DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11264.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 181-31
DROPS Design: Mynstur ne-262
Garnflokkur C eða A + A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S/M - L/XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS NEPAL frá Garnstudio (tillheyrir garnflokki C)
800-950-1050-1150 g litur 0517, milligrár

DROPS HEKLUNÁL NR 6 – eða þá stærð sem þarf til að 13 tvíbrugðnir stuðlar verði 10 cm á breidd. Mynsturteikning A.4 mælist ca 3,5 cm á hæðina.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11264.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun hverrar umferðar með tvíbrugðnum stuðlum er fyrsta tvíbrugðna stuðlinum skipt út fyrir 4 loftlykkjur. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 4. loftlykkju. ATH: Fyrsta umferð í A.2A byrjar með 4 loftlykkjum.
Í byrjun hverrar umferðar með stuðlum er fyrsta stuðli skipt út fyrir 3 loftlykkjur. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju

2 TVÍBRUGÐNIR STUÐLAR HEKLAÐIR SAMAN:
Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í næstu lykkju, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í næstu lykkju og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni.

3 TVÍBRUGÐNIR STUÐLAR HEKLAÐIR SAMAN:
Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hverja og eina af næstu 3 lykkjum, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin í hvern og einn af þessum tvíbrugðnu stuðlum, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 4 lykkjurnar á heklunálinni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fyrst er heklaður einn ferningur eins í öllum stærðum. Síðan er heklað áfram hringinn og svo fram og til baka yfir þennan ferning.

HEKLAÐUR FERNINGUR:
Byrjið með heklunál 6 og Nepal. Heklið A.1a. Heklið síðan hringinn þannig: Heklið A.1b, A.1c alls 3 sinnum á breidd og A.1d. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Þegar A.1 er lokið eru 40 fastalykkjur meðfram hvorri hlið og 4 hornbogar. Ferningurinn mælist nú ca 38 x 38 cm. Heklið 1 keðjulykkju í hvora af fyrstu 2 fastalykkjum, næsta umferð byrjar héðan.
Haldið síðan áfram hringinn þannig: Lesið HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið A.2a yfir fyrstu 2 fastalykkjur, næsta umferð byrjar héðan.
Haldið síðan áfram hringinn þannig: Lesið HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið A.2a yfir fyrstu 10 fastalykkjur, A.2b yfir fyrsta hornbogann, heklið * A.2a yfir næstu 40 fastalykkjur (= 4 mynstureiningar), A.2b yfir næsta hornboga *, endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar, heklið A.2a yfir þær 30 fastalykkjur sem eftir eru (= 3 mynstureiningar). Þegar A.2 er lokið eru 72 tvíbrugðnir stuðlar meðfram hvorri hlið og 4 hornbogar.
Haldið síðan áfram hringinn þannig: Heklið A.3a yfir fyrstu 26 tvíbrugðnu stuðlana (= 13 mynstureiningar), A.3b yfir fyrsta hornboga, heklið * A.3a yfir næstu 72 tvíbrugðnu stuðla (= 36 mynstureiningar), A.3b yfir næsta hornboga *, endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar, heklið A.3a yfir 46 tvíbrugðnu stuðlana sem eftir eru (= 23 mynstureiningar). Þegar A.3 er lokið eru 80 tvíbrugðnir stuðlar meðfram hvorri hlið og 4 hornbogar.
Ferningurinn mælist ca 66 x 66 cm. Nú er stærð S/M lokið – klippið frá og festið enda í þessari stærð. Stærð L/XL, XXL og XXXL heldur áfram hér:

STÆRÐ L/XL:
Heklið nú fram og til baka út að hvorri hlið á peysu án útaukninga. Byrjið við kross í einu horninu (klippa verður frá endann áður en heklað er áfram) – sjá mynsturteikningu og heklið þannig:
Heklið A.4d um hornboga, heklið A.4b yfir næstu 80 tvíbrugðnu stuðlana (= 40 mynstureiningar) og A.4a yfir næsta hornboga. Þegar A.4 hefur verið heklað til loka á hæðina eru 85 tvíbrugðnir stuðlar í síðustu umferð. Klippið frá og festið enda. Endurtakið í gagnstæðri hlið á stykki – sjá kross í mynsturteikningu.

STÆRÐ XXL - XXXL:
Endurtakið 2 síðustu umferðirnar þannig: Heklið A.3a fram að fyrsta hornboga, heklið A.3b yfir hornboga, heklið * A.3a fram að næsta hornboga, heklið A.3b yfir hornboga *, endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar, heklið A.3a umferðina út = 88 tvíbrugðnir stuðlar meðfram hvorri hlið og 4 hornbogar. Klippið frá.
Heklið nú fram og til baka út að hvorri hlið á peysu án útaukninga. Byrjið við kross í einu horninu – sjá mynsturteikningu og heklið þannig:
Heklið A.4d um hornboga, heklið A.4b yfir næstu 88 tvíbrugðnu stuðla (= 44 mynstureiningar) og A.4a yfir næsta hornboga. Þegar A.4 hefur verið heklað til loka á hæðina eru 93 tvíbrugðnir stuðlar í síðustu umferð.
Nú er stærð XXL lokið, en í stærð XXXL eru heklaðar 2 umferðir þannig: Heklið A.4b þar til 1 tvíbrugðinn stuðull er eftir, heklið A.4c yfir síðasta tvíbrugðna stuðulinn.
Klippið frá og festið enda á eftir síðustu umferð í báðum stærðum. Endurtakið á gagnstæðri hlið á stykki – sjá kross í mynsturteikningu.

ALLAR STÆRÐIR – ÖXL:
Heklið nú einungis fram og til baka meðfram annarri hliðinni – að hálsi. Hinar þrjár hliðarnar eru nú loknar. Heklið eftir mismunandi stærðum þannig:

STÆRÐ S/M:
Heklið nú öxl þannig:
UMFERÐ 1 (= frá réttu): Munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið 3 tvíbrugðna stuðla um hornboga frá heklaða ferningnum, 1 tvíbrugðinn stuðul í hvern af næstu 30 tvíbrugðnu stuðlum, heklið 3 TVÍBRUGÐNIR STUÐLAR HEKLAÐIR SAMAN – sjá útskýringu að ofan = 34 tvíbrugðnir stuðlar, snúið.
UMFERÐ 2 (= frá röngu): Heklið 3 tvíbrugðna stuðla saman, heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hvern af næstu 31 tvíbrugðnu stuðlum = 32 tvíbrugðnir stuðlar, snúið.
UMFERÐ 3: Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hvern tvíbrugðinn stuðul.
Klippið frá og festið enda. Heklið hina öxlina alveg eins, nema spegilmynd. Þ.e.a.s. hoppið yfir miðju 14 tvíbrugðnu stuðlana frá heklaða ferningnum (= hálsmál) og byrjið á að hekla 3 tvíbrugðna stuðla saman.

STÆRÐ L/XL:
UMFERÐ 1 (= frá röngu): Munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR! Byrjið á annarri hliðinni frá röngu og heklið 3 tvíbrugðna stuðla um hvora af 2 fyrstu umferðum frá A.4, heklið 3 tvíbrugðna stuðla um hornboga frá heklaða ferningnum, 1 tvíbrugðinn stuðull í hvern af 80 tvíbrugðnu stuðlum frá ferning, 3 tvíbrugðnir stuðlar um næsta hornboga frá ferning, heklið 3 tvíbrugðna stuðla um hvora af 2 síðustu umferðum frá A.4 = 98 tvíbrugðnir stuðlar, snúið.
Heklið nú öxl þannig:
UMFERÐ 2 (= frá réttu): Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hvern af 39 tvíbrugðnu stuðlum, heklið 3 TVÍBRUGÐNIR STUÐLAR HEKLAÐIR SAMAN – sá útskýringu að ofan = 40 tvíbrugðnir stuðlar.
UMFERÐ 3: Heklið 3 tvíbrugðna stuðla saman, heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hvern af næstu 37 tvíbrugðnu stuðlum = 38 tvíbrugðnir stuðlar. Snúið.
UMFERÐ 4: Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hvern tvíbrugðinn stuðul.
Klippið frá og festið enda. Heklið hina öxlina alveg eins nema spegilmynd. Þ.e.a.s. hoppið yfir miðju 14 tvíbrugðnu stuðlum frá 1. umferð (= hálsmál) og byrjið með að hekla 3 tvíbrugðna stuðla saman.

STÆRÐ XXL - XXXL:
Heklið nú öxl þannig:
UMFERÐ 1 (= frá réttu): Byrjið á annarri hliðinni frá réttu og heklið 3 tvíbrugðna stuðla um hverja af 2-4 fyrstu umferðum frá A.4, heklið 3 tvíbrugðna stuðla um hornboga frá heklaða ferningnum, 1 tvíbrugðinn stuðull í hvern af fyrstu 33-33 tvíbrugðnu stuðlum frá ferning, heklið 3 TVÍBRUGÐNIR STUÐLAR HEKLAÐIR SAMAN – sjá útskýringu að ofan = 43-49 tvíbrugðnir stuðlar. Snúið.
UMFERÐ 2 (= frá röngu): Heklið 3 tvíbrugðna stuðla saman, heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hvern af næstu 40-46 tvíbrugðnu stuðlum = 41-47 tvíbrugðnir stuðlar. Snúið.
UMFERÐ 3: Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hvern tvíbrugðinn stuðul.
Klippið frá og festið enda. Heklið hina öxlina alveg eins nema spegilmynd. Þ.e.a.s. hoppið yfir miðju 16-16 tvíbrugðnu stuðlana frá heklaða ferningnum (= hálsmál) og byrjið með að hekla 3 tvíbrugðna stuðla saman.

BAKSTYKKI:
Heklið alveg eins og framstykki fram þar til byrjar er á ALLAR STÆRÐIR – ÖXL. Heklið nú fram og til baka meðfram allri hliðinni upp að hálsi og síðan eru axlirnar heklaðar. Heklið eftir mismunandi stærðum þannig:

STÆRÐ S/M:
= 80 tvíbrugðnir stuðlar og 2 hornbogar meðfram hlið.
UMFERÐ 1 (= frá réttu): Heklið 3 tvíbrugðna stuðla um hornboga, 1 tvíbrugðinn stuðull í hvern af 80 tvíbrugðnu stuðlum, heklið 3 tvíbrugðna stuðla um hornboga = 86 tvíbrugðnir stuðlar, snúið.
UMFERÐ 2 (= frá röngu): Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hvern tvíbrugðinn stuðul. Snúið.
UMFERÐ 3 (= öxl): Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hvern af fyrstu 31 tvíbrugðnu stuðlum, heklið 3 tvíbrugðna stuðla saman = 32 tvíbrugðnir stuðlar.
Klippið frá og festið enda. Heklið hina öxlina alveg eins nema spegilmynd. Þ.e.a.s. hoppið yfir miðju 18 tvíbrugðnu stuðlana (= hálsmál) og byrjið með að hekla 3 tvíbrugðna stuðla saman.

STÆRÐ L/XL:
= 80 tvíbrugðnir stuðlar og 2 hornbogar meðfram þessari hlið á heklaða ferningnum og 2 umferðir frá A.4 í hvorri hlið á ferningi.
UMFERÐ 1 (= ranga): Byrjið á annarri hlið frá röngu og heklið 3 tvíbrugðna stuðla um hvora af 2 fyrstu umferðum frá A.4, heklið 3 tvíbrugðna stuðla um hornboga frá ferningi, 1 tvíbrugðinn stuðul í hvern af 80 tvíbrugðnu stuðlum frá ferningi, 3 tvíbrugðnir stuðlar um næsta hornboga frá ferningi, heklið 3 tvíbrugðna stuðla um hvora af 2 síðustu umferðum frá A.4 = 98 tvíbrugðnir stuðlar, snúið.
UMFERÐ 2 (= rétta): Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hvern tvíbrugðinn stuðul. Snúið.
UMFERÐ 3: Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hvern af fyrstu 37 tvíbrugðnu stuðlum, heklið 3 tvíbrugðna stuðla saman = 38 tvíbrugðnir stuðlar.
Klippið frá og festið enda. Heklið hina öxlina alveg eins, nema spegilmynd. Þ.e.a.s. hoppið yfir miðju 18 tvíbrugðnu stuðlana (= hálsmál) og byrjið með að hekla 3 tvíbrugðna stuðla saman.

STÆRÐ XXL - XXXL:
= 88-88 tvíbrugðnir stuðlar og 2 hornbogar meðfram annarri hlið á heklaða ferningnum og 2-4 umferðir frá A.4 í hvorri hlið á ferning.
UMFERÐ 1 (= rétta): Byrjið í annarri hlið frá réttu og heklið 3 tvíbrugðna stuðla um hverja af 2-4 fyrstu umferðum frá A.4, heklið 3 tvíbrugðna stuðla um hornboga frá ferningi, 1 tvíbrugðinn stuðul í hvern af 88-88 tvíbrugðnu stuðlum frá ferningi, heklið 3 tvíbrugðna stuðla um hornboga frá ferning og 3 tvíbrugðna stuðla um hverja af 2-4 næstu umferðum frá A.4 = 106-118 tvíbrugðna stuðla.
UMFERÐ 2 (= frá röngu): Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hvern tvíbrugðinn stuðul. Snúið.
UMFERÐ 3 (= öxl): Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hvern af fyrstu 40-46 tvíbrugðnu stuðlum, heklið 3 tvíbrugðna stuðla saman = 41-47 tvíbrugðnir stuðlar.
Klippið frá og festið enda. Heklið hina öxlina alveg eins, nema spegilmynd. Þ.e.a.s. hoppið yfir miðju 20-20 tvíbrugðnu stuðlum (= hálsmál) og byrjið með að hekla 3 tvíbrugðna stuðla saman.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Mælið ca 20-22-24-25 cm niður frá öxlum og saumið hliðarsaum – skiljið eftir ca 20 cm neðst niðri fyrir klauf.

ERMI:
Ermin er hekluð í hring með byrjun frá miðju undir handveg. Heklið 52-58-62-64 tvíbrugðna stuðla jafnt yfir í kringum handveg. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi og látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Heklið síðan mynstur í hring eftir mynsturteikningu A.4b og fækkið lykkjum í umferð með tvíbrugðnu stuðlum þannig: Fækkið lykkjum með því að hekla 2 TVÍBRUGÐNIR STUÐLAR HEKLAÐIR SAMAN strax á eftir prjónamerki – sjá útskýringu að ofan og heklið 2 tvíbrugðna stuðla saman strax á eftir prjónamerki (= 2 tvíbrugðnir stuðlar færri í umferð).
Endurtakið úrtöku í hverri umferð með tvíbrugðnum stuðlum alls 7-6-5-3 sinnum = 38-46-52-58 tvíbrugðnir stuðlar. Haldið áfram með mynstur þar til ermin mælist ca 27-23-23-20 cm – endið eftir eina umferð með tvíbrugðnum stuðlum. Klippið frá og festið enda.
Heklið hina ermina á sama hátt.

HÁLSMÁL:
Heklið kant meðfram opi í hálsi.
Byrjið frá öxl og heklið þannig: * 1 fastalykkja um ystu lykkjuna, 4 loftlykkjur, hoppið ca 1½ cm áfram *, endurtakið frá *-* meðfram öllu hálsmálinu og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju. Klippið frá og festið enda.

Mynstur

symbols = 4 loftlykkjur, tengið þær saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju – sjá punkt í hring, umferðin byrjar og endar hér
symbols = loftlykkja
symbols = keðjulykkja í/um lykkju
symbols = fastalykkja um loftlykkju/loftlykkjuboga
symbols = fastalykkja í lykkju
symbols = hálfur stuðull í lykkju
symbols = stuðull um loftlykkju/loftlykkjuboga/loftlykkjuhring
symbols = stuðull í lykkju
symbols = tvíbrugðinn stuðull í lykkju
symbols = tvíbrugðinn stuðull um loftlykkju/loftlykkjuboga
symbols = heklið í lykkju sem örin snýr að
symbols = 4 TVÍBRUGÐNIR STUÐLAR HEKLAÐIR SAMAN Í BYRJUN Á UMFERÐ:
4 loftlykkjur (jafngilda 1 tvíbrugðnum stuðli), heklið 2 tvíbrugðna stuðla í næstu lykkju en bíðið með að bregða bandi um heklunálina og að draga bandið í gegnum báða þessa tvíbrugðnu stuðla, heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í næstu lykkju og dragið síðasta uppsláttinn í gegnum allar 4 lykkjurnar á heklunálinni
symbols = 4 TVÍBRUGÐNIR STUÐLAR HEKLAÐIR SAMAN:
Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í næstu lykkju, en bíðið með að bregða bandi um heklunálina og að draga bandið í gegn í lokin, heklið 2 tvíbrugðna stuðla í næstu lykkju, en bíðið með að bregða bandi um heklunálina og að draga bandið í gegn í lokin á báðum þessum tvíbrugðnu stuðlum, heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í næstu lykkju og dragið síðasta uppsláttinn í gegnum allar 5 lykkjurnar á heklunálinni
symbols = 3 loftlykkjur (= hornbogi)
symbols = 5 loftlykkjur
symbols = Heklið 1 hálfan stuðul um toppinn á tvíbrugðnastuðla hópnum frá 3. umferð
symbols = 4 TVÍBRUGÐNIR STUÐLAR HEKLAÐIR SAMAN UM LOFTLYKKJUBOGA:
Heklið 4 tvíbrugðna stuðla um loftlykkjuboga, en bíðið með að bregða bandi um heklunálina og að draga bandið í gegn í lokin á öllum þessum tvíbrugðnu stuðlum og dragið síðan síðasta uppsláttinn í gegnum allar 5 lykkjurnar á heklunálinni
symbols = 4 ÞRÍBRUGÐNIR STUÐLAR HEKLAÐIR SAMAN UM LOFTLYKKJUBOGA:
Heklið 4 þríbrugðna stuðla um loftlykkjubogann, en bíðið með að bregða bandi um heklunálina og að draga bandið í gegn í lokin á öllum þessum þríbrugðnu stuðlum, dragið síðasta uppsláttinn í gegnum allar 5 lykkjurnar á heklunálinni
symbols = 4 TVÍBRUGÐNIR STUÐLAR HEKLAÐIR SAMAN:
Heklið 1 tvíbrugðinn stuðull í hverja og eina af næstu 4 lykkjunum, en bíðið með að bregða bandinu um heklunálina og að draga bandið í gegn í lokin á öllum þessum tvíbrugðnu stuðlum, dragið síðasta uppsláttinn í gegnum allar 5 lykkjurnar á heklunálinni
symbols = Síðasta umferð frá fyrri mynsturteikningu – Byrjið í næstu umferð!
symbols = Á einungis við í stærð L/XL – XXL – XXXL, krossinn er útskýrður í uppskrift.
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 181-31

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (35)

country flag Laurie Jackson wrote:

I am on A1b, the second round, there are 2 slip stitches, 1 ch, then a gab over 2 dc stitches; what do I do over those stitches? Or am I suppose to slip stitch over to the 3rd dc. Thanks for your help. Laurie

06.05.2022 - 23:39

DROPS Design answered:

Dear Laurie, the "gap" means you skip the next 2 sts and crochet 1 dc in the next dc (US-English). Happy crocheting!

09.05.2022 - 08:20

country flag Judith Evans wrote:

Hi again Thank you for your really prompt and helpful answer. I realised as soon as I pressed Send that I'd said 3trb instead of the 4 triple/ double treble cluster thingies. I also thought it might be 5 chains but thought I'd check. So, thank you again for your help :) Kind regards Judith

05.02.2022 - 19:32

country flag Judith Evans wrote:

Hi In round3 how many chains are worked in between each of the 3 trbs together? The diagram just shows a curved black line, which I assume denotes chain(s), but how many? Thank you.

05.02.2022 - 14:46

DROPS Design answered:

Dear Judith, there are no 3 trb worked together, there are only clusters of 4 triple/ double treble crochets worked together. As you can see in the symbols above the diagrams, a curve = 5 chain stitches. You can check all the symbols and their meaning in the small section above the diagrams. Happy crocheting!

05.02.2022 - 19:27

country flag Agnes wrote:

Hej! Jag ska precis börja med a.2.b. Det står i virkinfo att jag ska börja med 4lm. Ska jag göra de 4 luftmaskorna + de tre mm som är i början på diagrammet? Eller ersätter de 4 den första stolpen i stolpgruppen? Mvh Agnes

17.10.2020 - 19:26

DROPS Design answered:

Hei Agnes. Det er bare på begynnelsen av hver rad/omgang med dobbeltstaver som erstattes med 4 luftmasker (altså A.2a, ikke A.2b), les evnt HEKLEINFO i oppskriften. God Fornøyelse!

26.10.2020 - 07:02

country flag Hekla wrote:

Men va fult ! Detta mönster är ju inte erat egna, utan taget / snott från orginaldesingnern för Finska Omakoppa.

25.04.2020 - 13:42

country flag Lorena Alvarez wrote:

Tienes envíos a Mexico.? Es Excelente tú página!! Saludos

08.12.2019 - 16:20

DROPS Design answered:

Hola Lorena. Bajo este link puedes encontrar las tiendas que tienen envíos a todo el mundo: https://www.garnstudio.com/findastore.php?s=w&cid=23

10.12.2019 - 00:13

country flag Graciela Larroque wrote:

El modelo y el patrón se ven muy bien.181-31

22.08.2019 - 01:37

country flag Graciela Larroque wrote:

Sigo sin entender el palito con un círculo arriba!

22.08.2019 - 01:32

country flag Teresa Rebelo wrote:

Peço desculpa mas acabei por não perceber quantas gr preciso para este trabalho em tamanho L com Nepal 8911 - azul mar Reference: NEPAL8911 e qual o total do valor com Portes para o Algarve Portugal

27.05.2019 - 02:05

DROPS Design answered:

Bom dia, Para o tamanho L, precisa de 1050 g. Quanto aos portes para o Algarve, deve contactar a sua loja DROPS. Bom croché!

27.05.2019 - 11:08

country flag Alexandra Villegas wrote:

Por favor me explicar con cuantos puntos comienzo el anillo, cuantos puntos altos? Gracias

24.04.2019 - 05:18

DROPS Design answered:

Hola Alexandra. El anillo se forma con 4 puntos de cadeneta. (ver las explicaciones del diagrama)

28.04.2019 - 20:56