Anna Lucia skrifaði:
Salve. Sono sbagliate le maglie iniziali?Perché mi viene troppo largo il collo. Ho guardato altri modelli che iniziano dal collo con 80 maglie. Potete correggere? Grazie
24.04.2018 - 14:47DROPS Design svaraði:
Buongiorno Anna Lucia. Il numero di maglie è corretto. Il motivo a coste stringe molto il lavoro. Se troppo largo, può avviare meno maglie. Dopo l'alzata, diminuisce il numero di maglie necessario per arrivare a 80 e seguire le indicazioni riportate nel testo. Buon lavoro!
25.04.2018 - 10:02
Rodenburg skrifaði:
Hallo, Ik heb de col gebreid en snap niet hoeveel meerderingen per toer er zijn; 12 of 16? Dus een omslag voor A1 dan één tussen A1 en A2 dan één tussen A2 en A1 en dan één na A1 of zijn er geen meerderingen voor de eerste A1 en na de 2de A1, groetjes Anju
09.07.2017 - 08:14DROPS Design svaraði:
Hoi Anju, Het meerderen voor de raglan gebeurt telkens vlak voor A.1 en/of na A.1 (A.1 zit telkens tussen de overgang van liif naar mouwen), maar hoe vaak dit gebeurt is verschillend op het lijf en de mouwen en per maat ook verschillend. Voor het lijf staat er VOOR- EN ACHTERPAND: Meerder iedere naald in totaal 0-2-0-5-9-14 keer, dan iedere 2e naald in totaal 18-19-21-22-22-22 keer. Dat betekent dat je bijvoorbeeld voor maat s eerst 0 keer iedere 2e naald mindert. Daarnaast moet je tegelijkertijd minderen voor de mouw in jouw maat. Dit staat verderop beschreven.
10.07.2017 - 18:32
Anki skrifaði:
Tyvärr så kommer den inte att göra det jag har inte dragit ut den, är en van stickare och insåg ganska fort att det inte var lönt att fortsätta, får använda garnet till annat, trist
09.05.2017 - 13:27DROPS Design svaraði:
Hej igen Anki, Stickar du i DROPS Paris? Om du med 112 m får 80 cm i resår på stickor 4 i Paris, så har du bara 14m på 10 cm. Enligt beskrivningen måste du ha 19m i slätst (= ca 21 m i resår). Det betyder att du måste byta till mindre stickor. Gör ett litet stickprov och se till at du får 21 m på 10 cm i resår, så får du trøjan som på bilden. Lycka till!
09.05.2017 - 14:59
Anki skrifaði:
Förklaring till min tidigare fråga, la upp de 112 maskorna enligt mönstret och kragen blir då dubbelt så stor som måttangivelsen på mönstret, ser ut att vara en polokrage på bilden men jag kan ha kragen runt midjan, kollade stickfastheten som står i mönstret och då säger den 19 maskor = 10 innebär att kragen skulle bli 59 cm i omkrets, skissen visar att kragen skall vara totalt 37 cm, så nu undrar jag hur många maskorna det egentligen skall vara
09.05.2017 - 08:06DROPS Design svaraði:
Beskrivningen stämmer nog, eftersom det är fråga om resår så kommer kragen att dra ihop sig och sedan töja sig efter behov. Måtten på kragen tas utan att kragen sträcks.
09.05.2017 - 12:50
Anki skrifaði:
Mönstret stämmer ej med maskor för halsen, det räcker på att titta på stickfastheten mot måtten så inser man att det är omöjligt, väntar på svar vill gärna komma vidare
08.05.2017 - 07:53DROPS Design svaraði:
Hej! Kan du förklara närmare vad du menar?
08.05.2017 - 14:20
Anki skrifaði:
Mönstret kan ej stämma 112 maskor till kragen på stickor 4 mäter ca 80
28.04.2017 - 20:14DROPS Design svaraði:
Hej Anki, om du stickar i DROPS Paris med stickfasthet 19m på 10 cm (enligt beskrivningen) så får du 112/19=59cm
12.05.2017 - 07:29
Summer Foam#summerfoamtop |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Aðsniðinn toppur með háum kraga, laskalínu og gatamynstri á ermum, prjónaður ofan frá og niður úr DROPS Paris. Stærð S - XXXL.
DROPS 178-46 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. UPPHÆKKUN: Byrjið frá réttu og prjónið stroff þar til prjónaðar hafa verið 7-7-11-11-11-11 lykkjur fram hjá prjónamerki, snúið við, herðið á þræði og prjónið 14-14-22-22-22-22 lykkjur stroff til baka. Snúið við, herðið á þræði og prjónið 22-22-30-30-30-30 lykkjur stroff, snúið við, herðið á þræði og prjónið 30-30-38-38-38-38 lykkjur stroff til baka. Snúið við, herðið á þræði og prjónið 38-38-46-46-46-46 lykkjur stroff, snúið við, herðið á þræði og prjónið 46-46-54-54-54-54 lykkjur stroff til baka. Snúið við og prjónið stroff til baka frá miðju að aftan. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. A.2 er í stærð S – A.2 er prjónað alveg eins og í hinum stærðunum, þ.e.a.s. götin halda áfram út alveg eins, en passið uppá að það komi ekki gat aðliggjandi við laskalínu. 1 mynstureining með götum á breidd og á hæð er útskýrð í A.2A. ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út/fækka lykkjum, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 112 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 32) = 3,5. Í þessu dæmi þá eru prjónaðar til skiptis ca önnur hver og 3. hver lykkja saman og 3. og 4. hver lykkja saman (ef aukið er út þá er slegið 1 sinni uppá prjóninn til skiptis við ca 3. og 4. hverja lykkju). LASKALÍNA: Aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við A.1 í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni á fram- og bakstykki og í A.2 á ermum. ATH: Mismunandi er aukið út á fram- og bakstykki og ermum eins og útskýrt er í uppskrift. ÚRTAKA (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við 6-6-10-10-10-10 lykkjur með stroffi í hvorri hlið. Fækkið lykkjum á undan 6-6-10-10-10-10 lykkjum með stroffi þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri). Fækkið lykkjum á eftir 6-6-10-10-10-10 lykkjum með stroffi þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 6-6-10-10-10-10 lykkjur með stroffi í hvorri hlið. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna og prjónað er ofan frá og niður. KRAGI: Fitjið upp 112-112-120-120-128-128 lykkjur á stuttan hringprjón 4 með Paris. Prjónið 1 umferð slétt. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar = miðja að aftan. Næsta umferð er prjónuð þannig: * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt *, endurtakið frá *-* út umferðina. Haldið áfram með stroff svona í 8 cm. Til að flíkin passi betur er prjónuð UPPHÆKKUN aftan í hnakka – sjá útskýring að ofan. Eftir upphækkun er prjónuð 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 32-32-36-36-40-40 lykkjur jafnt yfir – LESIÐ ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 80-80-84-84-88-88 lykkjur. Skiptið yfir á stutta hringprjóna 5 og prjónið næstu umferð þannig: 12-12-13-13-14-14 lykkjur sléttprjón (= ½ bakstykki), A.6 (= 6 lykkjur í laskalínu), A.2 (= 4 lykkjur á ermi), A.1 (= 6 lykkjur í laskalínu), 24-24-26-26-28-28 lykkjur sléttprjón (= framstykki), A.1 (= 6 lykkjur í laskalínu), A.2 (= 4 lykkjur á ermi), A.6 (= 6 lykkjur í laskalínu) og 12-12-13-13-14-14 lykkjur í sléttprjóni (= ½ bakstykki). LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Haldið áfram í sléttprjóni á fram- og bakstykki, A.1 í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma og A.2 á hvorri ermi (sjá útskýringu á A.2 undir MYNSTUR). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT í fyrstu umferð byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Mismunandi er aukið út á fram-/bakstykki og ermum – ATH: Í stærð L byrjar útaukning fyrir ermar í fyrstu umferð, en á fram- og bakstykki eru prjónaðar 2 umferðir áður en útaukningin byrjar: FRAM- OG BAKSTYKKI: Aukið út í hverri umferð alls 0-2-0-5-9-14 sinnum, síðan í annarri hverri umferð alls 18-19-21-22-22-22 sinnum. ERMAR: Aukið út í annarri hverri umferð alls 12-14-16-20-26-29 sinnum og síðan í 4. hverri umferð alls 3-3-3-2-0-0 sinnum. Eftir allar útaukningar fyrir laskalínu eru 212-232-244-280-316-348 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 16-18-20-22-24-26 cm (mælt við miðju að framan á eftir stroffi í hálsi). Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 33-36-37-43-48-53 lykkjur eins og áður (= ½ bakstykki), setjið næstu 40-44-48-54-62-68 lykkjur á þráð (= vinstri ermi), fitjið upp 6-6-10-10-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlíð mitt undir ermi), prjónið næstu 66-72-74-86-96-106 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 40-44-48-54-62-68 lykkjur á þráð (= hægri ermi), fitjið upp 6-6-10-10-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið næstu 33-36-37-43-48-53 lykkjur sem eftir eru eins og áður (= ½ bakstykki). FRAM- OG BAKSTYKKI: = 144-156-168-192-212-232 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hlið – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið sléttprjón hringinn, en yfir 6-6-10-10-10-10 lykkjur í hvorri hlið eru prjónaðar 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Þegar prjónaðar hafa verið 4 umferðir garðaprjóni í hvorri hlið er prjónað stroff yfir þessar 6-6-10-10-10-10 lykkjur í hvorri hlið þannig: S + M: Prjónið A.1 (= 6 lykkjur), L + XL + XXL + XXXL: Prjónið A.3 (= 10 lykkjur) – aðrar lykkjur halda áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 2 cm frá prjónamerki er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við stroff í hvorri hlið – LESIÐ ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í 6. hverri umferð alls 4 sinnum í hvorri hlið = 128-140-152-176-196-216 lykkjur. Þegar stykkið mælist 17 cm frá prjónamerki er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við stroff í hvorri hlið – LESIÐ ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út í 6.-6.-6.-5.-5.-5. hverri umferð alls 5-5-5-6-6-6 sinnum í hvorri hlið = 148-160-172-200-220-240 lykkjur. Þegar stykkið mælist 29 cm frá prjónamerki eru prjónuð 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 36-36-36-40-44-48 lykkjur jafnt yfir – LESIÐ ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 184-196-208-240-264-288 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stroffið mælist 5 cm (eða að óskaðri lengd) skiptið til baka yfir á hringprjón 5 áður en fellt er af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. KANTUR Á ERMI: Setjið 40-44-48-54-62-68 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki yfir á sokkaprjón 4, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 6-6-10-10-10-10 lykkjum mitt undir ermi = 46-50-58-64-72-78 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 10-10-10-12-12-14 lykkjur jafnt yfir = 56-60-68-76-84-92 lykkjur. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar kantur á ermum mælist 2 cm er fellt LAUST af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Prjónið hinn kant á ermi á sama hátt. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #summerfoamtop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 178-46
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.