Sylvie skrifaði:
Bonjour Je ne comprends pas le début du travail. On doit monter 96 mailles, mais en faisant le 1er rang comme indiqué dans les explications on se retrouve à tricoter 116 mailles. Il en manque donc 20. Merci de m'éclairer sur mon problème non résolu
30.07.2017 - 16:14DROPS Design svaraði:
Bonjour Sylvie, le 1er tour se fait sur 96 m en augmentant 4 m ainsi: 1 m jersey, A.1 (= 16 m pour le demi-dos), puis A.2, 1 jeté, 3 m jersey, 1 jeté, A.2 (= 17 m pour la manche + 2 jetés), puis A.1, 1 m jersey, A.1 (= 31 m pour le devant, puis: A.2, 1 jeté, 3 m jersey, 1 jeté, A.2 (= 17 m pour la manche + 2 jetés) et enfin A.1 (= 15 m pour le demi-dos) soit: 16+17+31+17+15 + 4 augm = 96 m + 4 augm. Bon tricot!
31.07.2017 - 10:13
Annette skrifaði:
Hallo. Bei mir ging es leider nicht auf. Woher sollte ich wissen, dass die 3 M re zu A2 zuzurechnen sind.
22.05.2017 - 19:32
Eva Gustafsson skrifaði:
Hej, min fråga är måttet på ärmlängden. Skissen visar att man ska mäta från mitt fram/mitt bak, men HELA halsbredden inkluderas i ärmlängden. Ärmsömmen blir kortare och kortare ju större storleken är på plagget. På den största storleken kommer ärmen att bli ovanför armbågen, armarna blir ju inte kortare för att man har större storlek. Hälsningar Eva Mobilnr: 0735-898724
19.04.2017 - 19:38DROPS Design svaraði:
Hei Eva. Det er riktig slik det står i oppskriften. Ettersom fram -og bakstk er mindre i de minste størrelsen trenger man lengre ermer, mens det i de største størrelsene er fram -og bakstk større og da skal man ikke ha så lange ermer. Man har ikke lengre ermer selv om man må ha en større vidde på genseren.
20.04.2017 - 14:04
Sabine skrifaði:
Die Einteilung der Passe stimmt nicht! Die Maschen für A2 am Ärmel können nur 7 statt 17 Maschen haben sonst geht es nicht auf!
26.03.2017 - 21:08DROPS Design svaraði:
Liebe Sabine, für jeden Ärmel werden Sie über 17 M stricken: A.2 (= 7 M), 1 Umschlag, 3 M re, 1 Umschlag A.2 (= 7 M), jedes A.2 = 7 M x 2 = 14 M + die 3 M re = 17 M für jeden Ärmel. Viel Spaß beim stricken!
27.03.2017 - 10:14
Coralie skrifaði:
Printanier et profilé pour les petites rondeurs j
28.01.2017 - 19:46
Liz skrifaði:
Die wil ik maken!
18.01.2017 - 00:47
Dace skrifaði:
Lielisks modelis. Domāju tādu uzadīt no lina.
17.01.2017 - 19:04
Amyah skrifaði:
Très joli!
20.12.2016 - 17:08
Silke skrifaði:
Ich freue mich schon auf die Anleitung
18.12.2016 - 16:47
CorinneF skrifaði:
Unusual and flattering.
17.12.2016 - 19:19
Golden Summer#goldensummersweater |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með gatamynstri og laskalínu, prjónuð ofan frá og niður úr DROPS Belle. Stærð S - XXXL.
DROPS 176-15 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. ÚTAUKNING Á ERMI: Aukið er út um 2 lykkjur á hvorri ermi þannig: Prjónið A.2, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttprjón þar til 7 lykkjur eru eftir (= A.2), sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið A.2. Útauknar lykkjur eru prjónaðar snúnar slétt í næstu umferð (svo að ekki myndist gat) og prjónið síðan sléttprjón. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.13. Sjá ör fyrir rétta stærð í mynsturteikningu A.3. ÚRTAKA: Byrjið 2 lykkjum á undan lykkju með prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 1 lykkju (= lykkja með prjónamerki), lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 1 lykkju, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað ofan frá og niður og í hring á hringprjóna frá miðju að aftan. Á fram- og bakstykki eru útaukningar fyrir laskalínu teiknaðar inn í mynsturteikningu A.1 og A.3. Á ermum er aukið út innan við A.2 í hvorri hlið. BERUSTYKKI: LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Fitjið upp 96 lykkjur í öllum stærðum á hringprjón 4 með Belle. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan frá miðju að aftan þannig: 1 lykkja sléttprjón, A.1 (= 15 lykkjur) (= hálft bakstykki), A.2 (= 7 lykkjur), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3 lykkjur sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.2 (= 17 lykkjur á ermi), A.1, 1 lykkja sléttprjón (= miðja að framan), A.1 (= alls 31 lykkja á framstykki), A.2, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3 lykkjur sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.2 (= 17 lykkjur á ermi), A.1 (= hálft bakstykki). Haldið áfram með A.1 og A.2, JAFNFRAMT er aukið út um 2 lykkjur á hvorri ermi – LESIÐ ÚTAUKNING Á ERMI, aukið út í annarri hverri umferð 21-26-31-31-30-30 sinnum, síðan í 4. hverri umferð 2-1-0-2-5-7 sinnum. Jafnframt þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina (nú eru 55 lykkjur í hverri mynstureiningu A.1) prjónið nú þannig yfir lykkjur í A.1 (aðrar lykkjur halda áfram eins og áður): Prjónið A.3 yfir fyrstu 4 lykkjurnar, A.4 yfir næstu 48 lykkjurnar (= 8 mynstureiningar af A.4) og A.5 yfir síðustu 3 lykkjurnar. Haldið áfram með A.3, A.4 og A.5. Prjónið til og með umferð með ör, sjá ör fyrir rétta stærð = 388-428-468-508-556-596 lykkjur í umferð. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 66-72-78-86-96-104 lykkjur slétt (= hálft bakstykki), setjið næstu 63-71-79-83-87-91 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 5 nýjar lykkjur undir ermi, prjónið næstu 131-143-155-171-191-207 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 63-71-79-83-87-91 lykkjur á þráð, fitjið upp 5 nýjar lykkjur undir ermi, prjónið síðustu 65-71-77-85-95-103 lykkjur slétt (= hálft bakstykki). FRAM- OG BAKSTYKKI: = 272-296-320-352-392-424 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þannig: * 1 lykkja sléttprjón, A.6 A (= 2 lykkjur), A.6 B yfir næstu 32-38-44-52-62-70 lykkjur, JAFNFRAMT er aukið út um 8-2-6-8-8-10 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, A.6 C (= 31 lykkjur), A.7 (= 5 lykkjur = miðja í hlið), A.8 A (= 31 lykkjur), A.8 B yfir næstu 32-38-44-52-62-70 lykkjur JAFNFRAMT er aukið út um 8-2-6-8-8-10 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, A.8 C (= 2 lykkjur) *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar = 304-304-344-384-424-464 lykkjur. Haldið áfram með þetta mynstur, A.6 B og A.8 B prjónið yfir 40-40-50-60-70-80 lykkjur (= 4-4-5-6-7-8 mynstureiningar á breiddina). Þegar A.6 og A.8 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað áfram þannig: * 1 lykkja sléttprjón, A.9 A (= 2 lykkjur), A.9B yfir næstu 59-59-69-79-89-99 lykkjur, JAFNFRAMT er aukið út um 1-7-3-5-1-3 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, A.9 C (= 12 lykkjur), A.7 (= 5 lykkjur = miðja í hlið), A.10 A (= 12 lykkjur), A.10 B yfir næstu 59-59-69-79-89-99 lykkjur JAFNFRAMT er aukið út um 1-7-3-5-1-3 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, A.10 C (= 2 lykkjur) *, prjónið *-* 1 sinni til viðbótar = 308-332-356-404-428-476 lykkjur. Haldið áfram með þetta mynstur, A.9 B og A.10 B er prjónað yfir 60-66-72-84-90-102 lykkjur (= 10-11-12-14-15-17 mynstureiningar á breiddina). Þegar A.9 og A.10 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er nú prjónað þannig: * 1 lykkja sléttprjón, A.11 A (= 2 lykkjur), A.11 B yfir næstu 60-66-72-84-90-102 lykkjur, JAFNFRAMT er aukið út um 12-6-12-12-6-6 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, A.11 C (= 12 lykkjur), A.7 (= 5 lykkjur = miðja í hlið), A.12 A (= 12 lykkjur), A.12 B yfir næstu 60-66-72-84-90-102 lykkjur JAFNFRAMT er aukið út um 12-6-12-12-6-6 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, A.12 C (= 2 lykkjur) *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar = 356-356-404-452-452-500 lykkjur. Haldið áfram með þetta mynstur, A.11 B og A.12 B prjónið yfir 72-72-84-96-96-108 lykkjur (= 6-6-7-8-8-9 mynstureiningar á breiddina). Þegar A.11 og A.12 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er fellt af með sléttum lykkjum. ERMI: Setjið til baka þær 63-71-79-83-87-91 lykkjur af þræði á prjóninn og prjónið upp 1 lykkju í hverja og eina af 5 lykkjunum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 68-76-84-88-92-96 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi (mitt í 5 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp). Prjónið síðan í hring á sokkaprjóna 4. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Þegar stykkið mælist 3 cm er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA! Fækkið lykkjum í 6.-4.-4.-3.-2.-2. hverri umferð alls 7-9-10-10-10-10 sinnum = 54-58-64-68-72-76 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 19-18-17-15-12-11 cm. Jafnið til lykkjufjöldann til 54-57-63-69-72-75, og prjónið A.13 yfir allar lykkju. Fellið af með sléttum lykkjum þegar A.13 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #goldensummersweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 176-15
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.