Eva Anita Unnerud skrifaði:
Jeg kan ikke forstå at dette mønsteret kan stemme, ser at det er ei før meg som spør også. Rad 26, når du da har felt en maske i hver side, da går det ikke opp i mønsterrapporten. Kan vel ikke ta felling på midten av mønsteret på pinne 25? Du har 19 masker, men når fellingene i nr 25 og 26 er gjort, sitter en igjen med 16 masker men skal være 17 masker. Hjelp 🤔
02.03.2017 - 12:10DROPS Design svaraði:
Hej Eva. Jeg tror du maa göre noget feil. Du har to indtagninger paa hver side, som bliver "udlignet" med 1 kast, men i midten strikker du ialt 3 masker sammen til 1, saa du har 2 m mindre i rad 26
02.03.2017 - 15:47
Ingunn Pettersen skrifaði:
Hvordan skal man strikke på A2 når mønsteret går inn en maske på hver side (fra pinne 26 i mønsteret)? Fellingene stemmer jo ikke med dette og mønsteret vil ikke få samme sentrering hvis jeg begynner på mønsteret rett etter stolpen.
23.02.2017 - 15:51DROPS Design svaraði:
Hej Ingunn, jo i og med at du feller i midten af mønstret ifølge diagrammet, så stemmer mønstret også mod midt foran. Bare sørg for at følge hver maske i diagrammet så bliver det som på billedet. God fornøjelse!
02.03.2017 - 08:55
Victoria skrifaði:
Hola! He comprado la misma lana (Drops Paris 102 spray blue) y es mucho más oscuro que en la foto, ya es la segunda vez que me pasa, me fío del color que sale en la imagen y luego el color de la lana no tiene nada que ver. :(
16.02.2017 - 11:26
Chris Guenther skrifaði:
Great for wearing in Summer in air-conditioning. Lady-like.
04.01.2017 - 16:03
Angelique skrifaði:
Nice, basic wardrobe staple
15.12.2016 - 08:07
Wavelength Cardigan#wavelengthcardigan |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með gatamynstri og laskalínu úr DROPS Paris. Stærð S - XXXL.
DROPS 177-21 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1, A.2 og A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LASKALÍNA: Fækkið um 2 lykkjur í hverri skiptinu á milli fram- og bakstykkis og erma. Fækkið frá réttu þannig: Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki: Prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. LEIÐBEININGAR: Ef prjónfestan passar ekki á hæðina og prjónað er of fast þá kemur laskaúrtakan til með að verða of stutt og handvegurinn of lítill. Þetta er hægt að jafna út með því að prjóna 1 auka umferð án úrtöku með jöfnu millibili á milli úrtaka. ÚTAUKNING: Aukið út mitt undir ermi þannig – byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 183-195-211-227-247-267 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjóna 5 með Paris. Prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið síðan þannig – frá réttu: A.1 (5 lykkjur = kantur að framan), 1 lykkja brugðið, A.2 (= 19 lykkjur), 1 lykkjur brugðið, 22-25-29-33-38-43 lykkjur slétt, setjið 1 prjónamerki hér (= hlið), 14-17-21-25-30-35 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið, A.2 yfir næstu 57 lykkjur (= 3 mynstureiningar á breidd), 1 lykkja brugðið, 14-17-21-25-30-35 lykkjur slétt, setjið 1 prjónamerki hér (= hlið), 22-25-29-33-38-43 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið, A.2, 1 lykkja brugðið, A.5 (5 lykkjur = kantur að framan). Haldið áfram með þetta mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 8 cm er fækkað um 1 lykkju í hlið á hvoru framstykki þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman á undan fyrra prjónamerki og prjónið 2 lykkjur slétt saman á eftir seinna prjónamerki. Fækkið svona með 10 cm millibili alls 3 sinnum. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka með A.3 = 13 lykkjur yfir A.2, aðrar lykkjur halda áfram eins og áður. Eftir allar úrtökur í hliðum og í A.2 eru 147-159-175-191-211-231 lykkjur í umferð. Þegar stykkið mælist 32-32-33-33-33-33 cm fellið af 6-6-8-8-10-12 lykkjur í hvorri hlið (= 3-3-4-4-5-6 lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Nú eru 63-69-75-83-91-99 lykkjur á bakstykki og 36-39-42-46-50-54 lykkjur á hvoru framstykki. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, skiptið yfir á stutta hringprjóna þegar auknar hafa verið út nægilega margar lykkjur. Fitjið upp 38-38-40-42-44-46 lykkjur á sokkaprjóna 5 með Paris. Prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið síðan sléttprjón. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar (= mitt undir ermi). Þegar stykkið mælist 6-6-6-6-4-6 cm er aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – LESIÐ ÚTAUKNING. Aukið út með 3-2-1½-1½-1½-1 cm millibili alls 8-12-14-15-15-16 sinnum = 54-62-68-72-74-78 lykkjur. Þegar stykkið mælist 33-31-31-29-28-26 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis) fellið af miðju 6-6-8-8-10-12 lykkjur undir ermi = 48-56-60-64-64-66 lykkjur. Geymið stykkið og prjónið aðra ermi á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjóna og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 231-259-279-303-319-339 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í skiptinguna á milli fram- og bakstykkis og erma. Haldið áfram með mynstur og sléttprjón eins og áður og fækkið lykkjum fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Mismunandi er lykkjum fækkað á fram- og bakstykki og ermum. Fækkið lykkjum þannig: LASKALÍNA ERMI: Fækkið lykkjum í 4. hverri umfer 4-2-2-2-4-5 sinnum, síðan í annarri hverri umferð 13-19-21-23-21-21 sinnum = alls 17-21-23-25-25-26 sinnum. LASKALÍNA Á FRAM- OG BAKSTYKKI: Fækkið lykkjum í 4. hverri umferð 8-9-9-8-8-7 sinnum, síðan í annarri hverri umferð 5-5-7-11-13-17 sinnum = alls 13-14-16-19-21-24 sinnum. Eftir allar úrtöku eru 111-119-123-127-135-139 lykkjur í umferð. Prjónið 4 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur, í fyrstu umferð er fækkað um 12-16-16-16-18-20 lykkjur jafnt yfir = 99-103-107-111-117-119 lykkjur. Fellið af. FRÁGANGUR: Saumið saman op mitt undir ermum. Staðsetjið 6-6-6-7-7-7 tölur jafnt yfir vinstri kant að framan og saumið niður. Tölum er hneppt í gegnum göt í kanti að framan. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #wavelengthcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 177-21
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.