DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12540.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Bente

Prjónuð peysa í sléttprjóni með stroffi úr 1 þræði DROPS Alpaca og 2 þráðum DROPS Kid-Silk. Stærð S - XXXL.

DROPS 177-2
DROPS Design: Mynstur z-786
Garnflokkur A + A + A eða D
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
200-200-200-250-250-250 g litur 9021, þoka
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
75-75-100-100-100-125 g litur 01, natur
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
75-75-100-100-100-125 g litur 07, ljós gráblár

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 7 – eða þá stærð sem þarf til að 13 lykkjur og 15 umferðir með sléttprjóni með 3 þráðum verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 6 fyrir stroff – eða þá stærð sem þarf til að 14 lykkjur og 16 umferðir með sléttprjóni með 3 þráðum verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12540.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

ÚTAUKNING:
Aukið svona út mitt undir ermi – byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt svo að ekki myndast göt.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna upp að handvegi, síðan er framstykki og bakstykki prjónað fram og til baka hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / hringprjóna og saumaðar í stykkið í lokin.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 144-152-164-176-192-208 lykkjur á hringprjóna 6 með 1 þræði í litnum þoka Alpaca, 1 þræði í litnum natur Kid-Silk og 1 þræði í litnum ljós gráblár Kid-Silk (= 3 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt, síðan er prjónað stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Prjónið stroff í 7 cm. Skiptið yfir á hringprjóna 7 og prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem fækkað er um 12-12-12-12-12-12 lykkjur jafnt yfir = 132-140-152-164-180-196 lykkjur. Haldið áfram með sléttprjón. Þegar stykkið mælist 37-38-39-40-41-42 cm prjónið einungis yfir fyrstu 66-70-76-82-90-98 lykkjur í umferð, síðustu 66-70-76-82-90-98 lykkjur eru settar á þráð.

FRAMSTYKKI:
= 66-70-76-82-90-98 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 46-48-50-52-54-56 cm setjið miðju 32-32-34-34-36-36 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu yfir fyrstu 17-19-21-24-27-31 lykkjur (fram að þræði), snúið við, prjónið fyrstu 2 lykkjur brugðið saman og prjónið brugðið út umferðina. Setjið lykkjurnar á þráð. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu yfir síðustu 17-19-21-24-27-31 lykkjurnar í umferð, snúið og prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, í lok umferðar eru 2 síðustu lykkjurnar prjónaðar slétt saman. Setjið til baka allar lykkjur á prjóninn og prjónið 1 umferð slétt frá réttu og prjónið upp 2 lykkjur í hvorri hlið (á milli lykkja fyrir hálsmál og lykkjur fyrir öxl) að hálsi = 68-72-78-84-92-100 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu þar sem auknar eru út 6-6-4-6-6-6 lykkjur jafnt yfir = 74-78-82-90-98-106 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 6. Prjónið frá réttu – þannig: 2 lykkjur slétt * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, endurtakið frá *-* út umferðina. Prjónið stroff í 7 cm, stykkið mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm, fellið síðan af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

BAKSTYKKI:
Prjónið alveg eins og framstykki.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Skiptið yfir á stutta hringprjóna þegar nægilegar margar lykkjur eru á prjóni. Fitjið upp 32-32-36-36-40-40 lykkjur á sokkaprjóna 6 með 1 þræði í litnum þoka Alpaca, 1 þræði í litnum natur Kid-Silk og 1 þræði í litnum ljós gráblár Kid-Silk (= 3 þræðir). Prjónið 1 umferð sléttprjón, síðan er prjónað stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Prjónið stroff í 5 cm. Skiptið yfir á sokkaprjón 7, prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem fækkað er um 4-4-6-6-8-6 lykkjur jafnt yfir = 28-28-30-30-32-34 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar = mitt undir ermi. Prjónið sléttprjón, þegar stykkið mælist 7 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – LESIÐ ÚTAUKNING. Aukið út með 5½-4½-4½-4-4-4 cm millibili alls 8-9-9-10-10-10 sinnum = 44-46-48-50-52-54 lykkjur. Fellið af þegar stykkið mælist 48-47-46-45-43-41 cm. ATH! Styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma, skiljið eftir ca 26-27-28-29-30-31 cm fyrir hálsmál. Saumið ermar í.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 05.11.2018
Leiðrétting: FRAMSTYKKI: ...Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu þar sem auknar eru út 6-6-4-6-6-6 lykkjur jafnt yfir = 74-78-82-90-98-106 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 6.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 177-2

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (58)

country flag Corina Avram wrote:

Thanks for the reply. Would short (40 cm) needles work instead of double-pointed for the sleeves?

29.03.2024 - 08:36

DROPS Design answered:

Dear Corina, It CAN work, but how well depends on your perosnal knitting style and preference. Some people like really short needles, others not so much. If you have that size at hand, I suggest to go ahead and try. If you find it uncomfortable, you can always change it to a longer one. Happy Knitting!

30.03.2024 - 00:45

country flag Corina Avram wrote:

Hello. I can't find the double-pointed needles in sizes 7 and 6 mm. Could I knit the sleeves with straight needles? Thank you!

28.03.2024 - 22:08

DROPS Design answered:

Dear Corina, the sleeves are on this sweater knitted on the round, if you cannot find double pointed needles, I would suggest to use 60 cm long circular needles. With straight needles, you will have to knit the sleeves back and forth, open at the seamline at the undersleeve and then sew it up. Happy Knitting!

29.03.2024 - 08:16

country flag Véro wrote:

Bonjour, Pour les augmentations des manches où doit-on se référer ? Merci d’avance pour votre réponse.

18.05.2022 - 15:12

DROPS Design answered:

Bonjour Véro, il manquait ce paragraphe au début des explications, merci pour votre retour, cela est fait maintenant: vous faites 1 jeté avant la dernière maille du tour+ 1 autre jeté après la 1ère maille du tour. Bon tricot!

18.05.2022 - 16:50

country flag Dori wrote:

Hola de nuevo!! Que significa recoger y trabajar 2 puntos a cada lado del escote? Es que hay que aumentar 4 puntos? Gracias.

23.02.2022 - 22:14

DROPS Design answered:

Hola Dori, sí, se aumentan un total de 4 puntos en la fila para que no quede un agujero en la transición entre el escote y los puntos del hombro.

28.02.2022 - 16:51

country flag Dori wrote:

Hola,me gusta mucho este patron pero no se hacerlo con agujas circulares. Me podriais ayudar a hacerlo con agujas rectas? Gracias!

08.02.2022 - 00:10

DROPS Design answered:

Hola Dori, puedes leer la siguiente lección para ajustar el patrón: https://www.garnstudio.com/lesson.php?id=13&cid=23

13.02.2022 - 19:25

country flag Laura wrote:

Potrei avere lo schema per utilizzare i Ferri tradizionali?

02.01.2022 - 17:28

DROPS Design answered:

Buonasera Laura, questo modello è stato progettato per essere lavorato in tondo, se preferisce lavorarlo in piano può aggiungere una maglia di vivagno a ogni lato per le cuciture. Buon lavoro!

02.01.2022 - 22:31

country flag Amanda wrote:

I have read the other questions in English on making the shoulders for the front & back pieces but remain confused. I understand what the instructions say in theory. First you say place the middle stitches on a thread, but do you knit the first 21 stitches then do that? Second, after you complete one shoulder how does the yarn get to the other side of the stitches held on a thread? Thanks in advance for your help!!!

13.08.2021 - 07:22

DROPS Design answered:

Dear Amanda, you have to cut the yarn to work both shoulders separately, you can cut them after having worked the first shoulder to work the 2nd shoulder, then join again from RS - or you can then just keep the yarn from 1st shoulder and join new balls to work 2nd shoulder, cut the yarn at the end of 2nd shoulder then continue with working yarn from 1st shoulder (= from RS). Happy knitting!

13.08.2021 - 07:35

country flag Florine wrote:

Hi, I'm working on the body at the moment and I wonder if the pattern refers to the whole piece of body to measure 37-38-39-40-41-42 cm or only the stocking stitch part of the body before moving on to the front piece? Thanks!

29.03.2021 - 10:19

DROPS Design answered:

Dear Florine, measure these 37-38-39-40-41-42 cm from cast on edge, ie including ribbing. Happy knitting!

06.04.2021 - 08:45

country flag Merel wrote:

Hallo, kan deze trui ook gebreid worden met Air en Kid Silk? Of word het dan te dik? Hoeveel gram zou ik nodig hebben van Air en Kid Silk voor een maat M? Alvast bedankt!

25.03.2021 - 10:51

DROPS Design answered:

Dag Merel,

Dat zou wel kunnen, want je komt dan ongeveer op dezelfde stekenverhouding. Maak wel altijd een proeflapje! Om een inschatting te maken van hoeveel garen je nodig hebt in Air, zou je kunnen kijken naar de totale looplengte die je nodig hebt in Alpaca en dan reken je dat om naar de hoeveelheid in grammen voor Air.

26.03.2021 - 15:47

country flag Florine wrote:

Oh and how much of Sky and Brushed Alpaca Silk would I need?

25.03.2021 - 10:31

DROPS Design answered:

Dear Florine, read more about alternatives and how to calculate new amount of yarn here. Happy knitting!

25.03.2021 - 11:22