Marielle skrifaði:
Hej! Jag ska precis börja virka kanten runt de sammanfogade rutorna men jag förstår inte vad stjärnan betyder i mönstret? Ska jag hoppa över hela första varvet på kanten eller vad betyder den? Tack på förhand!
16.04.2023 - 16:34DROPS Design svaraði:
Hej Marielle, ja første række i diagrammet er den du allerede har hæklet fra ruderne og den række du hækler kanten i :)
18.04.2023 - 10:32
Marjola skrifaði:
Het patroon wat meegestuurd wordt met de garen is niet kompleet\r\n\r\nDe eerste vier toeren van 1a staan er niet op
13.08.2021 - 23:51
Peggy Marquardt skrifaði:
Hallo, finde die paris wolle nicht in der Farbe graublau? Welche Bezeichnung hat diese Farbe wenn ich sie kaufen möchte? Viele Grüße Peggy
16.04.2020 - 15:29DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Marquardt, die Name dieser Farbe wurde geändert, schauen Sie immer die Farbenummer, die ist die richtige. Viel Spaß beim häkeln!
16.04.2020 - 15:46
Heather skrifaði:
This is absolutely beautiful but I can't follow the diagram. I am so disappointed.
01.01.2020 - 06:22DROPS Design svaraði:
Dear Heather, you will find some helps about reading diagrams here. Happy crocheting!
02.01.2020 - 17:05
Crazytess skrifaði:
Yo aconsejaría en la vuelta 6, 5 puntos de cadeneta en cada tramo, en lugar de 4, y en la vuelta 9, 6 puntos dobles en cada tramo. Puede ser que yo haga el punto flojo, pero es que si sigo el patron la roseta central se abomba, y el cuadrado no queda plano.
14.08.2019 - 11:42SHIRLEY FREEMAN skrifaði:
Is there a written pattern for this instead of the diagram Thank You
15.03.2018 - 06:19DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Freeman, there is only diagram for this pattern. Each symbol in diagram is matching a stitch/group of stitch (see diagram key). Start reading diagrams from the bottom corner on the right side and read every round from the right to the left. Repeat A.1 a total of 4 times in the round to make the square. Happy crocheting!
15.03.2018 - 08:33
Adela skrifaði:
Si tejo por el patrón a partir de la tercera vuelta no sale plano. Necesitará más cadenetas?.
21.05.2017 - 23:21DROPS Design svaraði:
Hola Adela. Comprueba la tensión del tejido, puede ser que la parte de las cadenetas la trabajes más prieto.
28.05.2017 - 20:18
Elisabetta skrifaði:
Super schön,würde mich über eine Anleitung sehr freuen.
02.01.2017 - 13:10
Torhild Christensen skrifaði:
Lekkert
15.12.2016 - 16:57
Lauren McRoberts skrifaði:
A very pretty summer blanket. Please include.
14.12.2016 - 13:32
Porcelaine#porcelaineblanket |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Heklað teppi með ferningum og gatamynstri úr DROPS Paris.
DROPS 177-12 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. LITUR Á FERNING-1: UPPFITJUN + UMFERÐ 1: gráblár UMFERÐ 2: ljós þveginn UMFERÐ 3-6: gráblár UMFERÐ 7: hvítur UMFERÐ 8-10: ljós þvegin UMFERÐ 11-13: hvítur LITUR Á FERNING-2: UPPFITJUN + UMFERÐ 1: ljós þveginn UMFERÐ 2: gráblár UMFERÐ 3-6: ljós þveginn UMFERÐ 7: hvítur UMFERÐ 8-10: gráblár UMFERÐ 11-13: hvítur LITASKIPTI: Til að fá fallega skiptingu í litaskiptum er skipt um lit þegar bregða á þræðinum um heklunálina og draga á þráðinn í gegn í lokin á síðustu lykkju, dragið síðan þráðinn með nýja litnum í gegnum allar lykkjur á heklunálinni. Festið enda jafnóðum. HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun hverrar umferðar með fastalykkjum er fyrstu fastalykkju skipt út fyrir 1 loftlykkju. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Í byrjun hverrar umferðar með stuðlum er fyrsta stuðli skipt út fyrir 3 loftlykkjur. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju. Í byrjun hverrar umferðar með tvíbrugðnum stuðlum er fyrsta tvíbrugðna stuðlinum skipt út fyrir 4 loftlykkjur. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 4. loftlykkju. LITIR Í KANTI: UMFERÐ 1-2: gráblár UMFERÐ 3: ljós þveginn UMFERÐ 4: hvítur UMFERÐ 5: gráblár UMFERÐ 6 og 7: ljós þveginn ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TEPPI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Það eru heklaðir 6 alveg eins ferningar, en með mismunandi litasamsetningum. Heklaðir eru 3 ferningar með LITUR Á FERNINGI-1 og 3 ferningar með LITIR Á FERNINGI-2, sjá útskýringu að ofan. Síðan eru ferningarnir heklaðir saman í eitt stykki. Að lokum er heklaður kantur utan með teppinu. FERNINGUR: Heklið 4 loftlykkjur með heklunál 5 með uppfitjunarlit á ferningi og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju. LESIÐ LITASKIPTI! Heklið síðan A.1 (A.1 er endurtekið alls 4 sinnum hringinn) – LESIÐ LEIÐBEININGAR! ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið heklað eru 40 stuðlar meðfram hvorri hlið og 4 hornloftlykkjubogar með 2 tvíbrugðnum stuðlum hvoru megin við hvern boga. Ferningurinn mælist ca 35 cm á breidd og 35 cm á hæð. FRÁGANGUR: Staðsetjið ferningana eins og útskýrt er í A.3 með 2 ferningum á breidd og 3 á lengd. Heklið fyrst saman á breiddina, síðan á lengdina – sjá A.4. Leggið 2 ferninga ofan á hvorn annan með röngu á móti röngu og heklið þá saman með litnum hvítur þannig: Heklið 1 fastalykkju um loftlykkjubogann í horni á fyrri ferningi, 1 loftlykkja, 1 fastalykkja um loftlykkjubogann í hornið á hinum ferningnum, * 2 loftlykkjur, hoppið yfir 2 tvíbrugðna stuðla/stuðla á fyrri ferning, 1 fastalykkja í næsta stuðul á fyrri ferning, 1 loftlykkja, hoppið yfir 2 stuðla á seinni ferning, 1 fastalykkja í næsta stuðul á seinni ferning *, endurtakið frá *-* fram að næsta horni, heklið 2 loftlykkjur, 1 fastalykkja um loftlykkjubogann í horni á fyrri ferning, 1 loftlykkja, 1 fastalykkja um loftlykkjubogann í hornið á seinni ferningi, klippið frá og festið enda. Endurtakið þetta meðfram hinum hliðunum. KANTUR: Heklið kant utan um allt teppið með heklunál 5 þannig – LESIÐ LITIR Í KANTI. Byrjið í einu horninu á annarri skammhliðinni og heklið þannig: Heklið * A.2A (= horn) yfir hornbogann, endurtakið A.2B meðfram hlið á ferningi (= 10 sinnum á breidd), A.2C í skiptingunni á milli 2 ferninga, endurtakið A.2B meðfram hlið á ferningi (= 10 sinnum á breidd), A.2D yfir hornið (= hlið á horni), A.2A (= horn) yfir hornbogann, endurtakið A.2B meðfram hlið á ferningi (= 10 sinnum á breidd), A.2C í skiptingunni á milli 2 ferninga, endurtakið A.2B meðfram hlið á ferningi (= 10 sinnum á breidd), A.2C í skiptingunni á milli 2 ferninga, endurtakið A.2B meðfram hlið á ferningi (= 10 sinnum á breidd), heklið A.2D yfir hornið (= hlið á horni) *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar. Klippið frá og festið enda. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #porcelaineblanket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 12 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 177-12
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.