Elliard Huizing skrifaði:
Ik reageer op mijn eigen vraag (haha) het zou kunnen kloppen wanneer er sprake is van verkorte naalden om de kraag rond te laten lopen? Maar nergens wordt over verkorte naalden gesproken, dat zou dan verbetert kunnen worden in het patroon.
17.05.2018 - 20:59
Elliard Huizing skrifaði:
Ik heb een vraag over voorpand/voorbies/hraag, het patroon zegt: * brei 1 ribbel over alle steken (20 st ) brei 1 ribbel over alleen de buitenste (16 st ) middenvoor * en herhaal van *-* Wat doe ik met de 4 steken die 'over' blijven?
17.05.2018 - 20:32DROPS Design svaraði:
Hallo Elliard, De ene keer brei je een ribbel over alle 20 steken en dan brei je een ribbel over alleen de eerste 16 steken. Dus je keert het werk na 16 steken en dan brei je terug. Op deze manier brei je verkorte toeren, waardoor de halslijn aan de buitenkant wijder wordt en mooier valt.
03.06.2018 - 20:26
Inge skrifaði:
Nu har jag fattat det! Tusen tack för det snabba svaret!
28.03.2018 - 20:46
Inge skrifaði:
Hej, jag blir irriterad på vilken höjd jag ska sticka knapphålen... Det låter som om man ska börja med första knapphålet längst ner men det har jag nog missförstått, det ska ju bara bli 2 knappar. Snälla ni, på vilken höjd har ni gjort knapphålen? Tack för hjälp i förväg!
24.03.2018 - 12:39DROPS Design svaraði:
Hej, knapphålen ska göras först då man börjat sticka rätstickning över de 20 yttersta maskorna mot mitt fram, dvs. efter avmaskningen för ärmhål.
26.03.2018 - 13:59
Brigida Esposito skrifaði:
Nellle spiegazioni non trovo lo schema A.Lavoro le maglie come si presentano?
18.04.2017 - 18:48DROPS Design svaraði:
Buonasera Brigida. Trova gli schemi alla fine del testo. Negli schemi trova sia i ferri di andata che quelli di ritorno. Lavora le maglie in base alla leggenda dei simboli che accompagna gli schemi. Buon lavoro!
18.04.2017 - 19:09
Ameliet skrifaði:
Hartelijke dank voor de snelle reactie!
27.02.2017 - 15:20
Ameliet skrifaði:
Hallo, ik heb vragen over de overgang van boord naar mouw/pand. Wordt heengaande naald 7 op nr. 3,5 gebreid of al op nld. 4,5? Daarna moet ik een teruggaande (naald 8) en heengaande (9e) naald breien in tricotsteek en de volgende is dan een teruggaande, maar in het patroon staat: De volgende naald wordt als volgt gebreid aan de goede kant. Betekent dat dat vanaf hier de 'verkeerde' kant dus voortaan de goede kant wordt?
27.02.2017 - 13:16DROPS Design svaraði:
Hoi Ameliet. Je breit de eerste 8 nld met 3.5 mm en meerdert in de 7e nld (4 ribbels = 8 naalden). Daarna staat er wissel naar rondbreinaald 4.5 mm. Nld 8 is de verkeerde kant en daarna brei je met 4.5 eerst 2 naalden tricotsteek (1 heengaande naald en 1 teruggaande nld). Dus als je begint met het patroon ben je weer aan de goede kant van het werk.
27.02.2017 - 14:28
Chiara skrifaði:
Molto fine!
18.12.2016 - 18:41
Marina skrifaði:
Molto elegante
16.12.2016 - 15:39
Zoey#zoeycardigan |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa með áferðamynstri úr DROPS Cotton Merino. Stærð S-XXXL.
DROPS 178-3 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING-1: Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 104 lykkjur), mínus kantlykkjur að framan (t.d. 4 lykkjur á hvorri hlið) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 9) = 10,6. í þessu dæmi þá er aukið út til skiptis í ca 10. og 11. hverri lykkju. Ekki er aukið út yfir kantlykkjur. ÚTAUKNING-2 (á við um ermar): Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið eins og áður þar til 1 lykkja er eftir á prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo að ekki myndist gat (útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.2A) LEIÐBEININGAR (á við um 20-20-20-24-28-28 kantlykkjur við miðju að framan): Til að kantur að framan í garðaprjóni dragist ekki saman á hæðina eru prjónaðar 2 umferðir garðaprjón einungis yfir síðustu 20-20-20-24-28-28 lykkjur eftir ca 5. hvern cm. ATH: Þegar snúið er við mitt í stykki er hert á þræði áður en prjónað er áfram svo að ekki myndist gat. HNAPPAGAT: Þegar prjónaðar hafa verið 4 umferðir garðaprjón yfir 20-20-20-24-28-28 kantlykkjur að framan á hægra framstykki er fellt af fyrir 2 hnappagötum frá réttu þannig: Prjónið 3 sléttar lykkjur, 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur þar til 5 lykkjur eru eftir á kanti að framan, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman og prjónið 3 síðustu kantlykkjur að framan slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna í stykkjum og saumað saman í lokin. BAKSTYKKI: Fitjið upp 104-110-118-128-140-154 lykkjur á hringprjóna 3,5 með Cotton Merino. Prjónið 8 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. JAFNFRAMT í 7. umferð (= rétta) er aukið út um 9-11-11-13-13-15 lykkjur jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING-1 = 113-121-129-141-153-169 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjóna 4,5 og prjónið 2 umferðir sléttprjón með 4 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 4 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið A.1A þar til 5 lykkjur eru eftir á prjóni (= 26-28-30-33-36-40 mynstureiningar 4 lykkjur), prjónið A.1B (= 1 lykkja) og endið með 4 kantlykkjur í garðaprjóni. Prjónið til baka eins og útskýrt er í A.1 með 4 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 4 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið A.2A þar til 5 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið A.2B (= 1 lykkja) og endið með 4 kantlykkjum í garðaprjóni. Haldið áfram með A.2 með 4 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 38-39-40-41-42-43 cm fellið af 3 lykkjur í byrjun 2 næstu umferða fyrir handveg = 107-115-123-135-147-163 lykkjur. Haldið áfram með A.2 eins og áður með 1 kantlykkju í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm setjið lykkjur á þráð í hvorri hlið fyrir öxl (til að sleppa við að klippa þráðinn frá sem prjónað er með, prjónið lykkjurnar áður en þær eru settar á þráðinn fyrir öxl). Setjið fyrstu 6-6-7-7-8-9 lykkjur í byrjun umferðar á þráð, prjónið út umferðina og setjið fyrstu 6-6-7-7-8-9 lykkjur í byrjun næstu umferðar á þráð. Haldið svona áfram að setja 6-6-7-7-8-9 lykkjur á þráð alls 6 sinnum í hvorri hlið, setjið síðustu 6-10-8-12-10-12 lykkjur á þráð fyrir öxl í hvorri hlið. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm fellið af miðju 19-19-19-23-27-27 lykkjur fyrir háls og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram með að setja lykkjur á þráð fyrir öxl og fellið af 2 lykkjur í næstu umferð frá hálsi. Þegar allar lykkjur hafa verið felldar af fyrir háls/eru settar á þráð eru 42-46-50-54-58-66 lykkjur á þræði á hvorri öxl og stykkið mælist ca 62-64-66-68-70-72 cm frá hæsta punkti á öxl og niður. Setjið lykkjurnar af þræði á hringprjón 3,5. Byrjið frá réttu og prjónið 1 umferð slétt yfir allar lykkjur, en til að sleppa við göt í skiptingum þar sem lykkjur voru settar á þráð er þráðurinn á milli 2 lykkja tekinn upp og prjónaður snúinn slétt saman við fyrstu lykkju á vinstra prjóni. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu og fellið af með sléttum lykkjum frá réttu (mikilvægt er að affellingarkanturinn verði ekki stífur). Prjónið hina öxlina á sama hátt. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 61-64-68-75-83-90 lykkjur á hringprjóna 3,5 með Cotton Merino. Prjónið 8 umferðir garðaprjón JAFNFRAMT í 7. umferð (= rétta) er aukið út um 4-5-5-6-6-7 lykkjur jafnt yfir = 65-69-73-81-89-97 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjóna 4,5 og prjónið 2 umferðir sléttprjón með 4 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 4 kantlykkjur í garðaprjóni við miðju að framan, prjónið A.1A þar til 5 lykkjur eru eftir á prjóni (= 14-15-16-18-20-22 mynstureiningar 4 lykkjur), prjónið A.1B (= 1 lykkja) og endið með 4 kantlykkjum í garðaprjóni í hlið. Prjónið til baka eins og útskýrt er í A.1 með 4 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 4 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið A.2A þar til 5 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið A.2B (= 1 lykkju) og endið með 4 kantlykkjum í garðaprjóni. Haldið áfram með A.2 með 4 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 38-39-40-41-42-43 cm fellið af fyrstu 3 lykkjur í byrjun umferðar frá hlið (þ.e.a.s. frá röngu) fyrir handveg = 62-66-70-78-86-94 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið garðaprjón yfir fyrstu 20-20-20-24-28-28 lykkjur (= kantur að framan – LESIÐ LEIÐBEININGAR), haldið áfram með A.2 eins og áður þar til 1 lykkja er eftir á prjóni og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni við handveg. Haldið svona áfram með mynstur – munið eftir HNAPPAGAT í kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm setjið lykkjur á þráð fyrir öxl alveg eins og á bakstykki (lykkjur eru settar á þráð í hverri umferð frá röngu), þ.e.a.s. setjið 6-6-7-7-8-9 lykkjur á þráð alls 6 sinnum, síðan síðustu 6-10-8-12-10-12 lykkjur á þráð. Þegar allar 42-46-50-54-58-66 lykkjur hafa verið settar á þráð fyrir öxl eru 20-20-20-24-28-28 kantlykkjur að framan í garðaprjóni eftir á prjóni fyrir kraga. Haldið áfram með garðaprjón fram og til baka yfir þessar lykkjur þannig: * Prjónið 2 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur, prjónið 2 umferðir garðaprjón einungis yfir síðustu 16-16-16-20-24-24 lykkjur við miðju að framan *, endurtakið frá *-* þar til kraginn mælist ca 7-7-7-8-9-9 cm lengst inn þar sem stykkið er minnst, mælt frá þeim stað þar sem síðustu lykkjur voru settar á þráð fyrir öxl og fellið laust af. Setjið til baka lykkjur af þræði fyrir öxl á hringprjóna 3,5. Byrjið frá réttu og prjónið 2 umferðir slétt alveg eins og á bakstykki áður en fellt er af með sléttum lykkjum frá réttu. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp alveg eins og hægra framstykki og prjónið eins og hægra framstykki, nema spegilmynd. Þ.e.a.s. eftir garðaprjóni í byrjun á stykki eru prjónaðar 2 umferðir sléttprjón með 4 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 4 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið A.1A þar til eftir eru 5 lykkjur á prjóni (= 14-15-16-18-20-22 mynstureiningar 4 lykkjur), prjónið A.1B (= 1 lykkja) og endið með 4 kantlykkjur við miðju að framan í garðaprjóni. Prjónið eins og útskýrt er í A.1 með 4 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 38-39-40-41-42-43 cm fellið af fyrstu 3 lykkjur í byrjun umferðar frá hlið (þ.e.a.s. frá réttu) fyrir handveg = 62-66-70-78-86-94 lykkjur og prjónið út umferðina þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni við handveg, haldið áfram með A.2 eins og áður þar til eftir eru 20-20-20-24-28-28 lykkjur á prjóni og prjónið garðaprjón yfir þessar lykkjur (= kantur að framan). Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm setjið lykkjur á þráð fyrir öxl alveg eins og á hægra framstykki og bakstykki (lykkjur eru settar á þráð í hverri umferð frá réttu). Prjónið afganginn af vinstra framstykki alveg eins og hægra framstykki. ERMI. Fitjið upp 50-50-54-58-58-62 lykkjur á hringprjóna 3,5 með Cotton Merino. Prjónið 8 umferðir sléttprjón JAFNFRAMT í 7. umferð (= rétta) er aukið út um 4 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum = 54-54-58-62-62-66 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjóna 4,5 og prjónið 2 umferðir sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorir hlið. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.1A þar til eftir eru 1 lykkja á prjóni (= 13-13-14-15-15-16 mynstureiningar 4 lykkjur), endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið til baka eins og útskýrt er í A.1A með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.2A þar til 1 lykkja er eftir á prjóni, endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið áfram með A.2A með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 5-5-4-3-3-5 cm er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – LESIÐ ÚTAUKNING-2. Aukið svona út alls 14-16-16-16-18-18 sinnum í S: Í 6. hverri umferð, í M, L og XL: Til skiptis í 4. og 6. hverri umferð, í XXL: Í 4. hverri umferð og í XXXL: Til skiptis í annarri hverri umferð og í 4. hverri umferð = 82-86-90-94-98-102 lykkjur á prjóni. Þegar stykkið mælist 37-36-35-34-32-29 cm er sett 1 prjónamerki í hvora hlið. Prjónið 4 umferðir fram og til baka í A.2A eins og áður, fellið síðan af 5 lykkjur í byrjun 2 næstu umferða áður en þær lykkjur sem eru eftir eru felldar af (passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur). Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn þannig að það verða 4 umferðir garðaprjón á öxl. Saumið ermar í þannig að saumurinn snúi út (prjónamerki í hvorri hlið á ermum á að passa við handveg á fram- og bakstykki). Saumið saum undir ermum innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. Saumið hliðarsaum á fram- og bakstykki frá handveg og niður – saumið í ystu lykkjubogana þannig að saumurinn verði flatur, en endið þegar eftir eru ca 22 cm í hvorri hlið (= klauf). Saumið saman kraga við miðju að aftan (passið uppá að saumurinn snúi inn þegar kraginn er brotinn niður). Saumið kraga við hálsmál aftan við hnakka. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #zoeycardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 31 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 178-3
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.