DROPS Belle
DROPS Belle
53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4466.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

A Wistful Dream

Heklað poncho með gatamynstri og hekluðum ferningum, heklað ofan frá og niður úr DROPS Belle. Stærð S - XXXL.

DROPS 176-16
DROPS Design: Mynstur vs-036
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: S/M - L/XL - XXL/XXXL

Efni:
DROPS BELLE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
350-450-550 g litur 03, ljós beige
150-200-250 g litur 11, bleikfjólublár

DROPS HEKLUNÁL NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 18 stuðlar og 9 umferðir verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Belle
DROPS Belle
53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4466.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6.

HEKLLEIÐBEININGAR-1:
Fyrsta stuðli í byrjun umferðar er skipt út fyrir 3 loftlykkjur og endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar.

HEKLLEIÐBEININGAR-2 (mynsturteikning):
Hver umferð byrjar með 3 loftlykkjum og endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar.

LITIR:
Allt stykkið er heklað með litnum ljós beige fyrir utan 3 umferðir sem merktar eru með einum svörtum ferningi í mynsturteikningu, þessar umferðir eru heklaðar með litnum bleikfjólublár.
Ferningurinn er heklaður með litnum ljós beige fyrir utan 4. umferðina (= umferð með samanhekluðum stuðlum), þessi umferð er hekluð með litnum bleikfjólublár.

ÚTAUKNING-1:
Aukið út um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla í/um sömu lykkju.

ÚTAUKNING-2:
Aukið út um 1 stuðul + 1 loftlykkju með því að hekla 1 stuðul, 1 loftlykkju, 1 stuðul og 1 loftlykkju um sömu loftlykkju.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PONCHO - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Poncho er heklað í hring ofan frá og niður í 3 stykkjum sem eru hekluð saman. Byrjið með fyrsta stykki, síðan eru ferningarnir heklaðir hver fyrir sig sem stykki 2. Síðan eru ferningarnir settir saman og stykki 3 er heklað áfram þaðan. Lykkjur eru auknar út mitt að framan og mitt að aftan eins og útskýrt er í mynsturteikningu, annars er aukið út jafnt yfir meðfram hliðum.

STYKKI EITT:
Umferðin byrjar á vinstri öxl.
Heklið 146-178-206 loftlykkjur með heklunál 4 með litnum ljós beige og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Heklið 3 loftlykkjur – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR-1, heklið síðan 1 stuðul í hverja af næstu 5-3-5 loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, heklið 1 stuðul í hverja af næstu 4 loftlykkjum *, endurtakið frá *-* 5-7-8 sinnum til viðbótar (= 30-36-42 stuðlar), 1 loftlykkja (= miðjubogi að framan), heklið 1 stuðul í hverja af næstu 4-4-4 loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, heklið 1 stuðul í hverja af næstu 4 loftlykkjum *, endurtakið frá *-* 13-16-19 sinnum til viðbótar (= 60-72-84 stuðlar meðfram hlið), 1 loftlykkja (= miðjubogi að aftan), heklið 1 stuðul í hverja af næstu 6-4-6 loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, heklið 1 stuðul í hverja af næstu 4 loftlykkjum *, endurtakið frá *-* 5-7-8 sinnum til viðbótar (= 30-36-42 stuðlar meðfram hálfri hlið) = alls 120-144-168 stuðlar og 2 loftlykkjur í umferð. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!

Heklið síðan eftir mynsturteikningu – LESIÐ LITIR og HEKLLEIÐBEININGAR-2.
Aukið út í hverri stuðlaumferð merktri með ör – LESIÐ ÚTAUKNING-1!

A.1 er heklað þannig:
Heklið umferð 1-3 þannig: Heklið A.1A alls 5-6-7 sinnum, A.1B yfir miðjuboga, A.1A alls 10-12-14 sinnum, A.1B yfir miðjuboga, endið með A.1A alls 5-6-7 sinnum.
Heklið síðan síðustu umferð og aukið út um 23-23-23 stuðla jafnt yfir hvoru megin milli miðjuboga fram og miðjuboga að aftan.
Þegar A.1 er lokið á hæðina eru 100-112-124 stuðlar á milli loftlykkjuboga við miðju að framan og við miðju að aftan (= alls 200-224-248 stuðlar og 2 loftlykkjubogar í umferð).

A.2 er heklað þannig:
Heklið umferð 1-3 þannig: Heklið A.2A alls 8-9-10 sinnum, A.2B, A.2A alls 16-18-20 sinnum, A.2B, endið með A.2A alls 8-9-10 sinnum. Heklið síðan síðustu umferðina og aukið út 9-9-9 stuðla jafnt yfir hvoru megin milli miðjuboga fram og miðjuboga að aftan.
Þegar A.2 er lokið á hæðina eru 132-144-156 stuðlar á milli loflykkjuboga við miðju að framan og við miðju að aftan (= alls 264-288-312 stuðlar og 2 loftlykkjubogar í umferð).

A.3A og A.3B er heklað þannig:
Heklið A.3A alls 11-12-13 sinnum, A.3B yfir miðjuboga, A.3A alls 22-24-26 sinnum, A.3B yfir miðjuboga, endið með A.3A alls 11-12-13 sinnum.
Þegar A.3B er lokið á hæðina eru 73-79-85 stuðlar með 1 loftlykkju, á milli loftlykkjuboga við miðju að framan og við miðju að aftan (= alls 146-158-170 stuðlar með 1 loftlykkju og 2 loftlykkjubogum í umferð).

A.3A og A.3C er heklað þannig:
Þegar A.3A er heklað, endurtakið einungis 2 síðustu umferðirnar uppúr.
Heklið A.3A alls 12-13-14 sinnum, A.3C, A.3A alls 24-26-28 sinnum, A.3C, endið með A.3A alls 12-13-14 sinnum. Haldið áfram til og með 4.-6.8. umferð í A.3C. Nú eru 77-85-93 stuðlar með 1 loftlykkju, á milli loftlykkjuboga við miðju að framan og við miðju að aftan (= alls 154-170-186 stuðlar með 1 loftlykkju og 2 loftlykkjubogum í umferð). Klippið frá, byrjið næstu umferð eins og útskýrt er í A.4A, þ.e.a.s. ekki um miðjubogann, heldur nákvæmlega innan í.

A.4 heklið þannig:
Í 1. umferð er aukið út um 1-2-0 stuðla (með 1 loftlykkju) jafnt yfir hvoru megin milli miðjuboga fram og miðjuboga við miðju að aftan – LESIÐ ÚTAUKNING-2, heklið nú þannig: Heklið * A4.A, A.4B alls 25-28-30 sinnum *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar. Heklið síðan umferð 2-4.
Heklið síðan umferð 5 og fækkið um 2-0-0/aukið út um 0-0-8 stuðla jafnt yfir hvoru megin milli miðjuboga fram og miðjuboga við miðju að aftan.
Þegar A.4 er lokið á hæðina eru 160-180-200 stuðlar á milli loftlykkjuboga við miðju að framan og við miðju að aftan (= alls 320-360-400 stuðlar og 2 loftlykkjubogar í umferð). Klippið frá og festið enda. Geymið stykkið og heklið stykki tvö.

STYKKI TVÖ:
Heklið alls 18-20-22 alveg eins ferninga. Einn ferningur mælist 11 cm á breidd x 11 cm á hæð. ATH! Mikilvægt er að halda þessu máli svo að ferningarnir passið við mál á síðustu umferð á stykki eitt.

FERNINGUR:
Heklið 4 loftlykkjur með heklunál 4 með litnum ljós beige og tengið saman í hring með einni keðjulykkju í fyrstu loftlykkju – Munið eftir LITIR. Haldið áfram hringinn eftir A.5 þar til ferningurinn hefur verið heklaður til loka. Klippið frá og festið enda. Heklið 17-19-21 ferninga til viðbótar alveg eins.

FRÁGANGUR FERNINGAR HEKLAÐIR SAMAN:
Leggið saman 10-11-12 ferningur í eina lengju (ferningur í hvorum ytri kanti = við miðju að framan og við miðju að aftan á poncho).
Leggið ferninga 2 og 2 ofan á hvorn annan með röngu á móti röngu og heklið þá saman í gegnum bæði lögin þannig: 1 fastalykkja í miðju loftlykkju í horni, 2 loftlykkjur, 1 fastalykkja um sama loftlykkjuboga, 1 loftlykkja, * 1 fastalykkja um næsta loftlykkjuboga, 2 loftlykkjur, 1 fastalykkja um sama loftlykkjuboga, 1 loftlykkja *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, heklið 1 fastalykkju um næsta boga (= horn), 2 loftlykkjur, endið með 1 fastalykkju í miðju loftlykkju í horni.
Leggið saman hina 8-9-10 ferningana í eina lengju og heklið saman alveg eins.
Leggið 2 lengjurnar saman þannig að það myndist horn í hvorri hlið (þ.e.a.s. við miðju að framan og við miðju að aftan – sjá mynsturteikningu) og heklið saman alveg eins og áður.

FRÁGANGUR FYRSTA OG ANNAÐ STYKKI:
Leggið stykki eitt = 160-180-200 stuðlar, saman með stykki tvö (þ.e.a.s. hlið með stysta ummál á ferningum): Heklið stykkin saman í gegnum bæði lögin (passið uppá að yfir hvora hlið á hverjum ferning 5 loftlykkjubogar eru heklaðir 20 stuðlar) þannig: Heklið * 1 fastalykkju í næsta stuðul og um loftlykkjubogann á ferningi, hoppið yfir 3 stuðla *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn, yfir miðjubogana er að auki heklaðar 3 loftlykkjur (= miðja að framan og miðja að aftan). Klippið frá og festið enda.

STYKKI ÞRJÚ:
Heklið síðan áfram hringinn á stykki tvö þ.e.a.s. þá hlið með stærsta ummálið á ferningum, nú eru 10-11-12 hliðar á ferningum hvoru megin við miðju að framan og við miðju að aftan (= alls 20-22-24 hliðar).
Byrjið í einu horni. Munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR-2. Heklið 4 stuðla um hvern og einn af 5 loftlykkjubogum á hverjum ferning fram að næsta horni, heklið 3 loftlykkjur (= miðjubogi), heklið 4 stuðla um hvern og einn af 5 loftlykkjubogum á hverjum ferning fram að næsta horni, endið með 3 loftlykkjur (= miðjubogi). Nú eru 200-220-240 stuðlar á milli loftlykkjuboga við miðju að framan og við miðju að aftan (= alls 400-440-480 stuðlar og 2 loftlykkjubogar í umferð).

A.6 er heklað þannig:
Heklið * A.6A alls 33-37-40 sinnum, A.3B yfir miðjuboga *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar. Þegar A.6 er lokið á hæðina eru 215-239-257 stuðlar á milli loftlykkjuboga við miðju að framan og við miðju að aftan (= alls 430-478-514 stuðlar og 2 loftlykkjubogar í umferð). Klippið frá og festið enda.

SNÚRA:
Klippið 2 þræði beige og 2 þræði í litnum bleikfjólublár ca 4 metra. Tvinnið þá saman þar til þeir taka í, leggið snúruna saman tvöfalda og þá kemur hún til með að tvinna sig aftur saman. Hnýtið hnút á hvorn enda ca 5 cm frá enda. Þræðið snúruna upp og niður með byrjun frá miðju að framan í gegnum götin í 3. umferð frá hálsmáli.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 21.02.2017
Það hefur verið gerð smá leiðrétting í mynsturteikningu A.2B
Yfirfarið á vefsvæði: 13.07.2017
PONCHO: STYKKI EITT:
Umferðin byrjar á vinstri öxl.
Heklið 146-178-206 loftlykkjur með heklunál 4 með ljós beige og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Heklið 3 loftlykkjur – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR-1,

Mynstur

symbols = loftlykkja
symbols = fastalykkja í lykkju
symbols = fastalykkja um loftlykkju/loftlykkjuboga
symbols = stuðull í lykkju
symbols = stuðull um loftlykkju/loftlykkjuboga
symbols = heklið 1 stuðul í/um hverja og eina af næstu 2 lykkjum, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin á báðum þessum stuðlum, heklið 1 stuðul í/um næstu lykkju og dragið þráðinn í gegnum allar 4 lykkjur á heklunálinni
symbols = heklið 2 stuðla um loftlykkjuboga, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin á báðum þessum stuðlum, heklið 1 stuðul um sama loftlykkjuboga og dragið þráðinn í gegnum allar 4 lykkjur á heklunálinni
symbols = heklið 1 stuðul um loftlykkjuboga/í lykkju, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 stuðul um sama loftlykkjuboga/í lykkjuna og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjur á heklunálinni
symbols = tvíbrugðinn stuðull um loftlykkju
symbols = þríbrugðinn stuðull í lykkju
symbols = þríbrugðinn stuðull um loflykkju/loftlykkjuboga
symbols = 4 loftlykkjur, tengið þær saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju – sjá punkt í hring, umferðin byrjar og endar hér
symbols = keðjulykkja
symbols = útaukningsumferð/úrtökuumferð
symbols = umferðin er útskýrð í uppskrift og hefur þegar verið hekluð – byrjið á næstu umferð
symbols = sýnir síðustu umferð í fyrri mynsturteikningu – byrjið á næstu umferð
symbols = umferðin er hekluð með bleikfjólublár
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 176-16

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (37)

country flag Paloma wrote:

Hola, es necesario bloquear cuando esté ya terminado? Gracias.

11.04.2022 - 13:30

DROPS Design answered:

Hola Paloma, si, siepre. Saludos!

11.04.2022 - 13:41

country flag Emilia wrote:

Also gehe ich davon aus, dass woanders angefangen wurde. Ich darf auch nicht bei der ersten R. von A.3A nach A.3B wieder mit einem Stb. anfangen, sondern mit einer LM, sonst habe ich ein Stb. zu viel. Wenn ich jetzt pro R. ein Stb dazugewinne ,bin ich am Ende von A.3C bei 87 Stb, soll aber laut Anleitung erst 85 haben. Oder häkel ich einfach bis 87 und muss laut A.4 dafür keine 2 Stb zunehmen? Und warum wurden bei dem Poncho (Foto) nur 11 R. Stb-LM gehäkelt, während es laut A.15 sind?

24.01.2022 - 19:23

DROPS Design answered:

Liebe Emilia, wie zuvor vorgeschlagen, am besten häkeln Sie mit Markierungen zwischen allen Diagrammen, so können Sie am besten die richtige Maschenanzahl haben und behalten. Damit die Maschenanzahl die Diagramme und Anleitung passt, häkeln Sie am besten wie beschrieben, aber gerne können Sie auch Ihre eigene Änderungen machen. Viel Spaß beim häkeln!

25.01.2022 - 09:28

country flag Emilia wrote:

Hallo, ich habe A.3A /B gehäkelt und festgestellt, dass ich auf der Anfangsseite mehr Stb. hatte als auf der anderen. Laut Diagramm beginnt man jede 2. Reihe mit einer LM , gleichzeitig steht in der Häkelinfo-2 , dass mann jede Runde mit 3 M. beginnen soll. Dann habe ich nochmal angefangen und immer beim Rundenende ein Stb weniger gehäkelt. Der Übergang sah trotzdem nicht schön aus , da in diesem Muster jede Abweichung auffällt. Auf dem Foto sieht man keinen sichtbaren Übergang,

24.01.2022 - 19:00

DROPS Design answered:

Liebe Emilia, schauen Sie wieviele A.3A Sie auf beiden Seiten haben, und jeweils wieviele Stäbchen, setzen Sie Markierungen zwischen jedes Diagram und so können Sie am besten immer die genaue Maschenanzahl häklen (auch in A.3B). Hoffentlich kann es Ihnen helfen.

25.01.2022 - 09:23

country flag Kitty Roeffen wrote:

Vraag Is er een filmpje omeen poncho te haken

19.11.2021 - 14:09

country flag Jessica wrote:

Al final de la primera vuelta de 120 puntos altos me sobran 24 puntos de la cadena de inicio. No me gustan las cuentas... 120 pa más 28 puntos que se saltan dan 148 y entonces me sobran los 24 puntos de la cadena. Por favor me explicas cómo hacerlo?

13.03.2021 - 00:09

DROPS Design answered:

Hola Jessica, había un fallo en el inicio del patrón, había 146 puntos de cadeneta iniciales y se saltan 26.

21.03.2021 - 20:17

country flag Françoise Laplace wrote:

J' ai commencé le premier rang de mon pencho 176-17 et pour le deuxième rang je suis perdue car je ne comprends pas : CrocheterA.1 ainsi: Crocheter les tours 1-3 ainsi: 5-6-7- fois A.1A au total,1B au de dessus de l arceau du milieu Je ne comprend pas le anagramme D avance merci pour me donner des conseils

18.09.2020 - 14:55

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Laplace, vous devez crocheter les tours 1 à 3 de A.1 comme indiqué, autrement dit répéter A.1A en largeur sur les côtés avec A.1B au-dessus de l'arceau du milieu (pointe du milieu devant et du milieu dos) = le tour commence au milieu d'un des côtés, vous devrez ainsi répéter 5, 6 ou 7 fois A.1A avant la pointe du milieu où vous crochetez A.1B, puis répéter 10, 12 ou 14 fois A.1B avant la pointe du miieu = A.1B et terminer par A.1A jusqu'au début du tour (= 5, 6 ou 7 fois en largeur). Bon crochet!

18.09.2020 - 15:59

country flag Betty wrote:

Kann es sein dass im ersten Teil etwas mit der Luftmaschenanzahl nicht stimmt? Wenn ich für die Größe L XL 178 Luftmaschen anschlage komme ich mit den Stäbchen in der Anleitung nicht hin. Also es fehlen Luftmaschen

26.07.2020 - 12:17

DROPS Design answered:

Liebe Betty, es müsste passen, die Maschenzahl geht auf. Vielleicht schreiben Sie sich die Zahlen für Ihre Größe gesondert auf oder markieren sie farblich, dann haben Sie einen besseren Überblick. Beachten Sie, dass Sie bei den Luftmaschenbögen (= 1 Luftmasche häkeln), die Sie an der vorderen und hinteren Mitte häkeln, keine Luftmasche überspringen. Gutes Gelingen!

27.07.2020 - 10:45

country flag Elena wrote:

I dont't understand how to reach 100 dc after increasing in pattern A1 (smaller size). In the last round I have to work 6*10 +8+8 dc, in total 68 dc each side, increasing 2*10 dc in A1.A e 2dc twice in A.1B, 24 dc in total (not 23 as written in the pattern). What am I doing wrong? Thank you.

07.07.2020 - 18:36

DROPS Design answered:

Dear Elena, on last round in A.1 there are: 6 sts x 5 (A.1A) + 8+9 sts (A.1B) + 6 sts x 10 (A.1A) + 8+9 (A.1B) + 6 sts x 5 (A.1A) = 154 sts in total - you then increase 23 sts on each side of each corner: 154+ 2x23=200 sts. Happy crocheting!

08.07.2020 - 07:57

country flag Svenja wrote:

Hallo, wenn ich für Größe S, wie in der Anleitung angegeben, in A.4A die erste Runde häkle und die eine Masche zunehme komme ich wieder auf 77 Maschen. Für die zweite Runde bräuchte ich aber doch 78 Maschen, oder zumindest etwas was durch drei teilbar ist, oder nicht? Für Hilfe wäre ich sehr dankbar.

24.02.2019 - 19:12

DROPS Design answered:

Liebe Svenja, bei der 1. Runde häkeln Sie 2 Stb in A.4A und 3 Stb x 25 in A.4B = 75 Stb + 1 Zunahme = 76 Stb + die 2 Stb in A.4A = 78 Stb. Viel Spaß beim häkeln!

25.02.2019 - 11:04

country flag Sue wrote:

Has this pattern been corrected and is now good to go!

13.11.2018 - 20:07