Petra Zühlke skrifaði:
Interessantes Modell. Könnte ich mir vorstellen, dieses nachzustricken.
11.12.2013 - 10:38
Simone skrifaði:
Dies ist ein außergewöhlich schönes Modell- ganz großartig!!!!
11.12.2013 - 09:07
Egle skrifaði:
Bello! Mi ricorda il mio poncho quadrato che ho fatto con la big delight
10.12.2013 - 17:33
Blue Maze#bluemazejacket |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Delight og DROPS Alpaca prjónuð í vinkil í garðaprjóni með sjalkraga. Stærð S - XXXL.
DROPS 153-13 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á hringprjóna): *1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-* RENDUR: *2 umf garðaprjón með Delight og 2 umf garðaprjón með Alpaca*, endurtakið frá *-* í gegnum allt stykkið. MÁL: Öll mál eru gerð þegar stykkinu er haldið uppi. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Bakstykkið er prjónað frá miðju að aftan eins og ferhyrningur. Síðan er prjónað áfram efst á berustykki og neðst á bakstykki. Framstykki er prjónað á sama hátt, en eins og helmingur af bakstykki. Þ.e.a.s. eins og hálfur ferningur, en með kant að framan og kraga. Ermar eru prjónaðar í lokin. BAKSTYKKI: Fitjið upp 8 l með Delight og skiptið þeim niður á 4 sokkaprjóna nr 3,5 (= 2 l á hverjum prjóni). Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna með GARÐAPRJÓN – og RENDUR – sjá útskýringu að ofan. UMFERÐ 1: Prjónið slétt. UMFERÐ 2: Prjónið br og setjið prjónamerki í fyrstu, þriðju, fimmtu og sjöttu l (= prjónamerki). UMFERÐ 3: Prjónið slétt og aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn hvoru megin við hvert prjónamerki umf hringinn. UMFERÐ 4: Prjónið allar l og uppsláttinn br = 16 l. UMFERÐ 5: Nú er umf færð til í byrjun um 1 l, þetta er gert til þess að litaskiptin koma í annað hornið á stykkinu þannig að litaskiptin verða fallegri. Færið nú fyrstu l í umf yfir á hægri prjón án þess að prjóna hana, þessi l er nú síðasta l í umf. Prjónið nú sl með því að slá 1 sinni uppá prjóninn hvoru megin við hvert prjónamerki umf hringinn. UMFERÐ 6: Prjónið allar l og uppsláttinn br = 24 l. Endurtakið umf 5 og 6, skiptið l niður á prjóna eftir þörfum þannig að léttara verði að prjóna stykkið, skiptið yfir á hringprjóna eftir þörf. Haldið áfram að prjóna svona þar til 456-496-536-568-624-680 l eru eftir á prjóni (= 56-61-66-70-77-84 útaukningar og 114-124-134-142-156-170 l meðfram hvorri hlið). Í næstu umf með br er prjónað þannig: Prjónið 114-124-134-142-156-170 br, fellið af næstu 114-124-134-142-156-170 l (= hlið á peysu), prjónið næstu 114-124-134-142-156-170 l og setjið síðan lykkjurnar á þráð (= neðri kantur á peysu) og fellið af næstu 114-124-134-142-156-170 l (= hlið á peysu). Prjónið garðaprjón og rendur fram og til baka yfir 114-124-134-142-156-170 l á prjóni fyrir berustykki. Þegar stykkið mælist 59-62-65-68-72-76 cm – LESIÐ MÆLING að ofan, fellið af miðju 14-14-16-16-18-18 l fyrir hálsmáli og hvor öxl er nú prjónuð til loka fyrir sig. Fellið af í byrjun hverrar umf frá hálsmáli þannig: Fellið af 1 l 2 sinnum = 48-53-57-61-67-74 l eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 61-64-67-70-74-78 cm og fellið af. Setjið 2 prjónamerki í stykkið, setjið prjónamerki í hvora langhlið 26-27-29-30-31-32 cm niður frá hvorri öxl, prjónamerkin eru notuð þegar ermar eru saumaðar í. Setjið til baka þær 114-124-134-142-156-170 l inn af bandi frá kanti að neðan á hringprjóna nr 3,5 og prjónið garðaprjón og rendur fram og til baka þar til stykkið mælist 72-74-76-78-80-82 cm frá öxl, fellið laust af. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið laust upp 12 l með Delight á sokkaprjóna nr 3,5. Skiptið yfir í Alpaca og prjónið 2 umf garðaprjón, skiptið yfir í Delight og prjónið 2 umf garðaprjón. Skiptið yfir í Alpaca og prjónið 1 umf slétt, snúið stykkinu réttsælis og prjónið upp 4 l meðfram hlið í garðaprjóni. Snúið stykkinu aftur og takið upp 12 l frá neðri kanti á uppfitjunarkanti = 28 l á prjóni. Prjónið 1 umf slétt til baka yfir allar l. Setjið prjónamerki í 13. og 16. l. Prjónið nú garðaprjón og rendur JAFNFRAMT er aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn hvoru megin við 13. og 16. l í hverri umf frá réttu (= 4 l fleiri), uppslátturinn er prjónaður slétt í næstu umf þannig að það myndist litið gat. Skiptið yfir á hringprjóna þegar nægilegur fjöldi l er kominn á prjóninn. Haldið áfram að auka svona út þar til aukið hefur verið alls 56-61-66-70-77-84 sinnum og það eru 252-272-292-308-336-364 l á prjóni. Í næstu umf frá röngu eru fyrstu 69-74-79-83-90-97 l prjónaðar slétt og setjið þær síðan á þráð (= neðri kantur á peysu), fellið af næstu 114-124-134-142-156-170 l (= hlið á peysu). Prjónið garðaprjón og rendur fram og til baka yfir síðustu 69-74-79-83-90-97 l á prjóni fyrir berustykki, prjónið þar til stykkið mælist 61-64-67-70-74-78 cm. Í næstu umf frá röngu eru felldar af fyrstu 48-53-57-61-67-74 l. Setjið 1 prjónamerki í stykkið, setjið það á langhlið 26-27-29-30-31-32 cm niður frá öxl, prjónamerkið er notað þegar ermin er saumuð í. Nú eru 21-21-22-22-23-23 l eftir á prjóni fyrir kraga. Prjónið nú garðaprjón og rendur fram og til baka yfir þessar l JAFNFRAMT eru prjónaðar stuttar umferðir þannig: Byrjið frá röngu við öxl. * Prjónið 1 umf sl yfir allar l, prjónið 2 umf garðaprjón einungis yfir 12 síðustu l frá miðju að framan, prjónið 1 umf slétt yfir allar l, skiptið um lit *, endurtakið frá *-*. Það verða 2 umf garðaprjón lengst inn og 4 umf garðaprjón lengst út með sama lit á eftir hvor öðrum á kraga. Prjónið þar til kraginn mælist ca 5-5-5,5-5,5-6-6 cm lengst inn þar sem stykkið er minnst og fellið af. Setjið til baka þær 69-74-79-83-90-97 l sem eru á bandi á prjóninn og prjónið garðaprjón fram og til baka þar til stykkið mælist 72-74-76-78-80-82 cm frá öxl, fellið laust af. VINSTRA FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema spegilmynd þar til aukið hefur verið út alls 56-61-66-70-77-84 sinnum og það eru 252-272-292-308-336-364 l á prjóni. Prjónið 69-74-79-83-90-97 l sl frá réttu og setjið síðan á þráð (= neðri kantu rá peysu), fellið af næstu 114-124-134-142-156-170 l (= hlið á peysu). Prjónið garðaprjón fram og til baka yfir síðustu 69-74-79-83-90-97 l fyrir berustykki, prjónið þar til stykkið mælist 61-64-67-70-74-78 cm. Í næstu umf frá réttu eru felldar af fyrstu 48-53-57-61-67-74 l, prjónið yfir síðustu 21-21-22-22-23-23 l. Setjið 1 prjónamerki í stykkið, setjið það á langhlið 26-27-29-30-31-32 cm niður frá öxl, prjónamerkið er notað þegar ermin er saumuð í. Prjónið nú garðaprjón fram og til baka yfir þessar l JAFNFRAMT eru prjónaðar stuttar umf þannig: Snúið stykkinu við og byrjið frá röngu við miðju að framan. * Prjónið 2 umf garðaprjón yfir síðustu 12 l frá miðju að framan, prjónið 2 umf garðaprjón yfir allar l, skiptið um lit *, endurtakið frá *-* . Það verða 2 umf garðaprjón lengst inn og 4 umf garðaprjón lengst út í saman lit á eftir hvor öðrum á kraga. Prjónið þar til kraginn mælist ca 5-5-5,5-5,5-6-6 cm lengst inn þar sem stykkið er minnst og fellið af. Setjið til baka þær 69-74-79-83-90-97 l sem eru á þræði á prjóninn og prjónið garðaprjón fram og til baka þar til stykkið mælist 72-74-76-78-80-82 cm frá öxl, fellið laust af. ERMI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá öxl. Fitjið upp 122-126-132-136-140-146 l á hringprjóna nr 3,5 með Delight og prjónið garðaprjón og rendur fram og til baka eins og áður þar til stykkið mælist ca 2 cm. Fellið nú af 1 l innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið með því að prjóna 2 l slétt saman. Endurtakið með ca 1 cm millibili 13 sinnum til viðbótar (= alls 14 sinnum) = 94-98-104-108-112-118 l. Prjónið þar til stykkið mælist 17 cm og fellið síðan laust af. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið yst í lykkjubogann þannig að saumurinn verði ekki of þykkur. Saumið axlasauma. Saumið ermar í innan við prjónamerki á hlið. Saumið sauma undir ermum og hliðarsauma í eitt. Saumið saman kraga við miðju að aftan (saumurinn á að snúa út frá réttu, þannig að þegar kraginn er brotinn niður þá kemur saumurinn til með að liggja undir kraganum og þannig sést hann ekki). Saumið kraga við hálsmál aftan við hnakka. Klippið frá og festið enda. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #bluemazejacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 153-13
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.