DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 15972.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Beaver Ridge

Prjónuð peysa fyrir herra úr DROPS Karisma og DROPS Kid-Silk með áferðamynstri. Stærð S - XXXL

DROPS 174-16
DROPS Design: Mynstur nr u-810
Garnflokkur B + A
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio
600-650-750-800-900-950 g litur nr 21, milligrár
Og einnig:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio
150-150-175-200-225-250 g litur nr 10, grár

DROPS HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 5,5 – eða þá stærð sem þarf til að 18 l x 24 umf með mynstri með 1 þræði af hvorri tegund verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR (40 og 60 eða 80 cm) NR 4,5 fyrir stroff – eða þá stærð sem þarf til að 20 l x 26 umf með sléttprjóni með 1 þræði af hvorri tegund verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 15972.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

ÚTAUKNING:
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn. Nýjar l eru prjónaðar inn í mynstur A.1.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, neðan frá og upp og saumað saman í lokin.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 81-90-96-105-114-126 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið í garðaprjóni) með 1 þræði Karisma og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir) á hringprjóna nr 4,5. Prjónið 1 umf br frá röngu. Prjónið síðan stroff frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* þar til 2 l eru eftir, 1 l sl, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist 4 cm – passið að síðasta umf sem er prjónuð sé frá röngu, skiptið yfir á hringprjóna nr 5,5. Prjónið mynstur frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.1 (= 3 l) 26-29-31-34-37-41 sinnum á breidd, 1 l sl (= fyrsta l í A.1), 1 kantlykkja í garðaprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 15-16-15-16-15-16 cm aukið út um 1 l innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið – LESIÐ ÚTAUKNING! Aukið út með 14-14-15-15-16-16 cm millibili alls 3 sinnum = 87-96-102-111-120-132 l. Þegar stykkið mælist 47-48-49-50-51-52 cm fellið af 3 l í byrjun næstu 2 umf fyrir handveg = 81-90-96-105-114-126 l. Haldið áfram með mynstur eins og áður með 1 kantlykkju í hvorri hlið og fellið af l fyrir handveg í byrjun hverrar umf í hvorri hlið þannig: 2 l 1-3-3-3-5-7 sinnum og 1 l 1-1-1-3-3-3 sinni = 75-76-82-87-88-92 l. Þegar stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm, setjið miðju 27-28-28-29-30-30 l á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umf frá hálsi er felld af 1 l = 23-23-26-28-28-30 l eftir fyrir hvora öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 68-70-72-74-76-78 cm.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið eins og bakstykki.
Þegar stykkið mælist 61-63-64-66-67-69 cm setjið miðju 15-16-16-17-18-18 l á band fyrir hálmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af l fyrir hálsmáli í hverri umf frá hálsi þannig: Fellið af 2 l 3 sinnum og 1 l 1 sinni = 23-23-26-28-28-30 l eftir fyir hvora öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 68-70-72-74-76-78 cm.

ERMI:
Ermarnar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjóna.
Fitjið upp 51-54-54-57-57-60 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) með 1 þræði Karisma og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir) á hringprjóna nr 4,5. Prjónið 1 umf br frá röngu.
Prjónið síðan þannig (séð frá réttu): 1 kantlykkja í garðarpjóni, * 1 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* þar til 2 l eru eftir, 1 l sl (= fyrsta l í A.1), 1 kantlykkja í garðaprjóni.
Þegar stykkið mælist 4 cm, skiptið yfir á hringprjóna nr 5,5. Haldið áfram með mynstur frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.1 þar til 2 l eru eftir, 1 l sl, 1 kantlykkja í garðaprjóni.
Þegar stykkið mælist 9-9-9-8-10-10 cm, aukið út um 1 l í hvorri hlið. Endurtakið útaukningu með 5-5-3½-3½-2½-2½ cm millibili alls 9-9-12-12-15-15 sinnum = 69-72-78-81-87-90 l – útauknu l eru prjónaðar jafnóðum inn í A.1. Þegar stykkið mælist 53-52-51-50-49-48 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengri ermakúpu og breiðari axla) fellið af í byrjun hverrar umf í hvorri hlið: 4 l 1 sinni, 2 l 3 sinnum og 1 l 1-2-4-5-7-8 sinnum. Fellið síðan af 2 l í hvorri hlið þar til stykkið mælist 59 cm, fellið síðan af 3 l 1 sinni í hvorri hlið. Fellið af, stykkið mælist ca 60 cm í öllum stærðum.
Prjónið aðra ermi á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið ermar í við fram- og bakstykki. Saumið síðan sauma undir ermum og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni.

HÁLSMÁL:
Prjónið nú upp l í kringum háls með 1 þræði Karisma + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir) þannig: Prjónið upp ca 80-90 l á hringprjóna nr 4,5 í kringum háls – ATH: Stillið af þannig að prjónað sé upp lykkjufjöldi á milli l á þræði á framstykki og á bakstykki sem gengur jafnt upp í stroff (1 l sl, 2 l br) allan hringinn í umf. Þ.e.a.s. fjöldi lykkja er deilanlegur með 3 og yfir l af þráðum er prjónað sl yfir sl og br yfir l sem eru br og garðaprjón.
Prjónið stroff hringinn (1 l sl, 2 l br) þar til strofið mælist ca 4 cm. Fellið af með sl yfir sl og br yfir br. Klippið frá og festið enda.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 174-16

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (51)

country flag Paola wrote:

Vorrei fare questo modello ma ho lana più fine che utilizza ferri 3,5 e 4. 24 maglie x 30 giri mi corrispondono a 10x10. Potete aiutarmi a sviluppare punti e aumenti per una taglia L ? Grazie mille per quello che potrete fare.

22.02.2024 - 08:41

DROPS Design answered:

Buonasera Paola, per un aiuto così personalizzato può rivolgersi al suo rivenditore DROPS di fiducia. Buon lavoro!

22.02.2024 - 21:39

country flag KnittingLady wrote:

In the sleeve part it says “ cast off at beg of every row in each side [….] 1 st 1-2-4-5-7-8 times”. It is correct to assume I need to cast of 27 stitches on each side? Why are the numbers written like that?

10.11.2023 - 15:36

DROPS Design answered:

Dear KnittingLady, first cast off 4 sts 1 time for each side (so 4 at the beginning of the row from the right side and 4 at the beginning of the row from the wrong side). Then, 2 sts 3 times (so you work 3 rows from the right side and 3 from the wrong side and cast off 2 sts at the beginning of each of these 6 rows). Then, cast off 1 st 1-2-4-5-7-8 times. The number of times depends on your size; for the largest size, you work 16 (8x2) rows and cast off 1 stitch at the beginning of each one of them. So, depending on the size you are working you will cast off a different number of stitches in total. Happy knitting!

12.11.2023 - 21:21

country flag Strumpler wrote:

Hallo, Zuerst mal vielen Dank für Ihre Internetseite. ich habe schon so viele schöne Pullover von ihnen nachgestrickt. Jetzt habe ich anderswo ein geniales Strukturmuster gesehen und würde es gerne dieses Model nachstricken, Leider kann ich kein Photo hier reinkopieren und auch nicht den Link um es ihnen zu zeigen. Wie kann ich also Kontakt aufnehmen? Danke im Voraus für ihre Hilfe

06.10.2023 - 17:35

country flag Josefine wrote:

Hej igen, Tack för hjälpen! Ny fråga: Jag vill använda garnet Drops Alaska och sticka den här tröjan i storlek L. Hur många nystan behöver jag? Tack på förhand! Allt gott/Josefine

23.09.2023 - 21:17

DROPS Design answered:

Hej Josefine, da behöver du 17 nystan DROPS Alaska :)

27.09.2023 - 07:57

country flag Josefine wrote:

Hej igen! Tack för svar på min fråga angående storlek. Jag skulle helst vilja sticka detta mönster men med endast en tråd, inte en tråd av två garner pga risk för trassel. Vilket garn passar då till detta mönster? Eller är det omöjligt? Tack på förhand för svar! /Josefine

24.05.2023 - 10:44

DROPS Design answered:

Hej Josefine, den kan strikkes i én tråd DROPS Nepal eller DROPS Big Merino eller DROPS Alaska med en stickfasthet på 18 m = 10 cm :)

24.05.2023 - 14:19

country flag Josefine wrote:

Hej, Min pappa mäter 103 cm runt bröstet. Vilken storlek ska jag välja att sticka? Mvh Josefine

20.05.2023 - 13:18

DROPS Design answered:

Hei Josefine. Målene finner du på målskissen, nederst på oppskriften. Om strikkefastheten overholdes vil brystmålet i str. M være på 104 cm. Men valg av str. kommer jo også på om vedkommende som skal ha genseren om han ønsker den tettsittende eller litt løs. mvh DROPS Design

22.05.2023 - 14:35

country flag David wrote:

Bonjour, j’ai des difficultés avec le diagramme et les emmanchures. Je suis perdu pour savoir comment continuer le diagramme… je ne comprends pas.

18.02.2023 - 17:42

DROPS Design answered:

Bonjour David, lorsque vous divisez l'ouvrage, vous devez continuer à tricoter en rangs, ajustez le tour de division pour que le 1er (ou le 3ème rang) soit un rang sur l'endroit, et continuez en rangs ainsi rang 1 ou 3 (endroit): 1 m end, 1 m env, 1 m end; rang 2 ou 4 (envers): 2 m end, 1 m env. Ajustez bien le début de vos rangs sur l'endroit/l'envers pour que les côtes continuent comme avant (de droite à gauche dans le diagramme): 1 m jersey endroit, 1 m jersey envers, 1 m point mousse. Bon tricot!

20.02.2023 - 09:38

country flag Max wrote:

I am thinking of making this sweater but it looks a bit strange in the picture. Is the model wearing it back to front? The shoulder seam seems too far forward.

14.02.2023 - 20:47

DROPS Design answered:

Dear Max, you might be right :)

16.02.2023 - 14:07

country flag Sabine wrote:

Wie ist die Maschenprobe hier gedacht, glatt rechts oder im Muster A1 gestrickt?

16.12.2022 - 19:46

DROPS Design answered:

Liebe Sabine, Maschenprobe wird im Muster mit A.1 gestrickt, dh Rippenmuster (1 Masche glatt rechts, 1 Masche glatt links, 1 Masche krausrechts), von (bis) wiederholen. Hier lesen Sie mehr über Diagramme. Viel Spaß beim stricken!

19.12.2022 - 08:43

country flag Conny Duffert wrote:

Hallo, kann ich den Pullover auch bis zum Armausschnitt rund stricken??

23.11.2022 - 10:07

DROPS Design answered:

Liebe Frau Duffert, wahrscheinlich, so sollen Sie aber die Maschenanzahl so anpassen, damit das Bündchen und dann das Rippenmuster in der Runde passt. Diagram in der Runde wird auch nur mit Hinreihen gestrickt, dh alle Reihen lesen Sie dann rechts nach links. Viel Spaß beim stricken!

23.11.2022 - 15:39