Debbra Smith skrifaði:
When I print out the patterns it doesn't print out the diagram on the free patterns, like on sunrise glow. I love the designs but I can't try them because of this problem.it happens quite a bit. thank you
10.06.2016 - 16:46DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Smith, when printing pattern, check that all pages will be print, in this pattern eg, diagrams are on pages 4 and 5, and measurement chart on page 6. Happy knitting!
10.06.2016 - 18:21
Gunda Poll skrifaði:
Einfach fantastisch, diese Kollektion, wo soll ich nur anfangen, eins schöner als das andere, herrlich, danke, tausendmal danke!!!
10.02.2016 - 09:21
Bourguignon Elisabeth skrifaði:
J'aime beaucoup ce modèle. Sa couleur corail pétille. Il a la bonne longueur, avec une jupe, un pantalon, qu'importe, il accompagnera toutes les tenues de printemps et d'été. Son point ajouré souligne bien l'encolure. Et pour les soirées plus fraîches, les petites manches sont parfaites.
02.02.2016 - 18:20Evelyn Rowley skrifaði:
I cannot wait for this one to be ready. It looks so easy to wear and match with, shorts or a skirt.
18.01.2016 - 03:23
Elly skrifaði:
Mooi strak
05.01.2016 - 00:38
Terri skrifaði:
I would like this in a 3X. It is so hard to find beautiful tops in women's plus sizes.
30.12.2015 - 20:00
Nita Sands skrifaði:
Love this top. the color is beautiful!
22.12.2015 - 09:14
Silvi skrifaði:
Super gern hätte ich die Anleitung,zum nacharbeiten.
17.12.2015 - 01:58
Carola Mousa skrifaði:
Zauberhaftes Modell, würde ich gern nacharbeiten.
15.12.2015 - 21:39
Roswitha skrifaði:
Ich liebe diesen Pullover und ich liebe dieses Model. Sie macht mit ihrem wunderschönen Lachen und Ihrer Ausstrahlung aus jedem Strickstück ein Meisterwerk.
12.12.2015 - 13:48
Sunrise Glow#sunriseglowtunic |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Prjónuð tunika úr DROPS Paris með gatamynstri, klauf í hliðum og hringlaga berustykki. Prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.
DROPS 170-14 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.2. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. ÚTAUKNING-1: Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn til að koma í veg fyrir göt. ÚTAUKNING-2: Prjónið þar til 2 l eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 4 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli l), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt til að koma í veg fyrir göt. ÚRTAKA: Fækkið á undan prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 l eru eftir á undan prjónamerki, 2 l slétt saman, 1 l sl. Fækkið á eftir prjónamerki þannig: 1 l sl, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TUNIKA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað ofan frá og niður, í hring á hringprjóna. BERUSTYKKI: Fitjið upp 92-104-108-120-126-138 l á hringprjóna nr 4 með Paris. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan og aukið út um 16-16-24-24-30-30 l jafnt yfir í næst síðustu umf (= umf með sl) – LESIÐ ÚTAUKNING-1 = 108-120-132-144-156-168 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5. Prjónið A.1 (= 12 l) alls 9-10-11-12-13-14 sinnum á breidd. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 207-230-253-276-299-322 l á prjóni. Stykkið mælist ca 19-19-22-22-24-24 cm. Prjónið 1 umf slétt og aukið út um 1-0-1-0-1-0 l jafnt yfir = 208-230-254-276-300-322 l Næsta umf er prjónuð þannig: Prjónið 32-36-41-45-49-53 l sl (= hálft bakstykki), setjið næstu 40-44-46-48-52-56 l á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8 nýjar l undir ermi, setjið 1 prjónamerki mitt á milli þessa 8 l, prjónið 64-71-81-90-98-105 l sl (= framstykki), setjið næstu 40-44-46-48-52-56 l á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8 nýjar l undir ermi, setjið 1 prjónamerki mitt á milli þessa 8 l, prjónið 32-35-40-45-49-52 l sl = 144-158-178-196-212-226 l. FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið nú stykkið áfram í sléttprjóni. Setjið 1 prjónamerki í stykkið, HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Þegar stykkið mælist 3 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við hvert prjónamerki í hliðum (= 4 l fleiri) – LESIÐ ÚTAUKNING-2, endurtakið útaukningu með 4-4-3-2½-2-2 cm millibili 9-9-12-14-16-18 sinnum til viðbótar = 184-198-230-256-280-302 l. Þegar stykkið mælist 43-45-44-46-46-48 cm prjónið framstykki og bakstykki fram og til baka, til loka hvort fyrir sig (þ.e.a.s. stykkið skiptist við prjónamerkin). BAKSTYKKI: = 92-99-115-128-140-151 l. Prjónið sléttprjón með 4 l garðaprjón í hvorri hlið á stykki. Þegar stykkið mælist 47-49-48-50-50-52 cm frá prjónamerki, passið að næsta umf er frá röngu, aukið út um 1-1-0-0-0-0 l = 93-100-115-128-140-151 l. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: 4 l garðaprjón, prjónið 4-2-4-5-0-0 l eins og fyrsta l í A.2, endurtakið A.2 (= 11 l) þar til eftir eru 8-6-8-9-4-4 l (= 7-8-9-10-12-13 sinnum á breidd), prjónið 4-2-4-5-0-0 l eins og síðasta l í A.2, endið á 4 l garðaprjón. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er næsta umf prjónuð frá réttu þannig: 4 l garðaprjón, endurtakið A.3 (= 3 l) þar til eftir eru 5 l JAFNFRAMT er aukið út um 0-2-2-1-1-2 l jafnt yfir í fyrstu umf, prjónið fyrstu l í A.3, endið á 4 l garðaprjón = 93-102-117-129-141-153 l. Þegar A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, skiptið yfir á hringprjóna nr 4. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN fram og til baka – sjá útskýringu að ofan. Fellið af. FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og bakstykki. ERMI: Ermarnar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. Setjið til baka 40-44-46-48-52-56 l af þræði á sokkaprjóna nr 5. Fitjið upp 8 nýjar l undir ermi, setjið eitt prjónamerki mitt á milli þessa 8 l = 48-52-54-56-60-64 l. Setjið 1 prjónamerki í stykkið, HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerkið (= 2 l færri) – LESIÐ ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 10 cm = 44-48-50-52-56-60 l. Þegar stykkið mælist 17 cm, skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4. Prjónið 4 umf garðaprjón. Fellið af. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sunriseglowtunic eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 170-14
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.