DROPS Super Sale - 6 vinsælar garntegundir á afslætti allan mánuðinn!
Product image DROPS Karisma yarn
DROPS Karisma
100% Ull
frá 660.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7260.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
Velja stærð:
DROPS 174-3

#keystonesweater

DROPS Design: Mynstur nr u-803
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio
500-550-600-650-700-750 g litur nr 21, milligrár
50-50-50-50-50-50 g litur nr 17, dökk blár

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 og 80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l x 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 3,5 – fyrir stroff.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 660.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7260.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

LASKALÍNA:
Frá réttu: Byrjið 3 l á undan prjónamerki: 2 l slétt saman, 2 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 l), takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.

LEIÐBEININGAR:
Ef prjónfestan passar ekki á hæðina og prjónað er of fast þá kemur laskalína til með að verða allt of stutt og handvegurinn of lítill. Þetta er hægt að stilla af með því að prjóna 1 auka umferð án úrtöku með jöfnu millibili á milli úrtöku.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 220-240-264-288-312-344 l á hringprjóna nr 3,5 með litnum milligrár. Prjónið stroff = 2 l sl, 2 l br í 5 cm.
Skiptið yfir á hringprjóna nr 4, í næstu umf er prjónað slétt, JAFNFRAMT er fækkað um 36-40-44-48-52-56 l jafnt yfir = 184-200-220-240-260-288 l. Haldið áfram í sléttprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið = 92-100-110-120-130-144 l á milli prjónamerkja. Þegar stykkið mælist 6 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin (= 4 útaukningar). Aukið út í 10. hverjum cm alls 4 sinnum = 200-216-236-256-276-304 l. Þegar stykkið mælist 40-40-41-41-41-41 cm fellið af 4-4-5-5-6-6 l hvoru megin við hvort prjónamerki (= 8-8-10-10-12-12 l á hvorri hlið) = 92-100-108-118-126-140 l á framstykki og bakstykki. Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.
Fitjið upp 60-60-64-68-72-72 l á sokkaprjóna nr 3,5 með litnum milligrár. Prjónið stroff = 2 l sl, 2 l br í 4 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4, næsta umf er prjónuð slétt, JAFNFRAMT er fækkað um 10-8-10-12-14-12 l jafnt yfir = 50-52-54-56-58-60 l. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf = mitt undir ermi. Þegar stykkið mælist 7-8-8-10-10-10 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerkin. Aukið út með 3-2-2-1½-1½-1½ cm millibili alls 13-16-17-18-19-20 sinnum = 76-84-88-92-96-100 l. Þegar stykkið mælist 46-45-44-43-42-42 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla) fellið af 4-4-5-5-6-6 l hvoru megin við prjónamerki ( = 8-8-10-10-12-12 l felldar af mitt undir ermi) = 68-76-78-82-84-88 l. Geymið stykkið og prjónið aðra ermi á sama hátt.

BERUSTYKKI:
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handvegi = 320-352-372-400-420-456 l. Haldið áfram í sléttprjóni, nú byrjar úrtaka fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan og LESIÐ LEIÐBEININGAR! Setjið 1 prjónamerki í allar skiptingarnar á milli erma og fram- og bakstykkis (= 4 prjónamerki). 1. prjónamerki = í skiptinguna á milli vinstri ermi og framstykkis
Lykkjum er fækkað mismunandi á fram- og bakstykki og ermum.
Fækkið l á eftir 2. og 4. prjónamerkis og á undan 3. og 1. prjónamerkis (= úrtaka á ermum) þannig:
Fækkið l í 4. hverri umf: 10-10-10-11-12-14 sinnum, síðan í annarri hverri umf: 12-15-16-16-16-14 sinnum.
Fækkið l eftir 1. og 3. prjónamerki og á undan 2. og 4. prjónamerki (= úrtaka á framstykki og á bakstykki):
Fækkið l í 4. hverri umf: 8-8-6-4-3-0 sinnum, í annarri hverri umf 16-19-24-30-34-39 sinnum, síðan í hverri umf: 0-0-0-0-0-4 sinnum.

Eftir alla úrtöku fyrir laskalínu eru 136-144-148-156-160-172 l eftir í umf. Prjónið 1 umf þar sem fækkað er um 36-36-36-40-40-44 l jafnt yfir = 100-108-112-116-120-128 l í umf. Skiptið yfir í litinn dökk blár og prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN yfir allar l – sjá útskýringu að ofan. Fellið af með sl.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum.

Mynstur

Diagram measurements for DROPS 174-3

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 174-3

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (113)

country flag Nina R skrifaði:

Måtte kjøpe 2 nøster mer enn oppskriften sier, for å strikke ferdig str L - til tross for at jeg strikker med pinnestr 3.5 i stedet for 4, på hele genseren. Dette resulterte i at jeg måtte kjøpe siste trådnøstet av et annet parti og risikerer fargeforskjell i genseren (strikker hele genseren i én farge). Synes det er for dårlig at oppskriften oppgir for lite tråd. Ellers en veldig fin genser og gleder meg til å bli ferdig med den!

22.08.2018 - 21:36

country flag Lia skrifaði:

"Se la tensione del lavoro non è corretta in altezza e risulta troppo tirata, le diminuzioni del raglan risulteranno troppo corte e gli scalfi troppo piccoli. Questo può essere ottenuto lavorando 1 giro in più senza diminuzioni distribuito in modo uniforme tra le diminuzioni." Non sono sicura di saper vaultare se la tensione sia corretta: pensavo di fare un giro senza diminuzioni ogni 6. Può andare?

21.08.2018 - 21:49

DROPS Design svaraði:

Buonasera Lia, per valutare la sua tensione nella lavorazione del motivo può provare a fare un campione a parte oppure può decidere di procedere come ha deciso e provare il capo durante la lavorazione. Buon lavoro!

21.08.2018 - 23:13

country flag Guro skrifaði:

Hei, er det mulig å strikke denne uten hullene under armene? Har strikket en annen genser med raglan herfra uten sying til slutt, så lurte på hvorfor noen oppskrifter er sånn og andre ikke?

18.06.2018 - 23:07

DROPS Design svaraði:

Hej Guro, jo men det er helt ok at følge det andet mønster under armene, så du slipper for at sy hullerne sammen under ærmerne. God fornøjelse!

19.06.2018 - 08:48

country flag Linn P skrifaði:

Jag förstår inte beskrivningen över minskningarna för fram- och bakst och ärmarna? Går det att förtydliga?

12.05.2018 - 15:51

DROPS Design svaraði:

Hei Linn. Merketrådene settes i overgangene mellom bol og ermer – det felles til raglan på begge sider av merket. Men maskene som felles fra bolen felles ikke alltid på de samme omgangene som de som felles fra ermene. Altså, alle fellinger som gjøres på den siden av merketrådene som utgjør ermene (ETTER 2. og 4 merketråd og FØR 3. og 1 merketråd) skal gjøres på hver 4 omgang (x-antall ganger) og så hver 2 omgang (x-antall ganger). De fellingene som gjøres på bol-siden av merkene (ETTER 1. og 3. merketråd og FØR 2. og 4. merketråd) gjøres på hver 2 omgang (x antall ganger) og så på hver omgang (kun i XXXL). God fornøyelse.

16.05.2018 - 08:27

country flag Nina R skrifaði:

Hei! Jeg har strikket ferdig vr.borden og begynt på glattstrikk, på første omgangen skal det felles 44 masker av mine 264 (str L) og da regnet jeg ut at det ble hver 6.maske som skulle felles. Men nå har jeg gjort dette og fikk bare felt 37 masker på den omgangen og måtte fortsette å felle på neste omgang for å få felle 44masker. Blir dette feil? Må jeg rekke opp igjen og prøve på nytt? Tok 264 masker og delte på 44, det ble 6. Så jeg skjønner ikke helt?

18.04.2018 - 13:43

DROPS Design svaraði:

Hei Nina Det blir litt opp til deg om du velger å rekke opp alt eller felle de resterende maskene på 2 omgang glattstrikk. Tips til neste gang: Når du skal felle hver 6 maske: strikk hver 5 og 6 maske sammen så skal du se at det blir riktig. God fornøyelse

25.04.2018 - 15:21

country flag Clémence. Dubois skrifaði:

Bonjour. Pourriez vous me préciser l'espacement entre les 8 dimininution des manche ? Merci d'avance.

17.04.2018 - 06:19

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Dubois, vous trouverez ici comment calculer les mailles à diminuer à intervalles réguliers. Bon tricot!

17.04.2018 - 09:20

country flag Gordana Petkovic skrifaði:

Blir denne genseren helt lik foran og bak? Tegningen viser en større utringning rundt halsen på forsiden, men hvordan skjer det?

22.03.2018 - 07:51

DROPS Design svaraði:

Hej, denne genser bliver helt ens foran og bagpå. Den kommer til at sidde som på billedet. God fornøjelse!

22.03.2018 - 09:13

country flag Arielle Elfassy skrifaði:

J'ai moi aussi des questions sur le Raglan. J'ai bien lu vos réponses à Mme Villani et il me reste une question. D'après ce que vous écrivez et d'après la version anglaise, certaines diminutions se font tous les rangs, mais dans les explications en français, il est question de tous les 4 ou tous les 2 tours… Pouvez-vous me confirmer la bonne solution ? Merci

29.12.2017 - 11:43

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Elfassy, les diminutions se font différemment sur le dos/le devant et sur les manches. Soit pour les manches: tous les 4 tours puis tous les 2 tours et pour le dos et le devant: tous les 4 tours (sauf en taille XXXL), tous les 2 tours puis tous les tours en taille XXXL seulement. Bon tricot!

02.01.2018 - 10:03

Claudia skrifaði:

Hola tengo una duda con respecto al cuello, en el diagrama existe se ve una área que indica 4 a 6 cm al finalizar el cuello y hace más alta la parte de la espalda, pero en las explicaciones no la encuentro. Es decir frente y espalda terminan a la misma altura. Felices fiestas y gracias de antemano por su ayuda.

27.12.2017 - 15:34

DROPS Design svaraði:

Hola Claudia, los 4 a 6 cm que están indicados en el diagrama corresponden aproximadamente a la diferencia de altura que hay entre la terminación del raglán en el delantero y el centro del hombro. El escote en la parte delantera y la espalda se trabajan igual.

30.12.2017 - 13:16

country flag Vivi skrifaði:

J'adore ce site et j'ai déjà fait un poncho et deux pulls pour femmes en S du coup j'ai voulu tester ce modèle en taille L mais je suis assez déçu car cela ne ressemble pas au modèle, en plus il me manquait une à deux pelotes pour finir alors que j'ai bien calculé le nombre de pelotes à acheter et pour la taille c'est plus grand que du L ça fait plus XL ...

03.12.2017 - 17:08

DROPS Design svaraði:

Bonjour Vivi, si vous n'avez pas utilisé la laine indiquée, avez-vous bien calculé la nouvelle quantité de laine (voir ici) et aviez-vous bien le bon échantillon? Toutes les mesures pour chaque taille sont indiquées dans le schéma, elles sont prises à plat d'un côté à l'autre, vu que les tailles diffèrent en fonction de chaque pays, il est recommandé de mesurer un vêtement similaire et de choisir la taille en fonction des mesures. Bon tricot!

04.12.2017 - 10:55