DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 246.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3936.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS 177-19
DROPS Design: Mynstur nr w-624
Garnflokkur C eða A + A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S/M – L/XL – XXL/XXXL

Efni:
DROPS PARIS frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
450-500-550 g litur 100, ljós þveginn
350-400-450 g litur 101, ljós blár

DROPS HEKLUNÁL NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 18 stuðlar og 10,5 umferðir verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð. Mynsturteikning A.1b mælist ca 24 x 24 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 246.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3936.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

30% AFSLÁTTUR á 6 tegundum af bómullargarni!
Tilboðið gildir til 12.04.2024

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. ATH: A.4 og A.5 er útskýring og sýnir í hvaða hlið á hekluðu ferningunum er heklað áfram.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PONCHO - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fyrst eru heklaðir 4 ferningar, síðan eru ferningarnir heklaðir saman áður en kantur er heklaður í hálsmáli og neðst niðri á poncho.

HEKLAÐUR FERNINGUR (= miðja að framan og miðja að aftan):
Byrjið með heklunál 3,5 með litnum ljós þveginn og heklið mynstur eftir mynsturteikningu A.1b alls 4 sinnum í umferðmynsturteikning A.1a sýnir hvernig umferðin byrjar og endar og er hekluð sem viðbót við A.1b. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Í 9. umferð er heklað með litnum ljós blár.
Frá 10. umferð er heklað með litnum ljós þveginn.
Þegar öll mynsturteikningin A.1a og A.1b hefur verið hekluð til loka á hæðina mælist ferningurinn ca 24 x 24 cm. Klippið frá.

Haldið nú áfram þannig:
Byrjið með litnum ljós þveginn í 4. fastalykkju á undan einu horni á ferningnum og heklið frá 3. umferð í mynsturteikningu þannig (1. og 2. umferðin hefur nú þegar verið hekluð): Heklið A.2a í fastalykkju (A.2a sýnir hvernig umferðin byrjar og endar, heklið A.2b yfir fyrstu 3 loftlykkjubogana , * heklið A.2c (= horn), heklið A.2b yfir næstu 9 loftlykkjubogana (= 3 mynstureiningar), * endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar, heklið A.2c í hornið og endið með A.2b yfir þá 6 loftlykkjubogana sem eftir eru (= 2 mynstureiningar) í umferð. Þegar 6. umferðin í mynsturteikningu A.2a til A.2c hefur verið hekluð til loka er klippt frá og festið enda.
Heklaði ferningurinn mælist ca 37 x 37 cm.

Skiptið yfir í litinn ljós blár og heklið síðan yfir 2 af hliðum á ferningnum - sjá útskýringu A.4 og hliðar merktar með A:

Festið þráðinn með 1 fastalykkju og loftlykkjuboga í eitt hornið, heklið 3 loftlykkjur og 5 stuðla um loftlykkjubogann í horni, heklið síðan síðustu umferðina í A.2b þar til 2 loftlykkjubogar eru eftir á undan horni, heklið síðustu umferðina í A.2c, haldið síðan áfram með síðustu umferðina í A.2b fram að næsta horni, heklið 5 stuðla um loftlykkjubogann. Nú er stærð S/M lokið.
Í stærð L/XL og XXL/XXXL er haldið áfram þannig:

Stærð L/XL:
Snúið stykkinu og heklið 2. umferð í mynsturteikningu þannig: Heklið A.3a, heklið síðan A.3b fram að næsta horni, heklið A.3c um loftlykkjubogann í horni, snúið og heklið síðustu umferðina í mynsturteikningu A.3a til A.3c til baka. Klippið frá. Heklið alveg eins og í hinni hliðinni merktri með A – sjá útskýringu A.4. Nú er stærð L/XL lokið. (L/XL hefur 2 umferðir fleiri en S/M).

Stærð XXL/XXXL:
Snúið stykkinu og heklið frá 2. umferð í mynsturteikningu þannig: Heklið A.3a, síðan er heklað A.3b fram að næsta horni, heklið A.3c um loftlykkjubogann í horni. Snúið og heklið síðustu umferð í mynsturteikningu A.3a til A.3c til baka.Heklið 2. og 3. umferð í mynsturteikningu A.3a til A.3c 1 sinni til viðbótar á hæðina. Klippið frá. Heklið alveg eins í hinni hliðinni merktri með A – sjá útskýringu A.4. Nú er stærð XXL/XXXL lokið. (XXL/XXXL hefur 4 umferðir fleiri en S/M).

ALLAR STÆRÐIR: Heklið 1 ferning alveg eins = 2 alveg eins heklaðir ferningar, en við miðju að framan og við miðju aftan á poncho.

HEKLAÐIR FERNINGAR 2 (= hliðar):
Byrjið með heklunál 3,5 með litnum ljós þveginn og heklið ferninga alveg eins og heklaður ferningur 1, en þegar 6. umferð (= næst síðasta umferð) í mynsturteikningu A.2a til A.2c hefur verið hekluð til loka er klippt frá og endi festur.
Skiptið yfir í litinn ljós blár og heklið síðan yfir 3 af hliðum á ferningi – sjá útskýringu A.5 og hliðar merktar með B og C þannig:
Festið enda með 1 fastalykkju um loftlykkjubogann í einu horni, heklið 3 loftlykkjur og 5 stuðla um loftlykkjubogann í horni, heklið síðan síðustu umferð í A.2b þar til 2 loftlykkjubogar eru eftir á undan næsta horni, * heklið síðustu umferð í A.2c, heklið síðan síðustu umferð í A.2b fram að næsta horni *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, heklið 5 stuðla um loftlykkjubogann í horni. Klippið frá og festið enda.

Heklið 1 ferning til viðbótar alveg eins = 2 alveg eins heklaðir ferningar fyrir hliðar í poncho.

FRÁGANGUR:
Leggið ferningana saman þannig að hliða A mæta hliðum B og hliðar C snúi upp að hálsi á poncho – sjá mynsturteikningu! Saumið saman ferninga kant í kant, þ.e.a.s. saumað er yst í lykkjubogana svo að saumurinn verði ekki þykkur. Klippið frá og festið enda.

KANTUR NEÐST:
Heklið kant neðst á poncho með litnum ljós blár þannig:
Byrjið í horni á ferningi við miðju að aftan, þ.e.a.s. í horni sem vísar niður á poncho og festið þráðinn með 1 fastalykkju um loftlykkjubogann, heklið 3 loftlykkjur og 5 stuðla um sama loftlykkjubogann ,* heklið 5 stuðla um hvern af næstu 13 loftlykkjubogum, heklið 4 stuðla um næsta loftlykkjuboga (= horn á ferningi), heklið 2-9-17 stuðla um ystu lykkjuna meðfram kanti á einingu á milli ferninga sem heklaðir eru með litnum ljós blár, heklið 4 stuðla um næsta loftlykkjuboga (= horn á næsta ferningi), haldið síðan áfram með 5 stuðla um hvern af næstu 13 loftlykkjubogum, heklið 4 stuðla um næsta loftlykkjuboga (= horn á næsta ferning), haldið síðan áfram með 5 stuðla um hvern af næstu 13 loftlykkjubogum, heklið 4 stuðla um næsta loftlykkjuboga (= horn á ferning), heklið 2-10-17 stuðla um ystu lykkju meðfram kanti á einingu á milli ferninga sem heklaðir eru með litnum ljós blár, heklið 4 stuðla um næsta loftlykkjuboga (= horn á ferningi), haldið síðan áfram með 5 stuðla um hvern af næstu 13 loftlykkjubogum, heklið (5 stuðla, 3 loftlykkjur, 5 stuðla) um hornið (= horn við miðju að framan) *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar en endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð, eftir (5 stuðla og 3 loftlykkjur) í horni við miðju að aftan = 225-240-255 stuðlar hvoru megin við loftlykkjuboga í horni við miðju að framan og við miðju að aftan.
Heklið nú mynstur frá 2. umferð í mynsturteikningu þannig: Heklið 1 loftlykkju (= kemur í stað fyrstu fastalykkju í A.2a), * heklið A.2b 15-16-17 mynstureiningar á breidd, heklið A.2c um loftlykkjuboga í horni við miðju að framan *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar. Haldið svona áfram hringinn þar til mynstur A.2a til A.2c hefur verið heklað til loka á hæðina. Klippið frá og festið enda.

HÁLSMÁL:
Kantur er heklaður með litnum ljós blár.
UMFERÐ 1: Byrjið einhversstaðar meðfram hlið C, festið enda með einni fastalykkju í bilið á milli 2 hópa með stuðlum (1 hópur = 5 stuðlar sem heklaðir eru um sama loftlykkjuboga). Heklið * 5 loftlykkjur, hoppið yfir ca 2 cm, 1 fastalykkja um bilið á milli næstu 2 stuðla *, endurtakið frá *-* hringinn allt hálsmálið. ATH: Stillið af að hekluð er 1 fastalykkja í hornið við miðju að framan og við miðju að aftan. Endið með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju í byrjun umferðar.

Endið með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju í byrjun umferðar.
UMFERÐ 2:
Heklið 3 loftlykkjur, * heklið 5 stuðla um fyrsta/næsta loftlykkjuboga *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn, en í loftlykkjuboga hvoru megin við hornið við miðju að framan og við miðju að aftan eru heklaðir 3 stuðlar um loftlykkjubogana. Endið umferðina með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkjuna í byrjun umferðar. Klippið frá og festið enda.

TVINNUÐ SNÚRA:
Klippið 4 þræði ca 2,5 metra með litnum ljós þveginn. Tvinnið þá saman þar til þeir taka í, leggið snúruna tvöfalda saman og þá kemur hún til með að tvinna sig aftur saman. Hnýtið einn hnút í hvorn enda. Þræðið snúruna upp og niður í loftlykkjubogana, þ.e.a.s. í 1. umferð í kanti á hálsi og hnýtið einn hnút við miðju framan á poncho.

Mynstur

symbols = heklið 4 loftlykkjur og tengið þær í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju
symbols = 1 loftlykkja
symbols = 1 fastalykkja um loftlykkjuboga/á milli 2 stuðla
symbols = umferðin byrjar með 2 loftlykkjur og endar með 1 keðjulykkju í 2. loftlykkju í byrjun umferðar, heklið síðan keðjulykkjur fram að miðju á fyrsta loftlykkjuboga
symbols = umferðin byrjar með 2 loftlykkjur og endar með 1 keðjulykkju í 2. loftlykkju í byrjun umferðar, heklið síðan keðjulykkjur upp að 2. loftlykkjuboga
symbols = umferðin byrjar með 1 loftlykkju og endar með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju í byrjun umferðar
symbols = umferðin byrjar með 5 loftlykkjur og endar með 1 keðjulykkju í 5. loftlykkju í byrjun umferðar
symbols = heklið 2 stuðla saman um loftlykkjuhring/loftlykkjuboga þannig: Heklið 1 stuðul, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 stuðul til viðbótar, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin, dragið þráðinn í gegnum allar lykkjur á heklunálinni
symbols = umferðin byrjar með 3 loftlykkjur og endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar
symbols = umferðin byrjar með 3 loftlykkjur og endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar, heklið síðan keðjulykkjur fram að fyrsta loftlykkjuboga
symbols = umferðin byrjar með 2 loftlykkjur og endar með 1 keðjulykkju í 2. loftlykkju í byrjun umferðar
symbols = 1 stuðull um loftlykkjuboga
symbols = 1 stuðull í lykkju
symbols = 1 hálfur stuðull um loftlykkjuboga/um bilið á milli 2 þríbrugðna stuðla
symbols = 1 tvíbrugðinn stuðull um loftlykkjuboga
symbols = 1 þríbrugðinn stuðull í lykkju/um loftlykkjuboga
symbols = í þessari umferð er heklað með ljós blár
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 177-19

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (10)

country flag Ilse wrote:

For the 2x squares for sides, do you work the increase rows for L/XL the same as the front and back? If not, how do you attach the front/back to sides with the 5DC groups not the same count?

21.01.2023 - 10:39

DROPS Design answered:

Dear Ilse, there are no further increase on side -squares, when you worked the sides A on first 2 squares, you didn't increase neither, just just make these 2 sides longer than the 2 other ones, so that the sides A all squares should be the same width. Happy crocheting!

23.01.2023 - 08:53

country flag Margaret wrote:

I made the first 2 (front and back) squares but I am having trouble understanding the 2 side squares. Mine comes out shorter than the first 2 squares. Does not look correct. I am new at reading diagrams but I really want to make this poncho for my daughter.

24.03.2020 - 20:14

DROPS Design answered:

Dear Margaret, the squares on the sides should be smaller than the first 2 but you should have same number of stitches on sides B than on sides A from these 2 first squares. Happy crocheting!

25.03.2020 - 09:46

country flag Lorry wrote:

Found it! Thank you for your patience with my questions and for your timely replies. I'm looking forward to more purchases with your company. This has been a very positive experience.

13.08.2018 - 13:17

country flag Lorry wrote:

I am trying to find A.1a which I believe does not appear on your patter. I’m writing again because I have looked again right below the symbols as you answered and all I see is A.1b and to the right of that is A.2c but not A.1a. I would be most appreciative if you would reply again after double checking this. Thank you.

11.08.2018 - 16:35

DROPS Design answered:

Dear Lorry, diagram A.1a is next to the circle in which A.1b is written, and it shows only how to start and finish the rounds. Look in the top right next to A.1b and you'll find A.1a. Happy crafting!

12.08.2018 - 17:11

country flag Lorry Ciporkin wrote:

Pattern refers to diagram A.1.a but I’m unable to identify which that is on pattern. The other references are all there but not this one. \r\n\r\nThank you.

10.08.2018 - 21:12

DROPS Design answered:

Dear Lorry, diagram A.1 is at the bottom of the pattern, just below the diagram symbols. Happy crafting!

11.08.2018 - 15:43

country flag Leah wrote:

Are you able to provide measurements to consider which size to make?

03.08.2018 - 13:35

DROPS Design answered:

Dear Leah, you will find all finished measurements in the chart at the bottom of the pattern. Compare these to a similar garment you have and like the shape to find out the matching size - measurements are taken flat from side to side - and in cm. Happy crocheting!

03.08.2018 - 15:21

country flag Jannie Hansen wrote:

Synes det er træls at opskriften kun er i forvirret diagram. Så jeg må droppe den.....

09.01.2018 - 20:55

country flag LINDA HANSEN wrote:

GREAT PONCHO! PLEASE INCLUDE!

17.01.2017 - 19:12

country flag Elisabeth wrote:

Smuk Poncho

14.12.2016 - 14:58

country flag Lauren McRoberts wrote:

What a beautiful poncho, and very much in style! I would love to have this one included!

14.12.2016 - 13:33