Margit skrifaði:
Danke, aber wird es, auch wenn die Maschenprobe genau stimmt, nicht gehen, und warum nicht? LG Margit
13.02.2017 - 11:01
Margit skrifaði:
Liebes Drops-Team, ich erhalte die Maschenprobe auch mit dem Garn Belle. Können Sie sich das Modell mit Belle vorstellen? Vielen Dank! Liebe Grüße Margit
11.02.2017 - 20:39DROPS Design svaraði:
Liebe Margit, dieses Modell ist mit Big Merino gestrickt, dh mit einem Garmgruppe C - siehe Alternative. DROPS Belle gehört Garngruppe B und wird hier nicht passen. Viel Spaß beim stricken!
13.02.2017 - 10:20
Zabeth skrifaði:
J'aime beaucoup ce modèle. Sa coupe évasée, le point fantaisie. Et lorsque l'on connaît la Big Merino et sa douceur, on a déjà envie de le porter!
11.01.2017 - 15:05
Christine skrifaði:
Très féminin !
10.01.2017 - 15:51
Sherry Ormsby skrifaði:
Beautiful sweater. Definitely would love to knit.
04.01.2017 - 11:16Dianne skrifaði:
Think this would look good on a large figure like mine so hopefully it gets the nod.
27.12.2016 - 20:59
Silke skrifaði:
Super schön! Würde ich sehr gerne nacharbeiten!
18.12.2016 - 16:42
Karin skrifaði:
Mein Favorit!
15.12.2016 - 11:09
Celtic Knot#celticknotsweater |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Peysa prjónuð ofan frá og niður með gatamynstri, laskalínu og A-form úr DROPS Big Merino. Stærð S - XXXL.
DROPS 177-5 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. ÚTAUKNING-1: Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 78 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 8) = 9,75. í þessu dæmi þá er aukið út eftir ca 10. hverja lykkju. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að ekki myndist gat. LASKALÍNA: Aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við fjögur prjónamerki í annarri hverri umferð – ATH: Misjafnt er aukið út á fram- og bakstykki og á ermum eins og skýrt er frá í uppskrift. AUKIÐ SVONA ÚT Á FRAM- OG BAKSTYKKI ÞEGAR AUKNAR ERU ÚT 4 LYKKJUR (þ.e.a.s. aukið út um 2 lykkjur í hvorri hlið): Á eftir prjónamerki: Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Á undan prjónamerki: Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð eru uppslættirnir sem eru næstir prjónamerki prjónaðir slétt (= gat) og hinir prjónaðir snúnir slétt (= ekki gat). AUKIÐ SVONA ÚT Á FRAM- OG BAKSTYKKI ÞEGAR AUKNAR ERU ÚT 2 LYKKJUR (þ.e.a.s. aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið): Á eftir prjónamerki: Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri). Á undan prjónamerki: Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt (= 1 lykkja fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt (= gat). AUKIÐ SVONA ÚT Á ERMUM (þ.e.a.s. aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið): Á eftir prjónamerki: Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri). Á undan prjónamerki: Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt (= 1 lykkja fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt (= gat). ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stutta hringprjóna/sokkaprjóna. BERUSTYKKI: Fitjið upp 78-82-82-86-90-94 lykkjur á stutta hringprjóna 4,5 með Big Merino. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð þar sem auknar eru út 8 lykkjur jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING-1 = 86-90-90-94-98-102 lykkjur. Byrjið á umferð = laskalína í hægri hlið á bakstykki þegar flíkin er mátuð. Skiptið yfir á stutta hringprjóna 5,5 og prjónið 1 umferð slétt – JAFNFRAMT eru sett 4 prjónamerki í stykkið þannig: Fyrsta prjónamerki er sett í byrjun umferðar, annað prjónamerki er sett eftir næstu 16 lykkjur (= ermi), þriðja prjónamerki er sett eftir næstu 27-29-29-31-33-35 lykkjur (= framstykki) og fjórða prjónamerki er sett eftir næstu 16 lykkjur (= ermi). Nú eru 27-29-29-31-33-35 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki (= bakstykki). Prjónið garðaprjón út umferðina. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA OG LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Í næstu umferð byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan! Aukið út hvoru megin við 4 prjónamerkin, en mismunandi lykkjufjöldi er á fram-/bakstykki og ermum þannig: ERMAR: Aukið út um 1 lykkju á eftir og 1 lykkju á undan prjónamerki í annarri hverri umferð alls 16-18-20-22-24-26 sinnum. FRAM- OG BAKSTYKKI: Aukið út um 2 lykkjur á eftir og 2 lykkjur á undan prjónamerki í annarri hverri umferð alls 1-1-2-3-3-4 sinnum, síðan er aukið út um 1 lykkju á eftir og 1 lykkju á undan prjónamerki í annarri hverri umferð alls 15-17-18-19-21-22 sinnum. MYNSTUR: JAFNFRAMT í fyrstu umferð með útaukningu fyrir laskalínu byrjar gatamynstur og A.1 er prjónað yfir miðju 25 lykkjur framan og aftan. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er haldið áfram í sléttprjón yfir allar lykkjur til loka. JAFNFRAMT eftir allar útaukningar eru 218-238-258-282-302-326 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 18-20-22-24-26-28 cm frá uppfitjunarkanti mælt við miðju að framan. Takið prjónamerkin úr laskalínu. Næsta umferð er prjónuð þannig: Setjið fyrstu 48-52-56-60-64-68 lykkjur á þráð (= hægri ermi), fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= hlið undir ermi – setjið 1 prjónamerki mitt á milli þessa nýju lykkja), prjónið næstu 61-67-73-81-87-95 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 48-52-56-60-64-68 lykkjur á þráð (= vinstri ermi), fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= hlið undir ermi – setjið 1 prjónamerki mitt á milli þessa nýju lykkja) og prjónið þær 61-67-73-81-87-95 lykkjur sem eftir eru (= bakstykki). HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 134-146-162-178-194-214 lykkjur. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni og A.1 að framan og að aftan eins og áður. Þegar stykkið mælist 9 cm í öllum stærðum frá skiptingu undir ermum er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 24 sinnum í hvorri hlið (eða þar til stykkið mælist 33 cm frá skiptingu) = ca 230-242-258-274-290-310 lykkjur í umferð. Skiptið yfir á hringprjóna 4,5. Prjónið 4 umferðir garðaprjón. Skiptið til baka yfir á hringprjóna 5,5 og fellið af með garðaprjóni (passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur). Peysan mælist nú ca 35 cm frá skiptingu undir ermum og 58-60-62-64-66-68 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið lykkjurnar af þræði í aðra hlið á stykki á stutta hringprjóna 5,5. Prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 6-6-8-8-10-12 lykkjunum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 54-58-64-68-74-80 lykkjur í umferð. Setjið 1 prjónamerki mitt í nýjar lykkjur = miðja undir ermi. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 3 cm er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – LESIÐ ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3-2½-2-1½-1-1 cm millibili alls 8-9-11-13-15-17 sinnum = 38-40-42-42-44-46 lykkjur. Þegar ermin mælist 28-27-26-24-22-21 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis), skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5. Prjónið 4 umferðir garðaprjón, skiptið til baka yfir á sokkaprjóna 5,5 og fellið af með sléttum lykkjum. Stykkið mælist ca 30-29-28-26-24-23 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #celticknotsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 177-5
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.