DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24
DROPS 177-32
DROPS Design: Mynstur bs-114
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------
Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL
Efni:
DROPS BABYALPACA SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
500-550-600-650-700-750 g litur 6347, bláfjólublár

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40, 60 og 80 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 lykkjur og 32 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 2,5 – fyrir kanta með garðaprjóni.
FYLGIHLUTIR: 2 nælur til að halda lykkjum.
----------------------------------------------------------

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.7. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING-1:
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 49 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d.3) = 16,3. í þessu dæmi þá er aukið út eftir ca 16. hverja lykkju. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-2 (á við um miðju undir ermi):
Aukið út hvoru megin við 5 miðju lykkjur undir ermi þannig: Byrjið 1 lykkju á undan A.7, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt, A.7, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.
----------------------------------------------------------

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Peysan er prjónuð eins og ferningur frá miðju að aftan og út. Prjónað er í hring á sokkaprjóna. Skipt er yfir á hringprjón eftir þörf. Þegar ferningurinn hefur verið prjónaður til loka er prjónað niður yfir bakstykki og út að hvorri hlið á framstykki. Að lokum er prjónaður samfelldur kantur í hálsmáli/framstykki áður en ermar eru prjónaðar.

FERNINGUR:
Fitjið upp 8 lykkjur á 1 st sokkaprjón nr 3 með BabyAlpaca Silk (hafið endann ca 20 cm, það á að nota hann við frágang).
UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið allar lykkjur brugðið.
UMFERÐ 2 (= rétta): * Prjónið 1 lykkju snúna slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum = 16 lykkjur.
Skiptið lykkjum á 4 sokkaprjóna nr 3 með 4 lykkjur á hverjum prjóni (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar). Setjið 1 prjónamerki í fyrstu lykkju á fyrsta sokkaprjón (= prjónamerki A = byrjun á umferð), setjið að auki 1 prjónamerki í fyrstu lykkju á hverjum og einum af 3 næstu sokkaprjónum (= prjónamerki B, prjónamerki C og prjónamerki D). Nú er 1 prjónamerki í hverju horni – látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu.
Prjónið í hring þannig: A.1 (= 4 lykkjur), A.2 (= 4 lykkjur), A.1 (= 4 lykkjur) og A.2 (= 4 lykkjur). Haldið svona áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka er prjónað yfir lykkjur á milli prjónamerkis B og C og prjónamerkis D og A þannig: Prjónið A.3A (= 21 lykkjur), A.3B (= 27 lykkjur) og síðan A.3C (= 20 lykkjur). Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka er A.1 einnig lokið á hæðina og það eru 308 lykkjur í umferð í öllum stærðum (67 lykkjur á milli prjónamerkis A og B og á milli prjónamerkis C og D, 85 lykkjur á milli prjónamerkis B og C og á milli prjónamerkis D og A og 4 hornlykkjur).
Prjónið nú í hring í sléttprjóni með A.4 einungis á milli prjónamerkis B og C þannig: Prjónið hornlykkjur snúnar slétt, aukið út með því að slá uppá prjóninn, prjónið sléttprjón fram að prjónamerki B, aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.4A (= 42 lykkjur – útaukning á undan hornlykkjum eru teiknaðar inn í mynsturteikningu), prjónið hornlykkjur snúnar slétt, aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttprjón fram að prjónamerki D, aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, prjónið hornlykkjur snúnar slétt, aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttprjón fram að prjónamerki A og aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn = 316 lykkjur í umferð í öllum stærðum. Haldið svona áfram með útaukningu við hornlykkjur í annarri hverri umferð þar til prjónaðar hafa verið alls 2-4-6-8-10-12 umferðir í A.4 (útauknar lykkjur eru alltaf prjónaðar í sléttprjóni). Nú eru 316-324-332-340-348-356 lykkjur í umferð.

HANDVEGUR:
Prjónið nú fram og til baka á hringprjóna, en ekki er prjónað yfir lykkjur upp við hnakka (þ.e.a.s. á milli prjónamerkis D og A).
Byrjið frá réttu við prjónamerki A (= vinstri öxl að aftan), prjónið hornlykkjur snúnar slétt eins og áður, fellið LAUST af næstu 46-48-50-52-56-58 lykkjur fyrir handveg, prjónið sléttprjón fram að prjónamerki B, aukið út á undan hornlykkju eins og áður, haldið áfram A.4A og A.4B á milli prjónamerkis B og C eins og áður, prjónið hornlykkjur snúnar slétt, aukið út á eftir hornlykkjum eins og áður, prjónið sléttprjón þar til eftir eru 46-48-50-52-56-58 lykkjur á undan prjónamerkis D, fellið laust af næstu 46-48-50-52-56-58 lykkjur fyrir handveg og prjónið hornlykkjur snúnar slétt eins og áður.
Þær 87-89-91-93-95-97 lykkjur sem eftir eru á milli prjónamerkis D og prjónamerkis A (= upp við hnakka) eru settar á band.
Klippið frá þráðinn sem prjónað er með og setjið síðan hornlykkju við prjónamerki A og prjónamerki D á sitt hvora nælu.
Byrjið frá röng og prjónið fram og til baka eins og áður yfir þessar lykkjur í sléttprjóni, A.4A og A.4B á milli prjónamerkis B og C niður á baki og útaukning hvoru megin við 2 hornlykkjur (í hverri umferð frá réttu) þar til prjónaðar hafa verið alls 7 umferðir á eftir affellingu fyrir handveg og síðasta umferð er prjónuð frá röngu, klippið frá – ATH: Gatamynstur í A.4 er prjónað eins og útskýrt er í mynsturteikningu og endurtakið niður yfir bak til loka, þ.e.a.s. sjálft gatamynstrið nær yfir jafn margar lykkjur allan tímann, en það verða fleiri og fleiri lykkjur í sléttprjóni í hvorri hlið við hornlykkjur.
Setjið til baka lykkju frá nælu við prjónamerki A á prjóninn. Prjónið þessa lykkju snúna slétt, aukið út á eftir hornlykkju eins og áður, fitjið upp 46-48-50-52-56-58 nýjar lykkjur á prjóninn fyrir handveg, prjónið sléttprjón fram að prjónamerki B, aukið út á undan hornlykkju eins og áður, haldið áfram með A.4A og A.4B á milli prjónamerkis B og C eins og áður, aukið út á eftir hornlykkju eins og áður, prjónið sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru, fitjið upp 46-48-50-52-56-58 nýjar lykkjur fyrir handveg, aukið út á undan hornlykkju eins og áður, setjið til baka lykkju frá nælu á prjóninn og prjónið þá lykkju snúna slétt = 251-257-263-269-275-281 lykkjur á prjóni. Prjónið til baka frá röngu og fitjið JAFNFRAMT upp 1 nýja lykkju í hvorri hlið (= kantlykkja) = 253-259-265-271-277-283 lykkjur á prjóni.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Haldið svona áfram fram og til baka á hringprjóna eins og áður, þ.e.a.s. í næstu umferð er prjónað frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið hornlykkju snúna slétt, aukið út á eftir hornlykkju, prjónið sléttprjón fram að hornlykkju við prjónamerki B, aukið út á undan hornlykkju, haldið áfram með A.4A og A.4B á milli prjónamerkis B og C (útaukningar eins og áður), aukið út á eftir hornlykkju, prjónið sléttprjón fram að hornlykkju við prjónamerki D, aukið út á undan hornlykkju, prjónið hornlykkjuna snúnar slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið brugðið til baka frá röngu, en kantlykkja í hvorri hlið er prjónuð slétt og 4 hornlykkjur eru prjónaðar snúnar brugðið eins og áður.
Haldið svona áfram fram og til baka þar til stykkið mælist ca 51-53-55-57-59-61 cm frá hnakka og niður – endið eftir 1 umferð frá röngu. Ef prjónfestan passar á hæðina þá eru nú ca 349-373-379-385-409-415 lykkjur á prjóni.

Setjið lykkjur á milli prjónamerkis B og C (meðtaldar hornlykkjur) á band (= ca 129-139-141-143-151-153 lykkjur meðfram neðri kanti á peysu). Aðrar lykkjur á milli prjónamerkis C og til og með prjónamerkis D eru settar á annan þráð (= ca 110-117-119-121-129-131 lykkjur á hægra framstykki).

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Setjið nú 1 prjónamerki – HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Prjónið yfir lykkjur frá og með prjónamerki A og fram að prjónamerki B þannig (fyrsta umferð = rétta): 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið hornlykkju snúna slétt, aukið út á eftir hornlykkju eins og áður, prjónið sléttprjón þar til 1 lykkja er eftir á prjóni, snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið sléttprjón til baka frá röngu, hornlykkjan snúin brugðið og 1 kantlykkja í garðaprjóni. Snúið stykkinu, prjónið eins og áður þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni, snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið til baka frá röngu eins og áður. Haldið svona áfram með að prjóna yfir 1 lykkju færri við prjónamerki B í hvert skipti sem snúið er við þar til stykkið mælist ca 37-41-45-49-53-57 cm frá prjónamerki (endið eftir 1 umferð frá röngu). Setjið allar lykkjur á vinstra framstykki á þráð.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Setjið til baka lykkjur af þræði á milli prjónamerkis C og D á hringprjóna 3. Setjið 1 prjónamerki – HÉÐAN ER NÚ MÆLT og prjónið þannig (fyrsta umferð = rétta): Prjónið sléttprjón fram að hornlykkju, aukið út á undan hornlykkju eins og áður, prjónið hornlykkju snúna slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Snúið stykkinu, prjónið frá röngu með 1 kantlykkju í garðaprjóni, hornlykkju snúna brugðið og sléttprjón þar til eftir er 1 lykkja á prjóni, snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið til baka frá réttu í sléttprjóni, útaukning á undan hornlykkju, hornlykkja snúin slétt og 1 kantlykkja í garðaprjóni.
Snúið, prjónið frá röngu þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni, snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið frá réttu eins og áður. Haldið svona áfram með að prjóna yfir 1 lykkju færri við prjónamerki C í hvert skipti sem snúið er við þar til stykkið mælist ca 37-41-45-49-53-57 cm frá prjónamerki (endið eftir 1 umferð frá röngu).

KANTUR MEÐ GARÐAPRJÓNI:
Setjið lykkjur meðfram hægra framstykki, neðri kantur og vinstra framstykki á sama hringprjón 2,5 = ca 467-505-523-541-579-597 lykkjur. Prjónið 4 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur. Skiptið yfir á hringprjóna 3 og fellið af, en til að affellingarkanturinn verði ekki stífur er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 6. hverri lykkju jafnframt er fellt af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

KANTUR Í HÁLSMÁLI OG AÐ FRAMAN:
Prjónið kant efst á stykkinu upp meðfram hægra framstykki, yfir lykkjur aftan við hnakka og síðan niður meðfram vinstra framstykki þannig: Prjónið upp frá réttu innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni ca 307-331-355-379-403-427 lykkjur (meðtaldar lykkjur af þræði) á hringprjóna 3 (ef prjónaðar eru upp fleiri/færri lykkjur er lykkjufjöldinn jafnaður út í réttan lykkjufjölda í fyrstu umferð). Prjónið 3 sléttar umferðir fram og til baka. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.5A þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið A.5B (= 1 lykkja) og endið á 1 kantlykkju í garðaprjóni. Þegar A.5 hefur verið prjónað til loka á hæðina er næsta umferð prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.6A (= 5 lykkjur), endurtakið A.6B þar til 5 lykkjur eru eftir á prjóni (= 37-40-43-46-49-52 mynstureiningar 8 lykkjur), prjónið A.6C (= 4 lykkjur) og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur þar til allur kanturinn mælist ca 18-18-18-22-22-22 cm – endið eftir eina heila mynstureiningu á hæðina. Prjónið 2 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur og fellið af, en til að affellingarkanturinn verði ekki stífur er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Skiptið yfir á stuttan hringprjón þegar auknar hafa verið út nægilega margar lykkjur.
Fitjið upp 49-49-49-57-57-57 lykkjur á sokkaprjóna 2,5 með BabyAlpaca Silk. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN hringinn – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á sokkaprjón 3 og prjónið þannig: A.6A (= 5 lykkjur), endurtakið A.6B yfir næstu 40-40-40-48-48-48 lykkjur (= 5-5-5-6-6-6 mynstureiningar 8 lykkjur), endið með A.6C (= 4 lykkjur). Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist ca 12 cm – stillið af eftir eina heila mynstureiningu á hæðina, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 3-5-7-1-3-5 lykkjur jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING-1 = 52-54-56-58-60-62 lykkjur í umferð. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5, prjónið 4 umferðir garðaprjón hringinn. Prjónið síðan A.5A hringinn. Þegar A.5 hefur verið prjónað til loka er skipt yfir á sokkaprjóna 3. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið A.7 (= 3 lykkjur), 23-24-25-26-27-28 lykkjur sléttprjón, A.7 (= 3 lykkjur) og 23-24-25-26-27-28 lykkjur sléttprjón. Haldið svona áfram með mynstur í sléttprjóni og A.7 mitt ofan á og mitt undir ermi. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 16 cm er aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – LESIÐ ÚTAUKNING-2. Aukið svona út alls 17-19-20-20-22-23 sinnum í S: Með 2 cm millibili, í M, L og XL: Til skiptis 2 og 1½ cm millibili og í XXL og XXXL: Með 1½ cm millibili = 86-92-96-98-104-108 lykkjur í umferð. Þegar stykkið mælist 50-51-52-51-52-52 cm prjónið ermakúpu fram og til baka á stutta hringprjóna JAFNFRAMT er fellt af í byrjun hverrar umferðar í hvorri hlið þannig: 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 2 sinnum. Fellið síðan af 2 lykkju í hvorri hlið þar til stykkið mælist 53-54-55-55-56-56 cm, fellið síðan af 3 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru, ermin mælist ca 54-55-56-56-57-57 cm. Prjónið aðra ermi alveg eins.

FRÁGANGUR:
Saumið ermar í.
Notið endann á þræðinum frá byrjun á stykki til að sauma lítil spor upp og niður í kringum gatið í miðju á ferning. Herðið á þræðinum og dragið gatið saman og festið enda.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 09.03.2017
Leiðrétting í mynsturteikningu A.1
Yfirfarið á vefsvæði: 16.06.2023
KANTUR Í HÁLSMÁLI OG AÐ FRAMAN:... Þegar A.5 hefur verið prjónað til loka á hæðina er næsta umferð prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.6A (= 5 lykkjur), endurtakið A.6B þar til 5 lykkjur eru eftir á prjóni (= 37-40-43-46-49-52 mynstureiningar 8 lykkjur)..

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er prjónaður slétt frá réttu/brugðið frá röngu svo að það myndist gat.
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt frá réttu svo að ekki myndist gat.
symbols = prjónið 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt og steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman og steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
symbols = sýnir 1 mynstureiningu á hæðina
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 177-32

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (41)

country flag Elfriede wrote:

Ich hätte bitte eine Frage zum Vorderteil stricken. Was bedeutet bis nur mehr eine Masche in der Reihe ist und dann wenden,ohne dass ein Loch entsteht. Wird bei jeder Hinreihe eine Masche weniger gestrickt bis die Länge erreicht ist? Vielen Dank

25.02.2024 - 11:30

DROPS Design answered:

Liebe Elfriede, hier wird man verkürzten Reihen stricken, dh stricken Sie bis 1 Masche übrig ist, dann wenden und weiterstricken; die Technik für die verkürzte Reihe wird hier wie bei dieser Technik 26.02.2024 - 09:23

country flag Marlene Markussen wrote:

Hej igen . Jeg forstår ikke jeres skifte er det armgab den tegning og er mellem A og b?

11.01.2024 - 17:01

DROPS Design answered:

Hej Marlene, ja det er selve ærmegabet :)

16.01.2024 - 11:34

country flag Marlene wrote:

De 48 masker man slår op på pinde efter ærmegab skal man så vende efter de 48 m så de bliver stikket med frem og tilbage på b og c .

08.01.2024 - 16:51

country flag Marlene Markussen wrote:

Hej jeg kan ikke det med at sætte marketråd A på også slå 48m op for så bliver det som en pose? Er det rigtigt model 177-32 Mvh Marlene

08.01.2024 - 15:18

DROPS Design answered:

Hej Marlene, du ser i måleskitsen nederst i opskriften hvordan det skal se ud :)

11.01.2024 - 15:14

country flag Chassefaire wrote:

\'est une vraie catastrophe ce modèle, en tous cas la version française, est bourrée de fautes! les 2 demi devant se retrouvent le haut en bas, donc le décolleté en V sur le bas du ventre! ensuite vous faites reprendre les mailles du haut du dos et du devant sans faire coudre les épaules, ça ne correspond à rien! pareil pour le bas!en plus les photos de face ne sont pas sur la version pour le téléphone, il faut toujours défaire !

29.05.2023 - 17:23

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Chassefaire, nous sommes désolés que vous ayez trouvé des fautes dans la version française, n'hésitez pas à nous les partager pour que les corrections puissent être faites. Il n'y a pas de couture d'épaules dans ce modèle, on tricote le carré en rond, puis en allers et retours le long de 3 des côtés de ce carrés, puis chaque côté séparément pour le dos et les devants, puis le col pour terminer. Si vous avez des questions sur ce modèle un peu technique, n'hésitez pas à les poser ici dans la rubrique correspondante pour que l'on puisse vous aider. Toutes les photos devraient être visibles, quel navigateur utilisez-vous? Bon tricot!

30.05.2023 - 11:44

country flag Margit wrote:

Ich habe eine Frage zur Strickschrift A.3: In der zweitletzten Reihe sind jeweils zwischen den Teilen A, B und C zwei Umschläge. Wie stricke ich die Maschen daraus? Sollen diese verschränkt werden? Oder wie werden da 2 Maschen draus, ohne dass es ein großes Loch gibt?

03.05.2022 - 13:40

country flag Vera Van Houten wrote:

In patroon 177/32 moet kantpatroon A4 gebreid worden. De telling van dit patroon ontbreekt in de afbeeldingen. Kantpatroon A4a en A4b staan duidelijk aangegeven, maar A4 dus niet. Ik zou graag de telling van A4 ontvangen zodat ik verder kan. Met vriendelijke groeten, Vera van Houten. Terneuzen, 26 december 2021. Verder vind ik de patronen en beschrijvingen heel erg duidelijk.

26.12.2021 - 17:38

country flag Simone wrote:

Hi - In row 17 (last row of pattern before final knit row) of A3, there appears to be a yarn over at the end of A3A and another yarn over at the start of A3B. This double yarn over happens again between A3B and A3C. What are we supposed to do with the 2 yarn overs? They are shown as open yarn overs to make a hole but this makes a really big hole that doesn't appear in the photos?? Should I knot twisted into the yarn overs in the next row to avoid a hole?? thanks, Simone

10.06.2020 - 15:11

DROPS Design answered:

Hi Simone, there are mistakes in 17-th row of diagram A.3B. At the beginning of row it should be: knit 1, 1 yarn over, (slip 1 stitch knitwise, knit 1, pass slipped stitch over stitch worked). At the end of row it should be: knit 2 together, 1 yarn over, knit 1. Happy knitting!

15.12.2020 - 08:39

country flag Asta Istola wrote:

Mycket rolig och intressant mönster :) 👍🏽

29.01.2019 - 23:44

country flag Asta Istola wrote:

Mycket rolig och intressant mönster :) 👍🏽

29.01.2019 - 23:43