DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5720.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 177-4
DROPS Design: Mynstur ks-121
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Mál:
Breidd efst ca 160 cm.
Hæð við miðju ca 80 cm.

Efni:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100 g litur 08, gráblár

DROPS HEKLUNÁL NR 3,5 – eða þá stærð sem þarft til að einn ferningur mælist 11 cm á breidd og 11 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5720.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1, A.2 og A.3. Mynsturteikning A.3 sýnir frágang á sjalinu.

4 TVÖFALDIR STUÐLAR HEKLAÐIR SAMAN:
Heklið 3 tvöfalda stuðla um loftlykkjubogann, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin í hvern og einn af þessum tvöföldu stuðlum, heklið 1 tvöfaldan stuðul til viðbótar um sama loftlykkjuboga og dragið síðan þráðinn í gegnum allar 5 lykkjurnar á heklunálinni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið samanstendur af 45 heilum ferningum og 10 hálfum ferningum sem heklaðir eru staman í lokin.

FERNINGUR:
Notið heklunál 3,5 og Kid-Silk, heklið eftir mynsturteikningu A.1. Þegar öll mynsturteikningin hefur verið hekluð til loka, klippið frá og festið enda. Heklið alls 45 ferninga á sama hátt.

HÁLFUR FERNINGUR:
Notið heklunál 3,5 og Kid-Silk, heklið eftir mynsturteikningu A.2. Þegar öll mynsturteikningin hefur verið hekluð til loka, klippið frá og festið enda. Heklið alls 10 hálfa ferninga á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Ferningarnir eru fyrst heklaðir saman á breiddina og síðan á lengdina. Sjá mynsturteikningu A.3. Byrjið með að hekla saman röð 1 og 2.

Leggið 2 ferninga saman með röngu á móti röngu og heklið í gegnum bæði lögin frá réttu þannig: 1 fastalykkja um hornið, * 3 loftlykkjur, 1 fastalykkja um næsta loftlykkjuboga *, endurtakið frá *-* fram að horni (= 5 loftlykkjubogar), heklið 3 loftlykkjur (= skiptingar á milli næstu 2 ferninga).
Haldið áfram að hekla saman 2 næstu ferninga alveg eins. Heklið alla ferningana í þessar raðir alveg eins. Heklið nú röð 2 og 3 saman. Haldið áfram þar til allar raðirnar hafa verið heklaðar saman. Nú eru allar raðirnar í sjalinu fastar á 2 hliðum. Heklið nú allar raðirnar saman hinum megin alveg eins.
Byrjið á að hekla fyrsta og annan ferning í röð 1 saman og heklið síðan saman fyrsta og annan ferning á röð 2. Heklið síðan upp yfir alla ferninga. Þegar allir ferningarnir í þessari röð hafa verið heklaðir saman, heklið hinar raðirnar saman alveg eins.
Að lokum eru 2 hálfir ferningar sem eru yst í hvorri hlið heklaðir saman alveg eins að ysta ferning á lengju 1 og 9. Klippið frá og festið enda.

Mynstur

symbols = heklið 4 loftlykkjur og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju. Svartur punktur er byrjun á umferð
symbols = 1 stuðull um loftlykkju/loftlykkjuboga
symbols = 1 stuðull í lykkju
symbols = 1 loftlykkja
symbols = 1 fastalykkja um loftlykkju/loftlykkjuboga
symbols = 1 fastalykkja í lykkju
symbols = heklið 4 tvöfalda stuðla saman um loftlykkjubogann - sjá útskýringu í uppskrift
symbols = umferðin byrjar með 3 loftlykkjur og endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar
symbols = umferðin byrjar með 1 loftlykkju, 1 keðjulykkju um hverja og eina af 2 fyrstu loftlykkjum í umferð, heklið síðan 1 loftlykkju áður en haldið er áfram með mynstur eins og útskýrt er í mynsturteikningu. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð
symbols = umverðin byrjar með að hekla keðjulykkjur upp að miðju á fyrsta loftlykkjuboga
symbols = frá ör í mynsturteikningu er heklað fram og til baka.
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 177-4

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (21)

country flag Gigout wrote:

Bonjour Je suis entrain de crocheter ce beau châle. Malheureusement, je ne comprends pas les explications pour l assemblage et le diagramme A3 ne m aide pas. Pourrais t on avoir des explications plus détaillées ou un diagramme avec des flèches qui montrent ce qu on crochète en premier puis en deuxième. Merci pour votre aide et pour votre site qui donne beaucoup d'idées

29.11.2022 - 20:54

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Gigout, vous allez assembler les carrés 2 par 2 et en même temps en assemblant 2 "rangs", en commençant par 1 diagonale, autrement dit, assemblez les carrés 1 et 2, puis le carré après le 1 avec celui après le 2(à droite sur le schéma) jusqu'à ce que vous en ayez assemblé 8 de chaque rang, puis assemblez le 9ème du rang 1 au triangle du rang 2. Continuez avec le rang 2 et le rang 3 et ainsi de suite. Crochetez ensuite les diagonales dans l'autre sens. (en remontant vers la gauche, sur le schéma). Bon assemblage!

30.11.2022 - 08:41

country flag Riet wrote:

Prachtige doek, heerlijk luchtig !! Draagt vast fijn 🥰

24.02.2022 - 16:09

country flag Matilde wrote:

Salve, per quanto riguarda la confezione dello scialle, vi chiedo se la foto su fondo scuro è presa sul retro del lavoro. Seguendo le istruzioni, sul dritto risulta un cordolo un po' elevato creato dalle alle catenelle .. altrimenti non ho capito la spiegazione. Grazie PS: sarebbe utile poter vedere una foto ingrandita della confezione tra quadrati, oppure un video :)

07.03.2021 - 11:37

DROPS Design answered:

Buonasera Matilde, la foto è dal davanti del lavoro. Buon lavoro!

08.03.2021 - 20:12

country flag Ulrika wrote:

Hej Varv 3. Varför står det virka 4 stolpar i diagrambeskrivningen och 4 dubbelstolpar i förklaringen som bifogas mönstret. Vilket skall det vara?

29.12.2020 - 16:43

DROPS Design answered:

Hei Ulrika. Her er det feil i den svenske oppskriften. Det skal være 4 dobbeltstaver både i oppskriften og i diagramteksten. Dette vil blir ordnet asap. Takk for at du gjorde oss oppmerksom på dette. mvh DROPS design

13.01.2021 - 13:02

country flag Ghada Gamilf wrote:

Where do i end the round stitch ?

14.11.2020 - 15:24

DROPS Design answered:

Dear Mrs Gamilf, in diagram A.1 rounds starts with the black dot on the circle, then with the 8th symbol under diagram key (with the 9th on 3rd round). In diagram A.2 rounds start the same way then the 4th row will start from the arrow. Happy crocheting!

16.11.2020 - 10:48

country flag Rebecca Gilbert wrote:

Does anybody know how to write this out? I've been trying to follow the diagram but I keep getting confused, even after reading the "how to read diagrams" post they have here. I'm just not getting it, but I really want to make this pattern. Does anybody know if I can find it written out, I'm much better at following that. Or even a video of somebody making it. Please help me!

26.07.2020 - 16:36

DROPS Design answered:

Dear Mrs Gilbert, you will find how to read diagrams here, this should help you to work them. Happy crocheting!

29.07.2020 - 10:58

country flag Pernilla wrote:

Hur ska varv tre i diagram a1 virkas? Jag har gjort en luftmaskring av fyra luftmaskor och stolpar kring denna ring, men ska det sedan virkas tre luftmaskor i början på varv 3 och sedan en lång rad med luftmaskor? Jag får inte denna rad med luftmaskor att räcka runt cirkeln med stolpar, den når ungefär halvvägs.

08.12.2019 - 10:57

DROPS Design answered:

Hei Pernilla! Etter lm-ringen virkar du 4 lm, 1 stolpe om lm-bågen,1lm, 1 stolpe, 1 lm, 1 stolpe osv. Nästa varv; 3 lm, virka 4 stolpar tillsammans om lm-bågen - se förkl i mönstret, 3 lm, 4 stolpar tills, 3lm, 4 stolpar tills osv. Lycka till!

09.12.2019 - 12:46

country flag Giovanna Migliarino wrote:

Buongiorno, vorrei sapere quanti gomitoli occorrono per realizzare questo scialle e se ci sono rivenditori in Toscana, possibilmente vicino Firenze, grazie

15.02.2019 - 09:07

DROPS Design answered:

Buongiorno Giovanna. Trova l’indicazione del filato necessario, nella prima parte delle spiegazioni, vicino alla fotografia. Occorrono 100g di Kid Silk. I gomitoli di questo filato sono di 25 gr l’uno, quindi serviranno 4 gomitoli. A questa pagina trova l’elenco dei rivenditori Drops in Italia e dei loro riferimenti per contattarli. Buon lavoro!

15.02.2019 - 09:44

country flag Valerie wrote:

Bonjour, c'est la premiere fois que je crochete un de vos modele, tous ce passe bien sauf pour le début du rang commencant par v, si je fais des mailles coulées cela fait une sur épaisseur merci

14.02.2019 - 12:07

DROPS Design answered:

Bonjour Valérie, c'est exact, comme on crochète des mailles coulées, on va avoir une sorte de double épaisseurs sur quelques mailles, mais ce sera à peine visible. Bon crochet!

14.02.2019 - 14:45

country flag Rita wrote:

I quadrati di questo scialle sono cuciti con ago o uniti da uncinetto. Dalla foto semra ago mentre il video mostra uncinetto. Grazie

12.06.2018 - 16:12

DROPS Design answered:

Buongiorno Rita. I quadrati vengono uniti all'uncinetto. Trova la spiegazione sotto il paragrafo Confezione. Buon lavoro!

12.06.2018 - 17:06