DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4004.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Lemon Cross

Prjónaður bolero úr DROPS Muskat prjónaðu eins og ferningur með gatamynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 170-5
DROPS Design: Mynstur nr r-694
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL – XXXL

Efni:
DROPS MUSKAT frá Garnstudio
350-350-400-450-500-500 g nr 07, ljós gulur

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l x 28 umf með gatamynstri verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN (60 cm) NR 3 – fyrir stroff.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4004.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GALDRAHRINGUR:
Til þess að koma í veg fyrir göt í miðju er byrjað á þessari aðferð:
Haldið í endann með vinstri hendi og gerið lykkju utan um vinstri vísifingur (frá vinstri að hægri).
Haldið í lykkjuna með vinstri þumli og vísifingri. Stingið prjóninum í gegnum lykkjuna, sækið þráðinn frá dokkunni (þ.e.a.s. leggið þráðinn 1 sinni yfir prjóninn frá þér) og dragið þráðinn til baka í gegnum lykkjuna, sláið 1 sinni uppá prjóninn (þráðurinn er nú lagður aftan við og að þér) og dragið uppsláttinn í gegnum l á prjóni, * stingið prjóninum inn í gegnum lykkjuna, sláið 1 sinni uppá prjóninn (þráðurinn er lagður aftan frá og að þér), dragið uppsláttinn í gegnum lykkjuna, sláið 1 sinni uppá prjóninn (aftan frá og að þér) og dragið uppsláttinn í gegnum síðustu l á hægri prjóni (þ.e.a.s. síðustu l sem var gerð) *, endurtakið frá *-* þar til 12 l eru á prjóni. Deilið l á 4 st sokkaprjóna nr 3,5 og prjónið eins og útskýrt er í uppskrift – JAFNFRAMT er dregið í þráðar endann þannig að lykkjan dragist saman og gatið hverfi.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA:
Fækkið l innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið l á eftir 1 kantlykkju þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.
Fækkið l á undan 1 kantlykkju þannig: 2 l slétt saman.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn br svo ekki myndist gat – útauknar l eru prjónaðar br (séð frá réttu).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

BOLERO - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Bakstykkið er prjónað eins og ferningur frá miðju að aftan. Byrjið á sokkaprjónum og skiptið yfir á hringprjóna eftir þörfum.
Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjóna út frá tveimur af hliðunum á ferningnum. Síðan er kantur prjónaður í kringum op á jakkanum.

BAKSTYKKI:
Byrjið á GALDRAHRINGUR – sjá útskýringu að ofan og Muskat = 12 l skipt á 4 sokkaprjóna nr 3,5. Prjónið mynstur í hring eftir mynsturteikningu A.1, þ.e.a.s. endurtakið A.1 alls 4 sinnum í umf (1 mynstureining á hverjum prjóni) og aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað eru 236 l í umf (þ.e.a.s. 59 l í hverri endurtekningu). Næsta umf er prjónuð þannig: * Prjónið A.2A (= 29 l), prjónið A.2C (= 30 l) *, endurtakið frá *-* 3 sinnum til viðbótar.
Haldið svona áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu. Þegar A.2A/A.2C hefur verið prjónað 1 sinni á hæð eru 268 l í umf (þ.e.a.s. 67 l í hverri endurtekningu). Næsta umf er prjónuð þannig: * Prjónið A.2B (= 30 l), prjónið A.3 (= 7 l), prjónið A.2D (= 30 l) *, endurtakið frá *-* 3 sinnum til viðbótar. Haldið svona áfram með mynstur þar til 300-316-332-356-372-388 l í umf (þ.e.a.s. 75-79-83-89-93-97 l í hverri endurtekningu) – ATH: A.3 kemur til með stækka á milli A.2B/A.2D

Haldið nú eftir l meðfram hlið 1 á prjóni – sjá mynsturteikningu (= vinstri ermi). Setjið l meðfram hlið 2 á þráð (= neðst á bakstykki). Setjið l meðfram hlið 3 á þráð (= hægri ermi). Setjið l meðfram hlið 4 á þráð (= efst á bakstykki við hnakka).

VINSTRI ERMI:
= 75-79-83-89-93-97 l. LESIÐ ALLAN KAFLANN UM ERMI ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Haldið áfram með mynstur fram og til baka á hringprjóna nr 3,5 eftir mynstri A.2B/A.2D og A.3 eins og áður með 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN í hvorri hlið – sjá útskýringu að ofan (ör í A.3 sýnir hvernig mynstur heldur áfram eftir stærðum í A.3). ATH: Útaukning í hvorri hlið er nú lokið (uppslátturinn yst í A.2B/A.2D er gerður aðeins lengri – þ.e.a.s. lykkjufjöldinn kemur til með að vera sá sami í hverri umferð. A.3 kemur til með að halda áfram að stækka og þess vegna verður A.2B/A.2D alltaf minna og minna í hvorri hlið). JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 3-3-3-2-2-2 cm fækkar um1 l í hvorri hlið – LESIÐ ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku í hvorri hlið í 6.-6.-4-.4.-4.-4. hverri umf alls 9-10-11-13-14-15 sinnum á hvorri hlið = 57-59-61-63-65-67 l eftir á prjóni – ATH: Þegar ekki eru fleiri l eftir í A.2B/A.2D í hvorri hlið er prjónað A.3 yfir allar l með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið – þær l sem ekki ganga jafnt upp í mynstri þegar l er fækkað eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 26 cm frá prjónamerki (eða að óskaðri lengd), skiptið yfir á hringprjóna nr 3. Prjónið 4 umf garðaprjón fram og til baka (1. umf = rétta) og fellið síðan laust af með sl frá réttu. Ermin mælist ca 27 cm frá prjónamerki.

HÆGRI ERMI:
Setjið til baka þær 75-79-83-89-93-97 l af þræði meðfram hlið 3 á hringprjóna nr 3,5 og prjónið fram og til baka á hringprjóna á sama hátt og vinstri ermi.

FRÁGANGUR:
Brjótið stykkið saman á lengd þannig að l af þráðum 2 og 4 á bakstykki (og prjónamerki í hvorri ermi) liggi á móti hvort öðru. Saumið ermasauma innan við 1 kantlykkju – byrjið neðst niðri á hvorri ermi og saumið upp að prjónamerki.

KANTUR:
Setjið l af þráðum 2 og 4 á hringprjóna nr 3 = 150-158-166-178-186-194 l á prjóni. Prjónið 1 umf slétt þar sem aukið er út um 50-52-54-62-64-66 l jafnt yfir (aukið út á eftir ca 3. hverja l) = 200-210-220-240-250-260 l á prjóni. Prjónið 1 umf br og 1 umf sl. Prjónið síðan mynstur í hring eftir mynstri A.4. Þegar kanturinn mælist 2 cm er aukið út um 1 á eftir hverri mynstureiningu – LESIÐ ÚTAUKNING = 240-252-264-288-300-312 l. Endurtakið útaukningu þegar kanturinn mælist 4 og 6 cm = 320-336-352-384-400-416 l (nú eru 3 l br á milli hverra mynstureininga alla leið hringinn). Þegar kanturinn mælist 7 cm er fellt af með sl yfir sl og br yfir br.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
symbols = 2 l slétt saman
symbols = takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 170-5

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (28)

country flag Bernice Nicholl wrote:

Hi, Love your patterns. I'm a little confused with the sizing on chart A.3.If I need to knit an XL, do I knit until the XL arrow? Sorry I'm new to charts and still trying understand how they work.

29.01.2023 - 21:54

DROPS Design answered:

Dear Bernice, for size XL, you start working A.3 from the arrow marked with XL upwards. Happy knitting!

29.01.2023 - 22:26

country flag Elfrieda wrote:

Ik snap niet hoe ik de armen moet maken in patroon. Ik kom elke keer niet uit hoe kan dit?

20.09.2022 - 16:33

DROPS Design answered:

Dag Elfrieda,

Nadat je de steken van de hulpdraad op de naald hebt gezet brei je verder in patroon heen en weer volgens de telpatronen. Kan je aangeven wat er precies niet ui komt? Welke maat brei je? Misschien kunnen we je dan beter helpen?

21.09.2022 - 19:33

country flag Carmen-Gabriela wrote:

Hallo, ist es möglich auch "kleine" Vorderteile zu stricken, so dass es etwas besser zur vorderen Mitte "schließt"? Ja, man könnte die Blende/Schalkragen breiter stricken, aber so würde man am VT das schöne Muster nicht sehen. Gleiches für Mod. 160-25. Beide so schön, aber eher Shrug:(

28.04.2022 - 18:44

DROPS Design answered:

Liebe Carmen-Gabriela, solche Modellen werden meistens nicht wie bei Jacken "geschlossen", aber einigen andere Modellen für Boleros haben wir schon, vielleicht kann Ihnen ein davon inspirieren. Viel Spaß beim stricken!

29.04.2022 - 08:12

country flag Stephanie wrote:

How do continue in A2B and A2D for the sizes for the back piece? (A3 shows 4 rows to become Medium but A2B and A2D are 8 rows) Thanks

21.08.2020 - 17:18

DROPS Design answered:

Dear Stephanie, work A.2B/A.2D and A.3 at the same time, butwhen you reach the correct number of sts = 316 in size M, then slip the stitches on different strands/stitch holders and work first left sleeve then right sleeve then knit the edge around whole piece after you have sewn sleeves. Happy knitting!

24.08.2020 - 07:48

country flag Silke wrote:

Ist es denkbar, die Ärmel auch in Runden auf einem Nadelspiel zu stricken? Zusammennähen gehört nicht zu meiner Lieblingsbeschäftigung ;-)

21.04.2019 - 21:56

DROPS Design answered:

Liebe Silke, wahrscheinlich können Sie die Ärmel in Runden stricken, die Anleitungen der Ärmel sollen Sie aber so anpassen, denn Sie dann keine Randmasche habe, aber trozdem 2 Maschen abnehmen sollen. Viel Spaß beim stricken!

23.04.2019 - 12:55

country flag Solfrid wrote:

Jeg skal begynne på armen og forstår ikke hvordan a2b og d blir mindre? " kutter" jeg 2masker på hver runde fra ytterkantene? Og hva med dia. A3. Skal jeg begynne på nytt eller fortsette over str.M.? Klarer ikke å se for meg hvordan jeg kan klare armene.

26.10.2018 - 19:07

DROPS Design answered:

Hei Solfrid. Maskeantallet i A.2b og A.2d skal forbli det samme, så du lager ikke lenger kastene ytterst (mot venstre i A.2d og mot høyre i A.2b). Mønsteret fortsetter å forskyves til hver sin side. Du fortsetter A.3 på samme måte som tidligere (se for deg at diagrammet fortsetter oppover og utover). A.3 vil øke utover, mens A.2b og A.2d vil forsvinne utover til hver side og tilslutt opphøre. God fornøyelse.

06.11.2018 - 09:27

country flag Svanhild Jenssen wrote:

Jeg har strikket bakstykket etter mønsteret og har strikket hele A.2B pga.2D. Det gjenstår en omgang rett. Under Venstre ermet står det at en skal strikke etter diagram A.2B/A.2D osv. Hvor skal jeg begynne på dette diagrammet. Noen har stilt samme spørsmål tidligere, svaret var en skulle fortsette der en stoppet. Dette forstår jeg ikke fordi jeg har strikket hele diagrammet på slutten av bakstykket.

10.07.2018 - 23:30

DROPS Design answered:

Hei Svanhild. Du fortsetter bare A.2B og A.2D på samme måte som tidligere (se for deg at diagrammet fortsetter på samme måte oppover). Men når du begynner på ermet økes det ikke i ytterkantene (= masketallet forblir det samme). Altså: du fortsetter å strikker A.2B, A.3 A.2D som før, og etter hvert som A.3 øker utover «spiser den opp» A.2B og A.2D i hver side. Tilslutt strikkes kun A.3 over maskene på ermet. God fornøyelse.

13.07.2018 - 13:38

country flag Svanhild Jenssen wrote:

Hvorfor strikkes ermet fram og tilbake og ikke rundt på rundpinne

10.07.2018 - 23:09

DROPS Design answered:

Ermene strikkes frem og tilbake da dette gjør det enklere å fortsette mønsteret fra bakstykket. God fornøyelse

13.07.2018 - 13:36

country flag Marlen wrote:

Hallo, ich bin gerade dabei, den linken Ärmel anzufangen und die Anleitung verwirrt mich ein bisschen. Es heißt, die Umschläge AUßEN in A2B/A2D nicht mehr zu machen. Heißt das, die beiden Umschläge am rechten Rand bei A2B und am linken Rand bei A2D nicht mehr gemacht werden? Oder werden die Umschläge links außen und rechts außen im Diagramm nicht gemacht, was allerdings die Musterfolge in der Mitte stören würde. Vielen lieben Dank im Voraus.

17.06.2018 - 20:49

DROPS Design answered:

Liebe Marlen, nur der 1. Umschlag in A.2B (= Zunahme) und der letzte Umschlag in A.2D (= Zunahme) werden nicht mehr gestrickt. Alle anderen Umschlage (mit Abnahmen) sollen wie zuvor gestrickt sein. Viel Spaß beim stricken!

18.06.2018 - 09:04

country flag Marlen wrote:

Hallo, liebes Drops Team. Ich habe eine Frage zur Maschenprobe: Dort ist von einem Lochmuster die Rede. Koennen Sie bitte praezisieren, welches Muster gemeint ist? Bei den Charts sehe ich zwei verschiedene. Vielen Dank im Voraus!

31.01.2018 - 23:06

DROPS Design answered:

Liebe Marlen, Maschenprobe muß 21 M x 28 Reihen in allen Muster, dh A.1, A.2 und A.3 sein. Viel Spaß beim stricken!

01.02.2018 - 08:45