykkjur), prjónið (34) 38-42-50-54 (58-62) lykkjur í garðaprjóni, A.3 yfir 10 lykkjur, prjónið (17) 19-21-25-27 (29-31) lykkjur í garðaprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist (10) 12-13-16-15 (16-17) cm mælt frá miðju að framan, er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 2 miðju lykkjur að framan og aftan – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út í annarri hverri umferð alls (8) 8-8-8-12 (12-12) sinnum = (120) 128-136-152-176 (184-192) lykkjur. Þegar stykkið mælist (15) 17-18-21-22 (23-24) cm mælt við miðju að framan (útaukning á nú að vera lokið) fellið af lykkjur fyrir opi í næstu umferð með sléttum lykkjum þannig: Byrjið við miðju að aftan og fellið af (6) 6-6-6-8 (8-8) fyrstu lykkjur, prjónið sléttprjón þar til (6) 6-6-6-8 (8-8) lykkjur á undan prjónamerki fram og fellið af (12) 12-12-12-16 (16-16) lykkjur, prjónið sléttprjón þar til eftir eru (6) 6-6-6-8 (8-8) lykkjur í umferð, fellið af síðustu (6) 6-6-6-8 (8-8) lykkjur. Setjið lykkjur af annarri skálminni á þráð og prjónið nú skálmar hvora fyrir sig til loka. SKÁLM: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. = (48) 52-56-64-72 (76-80) lykkjur. Skiptið lykkjunum niður á 4 sokkaprjóna nr 3 og setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar (= innan á skálm). Haldið áfram í garðaprjóni og A.3 í hlið eins og áður í (1) 1-1-2-2 (2-3) cm – passið uppá að næsta umferð sé 1 umferð slétt. Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-3 þannig: STÆRÐ FYRIRBURI -12/18 MÁN: Í 4. hverri umferð. STÆRÐ 2 ÁRA: í 6. hverri umferð. STÆRÐ 3/4 ÁRA: Í 8. hverri umferð. ALLS (8) 10-10-12-12 (12-12) sinnum = (32) 32-36-40-48 (52-56) lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist (24) 28-32-38-42 (48-55) cm, þá heldur A.3 áfram eins og áður en lykkjurnar í garðaprjóni eru prjónaðar í stroffprjóni með 2 lykkjum slétt/2 lykkjur brugðið þar til stykkið mælist ca (26) 30-34-40-44 (50-57) cm frá uppfitjunarkanti – passið uppá að síðasta umferðin sé 4. umferð í A.3. Prjónið stroff yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist (27) 31-35-41-45 (51-58) cm frá uppfitjunarkanti. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Setjið lykkjur frá hinni skálminni yfir á sokkaprjón nr 3 og prjónið á sama hátt og fyrri skálm. FRÁGANGUR: Saumið (12) 12-12-12-16 (16-16) lykkjur sem felldar voru af á milli skálma, að hvorri annarri. SNÚRA: Heklið snúru í mitti með heklunál 2,5 þannig: Heklið loftlykkjur í ca 110 cm, snúið við og heklið 1 keðjulykkju til baka í hverja loftlykkju, klippið frá og festið enda. Snúran er þrædd í gegnum gatakant á buxum og hnýtið slaufu að framan. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #hellokittenset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 40 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 29-9
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.