DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9130.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Letizia

Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca og DROPS Alpaca Silk eða DROPS Vivaldi með köðlum. Stærð S - XXXL.

DROPS 153-16
DROPS Design: Mynstur nr z-666
Garnflokkur A + C eða D
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio
250-300-350-350-400-450 gr litur nr 8105, ísblár
Og einnig
DROPS ALPACA SILK frá Garnstudio
150-175-200-200-225-250 gr litur nr 14, ljós grágrænn
Eða
DROPS VIVALDI frá Garnstudio
150-200-200-200-250-250 gr litur nr 09, ljós blár

DROPS HRINGPRJÓNAR (60 og 80 cm) NR 4,5 – eða þá stærð sem þarf til að 16 l og20 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS PERLUTALA, NR 522: 2 stk í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9130.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA:
Fækkið lykkjum innan við 1 kantlykkju. Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum á undan 1 kantlykkju þannig: Prjónið 2 l slétt saman.
Fækkið lykkjum á eftir 1 kantlykkju þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið fjórðu og fimmtu l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
STÆRÐ S: 36 og 43 cm.
STÆRÐ M: 37 og 44 cm.
STÆRÐ L: 38 og 45 cm.
STÆRÐ XL: 39 og 46 cm.
STÆRÐ XXL: 40 og 47 cm.
STÆRÐ XXXL: 41 og 48 cm.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 82-87-93-101-111-123 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 4,5 með 1 þræði af Alpaca + 1 þræði Alpaca Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umf br frá röngu. Prjónið næstu umf þannig: 1 kantlykkja, 11-11-11-12-11-11 l br, * A.1 (= 3 l), 8-9-8-9-9-9 l br * endurtakið frá *-* alls 5-5-6-6-7-8 sinnum, A.1, endið á 11-11-11-12-11-11 l br og 1 kantlykkju. Haldið áfram með þetta mynstur, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 5 cm er fækkað um 1 l í hvorri hlið með 6 -6-6-6½-6½-6½ cm millibili alls 7 sinnum = 68-73-79-87-97-109 l. Þegar stykkið mælist 51-52-53-54-55-56 cm fitjið upp 46-45-44-41-38-34 nýjar l í lok næstu 2 umf = 160-163-167-169-173-177 l. Prjónið nú frá réttu - þannig: 5 l garðaprjón, 2-9-0-6-2-10 br, * A.1, 8-9-8-9-9-9 br * endurtakið frá *-* alls 13-11-14-12-13-12 sinnum, A.1, endið á 2-9-0-6-2-10 br og 5 l garðaprjón. Haldið áfram með þetta mynstur. Þegar stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm prjónið garðaprjón yfir miðju 28-29-31-33-35-37 l, hinar l eru prjónaðar áfram eins og áður. Þegar stykkið mælist 68-70-72-74-76-78 cm fellið af miðju 12-13-15-17-19-21 l fyrir hálsmáli. Fækkið nú um 1 l innan við 8 l garðaprjón í næstu umf við hálsmál = 73-74-75-75-76-77 l eftir á hvorri ermi/öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 70-72-74-76-78-80 cm.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 54-56-59-63-68-74 l (meðtalin 1 kantlykkja í hlið) á hringprjóna nr 4,5 með 1 þræði af hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið 1 umf br frá röngu. Prjónið nú næstu umf þannig: Prjónið 8 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 1 l sl, 3 l br, 1 l sl, 4-4-9-10-4-10 l br, * A.1 ( = 3 l), 8-9-8-9-9-9 l br * endurtakið frá *-* alls 2-2-2-2-3-3 sinnum, A.1, endið á 11-11-11-12-11-11 l br og 1 kantlykkju. Haldið áfram með þetta mynstur, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 5 cm er fækkað um 1 l 7 sinnum í hlið eins og á bakstykki = 47-49-52-56-61-67 l. Munið eftir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan! Þegar stykkið mælist 45-46-47-48-49-50 cm fellið af fyrir hálsmáli innan við 8 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 1 l sl, 3 l br, 1 l sl: Fækkið um 1 l með því að prjóna 2 l br saman með 1½ cm millibili alls 14-14-15-16-17-19 sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 51-52-53-54-55-56 cm eru fitjaðar upp 46-45-44-41-38-34 nýjar l fyrir ermi í lok næstu umf frá réttu.
Prjónið nú frá röngu – þannig: Prjónið 5 l garðaprjón, 2-9-0-6-2-10 l sl, * A.1, 8-9-8-9-9-9 l sl * endurtakið frá *-* alls 6-5-6-5-6-6 sinnum og haldið áfram með mynstur, úrtöku fyrir hálsmál og kant að framan eins og áður út umf.

Haldið áfram svona þar til úrtaka fyrir hálsmáli er lokið og stykkið mælist 70-72-74-76-78-80 cm. Nú eru 79-80-81-81-82-82 l eftir fyrir öxl/ermi og kant að framan. Í næstu umf frá röngu eru felldar af fyrstu 71-72-73-73-74-74 l = 8 l garðaprjón eftir fyrir kant að framan. Haldið síðan áfram í garðaprjóni fram og til baka yfir kant að framan þar til hann mælist ca 7-7-8-8-9-9 cm frá öxl. Fellið af.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema spegilmynd og án þess að fella af fyrir hnappagötum.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið erma- og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju. Saumið kant að framan saman við miðju að aftan og saumið saman við hálsmál. Saumið tölur í.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = þessi l er ekki til, hoppið yfir þessa rúðu
symbols = takið 1 l óprjónaða, 2 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 153-16

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (44)

country flag NZINA wrote:

Bonjour je suis vraiment désolée je vous ai donné des chiffres pour le devant droit. Pardon. Je tricote le modèle en plus grande taille qui est XXXL. Ma question se pose pour le demi devant droit. Merci.

04.08.2022 - 10:59

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Nzina, pas de souci, voici donc pour la taille XXXL: vous montez 74 mailles, diminuez 7 mailles sur le côté + 19 mailles pour l'encolure et montez 34 mailles pour la manche: 74-7-19+34= 82 mailles. Vous rabattez 74 mailles = il reste 8 mailles. Est-ce plus clair ainsi? Bon tricot!

04.08.2022 - 12:34

country flag NZINA wrote:

Bonjour je monte 74 m pour le dos. Je diminue 7 m de chaque côté = 74-14=60 m. Si 60 m/2 = 30 m pour chaque côté. Donc 30 m-19 = 11 m. Je monte 34 m pour la manche = 11 m + 34 m =45 m. Là on est loin des 82 m ( 82- 8 =74 m) c'est à dire 74 m pour l'épaule et la manche et 8 m de bordure encolure dos. Où se trouve l'erreur ? Merci pour votre réponse. Bonne journée.

03.08.2022 - 17:09

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Nzina, vous devez monter 82 mailles au minimum pour la 1ère taille pour commencer le dos - vous diminuez ensuite 7 m x 2 = 14 m au total => il reste 68 mailles, vous montez 2 x 46 mailles pour les manches soit: 68+46+46=160 mailles. Vous rabattez lez 12 m centrales = il reste 74 mailles pour chaque épaule/manche et vous diminuez 1 maille côté encolure = il reste 73 mailles pour l'épaule/manche. Tricotez-vous une autre taille? Je ne retrouve pas tous vos nombres dans le modèle.

03.08.2022 - 17:18

country flag NZINA wrote:

Bonjour le problème est que j'ai moins de mailles sur le dos après les diminutions. Dois-je diminuer une seule fois 1 maille à 8 mailles point mousse pour l'encolure dos ou bien 8 fois et de toutes les façons ça ne tombe pas juste. J'ai défait trois fois et recommencé et je bloque. J'ai besoin de votre aide. Merci

02.08.2022 - 12:39

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Nzina, pourquoi avez-vous moins de mailles? Avez-vous diminué trop de mailles? Vous commencez avec 82-87-93-101-111-123 m et diminuez 8 fois 1 m de chaque côté = soit 16 m au total - vous montez ensuite 46-45-44-41-38-34 m de chaque côté, rabattez les 12-13-15-17-19-21 m centrales pour l'encolure puis diminuez 1 m pour l'encolure, il doit vous rester 73-74-75-75-76-77 m pour chacune des épaules/manches du dos. Est-ce que ceci peut vous aider?

02.08.2022 - 13:17

country flag NZINA wrote:

Bonsoir après avoir effectué toutes les diminutions de dos et devant il me reste plus de mailles sur le devant. Je ne comprends pas. J'ai besoin de votre aide. Merci.

01.08.2022 - 19:27

DROPS Design answered:

Bonjour Nzina, vous montez 54-56-59-63-68-74 m et diminuez 7 mailles sur le côté, puis vous diminuez 14-14-15-16-17-19 m pour l'encolure et vous montez 46-45-44-41-38-34 m pour la manche, vous avez maintenant 79-80-81-81-82-82 m, rabattez les 71-72-73-73-74-74 m pour l'épaule/manche, il reste 8 m. En espérant que ce décompte puisse vous aider. Bon tricot!

02.08.2022 - 08:54

country flag Alena wrote:

Dobrý večer, paní Hano, děkuji Vám za vysvětlení a za video! je to opravdu snadné.\r\nS pozdravem a přáním pěkného večera, Alena.

18.04.2021 - 20:21

country flag Alena wrote:

Dobrý večer, mohla byste mi poradit, jak se pletou copánky na tomto modelu? Je tu popis jen vzoru A1... Děkuji Vám za pomoc, s pozdravem Alena.

16.04.2021 - 21:31

DROPS Design answered:

Dobrý den, Aleno! Copánky na tomto modelu jsou snadné, tzv. falešné a nepotřebují klasické křížení za pomoci copánkové jehlice - vytváří se jednoduchým nahazováním a přetahováním ok. Vzor A1 na ně tedy úplně stačí. Podívejte se na video-ukázku zde - je to opravdu hračka :-) Hodně zdaru! Hana

18.04.2021 - 11:48

country flag Natalia wrote:

Hallo, mir ist nicht ganz klar, ob das Diagramm nur Hinreihen zeigt oder sind die Reihen 2 und 4 (auf dem Diagramm) Rückreihen?

07.04.2020 - 22:40

DROPS Design answered:

Liebe Natalia, alle Reihen sind im Diagram gezeigt, dh die Hin- sowie die Rückreihen - mehr über Diagramme lesen Sie hier. Viel Spaß beim stricken!

09.04.2020 - 16:05

country flag Birgit wrote:

Die Abnahmen an den Seiten werden in einer Hinreihe - hier sind linke Maschen mit rechten Maschen gemacht?

30.12.2018 - 15:24

DROPS Design answered:

Liebe Birgit, unser DesignTeam wird das Abnahme-Tipp mal prüfen, ich würde also 2 M links zusammen stricken (= bei den Hinreihen). Viel Spaß beim stricken!

02.01.2019 - 10:55

country flag Jane wrote:

Is the back piece meant to be narrower than the front pieces? Even allowing for 8 stitches for the band, the front pieces together are made up of 46 + 46 = 92 (in the smallest size) but the back piece has only 82 stitches.

08.08.2015 - 14:36

DROPS Design answered:

Dear Jane, Yes, this jacket is meant to be loose. Happy knitting!

18.12.2015 - 12:02

country flag Iliane wrote:

Hallo, kann ich die Jacke auch mit 2 Fäden Alpaca stricken? Danke für die Antwort!

09.09.2014 - 17:48

DROPS Design answered:

Liebe Iliane, das geht leider nicht. Um die Stärke C zu erreichen bräuchten Sie 2 weitere Fäden Alpaca, also insgesamt 3 Fäden Alpaca (Garngruppe A + C).

09.09.2014 - 19:42