DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5676.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Verano

Hekluð peysa úr DROPS Cotton Merino með gatamynstri og tvöföldum stuðlum. Stærð S - XXXL.

DROPS 153-14
DROPS Design: Mynstur nr cm-004
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: S/M - L/XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS COTTON MERINO frá Garnstudio
300-300-350-350 gr litur nr 01, hvítur

DROPS HEKLUNÁL NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 13 tbst verði 10 cm á breiddina, eða að 3 mynstureiningar af A.2 verði 10 cm á breiddina.
DROPS PERLUTALA NR 540: 5 stk í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5676.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun á hverri umf með tbst er fyrsta tbst skipt út fyrir 4 ll.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1-A.5.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Umferð 1 í mynstri A.4 og A.5 er ekki heklað á bakstykki, bara á framstykki.

HNAPPAGAT:
Ekki er fellt af fyrir hnappagötum, heldur eru tölur saumaðar í vinstri kant að framan og hneppt er á milli tveggja tbst/þbst í hægri kanti að framan.
Mælt er frá uppfitjunarkanti og saumið tölur í þannig:
STÆRÐ S/M: 12, 20, 28, 36 og 44 cm.
STÆRÐ L/XL: 14, 22, 30, 38 og 46 cm.
STÆRÐ XXL: 10, 20, 30, 40 og 50 cm.
STÆRÐ XXXL: 12, 22, 32, 42 og 52 cm.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað fram og til baka.

BAKSTYKKI:
Heklið 83-95-108-120 ll með heklunál nr 5 með Cotton Merino.
Fyrsta umf er hekluð þannig (= ranga): Heklið 1 fl í 2. ll frá heklunálinni = 1 fl, 1 fl í hverja af næstu 1-3-1-3 ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 fl í hverja af næstu 4 ll *, endurtakið frá *-* 16-18-21-23 sinnum = 66-76-86-96 fl.
Heklið nú þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Heklið A.1 1 sinni, heklið A.2 þar til 8 fl eru eftir (= 10-12-14-16 sinnum á breiddina) og endið á A.3 1 sinni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
UMFERÐ 2 (= ranga): Snúið við og heklið A.3 1 sinni, A.2 (= 10-12-14-16 sinnum á breiddina), A.1 1 sinni.
UMFERÐ 3 (= rétta): Snúið við og heklið A.1 1 sinni, A.2 (= 10-12-14-16 sinnum á breiddina), A.3 1 sinni.
Endurtakið umf 2 og 3 þar til stykkið mælist ca 29-28-28-29 cm – stillið af að endað er á umf 3 (= rétta). Klippið frá.
Heklið nú þannig: * Heklið 10-5-5-5 lausar ll, byrjið frá röngu og haldið áfram með A.3, A.2 og A.1 yfir bakstykki eins og áður og endið á 10-5-5-5 lausar ll, snúið við. Heklið nú þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Heklið 5 ll, í 10. ll frá heklunálinni er heklað 2 tbst + 2 ll + 2 tbst (= 1 mynstureining á A.1), heklið A.2 2-1-1-1 sinnum (síðasta mynstureiningin af A.2 er hekluð um 2 ll í A.1 frá fyrri umf). Haldið síðan áfram með A.2 alls 10-12-14-16 sinnum yfir allt bakstykkið eins og áður og endið umf þannig: Heklið A.2 um 2 ll í A.3 frá fyrri umf, haldið síðan áfram með A.2 1-0-0-0 sinnum og síðan A.3, síðasta l er í 1. ll frá fyrri umf. Klippið frá og snúið við *, í stærð L/XL – XXL – XXXL er endurtekið frá *-* 1 sinni til viðbótar, JAFNFRAMT eru nú heklaðar 2 auka mynstureiningar af A.2 yfir bakstykki. Þ.e.a.s. að hekluð er 1 auka mynstureining af A.2 yfir útauknu mynstureininguna frá fyrri umf í hvorri hlið á stykki = alls 16-18-20 mynstureiningar af A.2 í stærð L/XL – XXL – XXXL. ATH! Í stærð S/M er ekki endurtekið *-*, heldur er haldið áfram eins og áður eins og útskýrt er út að neðan.
Heklið 13-13-13-13 lausar ll, byrjið frá röngu og haldið áfram með A.2 í ll-boga frá A.3 frá fyrri umf, A.2 yfir ermar og bakstykki eins og áður og A.2 í ll-boga í A.1 frá fyrri umf og endið á 13-13-13-13 lausum ll. Heklið nú þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Heklið A.1 og A.2 1 sinni yfir nýju l. Haldið síðan áfram með A.2 yfir ermar og bakstykki eins og áður og endið á 1 mynstureiningu á A.2 og A.3. Haldið áfram með þetta mynstur þar til stykkið mælist ca 49-51-55-57 cm – stillið af að enda á einni umf frá röngu.
Heklið nú hvora öxl fyrir sig til loka þannig:

HÆGRI ÖXL:
Heklið A.1 1 sinni og A.2 alls 5-6-6-7 sinnum, heklið nú umf 2 í mynstri A.4 – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Snúið við og heklið umf 3 af A.4 og haldið áfram með umf A.2 og A.1 eins og áður. Haldið áfram þar til stykkið mælist 52-54-58-60 cm. Klippið frá.

VINSTRI ÖXL:
Heklið vinstri öxl á sama hátt og hægri öxl, nema spegilmynd og heklið A.3 í stað A.1 og umf 2 af A.5 í stað A.4.
Byrjið á umf 2 í A.5 fyrir miðju í umf, þannig að það verða 4-4-6-6 mynstureiningar af A.2 á breiddina fyrir hálsmál.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Stykkið er heklað fram og til baka. Heklið 45-52-58-64 ll með heklunál nr 5 með Cotton Merino. Fyrsta umf er hekluð þannig (= ranga): Heklið 1 fl í 2. ll frá heklunálinni, 1 fl í hverja og eina af næstu 4-1-2-3 ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 fl í hverja af næstu 4 ll *, endurtakið frá *-* alls 7-9-10-11 sinnum og endið á 1 fl í hverja af næstu 4 ll = 37-42-47-52 fl.
UMFERÐ 1 (= rétta): Heklið 4 ll (jafngilda 1 tbst), 1 tbst í hverja af næstu 3 fl (= 4 tbst fyrir kant að framan) ATH: Kanturinn að framan er heklaður með aðra hverja umf með tbst og þbst! Heklið nú A.2 alls 5-6-7-8 sinnum, endið á A.3 1 sinni.
Endurtakið þetta mynstur, með 4 tbst/tbst fyrir kant við miðju að framan þar til stykkið mælist ca 29-28-28-29 cm – stillið af eftir bakstykki og endið á einni umf frá réttu. Klippið frá.
Heklið nú 10-5-5-5 lausar ll fyrir ermi og haldið áfram eins og á bakstykki. Þegar stykkið mælist 42-44-46-48 cm er hekluð 1 umf frá röngu þannig: Mynstur eins og áður þar til 3 mynstureiningar eru eftir á A.2 og 4 tbst. Heklið mynstur eftir mynstri A.5 yfir þessar l. Snúið við og heklið A.5 til baka, haldið áfram út umf með mynstri eins og áður. Haldið áfram fram og til baka þar til stykkið mælist alls 52-54-58-60 cm. Klippið frá

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Heklið á sama hátt og hægra framstykki, nema spegilmynd. Heklið eftir mynstri A.1 í stað A.3 og þegar úrtaka fyrir hálsmál byrjar er heklað eftir A.4 í stað A.5.

FRÁGANGUR:
Leggið framstykki ofan á bakstykki og heklið axlir saman þannig: * Heklið 1 fl í gegnum bæði stykkin, 3 ll, hoppið yfir 2 tbst *, endurtakið frá *-*. Heklið saman hliðar þannig: Heklið 1 fl, * 3 ll, 1 fl um ll-bogann í næstu umf *, endurtakið frá *-*. Heklið saman undir ermum þannig: * 1 fl í ll í næsta tbst-hóp, 3 ll *, endurtakið frá *-* og endið á 1 fl.
Saumið tölur í á vinstri kant að framan og hneppið saman á milli tveggja tbst/þbst á hægri kant að framan.

HÁLSMÁL:
Heklið hálsmál með byrjun frá röngu þannig:
UMFERÐ 1: Festið þráðinn með 1 fl lengst út, * 3 ll, hoppið yfir ca 2 cm, 1 fl *, endurtakið frá *-* umf í kringum allt hálsmálið. Snúið við.
UMFERÐ 2: Heklið 4 ll, 3 tbst um fyrsta ll-boga, * 3 tbst í næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* meðfram allri umf og endið á 1 tbst í fyrstu ll frá fyrri umf. Snúið við.
UMFERÐ 3: * Heklið 3 ll, hoppið yfir 3 tbst, 1 fl á milli tveggja næstu tbst-hópa *, endurtakið frá *-* meðfram allri umf. Snúið við.
UMFERÐ 4: Heklið 2 ll, 1 fl um fyrsta ll-boga, * 2 ll, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* meðfram allri umf. Klippið frá og festið enda.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 29.01.2014
Tbst, ekki st: Hekluð DROPS peysa úr ”Cotton Merino” með gatamynstri og tvöföldum stuðlum. DROPS HEKLUNÁL NR 5 – eða sú stærð sem þarf til þess að 13 tbst verði 10 cm á breidd, eða að 3 mynstureiningar af A.2 verði 10 cm á breidd. FRÁGANGUR: ... Heklið saman undir ermum þannig: * 1 fl í ll í næsta tbst-hóp, 3 ll *, endurtakið frá *-* og endið á 1 fl.... HÁLSMÁL: UMFERÐ 3: * 3 ll, hoppið yfir 3 tbst, 1 fl á milli næstu tveggja tbst-hópa *, endurtakið frá *-* meðfram allri umf. Snúið við.
Yfirfarið á vefsvæði: 28.08.2014
Nýtt mynstur: A.4 og A.5

Mynstur

symbols = 1 ll
symbols = 1 fl
symbols = 1 tbst
symbols = kl
symbols = Byrjið í þessari röð þegar fellt er af fyrir hálsmáli á hægri bakhlið = rétta
symbols = Byrjið hér í þessari röð þegar fellt er af fyrir hálsmáli á vinstri bakhlið. ATH! Umferðin byrjar á kl fram að ll-boga.
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 153-14

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (108)

country flag Seraina Braun wrote:

Guten Tag, ich würde gerne dieses Oberteil häkeln verstehe aber folgenden Anleitungsschritt zu Beginn des Rückenteils nicht: "1 fM in jede der nächsten 1-3-1-3 Lm". Bedeutet dies, eine fM in die nächste Lm, dann 2 Lm auslassen und eine fM in die 3. Lm? Beste Grüsse

09.05.2023 - 04:26

DROPS Design answered:

Liebe Frau Braun, da die Luftmaschenkette am Anfang ist oft eng wird man hier mehr Luftmaschen häkeln als man fMaschen braucht, und bei der 1. Reihe werden dann regelmäßig verteilt Luftmaschen übersprungen. Viel Spaß beim häkeln!

09.05.2023 - 07:50

country flag Ina wrote:

Geweldig vestje maar heb al aardig wat zitten studeren op het achterpand.. bij de meerderend voor de mouw kan ik het niet meer volgen. Een foto zou zo behulpzaam zijn. Is het mogelijk om ergens een foto te plaatsen van het gebreide achterpand? Want dan kan ik misschien zien of ik het nu wel of niet goed heb gedaan.. ik hoor het graag, bedankt alvast!

24.04.2023 - 19:36

DROPS Design answered:

Dag Ina,

Helaas is er geen foto van het achterpand. Als je begint met de armsgaten dan heb je eerst het werk afgehecht en begin je met een nieuwe draad om lossen mee te haken. Wanneer je deze 10-5-5-5 (10 voor maat S/M, 5 voor de andere maten) hebt gehaakt, dan haak je verder over het zojuist afgehechte achterpand terwijl je gehaakte lossen nog aan je haaknaald bungelen. Aan het eind van de toer haak je weer 10-5-5-5 lossen. Op deze manier heb je aan beide kanten gemeerderd voor de mouwen. In een van de video's onderaan het patroon wordt dit ook uitgelegd.

24.04.2023 - 20:50

country flag Lena wrote:

Hej Jeg vil gerne have lange ærmer i jakken. Kan man lave det? Og i så fald hvordan?

08.01.2023 - 18:27

DROPS Design answered:

Hej Lena, du hækler bare flere lm når du kommer til ærmerne, du har 13 dbl-st eller 3 rapporter A.2 på 10 cm i bredden :)

10.01.2023 - 13:42

country flag Gerda wrote:

Achterpand heb ik zonder problemen gehaakt. Nu ik met het voorpand ben begonnen kom ik niet uit. Ik haak maat XXL. 1. Volgens mij moet ik start met 65 lossen ipv 64 om tot 52 steken te komen. Ik sla de volgende steken over 1, 6, 11,16,21,36,41,46,51,56,61. Dit zijn totaal 13. 64-13 is 51 ipv 52. 2. Vervolgens haak ik 4xdstk. 8x A2. in de steken 9,14,19,24,29,34,39,44. En 1xA3 in steek 49. Er blijven dan 3 steken over ipv 5 voor de laatst dstk. Wat moet ik doen?

28.12.2021 - 17:56

DROPS Design answered:

Dag Gerda,

Voor het opzetten zou je een paar extra lossen op kunnen zetten. De overgebleven lossen kun je later uithalen. Het gaat erom dat je 47 vasten hebt voor maat xxl voordat je begint aan toer 1. Op toer 1 haak je vervolgens 4 driedubbele stokjes (het eerste driedubbele stokje wordt vervangen door 4 lossen), dan 7 keer A.2 = 35 steken en éen keer A.3 = 8 steken is in totaal 47 steken voor maat xxl.

29.12.2021 - 12:49

country flag Magie wrote:

Good afternoon! I am a beginner en really enjoying the pattern. Where is the pattern for the sleeves?

22.05.2021 - 17:22

DROPS Design answered:

Dear Magie, there are no separate sleeves, but stitches are added on, and then cast off to/from the body. Happy Crafting!

23.05.2021 - 02:21

country flag Adri wrote:

Het is een moeilijk patroon, d.w.z. de beschrijving is gebrekkig. Ik heb het onderste gedeelte van het achterpand gehaakt en moet nu meerderen maar met deze omschrijving kom ik er niet uit. Je moet 5 lossen haken en dan? Moet je die dan aan het andere haakwerk vastmaken en wat betekent de uitdrukking na de haak? Is dat na de haaknaald? Graag een duidelijke tekening erbij van het meerderen. En wat moet ik doen als ik de mouwen langer wil hebben, moet ik dan meer dan 13 lossen haken?

27.09.2020 - 19:40

DROPS Design answered:

Dag Adri,

Als het goed is ben je aan het einde van een toer aan de goede kant, voordat je begint met het opzetten van steken voor de mouwen. Je haakt dan eerst 5 lossen en haakt dan terug over de verkeerde kant, het betekent dus dat er een herhaling van A.2 bij is gekomen met de 5 extra lossen. Aan het eind van de toer haak je weer 5 lossen extra. Op deze manier maak je een mouw. Voor de grotere maten moet je wat tussen de sterretjes staat nog een keer herhalen. Als je de mouw langer wilt maken, zul je meer steken aan het eind op moeten zetten in een meervoud van 5 steken.

20.11.2020 - 11:52

country flag Nana wrote:

Ik vindt al uw te maken projecten zeer mooi! Al merk ik dat er bij elk patroon zoveel verwarring is bij de breisters/haaksters ! Volgens mij moet de beschrijving van de patronen eenvoudiger worden opgesteld want op geen enkel andere handwerk site worden er zoveel moeilijkheden gevonden.

01.09.2020 - 16:47

country flag Fanny wrote:

Bonjour, \"ajuster pour arrêter après 1 rang à l envers\". Quel est le repère ? Le fil de la chaînette se trouve à gauche ou à droite de l ouvrage quand on termine ce rang ? J espère me faire comprendre .....Merci d avance.

16.04.2020 - 19:02

DROPS Design answered:

Bonjour Fanny, utilisez le 1e rang du dos comme repère, le tout 1er rang se fait sur l'envers, puis le 1er rang des diagrammes (= A.1, A.2) se fait sur l'endroit. Bon crochet!

17.04.2020 - 09:35

country flag Susy wrote:

Hi, I’ve started A1 and did the first row of tr, but how do I go back to the beginning to start the second row? Do I turn my work around?

13.08.2019 - 05:46

DROPS Design answered:

Dear Susy, you first work from RS: A.1 one time in width, then repeat A.2 in width until 8 sts remain, and now work A.3. Then turn and work from WS: A.3, repeat A.2 and finish row with A.1. Read more about crochet diagrams here. Happy crocheting!

13.08.2019 - 08:31

country flag Kitty wrote:

Ist es korrekt, dass der Halsausschnitt am Rückenteil nicht so breit ist wie auf der Vorderseite? Bei den Schultern der Rückseite habe ich 6 Rapporte A.2, beim Vorderteil nur 4. Ich kann den Fehler nicht entdecken, gehe aber davon aus, dass die Schultern gleich breit sein sollen.

27.06.2019 - 21:21

DROPS Design answered:

Liebe Kitty, die Schultern sollen gleich sein, dh wenn Sie 6 Rapporte A.2 beim Rückenteil haben, sollen Sie auch 6 Rapporte A.2 beim jeden Vorderteil haben. Viel Spaß beim häkeln!

28.06.2019 - 06:30