Katharina skrifaði:
Toller Übergangspulli. Habe ihn in Weizen gestrickt und bis unten hin geschlossen. Sehr bequem und ein schönes Muster. Vieeelen Dank für die schöne Anleitung. Air ist im Moment mein Lieblingsgarn, sobald eine Farbe irgendwie erhältlich ist, bestelle ich sie. Bitte lasst dieses Garn weiter im Sortiment. Es wäscht sich gut und fusselt nicht so doll. DANKE
08.03.2018 - 11:06
LEBIGOT skrifaði:
Bonjour, Je suis arrivée à 39 cm de haut avec 83 mailles. Il est indiqué qu'il faut ajouter 1 maille de chaque coté pour avoir 85 mailles et de continuer le point fantaisie or le motif est composé de groupements de 7 mailles donc ça ne fait pas un compte juste? Comment faire le point fantaisie dans ces conditions? Merci pour vos explications.
18.07.2017 - 01:39DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Lebigot, vous tricotez maintenant comme avant, A.1, A.2 et A.3 mais avec 1 m lis de chaque côté, tant que vous n'avez pas suffisamment de mailles pour un motif complet, tricotez ces mailles en jersey, vous allez ensuite monter de nouvelles mailles pour les manches et vous pourrez progressivement continuer le point ajouré sur les nouvelles mailles. Bon tricot!
18.07.2017 - 08:58
Karin skrifaði:
This is my personal favourite! It's a fresh shape, practical (for cool breezy nights), soft (in Air, although it could be made with a double-stranded A yarn), elegant, and hides those bump bits that come with age. :-)
09.01.2017 - 22:03
Karin skrifaði:
This is my personal favourite! It's a fresh shape, practical (for cool breezy nights), soft (in Air, although it could be made with a double-stranded A yarn), elegant, and hides those bump bits that come with age. :-)
09.01.2017 - 21:42
Bellwald skrifaði:
Modèle qui me ravit les yeux et l'âme. Deux mots pour décrire ce modèle : Perle et bijou
08.01.2017 - 13:13Mana Amel skrifaði:
Tries jolie ouvrage
04.01.2017 - 17:09
Maman Rn skrifaði:
OMG ! J'aimerais beaucoup réaliser ce projet. Merci
17.12.2016 - 16:01
Fulconis skrifaði:
Original et chic!! on adore!!!
16.12.2016 - 21:43
Karin skrifaði:
Schade, dass das Modell sitzt. Ist das ein Pulli oder ein Poncho?
15.12.2016 - 11:23
Beach Breeze#beachbreezesweater |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa með gatamynstri, háum kraga og klauf úr DROPS Air. Stærð S - XXXL.
DROPS 178-2 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. 1. umferð = rétta. AFFELLING: Til að affellingarkanturinn verði ekki stífur þá er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 5. hverja lykkju (uppsláttinn á að fella af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. BAKSTYKKI: Fitjið upp 100-108-116-124-132-140 lykkjur á hringprjóna 5 með Air. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð þannig: 3 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, stroff (= 2 sléttar lykkjur, 2 lykkjur brugðið) þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 3 lykkjur í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 3-3-3-3-3-3 cm skiptið yfir á hringprjóna 6 og prjónið 1 umferð brugðið frá röngu þar sem fækkað er um 17-18-19-20-21-22 lykkjur jafnt yfir = 83-90-97-104-111-118 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð þannig: 3 lykkjur í garðaprjóni, A.2 (= 7 lykkjur) alls 11-12-13-14-15-16 sinnum á breidd, endið með 3 lykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram og endurtakið A.2 á hæðina þar til stykkið mælist 39-40-41-42-43-44 cm – ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Fitjið síðan upp 1 lykkju í lok 2 næstu umferða (= kantlykkjur) og þær 3 lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið eru prjónaðar inn í mynstur = 85-92-99-106-113-120 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið). Stykkið mælist 40-41-42-43-44-45 cm. Haldið áfram með mynstur eins og áður JAFNFRAMT eru fitjaðar upp nýjar lykkjur í hvorri hlið fyrir ermar. Fitjið upp lykkjur fyrir ermar í lok hverrar umferðar í hvorri hlið þannig: 3-3-3-2-2-2 lykkjur 6 sinnum og 7-4-4-6-6-3 lykkjur 1 sinni = 135-136-143-142-149-150 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) – ATH: Nýjar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur. Þegar fitjaðar hafa verið upp allar lykkjur fyrir ermar er prjónað frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.1 (= 4 lykkjur) 0-1-1-0-0-1 sinnum, A.2 alls 19-18-19-20-21-20 sinnum á breidd, A.3 (= 4 lykkjur) 0-1-1-0-0-1 sinni og 1 kantlykkja í garðaprjóni. Passið uppá að prjónað sé í sömu umferð og A.1 og A.3 eins og A.2. Haldið svona áfram. Þegar stykkið mælist 63-65-67-69-71-73 cm fellið af miðju 25-26-27-28-29-28 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umferð frá hálsi er felld af 1 lykkja = 54-54-57-56-59-60 lykkjur eftir á öxl. Þegar stykkið mælist 65-67-69-71-73-75 cm prjónið 2 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur, fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið eins og bakstykki. Þegar stykkið mælist 61-63-65-66-68-70 cm fellið af miðju 17-18-19-20-21-20 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af í hverri umferð frá hálsi þannig: Fellið af 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkju 1 sinni = 54-54-57-56-59-60 lykkjur eftir á öxl. Þegar stykkið mælist 65-67-69-71-73-75 cm prjónið 2 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur, fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið saum undir ermum og hliðarsaum í eitt innan við 1 kantlykkju niður að klauf (þar sem 3 lykkjur í garðaprjóni enda) = 40-41-42-43-44-45 cm klauf. KANTUR ERMAR: Stykkið er prjónað í hring. Prjónið upp 78-82-86-90-94-98 lykkjur í kringum handveg á stutta hringprjóna 5. Prjónið 1 umferð brugðið þar sem fækkað er um 6-6-6-6-6-6 lykkjur jafnt yfir = 72-76-80-84-88-92 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 10-10-10-10-10-10 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, fellið af með því að slá uppá prjóninn – LESIÐ AFFELLING. Prjónið hinn kantinn á ermi á sama hátt. KANTUR HÁLSMÁL: Stykkið er prjónað í hring. Prjónið upp 96-96-100-100-100-104 lykkjur í kringum hálsmál á stutta hringprjóna 5. Prjónið 1 umferð brugðið þar sem fækkað er um 8-8-8-8-8-8 lykkjur jafnt yfir = 88-88-92-92-92-96 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) umferðina hringinn. Þegar stykkið mælist 18-18-18-18-18-18 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, fellið af með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #beachbreezesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 178-2
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.