DROPS Belle
DROPS Belle
53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5742.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 177-11
DROPS Design: Mynstur nr vs-032
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS BELLE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
450-500-500-550-650-700 g litur 01, hvítur

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 + 60 eða 80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 lykkjur og 28 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Belle
DROPS Belle
53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5742.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

LASKALÍNA:
Fækkið um 2 lykkjur í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma.
Fækkið frá réttu þannig:
Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan næsta prjónamerki. Prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir.

LEIÐBEININGAR:
Ef prjónfestan passar ekki á hæðina og prjónað er of fast þá kemur laskaúrtakan að verða of stutt og handvegurinn of lítill. Þetta er hægt að jafna út með því að prjóna 1 auka umferð án úrtöku með jöfnu millibili á milli umferða með úrtöku.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stutta hringprjóna. Síðan er fram- og bakstykki og ermar sett á sama hringprjón og prjónað er í hring og laskalína gerð.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 184-200-216-236-268-284 lykkjur á hringprjóna 4 með Belle. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan þannig:
1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* yfir næstu 4-8-12-8-16-20 lykkjur, * A.1 A (= 6 lykkjur), A.2 A (= 12 lykkjur) *, prjónið frá *-* alls 4-4-4-5-5-5 sinnum, A.1 A, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* yfir næstu 12-20-28-20-36-44 lykkjur, 2 lykkjur slétt, * A.1 A (= 6 lykkjur), A.2 A ( = 12 lykkjur) *, prjónið frá *-* alls 4-4-4-5-5-5 sinnum, A.1 A, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* yfir næstu 4-8-12-8-16-20 lykkjur, 2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið. Haldið áfram með þetta mynstur þar til stykkið mælist 8 cm, haldið síðan áfram með A.1B yfir A.1A og A.2B yfir A.2A og sléttprjón yfir 14-22-30-22-38-46 lykkjur með stroffi í hvorri hlið. Þegar A.1B hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er haldið áfram með A.1 C yfir A.1 B, nú eru 194-210-226-248-280-296 lykkjur í umferð. Setjið 2 prjónamerki í stykkið, 1 í byrjun á umferð og 1 eftir 97-105-113-124-140-148 lykkjur = hliðar. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 34-34-35-35-35-35 cm fellið af 8-8-10-10-12-14 lykkjur á hvorri hlið (= 4-4-5-5-6-7 lykkjur hvoru megin við hvert prjónamerki) = 89-97-103-114-128-134 lykkjur á framstykki og bakstykki. Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMAR:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, skiptið yfir á hringprjóna þegar nægilega margar lykkjur eru komnar á prjóninn. Fitjið upp 38-38-42-42-46-46 lykkjur á sokkaprjóna 4 með Belle. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan þannig:

Stærð S-M-XXL-XXXL: 1 lykkja brugðið, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* yfir næstu 4-4-8-8 lykkjur, 2 lykkjur slétt, A.1 A, A.2 A, A.1A, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* yfir næstu 4-4-8-8 lykkjur, 2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið.
Stærð L-XL: 1 lykkja slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt * prjónið frá *-* yfir næstu 8 lykkjur, A.1 A, A.2 A, A.1A, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* yfir næstu 8 lykkjur, 1 lykkja slétt.

Haldið áfram með þetta mynstur þar til stykkið mælist 8 cm, haldið síðan áfram með A.1B yfir A.1A og A.2B yfir A.2A og sléttprjón yfir 14-14-18-18-22-22 lykkjur með stroffi. Þegar A.1 B hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er haldið áfram með A.1 C yfir A.1 B, nú eru 40-40-44-44-48-48 lykkjur í umferð. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar = mitt undir ermi. Þegar stykkið mælist 10-10-10-12-12-12 cm aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki, útauknu lykkjurnar eru prjónaðar i sléttprjóni. Aukið út með 2-1½-1½-1-1-1 cm millibili alls 15-19-21-23-23-25 sinnum = 70-78-86-90-94-98 lykkjur. Þegar stykkið mælist 48-47-47-46-44-43 cm, passið uppá að næsta umferð sem er prjónuð sé sama umferð í mynstri og endað var á fram- og bakstykki, í næstu umferð er fellt af 8-8-10-10-12-14 lykkjur mitt undir ermi = 62-70-76-80-82-84 lykkjur. Prjónið hina ermina á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handvegi = 302-334-358-388-420-436 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í hverja skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma = 4 prjónamerki. Haldið áfram með mynstur eins og áður, JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Mismunandi er fækkað á fram- og bakstykki og ermum. Fækkið lykkjum þannig:

LASKALÍNA ERMI:
Fækkið lykkjum í 4. hverri umferð 3-2-0-0-2-4 sinnum, í annarri hverri umferð 17-22-24-28-28-27 sinnum, síðan í hverri umferð 0-0-3-1-0-0 sinnum (alls 20-24-27-29-30-31 sinnum).

LASKALÍNA Á FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fækkið lykkjum í annarri hverri umferð 19-22-22-23-23-26 sinnum og í hverri umferð 5-5-7-11-17-16 sinnum (alls 24-27-29-34-40-42 sinnum).

Eftir allar úrtöku eru 126-130-134-136-140-144 lykkjur í umferð. Prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í fyrstu umferð er fækkað um 34-34-34-32-32-32 lykkjur jafnt yfir = 92-96-100-104-108-112 lykkjur. Prjónið síðan stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op fyrir miðju undir ermum.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 06.07.2017
FRAM- OG BAKSTYKKI:..* A.1 A (= 6 lykkjur), A.2 A ( = 12 lykkjur) *, prjónið frá *-* alls 4-4-4-5-5-5 sinnum, A.1 A, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðnar *, prjónið frá *-* yfir næstu 4-8-12-8-16-20 lykkjurnar, 2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðin.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
symbols = engin lykkja, hoppið yfir þessa rúðu
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 2 lykkjur í næstu lykkju, steypið lyftu lykkjunni yfir
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skipper

Monika, Poland

Skipper

Alfia, Russian Federation

S k i p p e r

Nina, United States

Skrifaðu athugasemd um DROPS 177-11

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (87)

country flag Bree wrote:

I\'m trying to decide what size would look best and having a hard time finding information. Is the picture of the sweater with measurements in cm? What size is the model wearing? Is there a recommended positive ease? Thank you!

13.08.2023 - 22:18

DROPS Design answered:

Hi Bree, You will find a measurements chart at the bottom of the page, with all the measurements for the different sizes. The shape of the pattern will be as shown in the picture if you find your correct size. Happy crafting!

14.08.2023 - 06:38

country flag Ans Schouten wrote:

Mt M: 1 av, 2 re*2 av/ 2 re* brei van *-* over de VOLGENDE 8 st. Daar zou moeten staan: in TOTAAL 8 st. (dus geen 12 maar 8 st) Patr. gecorrigeerd, klik om correcties te bekijken: In het patr. hierboven staat 1x : brei van*-* over de volgende 20 st.. Wanneer je de correctie leest, zou je kunnen denken dat de 20 st. moeten vervangen worden door 8st, zoals de andere 8 st. Eind resultaat zorgt voor verwarring, want je hebt ook 200 st. maar het lijfpatr. slui niet aan boven het boordpatr.

25.02.2023 - 12:22

country flag Ans Schouten wrote:

Dank! Gevonden! (2 x de laatste A1 vergeten) Alleen, volgende probleem....volg ik het patroon naar B1 en B2 heb ik eerst15 steken tricot, dan patroon, weer 12 tricotst. dan patroon, en als laatste 15 steken tricot. Dus ik heb 30 tricotsteken aan de ene zijde en 12 aan de andere zijde. Ik kan nergens de 22 steken tricot vinden (mt M) (Ik heb wel 2010 steken na B1 en B2)

18.02.2023 - 16:28

country flag Ans Schouten wrote:

Goedendag. 2 weken geleden vroeg ik hoe de overgang boord naar lijf moest verlopen. Wanneer ik het patroon volg gebruik ik maar 188 st ipv 200 st (maat M) Kunt u de eerste nld na het boord verduidelijken?

16.02.2023 - 17:09

DROPS Design answered:

Dag Ans,

Als ik alles optel zoals beschreven in het patroon kom ik precies op 200 steken uit. Wat tussen de sterretjes staat moet je een aantal keren herhalen, zoals aangegeven in je maat (of over een bepaald aantal steken breien).

18.02.2023 - 10:23

country flag Ans Schouten wrote:

Maat : Opzetten lijf 200 st. Na 8 cm B1 boven A1: 8x6=48st. B2 bovenA2: 8x12=96 st. Tricotsteek over 22 steken aan beide kanten= 44 st. Dan kom ik op 188 steken ipv 200. Welke 12 steken mis ik en hoe brei ik deze?

02.02.2023 - 14:48

country flag Clara wrote:

Mönstret stämmer inte i stl S. För att få första mönstervarvet att gå ihop behövs 196 m istället för 184 SAMT att man får 4 m fler i resåren på ena sidan (den där varvet börjar och slutar). Jag har löst det genom att ta bort en rät och en avig maska i början och slutet.

03.07.2022 - 23:00

country flag Anne Prelle wrote:

Bonjour, je voudrais tricoter ce pull en aller-retour. Dois-je diviser le nombre de mailles par 2 ? 50% pour le dos et 50% pour le devant ? Vous remerciant d'avance.

21.05.2022 - 21:19

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Prelle, cette leçon vous explique comment procéder, pensez à bien ajouter les mailles lisières à chaque pièce que vous tricoterez. Il peut toutefois parfois être plus simple de tricoter en rond, n'hésitez pas à consulter nos vidéos si besoin, nombreuses sont celles qui ont finalement adopté les aiguilles circulaires après les avoir essayées. Bon tricot!

23.05.2022 - 08:09

country flag HUBERT Eliane wrote:

Seconde question : pourquoi les explications concernant le dos et devant ne font pas état des rangs de côtes ( bas du pull) ?

11.05.2022 - 19:05

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Hubert, le bas du dos et du devant se tricotent soit en côtes 2 mailles endroit/2 mailles envers (cf réponse précédente) soit en suivant les diagrammes A.1A et A.2A, autrement dit, les premiers rangs des diagrammes qui se tricotent en côtes mais différemment. Bon tricot!

12.05.2022 - 08:44

country flag HUBERT Eliane wrote:

Explications techniques du modèle DROPS 177-11 non comprises. Que doit-on comprendre dans ces termes - tricoter de *_* au dessus des 8 mailles suivantes, *A.1.A(=6mailles),A2.A(=12mailles)*, tricoter de *_* 4 fois au total, A1.A, *2mailles endroit/2 mailles envers*, tricoter de *_* au-dessus des 20 mailles suivantes, 2mailles endroit,*A.1A(=6mailles),A.2A(=12mailles) etc....

11.05.2022 - 18:59

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Hubert, tricotez les 8 mailes suivantes comme indiqué, autrement dit, si vous devez par exemple tricoter *2 mailles endroit, 2 mailles envers* au-dessus des 8 mailles suivantes, vous répétez 2 fois (2 m end, 2 m env) (= 8 m au total). Au-dessus de 20 mailles, vous répétez 5 fois (2 m end, 2 m env). En espérant que ceci puisse vous aider. Bon tricot!

12.05.2022 - 08:43

country flag Astrid Kuhlmann wrote:

Ich habe den Pullover fertiggestellt und bin sehr zufrieden, es geschafft zu haben. Üblicherweise dämpfe ich meine Strickobjekte nach der Fertigstellung. Bei diesem Loch-Zopfmuster bin ich mir unsicher, ob ich es waschen oder dämpfen soll, und welche Erfahrungen gibt es mit dem Pullover nach der Wäsche? Wird er größer? Wird er kleiner? Ich bin sehr unsicher und freue mich über einen Hinweis. Danke für Ihre Mühe.

31.01.2022 - 22:27

DROPS Design answered:

Liebe Frau Kuhlmann, einige Strickerinnen spannen jedes Strickstück, andere spannen niemals, das ist ja je nach jeder. Sie können einfach den Pullover waschen, immer die Hinweisen auf der Banderolle richtig folgen; hier lesen Sie noch mehr. Ihr DROPS Laden hilft Ihnen auch gerne damit, auch telefonisch oder per E-Mail. Viel Spaß beim stricken!

01.02.2022 - 09:00