Jelena skrifaði:
Dette kan fort bli en favoritt i skapet som kosegenser. Vakre farger ;)
31.05.2015 - 17:38
Anna skrifaði:
Gorgeous colours and a useful, classic (easy to knit?) shape that will enable the knitter to concentrate on the fair isle when knitting!
31.05.2015 - 13:07
Martine Peeters skrifaði:
Een droomvest...Ik geef de voorkeur aan het vest omdat ik hem vaker en langer zou dragen...Werkelijk een vintage stuk...
28.05.2015 - 18:54
Anneli Thylen skrifaði:
Gillar enkla modeller som är stickade i flera färger
28.05.2015 - 12:45
Petunia Cardigan#petuniacardigan |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með hringlaga berustykki og norrænu mynstri, prjónuð ofan frá og niður úr 2 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk eða 1 þræði DROPS Melody. Stærð S - XXXL.
DROPS 164-44 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2 (veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærði og byrjið á umf merktri með ör í réttri stærð). Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni með 2 þráðum Brushed Alpaca Silk (= BAS) eða 1 þræði Melody (= M). LEIÐBEININGAR: Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf er mikilvægt að herða ekki á þræði á bakhlið á stykki þegar mynstrið er prjónað. Notið e.t.v. grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist aðeins saman. ÚTAUKNING-1: Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2: Til þess að reikna út hversu oft eigi að auka út í umf, teljið fjölda lykkja í umf, mínus kanta að framan (t.d. 62 l, mínus 4 kantlykkjur að framan í hvorri hlið = 54 l) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 12 l) = 4,5. Þ.e.a.s. í þessu dæmi þá er aukið út til skiptis í 4. og 5. hverri l. ÚRTAKA: Fækkið lykkjum hvoru megin við prjónamerki þannig: Byrjið 2 l á undan prjónamerki, prjónið 2 l slétt saman, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir (= 2 l færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagati í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið þar til 4 kantlykkjur að framan eru eftir í umf (séð frá réttu), prjónið 3 l sl, fellið af með því að steypa 2. lykkju yfir 3. lykkju og prjónið síðustu l sl. Í næstu umf er fitjuð upp 1 ný l yfir þá l sem felld var af. Fellið af fyrir hnappagati þegar stykkið mælist (mælt frá uppfitjunarkanti): STÆRÐ S: 2, 11, 20, 29, 38 og 47 cm. STÆRÐ M: 2, 11, 20, 29, 38 og 47 cm. STÆRÐ L: 2, 10, 18, 26, 34, 42 og 50 cm. STÆRÐ XL: 2, 10, 18, 26, 34, 42 og 50 cm. STÆRÐ XXL: 2, 11, 20, 29, 38, 47 og 56 cm. STÆRÐ XXXL: 2, 11, 20, 29, 38, 47 og 56 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður. Þær 4 kantlykkjur að framan í hvorri hlið eru prjónaðar með grunnlit í mynstri í hverri umf þar til berustykki er lokið, prjónið síðan kanta að framan með litnum grár til loka. BERUSTYKKI: Fitjið upp 62-62-66-66-70-70 l (meðtaldar 4 kantlykkjur við miðju að framan í hvorri hlið) á hringprjóna nr 6 með 2 þráðum í litnum natur með Brushed Alpaca Silk eða 1 þræði í litnum natur Melody. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 7 og prjónið 1 umf slétt frá réttu þar sem aukið er út um 12-18-14-17-13-16 l jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING-1 og ÚTAUKNING-2 (ekki er aukið út yfir kant að framan) og munið eftir HNAPPAGAT í hægri kant að framan – sjá útskýringu að ofan = 74-80-80-83-83-86 l. Næsta umf er prjónuð frá röngu: 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið mynstur eftir A.1 (veljið mynstur fyrir rétta stærð) þar til 4 l eru eftir á prjóni (= 22-24-24-25-25-26 mynstureiningar ca l) og endið á 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. LESIÐ LEIÐBEININGAR og aukið út eins og útskýrt er í mynstri (= frá réttu – ATH: Í umf með uppslætti í mynstri er einnig aukið út um 1 l eftir síðustu l á undan kant að framan, þessi l er prjónuð eins og fyrsta l í mynstri svo að mynstrið byrji og endi eins í hvorri hlið við miðju að framan) = 97-105-105-109-109-113 l á prjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Aukið síðan út þannig (ekki er aukið út yfir kant að framan): Í umf merktri með ör-1 í mynstri er aukið út um 30-34-38-46-50-54 l jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING-2 = 127-139-143-155-159-167 l. Í umf merktri með ör-2 í mynstri er aukið út um 30-30-34-34-38-38 l jafnt yfir = 157-169-177-189-197-205 l. Í umf merktri með ör-3 í mynstri er aukið út um 20-20-24-24-28-32 l jafnt yfir = 177-189-201-213-225-237 l. Í umf merktri með ör-4 í mynstri er aukið út um 12-12-16-20-24-24 l jafnt yfir = 189-201-217-233-249-261 l. Í umf merktri með ör-5 í mynstri er aukið út um 10-10-14-10-14-14 l jafnt yfir = 199-211-231-243-263-275 l. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka mælist stykkið ca 19-21-21-22-23-23 cm frá uppfitjunarkanti. Næsta umf er prjónuð frá réttu með 2 þráðum í litnum grár Brushed Alpaca Silk eða 1 þræði í litnum grár Melody: Prjónið fyrstu 31-33-37-40-44-46 l eins og áður (= vinstra framstykki), setjið næstu 41-43-45-45-47-49 l á þráð (= ermi), fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar l á prjóni (= undir ermi), prjónið næstu 55-59-67-73-81-85 l (= bakstykki), prjónið næstu 55-59-67-73-81-85 l (= bakstykki), setjið næstu 41-43-45-45-47-49 l á þráð (= ermi), fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar l á prjóninn (= undir ermi), prjónið 31-33-37-40-44-46 l sem eftir eru (= hægra framstykki). FRAM- OG BAKSTYKKI: = 129-137-153-169-185-193 l. Setjið 1 prjónamerki – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið 1 umf br frá röngu með grár og 4 kantlykkjur að framan í hvorri hlið í garðaprjóni. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: 4 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.2 þar til 5 l eru eftir á prjóni, prjónið fyrstu l í A.2 (svo að mynstrið byrji og endi eins í hvorri hlið við miðju að framan) og endið á 4 kantlykkjum í garðaprjóni. Eftir A.2 er prjónað með grár til loka (með 2 þráðum Brushed Alpaca Silk/1 þræði Melody). Prjónið þar til stykkið mælist 35-35-37-38-39-41 cm. Nú eru eftir 2 cm að loka máli (mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). Skiptið yfir á hringprjóna nr 6. Prjónið 8 umf garðaprjón (1. umf = rétta) og fellið LAUST af. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Setjið l af þræði frá annarri hlið á stykki á sokkaprjóna nr 7. Prjónið 1 umf slétt með litnum grár og fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar l í lok umf = 47-49-51-53-55-57 l á prjóni. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-6-8-8-8 nýjar l (= miðja undir ermi) og setjið 1 prjónamerki í miðju l í umf (= miðja ofan á ermi) – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið mynstur í hring eftir mynsturteikningu A.2 (l með ör og stjörnu í mynstri eiga að passa við l með prjónamerki í fyrir miðju ofan á ermi – teljið út frá þeim stað þar sem umf byrjar). Þegar stykkið mælist 2-2-3-3-4-4 cm fækkið lykkjum hvoru megin við prjónamerki mitt undir ermi – LESIÐ ÚRTAKA (= 2 l færri). Endurtakið úrtöku með 5½-5-4-4-3½-3½ cm millibili alls 7-8-9-9-10-10 sinnum = 33-33-33-35-35-37 l. JAFNFRAMT eftir A.2 er prjónað með litnum grár til loka (með 2 þráðum Brushed Alpaca Silk/1 þræði Melody). Prjónið þar til stykkið mælist 43-42-42-42-42-42 cm (ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla). Nú eru eftir 2 cm að loka máli (mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 6. Prjónið 8 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan og fellið LAUST af, ermin mælist ca 45-44-44-44-44-44 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #petuniacardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 164-44
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.