Susan skrifaði:
Please post the pattern for this jersey, I really want to knit it as soon as possible. I live in New Zealand and it is freezing, this would be a great project right now.
29.07.2016 - 09:18
Carola Eriksson skrifaði:
Would be a nice add to all of you nice patterns!! I lookforward to nit that sweater!
29.06.2016 - 20:54
Christine skrifaði:
Schlicht, einfach, schick
26.06.2016 - 19:18
Anca skrifaði:
Elegant!
26.06.2016 - 10:00
Beatriz Silva skrifaði:
Simples e bonito!
24.06.2016 - 16:55
Ingrid skrifaði:
I really like this sweater, even though I would make it with different colors.
07.06.2016 - 18:10
Stonehenge#stonehengesweater |
||||
|
||||
Prjónuð peysa með klaufum í hlið úr DROPS Cotton Merino með laskalínu og berustykki með rönguna út, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.
DROPS 172-40 |
||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. LASKALÍNA: ATH! Allir uppslættir eru prjónaðir br í næstu umf svo það myndist gat! Aukið út um 1 l á eftir/á undan prjónamerki þannig: Á eftir prjónamerki: 1 l br, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 l fleiri). Á undan prjónamerki: Byrjið 1 l á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 l fleiri), 1 l br. Aukið út um 2 l á eftir/á undan prjónamerki þannig: Á eftir prjónamerki: 1 l br, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 l fleiri), 2 l br í næstu l (= 1 l fleiri). Á undan prjónamerki: Byrjið 2 l á undan prjónamerki, 2 l br í næstu l (= 1 l fleiri), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 l fleiri), 1 l br. Þegar aukið er út í 4. hverri umf er áfram prjónuð göt í annarri hverri umf, en götin eru prjónuð án þess að aukið sé út, þ.e.a.s. prjónað er þannig: Á eftir prjónamerki: 1 l br, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða, 1 l br, steypið óprjónuðu l yfir. Á undan prjónamerki: Byrjið 3 l á undan prjónamerki, 2 l br saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l br. ÚTAUKNING (á við um útaukningar á hliðum á fram- og bakstykki): Byrjið 1 l á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 l), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 l fleiri). Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ÚRTAKA: Fækkið l mitt undir ermi þannig: Byrjið 3 l á undan prjónamerki, prjónið 2 l slétt saman, 2 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 l), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir (= 2 l færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring ofan frá og niður. Fyrst er prjónað brugðið, síðan er prjónað í sléttprjóni. BERUSTYKKI: Fitjið upp 104-108-112-118-122-128 l á hringprjóna nr 3,5 með litnum milligrár. Prjónið 6 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir í litinn ljós grár og hringprjóna nr 4,5 og prjónið 1 umf br þar sem aukið er út um 20-20-24-22-22-24 l jafnt yfir = 124-128-136-140-144-152 l. Í næstu umf er prjónað brugðið og 4 prjónamerki sett í stykkið þannig: Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf, prjónið fyrstu 50-52-56-54-56-60 l (= bakstykki), setjið næsta prjónamerki, prjónið næstu 12-12-12-16-16-16 l, setjið næsta prjónamerki (= ermi), prjónið næstu 50-52-56-54-56-60 l (= framstykki), setjið síðasta, prjónamerkið, prjónið 12-12-12-16-16-16 l sem eftir eru (= ermi). Haldið síðan áfram með br. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Í næstu umf byrjar útaukning fyrir laskalínu. ATH: Misjafnt er aukið út fyrir ermar og fram- og bakstykki – LESIÐ LASKALÍNA! Aukið út þannig: FRAM- OG BAKSTYKKI: Aukið út um 1 l á eftir/á undan prjónamerki í annarri hverri umf alls 8-12-12-23-28-32 sinnum, síðan er aukið út um 1 l á eftir/á undan prjónamerki í 4. hverri umf alls 7-6-7-2-1-0 sinnum. ERMAR: Aukið út um 2 l á eftir/á undan prjónamerki í annarri hverri umf alls 2-4-5-4-2-1 sinnum. Aukið síðan út um 1 l á eftir/á undan prjónamerki í annarri hverri umf alls 16-16-17-19-24-27 sinnum og 1 l á eftir/á undan prjónamerki í 4. hverri umf alls 2 sinnum í öllum stærðum. JAFNFRAMT – þegar stykkið mælist 19-21-21-22-23-23 cm (frá uppfitjunarkanti), skiptið yfir í milligrátt og prjónið síðan áfram með sléttprjóni – ATH: Þær 2 l í laskalínu (1 l hvoru megin við hvert prjónamerki) halda áfram í br, hinar l (og uppslátturinn) eru prjónaðar slétt. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Eftir alla útaukningu eru 272-304-328-356-380-404 l í umf. Stykkið mælist ca 22-24-25-27-29-31 cm frá öxl (19-21-22-23-25-27 cm frá uppfitjunarkanti). Prjónið nú þannig: Prjónið fyrstu 80-88-94-104-114-124 l (= bakstykki), setjið næstu 56-64-70-74-76-78 l á þráð (= ermi), fitjið upp 8-8-10-10-12-14 l undir ermi (setjið eitt prjónamerki mitt á milli þessa nýrra lykkja), prjónið næstu 80-88-94-104-114-124 l (= framstykki), setjið næstu 56-64-70-74-76-78 l á þráð (= ermi), fitjið upp 8-8-10-10-12-14 l undir ermi (setjið eitt prjónamerki mitt á milli þessa nýrra lykkja). HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 176-192-208-228-252-276 l. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 2 cm í öllum stærðum er aukið út í hvorri hlið – LESIÐ ÚTAUKNING (= 4 l fleiri). Endurtakið útaukningu með 2½-2½-3-3-3-3½ cm millibili alls 7 sinnum í öllum stærðum = 204-220-236-256-280-304 l. Þegar stykkið mælist 20-20-21-21-21-21 cm prjónið þannig: Prjónið fyrstu 102-110-118-128-140-152 l (= bakstykki) og setjið þær á þráð, prjónið þær 102-110-118-128-140-152 l sem eftir eru (= framstykki). FRAMSTYKKI: = 102-110-118-128-140-152 l. Prjónið síðan fram og til baka á hringprjóna. Fyrsta umf er prjónuð frá röngu: 5 l GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, sléttprjón þar til 5 l eru eftir, prjónið 5 l garðaprjón. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 31-31-32-32-32-32 cm. Skiptið yfir í ljós grár og hringprjóna nr 3,5, prjónið 6 umf garðaprjón og fellið af. Stykkið mælist alls 55-57-59-61-63-65 cm frá öxl. BAKSTYKKI: = 102-110-118-128-140-152 l. Prjónið á sama hátt og framstykki. ERMI: Stykkið er prjónað í hring. Setjið til baka l af þræði á hringprjóna/sokkaprjóna nr 4,5 og fitjið að auki upp 8-8-10-10-12-14 nýjar l undir ermi = 64-72-80-84-88-92 l. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli nýrra l undir ermi – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið sléttprjón hringinn á hringprjóna/sokkaprjóna. Þegar stykkið mælist 2 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku með 2½-2-1½-1½-1½-1 cm millibili alls 13-16-19-20-21-22 sinnum = 38-40-42-44-46-48 l. Þegar stykkið mælist 39-38-37-36-35-33 cm (ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis), skiptið yfir í litinn ljós grár og sokkaprjóna nr 3,5, prjónið 6 umf garðaprjón og fellið af. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. |
||||
Skýringar á teikningu |
||||
|
||||
![]() |
||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #stonehengesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 172-40
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.