DROPS Cotton Light
DROPS Cotton Light
50% Bómull, 50% Polyester
frá 374.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4862.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Lilac Dream

Hekluð ferhyrnd peysa með gatamynstri og stuttum ermum úr DROPS Cotton Light. Stærð S - XXXL.

DROPS 177-28
DROPS Design: Mynstur cl-072
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL
Efni:
DROPS COTTON LIGHT frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
650-700-800-850-950-1050 g litur 23, ljós fjólublár

DROPS HEKLUNÁL NR 4,5 – eða þá stærð sem þarf til að 16 tvíbrugðnir stuðlar/þríbrugðnir stuðlar verði 10 cm á breidd. 1 mynstureining með A.6B mælist ca 5,5 á breidd.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Cotton Light
DROPS Cotton Light
50% Bómull, 50% Polyester
frá 374.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4862.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun á hverri umferð með fastalykkjum er byrja með 1 loftlykkju, þessi loftlykkja kemur ekki í stað fyrstu fastalykkju. Þegar heklað er í hring endar umferðin með 1 keðjulykkju í loftlykkju.
Í byrjun hverrar umferðar með stuðlum er fyrsta stuðli skipt út fyrir 3 loftlykkjur. Þegar heklað er í hring endar umferðin með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju.
Í byrjun hverrar umferðar með tvíbrugðnum stuðlum er fyrsta tvíbrugðna stuðlinum skipt út fyrir 4 loftlykkjur. Þegar heklað er í hring endar umferðin með 1 keðjulykkju í 4. loftlykkju.

3 TVÍBRUGÐNIR STUÐLAR HEKLAÐIR SAMAN:
Heklið 3 tvíbrugðna stuðla saman í 1 tvíbrugðinn stuðul þannig: Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 tvíbrugðinn stuðul til viðbótar alveg eins, heklið 1 tvíbrugðinn stuðul til viðbótar alveg eins og dragið síðan þráðinn í gegnum allar 4 lykkjurnar á heklunálinni.

3 ÞRÍBRUGÐNIR STUÐLAR HEKLAÐIR SAMAN:
Heklið 3 þríbrugðna stuðla saman í 1 þríbrugðinn stuðul þannig: Heklið 1 þríbrugðinn stuðul, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 þríbrugðinn stuðul til viðbótar alveg eins, heklið 1 þríbrugðinn stuðul til viðbótar alveg eins og dragið síðan þráðinn í gegnum allar 4 lykkjurnar á heklunálinni.

FJÓRBRUGÐNIR STUÐLAR:
Bregðið þræðinum 4 sinnum um heklunálina, sækið þráðinn undir loftlykkjubogann, * bregðið þræðinum um heklunálina, dragið þráðinn í gegnum 2 fyrstu/næst lykkjurnar á heklunálinni *, endurtakið frá *-* alls 5 sinnum = 1 lykkja á heklunálinni.

3 FJÓRBRUGÐNIR STUÐLAR HEKLAÐIR SAMAN:
Heklið 3 fjórbrugðna stuðla saman í 1 fjórbrugðinn stuðul þannig: Heklið 1 fjórbrugðinn stuðul, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 fjórbrugðinn stuðul til viðbótar alveg eins. Heklið 1 fjórbrugðinn stuðul til viðbótar alveg eins og dragið síðan þráðinn í gegnum allar 4 lykkjurnar á heklunálinni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring frá miðju aftan á baki og út.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Heklið 6 loftlykkjur með heklunál 4,5 með Cotton Light og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrsta loftlykkju.
Heklið í hring eftir mynsturteikningu A.1. Eftir 2 umferð í A.1 er heklað þannig: Heklið A.2 1 sinni, endurtakið A.3 alls 3 sinnum og endið með A.4. Haldið svona áfram hringinn.
ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Þegar ferningurinn hefur verið heklaður eru 54 tvíbrugðnir stuðlar meðfram hverri hlið og 6 loftlykkjur í hverju horni. Ferningurinn mælist ca 34 x 34 cm. Klippið frá. LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR og LESIÐ ÞAÐ SEM EFTIR ER AF KAFLA Á FRAM- OG BAKSTYKKI ÁÐUR EN HALDIÐ ER ÁFRAM!

Byrjið í einu horni og heklið í hring eins og útskýrt er í A.5, þ.e.a.s. * heklið A.5A 1 sinni, endurtakið A.5B þar til 4 lykkjur eru eftir á undan næsta horni, heklið A.5C 1 sinni *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum. ATH: Umferð merkt merð stjörnu í mynsturteikningu sýnir síðustu umferð á ferningi (A.2-A.4), þessi umferð hefur nú þegar verið hekluð. Til að mynstrið gangi jafnt upp með réttum fjölda loftlykkjuboga og mynstureiningar verður jafna til umferðir merktum með ör í mynsturteikningu til rétta fjölda stuðla eins og útskýrt er að neðan.

ÖR-1: Jafnið til 74 stuðla meðfram hverri hlið meðtöldum stuðlum í hornum (þ.e.a.s. heklið ca 4 stuðla um hvern loftlykkjuboga – lykkjufjöldi á að vera deilanlegur með 10 + 14).
ÖR-2: Jafnið til 94 stuðla meðfram hverri hlið meðtöldum stuðlum í hornum (þ.e.a.s. heklið ca 4 stuðla um hvern loftlykkjuboga – lykkjufjöldi á að vera deilanlegur með 10 +14).
Þegar A.5 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina eru endurteknar síðustu 4 umferðirnar í A.5. JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður til í hverri umferð með stuðlum þannig að lykkjufjöldinn sé deilanlegur með 10 +14 meðfram hverri hlið (mynstureining eykst með 2 stuðlahópum á breidd í hvert skipti sem hún er endurtekin á hæðina – ATH: Með réttum lykkjufjölda þá kemur hver umferð eftir umferð með stuðlum að vera hekluð þannig (með byrjun í horni): 1 fastalykkja + 6 loftlykkjur + 1 fastalykkja um loftlykkjuboga í horni, * 5 loftlykkjur, hoppið yfir 4 stuðla, 1 fastalykkja í næsta stuðul *, endurtakið frá *-* þar til 4 stuðlar eru eftir í horni, hoppið yfir þessa 4 stuðla, heklið 1 fastalykkju + 6 loftlykkjur + 1 fastalykkja um loftlykkjuboga í horni. Haldið svona áfram meðfram öllum hliðum á ferning.

JAFNFRAMT þegar ferningurinn mælist ca 36-38-40-42-44-46 cm x 36-38-40-42-44-46 cm heklið nú handveg þannig: Heklið A.5 eins og áður fram að fyrsta horni, heklið um loftlykkjubogann í horni eins og áður. Heklið nú loftlykkjur fram að miðju á næstu hlið (þ.e.a.s. mitt á milli fyrsta og annars horns) þannig: heklið 1 loftlykkju fyrir hverja loftlykkju/stuðul sem hoppað var yfir. Heklið síðan mynstur eins og áður fram að miðju á milli 3. og 4. horns. Heklið nú loftlykkjur fram að 4. horni þannig: Heklið 1 loftlykkju fyrir hverja loftlykkju/stuðul sem hoppað var yfir, heklið um loftlykkjubogann í horni og síðan umferðina út eins og áður. Í næstu umferð er heklað A.5 eins og áður aftur yfir allar lykkjur (þ.e.a.s. að mynstrið er stillt af yfir handveg svo að umferðin verði rétt).
Haldið áfram með A.5 hringinn þar til ferningurinn mælist ca 72-74-76-78-80-82 cm x 72-74-76-78-80-82 cm (þ.e.a.s. ca 18 cm frá handveg í öllum stærðum) – stillið af að endað sé eftir umferð með stuðlum og að lykkjufjöldi meðfram hverri hlið sé deilanleg með 10 + 6 (meðtaldir stuðlar í horni). Klippið frá og setjið 1 prjónamerki í stykkið (á milli fyrsta og annars horns).

FRAMSTYKKI:
Byrjið frá röngu og heklið fram og til baka á milli fyrsta og annars horns.
ATH! Framstykki er heklað án útaukninga. Heklið A.6 frá fyrsta horni, þ.e.a.s. heklið þannig:
A.6A (= 1 lykkja), endurtakið A.6B þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð og endið með A.6C (= 5 lykkjur). Haldið áfram með mynstur eins og sýnt er í mynsturteikningu og endurtakið A.6 þar til heklað hefur verið fram og til baka í ca 22-23-24-25-26-27 cm frá prjónamerki (endið eftir einni umferð með loftlykkjubogum). Klippið frá og festið enda. Heklið alveg eins í hinni hliðinni á stykki (þ.e.a.s. heklið fram og til baka á milli þriðja og fjórða horni.

KANTUR:
Byrjið frá réttu og heklið eina umferð með loftlykkjubogum í kringum allt stykkið þannig: Heklið * 6 loftlykkjur, hoppið fram ca 2½ cm, 1 fastalykkja um loftlykkjuboga/í næstu lykkju *, endurtakið frá *-*, en í hvert horn er hekluð 1 fastalykkja, 6 loftlykkjur, 1 fastalykkja. Klippið frá og festið enda.

ERMI:
Ermin er hekluð beint út frá handveg á fram- og bakstykki. Heklað er fram og til baka, ofan frá og niður og saumað saman í lokin. Byrjið frá röngu mitt undir ermi (byrjið á umferð 3 í A.6 – þ.e.a.s. í einni umferð með litlum loftlykkjubogum): Heklið 1 keðjulykkju um fyrsta loftlykkjuboga, heklið A.6A 1 sinni, endurtakið A.6B alls 6-7-7-8-8-8 sinnum og endið með A.6C 1 sinni. Haldið áfram með A.6 fram og til baka (á eftir næstu umferð eru 66-76-76-86-86-86 stuðlar í umferð). Stillið nú af að næsta umferð með stuðlum sé 56-66-66-76-76-76 stuðlar í umferð og að lokum 46-56-56-66-66-66 stuðlar í umferð. Þegar ermin mælist ca 21 cm í öllum stærðum – endið eftir eina umferð með stuðlum í mynstri, heklið fyrst eina umferð með loftlykkjubogum alveg eins og í umferð á eftir einni stuðlaumferð í A.6.
Snúið stykkinu og heklið síðustu umferð þannig: 4 loftlykkjur, 1 fastalykkja um fyrsta loftlykkjuboga, * 6 loftlykkjur, 1 fastalykkja um næsta loftlykkjuboga *, endurtakið frá *-* út umferðina, heklið 2 loftlykkjur og endið með 1 fastalykkju í síðustu fastalykkju í umferð. Klippið frá og festið enda.
Heklið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið sauma undir ermum kant í kant í ystu lykkjubogana – passið uppá að saumurinn verði ekki stífur.

Mynstur

symbols = loftlykkja
symbols = keðjulykkja
symbols = fastalykkja um loftlykkjuboga
symbols = fastalykkja í lykkju
symbols = þríbrugðinn stuðull um loftlykkju/loftlykkjuboga
symbols = tvíbrugðinn stuðull í lykkju
symbols = tvíbrugðinn stuðull um loftlykkjuboga
symbols = þríbrugðinn stuðull um loftlykkju/loftlykkjuboga
symbols = þríbrugðinn stuðull í lykkju
symbols = 3 TVÍBRUGÐNIR STUÐLAR HEKLAÐIR SAMAN (um eina loftlykkju/loftlykkjuboga) – sjá útskýringu í mynstri
symbols = 3 TVÍBRUGÐNIR STUÐLAR HEKLAÐIR SAMAN (um eina loftlykkju/loftlykkjuboga) – sjá útskýringu í mynstri
symbols = 3 ÞRÍBRUGÐNIR STUÐLAR HEKLAÐIR SAMAN (um einn loftlykkjuboga) – sjá útskýringu í mynstri
symbols = 3 FJÓRBRUGÐNIR STUÐLAR HEKLAÐIR SAMAN (um einn loftlykkjuboga) – sjá útskýringu í mynstri
symbols = sýnir síðustu umferð frá fyrri mynsturteikningu, umferðin hefur nú þegar verið hekluð
symbols = 6 loftlykkjur, 1 keðjulykkja í fyrstu loftlykkju (sjá punkt í hring, umferðin byrjar og endar hér)
symbols = útaukning/úrtökuumferð
diagram
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 177-28

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (18)

country flag Anne wrote:

Hei, ihana malli mutta en ymmärtänyt mitä tarkoittaa ohjeessa silmukkaluvun tulee olla 10 + 14 silmukalla jaollinen?

26.06.2023 - 00:17

DROPS Design answered:

Hei, tämä tarkoittaa, että silmukkaluvun tulee olla luvulla 10 jaollinen, ja tähän silmukkalukuun tulee vielä ylimääräiset 14 silmukkaa (esim. 100 silmukkaa + 14 silmukkaa).

27.06.2023 - 13:58

country flag Ytje-afke Bolhuis-luchtenveld wrote:

Jammer dat niet in het Nederlands geschreven is

24.06.2023 - 23:32

country flag Nelly Salvadore wrote:

Non mi è chiara la spiegazione. c,è un tutorial per questo modello? sullo stampato non c,è il diagramma A5

24.04.2022 - 09:37

DROPS Design answered:

Buongiorno Nelly, provi a ristampare il modello: il diagramma A.5 dovrebbe essere nella pagina 6 della stampa. Buon lavoro!

24.04.2022 - 16:32

country flag Sarah wrote:

Hello, I cannot find the size chart for this pattern. Perhaps it wasn’t uploaded in error? Thanks.

31.03.2022 - 23:51

DROPS Design answered:

Hi Sarah, The size chart is at the bottom of the pattern. Happy crafting!

01.04.2022 - 06:49

country flag Christiane wrote:

Bonjour, je souhaiterais faire des manches plus longues 7/8eme' comment procéder ?

20.04.2021 - 17:52

DROPS Design answered:

Bonjour Christiane, nous ne sommes malheureusement pas en mesure de pouvoir adapter chacun de nos modèles à chaque demande, vous pouvez vous adresser à votre magasin - même par mail ou téléphone - ou à un forum spécialisé. Merci pour votre compréhension. Bon crochet!

21.04.2021 - 07:17

country flag Ann Fornoville wrote:

Over het voorpand, is het de bedoeling om de rij met stokjes telkens aan te passen ?als ik het telpatroon volg met 3 stokjes in een boogje dan krijg ik telkens een mindering

06.08.2020 - 22:14

DROPS Design answered:

Dag Ann,

Op het voorpand haak je aan het begin van de toer steeds A.6a en aan het eind van de toer A.6c. Dus in het eerste en laatste boogje heb je dan 2 stokjes (aan het begin van de toer is het stokje vervangen door 3 lossen). Als het goed is blijft het aantal stokjes op de toer met stokjes dan steeds hetzelfde.

12.08.2020 - 09:10

country flag Daniella wrote:

What are the bust measurements of the lilac dreams pattern in inches/cm instead of letters. Like xxxl .

26.07.2019 - 10:19

DROPS Design answered:

Dear Daniella, for measurements in cm please see the chart under the pattern - the middle measurement specify distance between armholes, i.e. width of back. Hope this will be helpful for you. Happy crocheting!

26.07.2019 - 17:34

country flag Daniella wrote:

What are the bust measurements of the lilac dreams pattern in inches/cm instead of letters. Like xxxl .

25.07.2019 - 20:13

DROPS Design answered:

Dear Daniella, you could count it from chart with measurements under the pattern - see the distance between sleeves (= width of back). Happy crocheting!

26.07.2019 - 17:37

country flag Marja wrote:

Ik ben met het lijf bezig en moet de lossen haken voor het armsgat Mijn vraag is moet ik nu rond om stokjes in de lossen haken Want ik kom er niet uit

28.03.2019 - 22:46

country flag Laura wrote:

Come devo fare per realizzare la taglia L

26.10.2018 - 23:03

DROPS Design answered:

Buongiorno Laura, per realizzare questo modello nella taglia L deve seguire le istruzioni indicate e quando vengono riportati più numeri per la lavorazione (ad esempio quando il quadrato misura circa 36-38-40-42-44-46 cm) deve seguire il terzo numero indicato, che corrisponde alla taglia L. Buon lavoro!

15.11.2018 - 15:58