DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5632.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 177-3
DROPS Design: Mynstur w-648
Garnflokkur C – eða A + A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS PARIS frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
800-850-950-1050-1150-1250 g litur 16, hvítur

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 lykkjur x 22 umferðir með sléttprjóni/gatamynstur verði 10 cm á breiddina og 10 cm á hæðina.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 4 – fyrir kant með garðaprjóni.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5632.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

LEIÐBEININGAR:
Ef gatamynstrið er lokið áður en réttu máli er náð er hægt að prjóna í sléttprjóni með A.1 í hvorri hlið eins og áður til að ná réttu máli.

ÚTAUKNING (á við um ermar):
Byrjið á 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan að miðju að aftan í 2 stykkjum. Ermarnar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna.

HÆGRA FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 200-200-219-219-238-238 lykkjur á hringprjóna 5 með Paris. Fyrsta umferðir er prjónuð frá réttu þannig: A.1 (= 5 lykkjur), A.2A (= 9 lykkjur), A.2B yfir næstu 171-171-190-190-209-209 lykkjur (= 9-9-10-10-11-11 mynstureiningar 19 lykkjur), A.2C (= 10 lykkjur) og A.1 (= 5 lykkjur). Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 180-180-197-197-214-214 lykkjur í umferð.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Haldið áfram með A.1 eins og áður, prjónið A.3A (= 8 lykkjur), A.3B yfir næstu 153-153-170-170-187-187 lykkjurnar (= 9-9-10-10-11-11 mynstureiningar 17 lykkjur), A.3C (= 9 lykkjur) og endið með A.1 eins og áður. Haldið svona áfram. Þegar A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 131-131-143-143-155-155 lykkjur í umferð.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Haldið áfram með A.1 eins og áður, prjónið A.4A (= 6 lykkjur), A.4B yfir næstu 108-108-120-120-132-132 lykkjur (= 9-9-10-10-11-11 mynstureiningar 12 lykkjur), A.4C (= 7 lykkjur) og endið með A.1 eins og áður. Haldið svona áfram með mynstur.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka mælist stykkið ca 31 cm mælt frá uppfitjunarkanti (mælt mitt í öldumynstri). Prjónið síðan sléttprjón með A.1 yfir 5 ystu lykkjur í hvorri hlið eins og áður.
Þegar stykkið mælist 42-43-44-45-46-47 cm fellið af fyrir handveg þannig: Prjónið eins og áður yfir fyrstu 38 lykkjur, fellið af næstu 29-31-33-35-35-37 lykkjur og prjónið eins og áður yfir síðustu 64-62-72-70-82-80 lykkjur. Í næstu umferð eru fitjaðar upp 29-31-33-35-35-37 lykkjur yfir þær lykkjur sem felldar voru af og haldið áfram í sléttprjóni og A.1 í hvorri hlið eins og áður.
Þegar stykkið mælist 44-46-48-50-52-54 cm (þ.e.a.s. 2-3-4-5-6-7 cm frá handvegi), prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Haldið áfram með A.1 eins og áður, prjónið A.5A (= 6 lykkjur), A.5B yfir næstu 108-108-120-120-132-132 lykkjur (= 9-9-10-10-11-11 mynstureiningar 12 lykkjur), A.5C (= 7 lykkjur) og endið með A.1 eins og áður. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.5 hefur verið prjónað til loka mælist stykkið ca 59-61-63-65-67-69 cm frá máli frá uppfitjunarkanti (mælt mitt í öldumynstri) – LESIÐ LEIÐBEININGAR. Skiptið yfir í hringprjóna 4. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu, 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu. Fellið síðan af með sl frá réttu (affellingarkanturinn = miðja að aftan, passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur).

VINSTRA FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið alveg eins og hægra fram- og bakstykki þar til stykkið mælist 42-43-44-45-46-47 cm. Fellið nú af fyrir handveg frá réttu þannig: Prjónið eins og áður yfir fyrstu 64-62-72-70-82-80 lykkjur, fellið af næstu 29-31-33-35-35-37 lykkjur og prjónið eins og áður yfir síðustu 38 lykkjur. Í næstu umferð eru fitjaðar upp 29-31-33-35-35-37 lykkjur yfir þær lykkjur sem felldar voru af og haldið síðan áfram alveg eins á hægra fram- og bakstykki.

ERMI:
Fitjið upp 37-37-39-41-43-45 lykkjur á sokkaprjóna 4. Prjónið A.6A þar til 1 lykkja er eftir í umferð, prjónið A.6B (= lykkja). Þegar A.6 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er skipt yfir í sokkaprjóna 5. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar og látið prjónamerki fylgja með í stykkinu. Næsta umferð er prjónuð þannig: 0-0-1-2-3-4 lykkjur í sléttprjóni, A.4A (= 6 lykkjur), A.4B yfir næstu 24 lykkjur, A.4C (= 7 lykkjur) og 0-0-1-2-3-4 lykkjur í sléttprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 8-6-8-6-6-8 cm aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – LESIÐ ÚTAUKNING. Aukið svona út með 3-3-2½-2½-2½-2 cm millibili alls 10-11-12-13-13-14 sinnum = 57-59-63-67-69-73 lykkjur. Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka er prjónað sléttprjón yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 38 cm í öllum stærðum. Í næstu umferð eru felldar af miðju 6 lykkjur mitt undir ermi og ermakúpan er prjónuð til loka fram og til baka á hringprjóna. Prjónið sléttprjón og fellið af fyrstu 4 lykkjur í byrjun á hverri umferð alls 4 sinnum í hvorri hlið = 19-21-25-29-31-35 lykkjur eftir á prjóni. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru, stykkið mælist ca 42 cm í öllum stærðum.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið saman 2 stykkin mitt að aftan innan við affellingarkantinn – saumið með lykkjuspori. Saumið ermar í.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
symbols = prjónstefna
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 177-3

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (21)

country flag Linda McKnight wrote:

The pattern sizes range from small to 3X, however there are no measurements for what those sizes mean. Even the schematic on the last page doesn't indicate inches or cm and the only measurements listed in the pattern are for the width of the knitting and not an actual size. So, what are the size measurements?

28.01.2023 - 20:15

DROPS Design answered:

Dear Linda, the measurements in the schematic are always in cm. You can see the total length and width of the garment in the schematic; each number of each sequence is for a specific size. Take into account that, when measuring the total width, it indicates the width of the back, so you may use that to check which size you want to work. Happy knitting!

29.01.2023 - 20:21

country flag Carla wrote:

I have a question. I don't understand how to do the increase of the sleeve. It says that I should increase in the mid under sleeve. Is that the middle of the sleeve? Ag the beginning of the sleeve? I don't get it. It also says to bind off 6 stitches in the mid under sleeve. Same problem. Please I need help. Also I don't understand the same instructions on the pattern in Spanish.

21.05.2021 - 04:15

DROPS Design answered:

Dear Carla, sleeve is worked in the round, to increase work the round until 1 stitch remain before the marker at the end of the round, make 1 yarn over, knit 2 stitches (the marker is between these 2 stitches), make 1 yarn over and continue working all stitches as before. When measurements are right, work to the last 3 sts on the round, cast off these 3 sts + the first 3 sts at the beg of next round and continue now working in rows. Happy knitting!

21.05.2021 - 07:55

country flag Gerda wrote:

Klopt het dat de patronen allemaal heel erg groot uitvallen? Ik heb 4 patronen gebreid van drops d esign. Ik begin nu bij voorbaat met de kleinste maat maar nog steeds is het model veel te groot. En als ik kleinere naalden pak wordt het breiwerk heel strak ...

28.03.2021 - 08:50

DROPS Design answered:

Dag Gerda,

Als de stekenverhouding klopt, kun je gewoon het patroon volgen en dan worden de maten zoals aangegeven in de matentekening onderaan het patroon. Heb je van te voren een proeflapje gebreid om te controleren of de stekenverhouding klopt? Wellicht heb je dunnere naalden nodig om tot dezelfde stekenverhouding te komen.

01.04.2021 - 20:16

country flag Sandra Topke wrote:

Ich bin am Verzweifeln. Nach mehreren Versuchen komme ich nach A 3 nicht auf 143, sondern 147 Maschen. Ich finde meinen Fehler nicht. Was ist jeweils die erste und die letzte Masche des Rapport A 3B? Bin unsicher wegen der Umschläge.

21.05.2018 - 11:29

DROPS Design answered:

Liebe Frau Topke, es wird zuerst 1 M in A.3A, 2 M in jedem A.3.B und 1 M in A.3C abgenommen (= insgesamt 22 M abgenommen). Dann wird es 1 M in A.3A, 3 M in jedem A.3B und 1 M in A.3C abgenommen (= insgesamt 32 M abgenommen), es waren 197 M - 54 Abnahme = 143 M. Viel Spaß beim stricken!

22.05.2018 - 09:29

country flag Doris wrote:

Hallo! Stricke ich die Umschläge bei Vorder- und Rückenteil verschränkt (ohne Löcher) oder so, dass es Löcher gibt? Es steht nur bei den AERMELN, dass man Löcher vermeiden soll.

05.04.2018 - 19:19

DROPS Design answered:

Liebe Doris, die Umschläge bei Vorder- und Rückenteil werden wie im Diagram gestrickt, dh es soll Löcher enstehen, nur bei den Aufnahmen für die Ärmel werden die Umschläge verschränkt gestrickt. Viel Spaß beim stricken!

06.04.2018 - 08:34

country flag Doris Doshi wrote:

Ich verstehe nicht, weshalb ich hier RUNDNADELN benötige, wenn steht, dass ich in Hin- und Rückreihen stricken muss? Zudem ist das Stück ja nicht in einem Schlauch gestrickt? Wo mache ich den Überlegungsfehler?

28.03.2018 - 12:58

DROPS Design answered:

Liebe Doris, wir geben in der Regel die Verwendung von Rundnadeln an, auch wenn in Hin- und Rück-Reihen gestrickt wird, da es bequemer ist, mit einer großen Maschenzahl wie in dieser Anleitung auf einer Rundnadel statt mit Paarnadeln zu stricken. Die Maschen und auch das Gewicht des Strickstücks verteilen sich auf dem Seil der Rundnadel besser. Viel Spaß beim Stricken!

28.03.2018 - 13:37

country flag Angela wrote:

Hi, I'm having trouble with this once I get to row 20 of the pattern as a hole (row 14 of pattern A3), Row 19 I have 160 sts, Row 20-22 I would have 176 sts,Row 23 147 sts, Row 24 171 sts. It says I should be ending this row with 131 sts according to the directions. How is this possible when A3B shows P 17 repeated 9 times. This would be 153 stitches and that doesn't include A3A, A3C or the A1 in the ends. I'm obviously missing something... can you please help? Thanks!

27.06.2017 - 13:55

DROPS Design answered:

Dear Angela, you will dec first 1 st in A.3A, then 2 sts in each A.3B and 1 st in A.3C, then dec 1 st in A.3A, 3 sts in each A.3B and 1 st in A.3C = remaining: 6 sts in A.3A, 12 sts in A.3B and 7 sts in A.3C, so that you have 6+12x9 + 7 + (2 x 5 sts = A.1 on each side ) = 131 sts. Happy knitting!

28.06.2017 - 10:09

country flag Janny wrote:

Hallo, als je 5st. a1-5st.a3-10x14st.b3=140st.-6st.3c-5st.a1 doet heb je 161 st. over ipv. 143st. ik heb nu 5st.a1-5st.recht en 1 mindering A3- 2x1mindering, 9 recht,1mindering en dit 10x in 3b-1mindering ,6recht in 3c-5st a1. is 143 st. Nu loopt het volgende patroon mooi door boven het golven patroon.

15.05.2017 - 17:06

country flag Janny wrote:

Ik ben dit mooie patronen aan het breien maar kom niet uit met naald 17 van patroon 3. Het patroon loopt niet recht boven elkaar en het aantal steken klopt ook niet.

04.05.2017 - 11:18

DROPS Design answered:

Hally Janny, In telpatroon A.3 brei je eerst A.3A (waar 1 mindering in zit), dan, afhankelijk van je maat, een aantal herhalingen van A.3B (waar 3 minderingen in zitten en op het eind brei je A.3C waar 1 mindering in zit. Het klopt dat de minderingen niet recht boven de gaatjes van 4 naalden daaronder zitten. Kun je aangeven waar in het patroon het aantal steken volgens jou niet kloppen?

12.05.2017 - 19:48

country flag Helga Anna wrote:

Liebes Drops-Team, liebe Sabine Klammer! Ich finde in der letzten Musterreihe (Reihe 17) von A3 zwei Fehler. Zwischen den Abnahmen im Rapport werden nicht 11 sondern nur 9 Maschen rechts gestrickt und in A.3C fehlt eine Abnahme.

03.04.2017 - 20:00