Elin skrifaði:
Very cute and simple but still a different and original shape.
22.12.2016 - 10:26
Gaby skrifaði:
Wunderschön, perfekt für sonnige Tage im Frühling, den stricke ich!!!
17.12.2016 - 21:06
Lea Cadie skrifaði:
C est le pull que j aimerai porter cet été à St Malo sur les remparts....
16.12.2016 - 15:42
Enigma#enigmasweater |
||||
![]() |
![]() |
|||
Peysa með laskalínu og stroffprjóni á berustykki, prjónuð ofan frá og niður úr DROPSA Air. Stærð S - XXXL.
DROPS 176-24 |
||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚTAUKNING: Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 76 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 12) = 6,3. í þessu dæmi þá er aukið út eftir ca 6. hverja lykkju. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. LASKALÍNA: Aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 4 lykkjur slétt meðfram hverri laskalínu (þ.e.a.s. í hverri skiptingu á milli fram- /bakstykkis og í hvorri hlið á ermum eins og útskýrt er í uppskrift. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo að ekki myndist gat – ATH: Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í stroff (þ.e.a.s. 3 fyrstu lykkjur eru prjónaðar slétt, næstu 4 eru prjónaðar brugðið, 3 næstu eru prjónaðar slétt, næstu 4 eru prjónaðar brugðið o.s.frv.). ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Ermarnar eru prjónaðar í hring á stutta hringprjóna/sokkaprjóna. BERUSTYKKI: Fitjið upp 76-76-76-76-86-86 lykkjur á stutta hringprjóna 5 með Air. Prjónið 3 umferðir slétt. Prjónið síðan 1 umferð slétt þar sem auknar eru út 12-12-12-12-16-16 lykkjur jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING = 88-88-88-88-102-102 lykkjur. Setjið 4 prjónamerki í stykkið þannig (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar): 1. prjónamerki er sett eftir fyrstu 15-15-15-15-18-18 lykkjur (= ½ bakstykki), 2. prjónamerki er sett á eftir næstu 15 lykkjur (= hægri ermi), 3. prjónamerki er sett á eftir næstu 29-29-29-29-36-36 lykkjur (= framstykki) og 4. prjónamerki er sett á eftir næstu 15 lykkjur (= vinstri ermi). Nú eru 14-14-14-14-18-18 lykkjur eftir á bakstykki á eftir síðasta prjónamerki. Næsta umferð er prjónuð þannig: STÆRÐ S + M + L + XL: 2 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið (= ½ bakstykki), 4 lykkjur slétt (= laskalína – prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 lykkja), 4 brugðið, 3 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið (= hægri ermi), 4 lykkjur slétt (= laskalína), * 4 lykkjur brugðnar, 3 lykkjur slétt *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, 4 lykkjur brugðið (= framstykki), 4 lykkjur slétt (= laskalína), 4 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið (= vinstri ermi), 4 lykkjur slétt (= laskalína), 4 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt (= ½ bakstykki). STÆRÐ XXL + XXXL: 2 lykkjur brugðið, * 3 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* alls 2 sinnum (= ½ bakstykki), 4 lykkjur slétt (= laskalína – prjónamerki er staðsett mitt í þessum 4 lykkjum), 4 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið (= hægri ermi), 4 lykkjur slétt (= laskalína),* 4 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum, 4 lykkjur brugðið (= framstykki), 4 lykkjur slétt (= laskalína), 4 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið (= vinstri ermi), 4 lykkjur slétt (= laskalína), 4 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið (= ½ bakstykki). Haldið svona áfram með stroff. JAFNFRAMT í næstu umferð byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan og aukið út þannig: FRAM- OG BAKSTYKKI: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin í hverri umferð alls 2-4-8-10-13-14 sinnum, síðan er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið í annarri hverri umferð alls 19-20-20-21-22-24 sinnum. ERMAR: Aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið í annarri hverri umferð alls 14-20-24-22-27-25 sinnum, síðan í 4. hverri umferð alls 3-1-0-2-1-3 sinnum. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Eftir allar útaukningar fyrir laskalínu eru 240-268-296-308-354-366 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 19-21-23-25-27-29 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan (þ.e.a.s. ca 23-25-27-29-31-33 cm frá öxl). Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 36-39-43-46-53-56 lykkjur sléttprjón (= ½ bakstykki), setjið næstu 49-57-63-63-71-71 lykkjur á þráð (= hægri ermi), fitjið upp 8 nýjar lykkjur á prjóni (= í hlið undir ermi), prjónið 71-77-85-91-106-112 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 49-57-63-63-71-71 lykkjur á þráð (= vinstri ermi), fitjið upp 8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 35-38-42-45-53-56 lykkjur sem eftir eru í sléttprjóni (= ½ bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 158-170-186-198-228-240 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi í hvorri hlið. Prjónið síðan sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 27 cm frá skiptingu er prjónuð 1 umferð þar sem aukið er út um 2-2-2-2-0-0 lykkjur jafnt yfir = 160-172-188-200-228-240 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjóna 4. Prjónið 2 umferðir stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Prjónið 2 umferðir sléttprjón. Skiptið til baka yfir á hringprjóna 5 og fellið laust af. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 49-57-63-63-71-71 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stutta hringprjóna 5. Prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 8 lykkjunum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 57-65-71-71-79-79 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu í öllum stærðum er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – LESIÐ ÚRTAKA. Fækkið svona með 3½-2-1½-1½-1-1 cm millibili alls 5-9-10-10-12-12 sinnum = 47-47-51-51-55-55 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til ermin mælist 20-19-18-17-14-13 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 1 lykkju í umferð = 48-48-52-52-56-56 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4. Prjónið 2 umferðir stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Prjónið 2 umferðir sléttprjón. Skiptið yfir á sokkaprjón 5 og fellið laust af. Ermin mælist ca 22-21-20-19-16-15 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||
Skýringar á teikningu |
||||
|
||||
![]() |
||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #enigmasweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 21 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 176-24
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.