DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7018.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Swagger

Prjónuð peysa í garðaprjóni með stuttum umferðum og berustykki, prjónuð frá hlið úr DROPS Fabel. Stærð S - XXXL.

DROPS 181-27
DROPS Design: Mynstur fa-386
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS Fabel frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
250-250-300-300-350-350 g litur 604, yfir hafið
300-350-350-400-450-500 g litur 917, hafdjúp

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 lykkjur og 48 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS KÓKOSHNETU TALA, NR 515: 5-5-6-6-6-6 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7018.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum.

RENDUR:
* Prjónið 2 umferðir garðaprjón með yfir litnum hafið, 2 umferðir garðaprjón með litnum hafdjúp *, endurtakið frá *-*.

RENDUR Á ERMI:
* Prjónið 2 umferðir með litnum yfir hafið, 2 umferðir með litnum hafdjúp *, endurtakið frá *-*.

STUTTAR UMFERÐIR:
Öll mynstureiningin með stuttum umferðum er prjónuð með litnum hafdjúp.
Byrjið frá réttu: Prjónið 1 umferð yfir allar lykkjur.
Prjónið fyrstu 88 lykkjur, snúið og prjónið til baka.
Prjónið fyrstu 66 lykkjur, snúið og prjónið til baka.
Prjónið fyrstu 44 lykkjur, snúið og prjónið til baka.
Prjónið fyrstu 22 lykkjur, snúið og prjónið til baka.
Prjónið 0-2-2-4-4-4 umferðir yfir allar lykkjur.
Prjónið fyrstu 44 lykkjur, snúið og prjónið til baka.
Prjónið fyrstu 66 lykkjur, snúið og prjónið til baka.
Prjónið fyrstu 88 lykkjur, snúið og prjónið til baka.
Prjónið 3 umferðir yfir allar lykkjur (= 18-20-20-22-22-22 umferðir í neðri kanti og 4-6-6-8-8-8 umferðir í efri kanti).

ÚTAUKNING:
Aukið út um 2 lykkjur þannig: Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat.

LASKALÍNA:
Fækkið um 8 lykkjur í hverri úrtökuumferð.
Fækkið lykkjum þannig:
Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (= prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

Ef prjónfestan passar ekki á hæðina og prjónað er of fast kemur laskalínan til með að verða of stutt og handvegur of lítill. Þetta er hægt að jafna til með því að prjóna 1 auka umferð án úrtöku með jöfnu millibili á milli úrtöku.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt = gat.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
S: 9 og 18 cm
M: 10 og 20 cm
L: 7, 15 og 22 cm
XL: 8, 16 og 24 cm
XXL: 9, 17 og 26 cm
XXXL:10, 19 og 28 cm

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í tvær áttir. Fyrst er neðra stykkið prjónað frá hlið frá miðju að framan, síðan eru prjónaðar upp lykkjum meðfram efri hlið og efsti parturinn á peysunni er síðan prjónaður upp.

NEÐRI PARTUR:
Fitjið upp 110 lykkjur í öllum stærðum á prjón 3 með litnum yfir hafið. Prjónið RENDUR – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 8 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í næstu umferð er fellt af fyrir hnappagötum þannig – frá réttu: Prjónið 3 lykkjur, * prjónið 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 24 lykkjur*, prjónið frá *-* alls 2 sinnum, prjónið 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið út umferðina. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, það eiga að myndast göt. Haldið svona áfram þar til prjónaðar hafa verið 18 umferðir garðaprjón, skiptið yfir í litinn hafdjúp og prjónið STUTTAR UMFERÐIR – sjá útskýringu að ofan. * Prjónið 22-22-26-26-30-34 umferðir garðaprjón með röndum (byrjið og endið með litnum yfir hafið). Skiptið yfir í litinn hafdjúp og prjónið STUTTAR UMFERÐIR *, endurtakið frá *-* þar til prjónaðar hafa verið alls 17 mynstureiningar með stuttum umferðum. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Stykkið á nú að mælast 82-92-104-110-122-134 cm. Ef stykkið mælist minna en þetta, prjónið eina auka mynstureiningu í garðaprjóni og stuttum umferðum (passið uppá að stykkið endi með stuttum umferðum). Að lokum eru prjónaðar upp 18 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur með röndum (byrjið og endið með litnum yfir hafið). Fellið síðan af.

EFRI PARTUR:
Prjónið síðan afgang af peysunni upp. Prjónið upp frá réttu 1 lykkju í hverja rönd með garðaprjóni í efri kanti á peysunni á hringprjón 3 með litnum yfir hafið. Prjónið næstu umferð slétt frá röngu og jafnið lykkjufjöldann til 228-245-277-294-326-358 lykkjur. Haldið áfram í garðaprjóni og röndum. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Prjónið í garðaprjóni í 2 cm, prjónið síðan næstu umferð þannig – frá réttu: Prjónið fyrstu 56-61-68-72-79-86 lykkjur (= framstykki), fellið af næstu 10-10-12-12-14-16 lykkjur, prjónið næstu 96-103-117-126-140-154 lykkjur (= bakstykki), fellið af næstu 10-10-12-12-14-16 lykkjur (= framstykki) og prjónið síðustu 56-61-68-72-79-86 lykkjur = (framstykki).
Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMAR:

ERMALÍNING:
Fitjið upp 20 lykkjur á hringprjón 3 með litnum yfir hafið. Prjónið rendur og garðaprjón fram og til baka þar til prjónaðar hafa verið 100-104-108-112-120-124 umferðir garðaprjón. Fellið af. Saumið uppfitjunarkantinn og affellingarkantinn saman.

Prjónið upp 1 lykkju í hverja rönd í garðaprjóni frá annarri hlið af ermalíningunni = 50-52-54-56-60-62 lykkjur. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið sléttprjón og rendur – sjá útskýringu að ofan. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á stykki = mitt undir ermi. Þegar stykkið mælist 4 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – lesið ÚTAUKNING. Aukið út með 2 ½-1½-1½-1-1-1 cm millibili alls 13-17-21-22-23-25 sinnum = 76-86-96-100-106-112 lykkjur. Þegar ermin mælist 38-36-35-34-32-31 cm fellið af 10-10-12-12-14-16 lykkjur mitt undir ermi (= 5-5-6-6-7-8 lykkjur hvoru megin við prjónamerki) = 66-76-84-88-92-96 lykkjur.
Geymið stykkið og prjónið aðra ermi á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handvegi = 340-377-421-446-482-518 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hverja skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma = 4 prjónamerki. LESIÐ HNAPPAGAT! Haldið áfram í garðaprjóni og röndum JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir laskalínu hvoru megin við hvert prjónamerki – lesið LASKALÍNA. Fækkið lykkjum fyrir laskalínu í 4. hverri umferð 19-20-21-23-24-26 sinnum og í annarri hverri umferð 6-9-12-12-14-16 sinnum. Eftir allar úrtökur fyrir laskalínu eru 140-145-157-166-178-182 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem lykkjur efst á ermi eru prjónaðar saman 2 og 2 og fækkað er að auki um 8-7-15-18-26-26 lykkjur jafnt yfir í umferð = 116-120-124-132-136-144 lykkjur. Prjónið 4 umferðir garðaprjón, í síðustu umferð með garðaprjóni er aukið út um 20 lykkjur jafnt yfir = 136-140-144-152-156-164 lykkjur. Prjónið garðaprjón og rendur í 8-8-8-9-9-9 cm, fellið síðan af.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum og saumið tölur í vinstra framstykki.

Mynstur

symbols = prjónstefna
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 181-27

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (41)

country flag Marielle wrote:

Bonjour, dans le patron je ne trouve pas les explications pour l'emplacement des boutonnières sur l'empiècement. Je fais la taille L , les premières boutonnières sont donc à 7, 15 et 22 cm, mais je ne sais pas où faire les 3 suivantes. J'ai lu dans un commentaire que ces explications figuraient dans le patron par taille, mais j'ai beau lire et relire je ne les trouve pas. pourriez vous m'aider svp? Merci

13.01.2024 - 16:19

DROPS Design answered:

Bonjour Marielle, les boutonnières du bas se trouve dans le paragraphe PARTIE DU BAS:, c'est le rang tricoté ainsi: sur l'endroit: Tricoter 3 mailles, *2 mailles ensemble à l'endroit, 1 jeté, tricoter 24 mailles*, tricoter de *-* 2 fois au total, 2 mailles ensemble à l'endroit, 1 jeté, tricoter les mailles restantes du rang. Bon tricot!

15.01.2024 - 09:13

country flag Susanne wrote:

In der Anleitung des unteren Teils steht dass die Arbeit nun 104 cm (habe Größe L gewählt) messen sollte. Aus der Zeichnung geht leider nicht hervor, wo man diese 104 cm messen sollte: oben, wo der obere Teil angestrickt werden soll oder unten am Saum? Danke im voraus für die Antwort und liebe Grüße Susanne.

27.03.2023 - 11:07

DROPS Design answered:

Liebe Susanne, messen Sie an der Seite wo es kürzer ist (= oben, wo man später die Maschen auffassen wird). Viel Spaß beim stricken!

27.03.2023 - 11:41

country flag Mareike wrote:

Hi, Ich bin dabei diese Jacke zustricken. Aber ich finde die Angaben hier fr die Knopflöcher im oberen teil fallen sie viel zu klein aus im vergleich zm unteren. Das heißt entweder verschieden knöpfe oder sie fallen unten raus oder passen oben nicht rein.

27.02.2023 - 19:16

country flag Tanja Meyer wrote:

Wo beginnen die verkürzten Reihen an beim unteren Teil der Jacke bei 88 maschen

26.01.2023 - 19:55

DROPS Design answered:

Liebe Frau Meyer, beim Unterteil stricken Sie zuerst 18 Reihen, dann stricken Sie die "Streifen" mit verkürzten Reihen: *11 bis 17 Krausrippen (siehe Größe), die verkürzten Reihen wie am Anfang beschrieben*, und von *bis* insgesamt 17 Mal wiederholen , und mit 18 Reihen kraus rechts enden. Viel Spaß beim stricken!

27.01.2023 - 08:58

country flag Betty Mundbjerg wrote:

Jeg kunne godt tænke mig at strikke den som en vest. Men hvor og hvordan strikker jeg så ærmegabet? Jeg tror nemlig at modellen vil være flot som en ærmeløs vest.

01.09.2020 - 09:08

DROPS Design answered:

Hej Betty, du kan evt strikke overdelen som bærestykket men uden ærmerne. vi kan desværre ikke hjælpe med at ændre i opskrifterne :)

01.09.2020 - 14:09

country flag Agneta Åhlin wrote:

Hej ! Stickade koftan i storlek L. Den känns för liten tyvärr. Bedömer att man ska ha en annan beskrivning för den storleken.

03.08.2020 - 15:15

country flag Osmont wrote:

Bonjour, est-il possible de tricoter ce modèle en point jersey au lieu du point mousse initialement prévu ? Merci

29.04.2020 - 09:36

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Osmont, pas vraiment, car ce modèle a été écrit pour une tension point mousse et non jersey, le rendu serait complètement différent. Bon tricot!

29.04.2020 - 11:26

country flag Nicole Saulniet wrote:

Je ne comprend pas comment intégrer les manches sur la jupe. Est ce qu’il y a une vidéo qui explique comment faire? Sinon, quelle technique dois-je utiliser?

07.04.2020 - 23:43

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Saulniet, cette vidéo montre comment ajouter les mailles des manches sur la même aiguille circulaire que le dos et les devants, au-dessus des mailles rabattues pour les emmanchures. Les premiers rangs sont parfois un peu serrés à tricoter (n'hésitez pas à utiliser une autre aiguille circulaire si besoin), mais après quelques rangs, c'est plus facile. Bon tricot!

09.04.2020 - 16:18

country flag Lone Møller wrote:

Hej jeg spørger om det samme som Elisabeth Bergensen. Når nederdelen måler 134 cm. eks. vis, skala måle på den kant oppe hvor man skal samle masker op ganske rigtig som du skriver fra opslagning til aflukning. Eller er det midt på nederdelen eller nederst på nederdelen? Logisk nok er den øverste kant kortere end den nederste kant. jeg synes ikke at jegkan se det ud fra måleskemaet. mvh Lone

08.09.2019 - 20:42

DROPS Design answered:

Hej Lone, du skal måle arbejdet rundt i livet, altså på den korteste del. God fornøjelse!

12.09.2019 - 15:50

country flag Elisabeth Bergersen wrote:

Hei! Når jeg har steikket alle rapportene i nederdelen; skal det måles øverst mot oversiden, eller nederst?

08.08.2019 - 13:11

DROPS Design answered:

Hei Elizabeth, Du måler fra oppleggskanten og til siste rad strikket. God fornøyelse!

09.08.2019 - 09:55